Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 963. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1538  —  963. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um ófeðruð börn.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörg börn, þ.e. 18 ára og yngri, eru ófeðruð hér á landi?
     2.      Fjölgaði ófeðruðum börnum hlutfallslega á árunum 1983–2003?
     3.      Njóta einstæðar mæður ófeðraðra barna meiri félagslegrar aðstoðar en aðrir einstæðir foreldrar?


    Um ákvörðun á faðerni barns fer eftir barnalögum. Efni 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar, um fjölda ófeðraðra barna hér á landi, fellur því ekki undir félagsmálaráðuneyti heldur dómsmálaráðuneyti og verður að vísa fyrirspurnum um það til þess ráðuneytis.
    Réttur einstæðra mæðra með ófeðruð börn til félagslegrar aðstoðar frá ríki og sveitarfélagi er sá sami og einstæðra mæðra þegar faðir barnanna er látinn.
    Tryggingastofnun ríkisins greiðir móður í þessari aðstöðu barnalífeyri samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, og mæðralaun samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 118/1993.
    Félagsþjónusta sveitarfélaga veitir einstaklingum, þar á meðal einstæðum mæðrum, fjárhagsaðstoð samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, (12. gr., sbr. 19.–22. gr. laganna) og reglum hvers sveitarfélags um fjárhagsaðstoð. Í þeim reglum er teflt saman tekjum einstaklings annars vegar og útgjöldum hins vegar og fjárþörf heimilisins reiknuð samkvæmt því. Við þann útreikning vegna umsóknar einstæðrar móður skiptir ekki máli af hvaða ástæðum móðir er einstæð, heldur er einungis litið til tekna og útgjaldaþarfa heimilisins.
    Einstæð móðir á, eins og aðrir sem á þurfa að halda, rétt á félagslegri ráðgjöf samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsleg ráðgjöf er víðtæk og tekur m.a. til ráðgjafar á sviði fjármála, húsnæðismála, uppeldismála o.fl. Jafnframt veitir félagsþjónustan aðstoð í húsnæðismálum.