Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 802. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1568  —  802. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Gunnars Birgissonar um refa- og minkaveiðar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hve miklu fé, á verðlagi mars 2004, hefur verið varið árlega á tímabilinu 1995–2004 til veiða á
                  a.      ref,
                  b.      mink?
     2.      Hvernig hefur stofnstærð refs og minks þróast á þessu tímabili?


    Heildarkostnaður ríkis og sveitarfélaga við veiðar á ref og mink frá 1995 til 2004 á verðlagi ársins 2004 eru um 765 millj. kr. og skiptist þannig að til refaveiða hafa farið um 460 millj. kr. og til veiða á mink rúmlega 300 millj. kr.
    Kostnaður við refaveiðar hefur árlega verið á bilinu 40 til 60 millj. kr., sbr. meðfylgjandi töflu. Árlegur kostnaður er breytilegur og fer eftir því hvað margir refir eru veiddir.
    Kostnaður við veiðar á mink hefur farið vaxandi á þessu tímabili og hefur vaxið úr rúmum 20 millj. kr. árið 1995 upp í um 45 millj. kr. á síðasta ári. Kostnaður milli ára er breytilegur og miðast við fjölda veiddra minka og að hluta til þann tíma sem fer í veiðarnar.

Kostnaður við veiðar, millj. kr.


Ár Refur Minkur Samtals
2003 56,5 45,2 101,7
2002 58,3 40,6 98,9
2001 57,0 41,0 98,0
2000 54,3 35,4 89,7
1999 57,3 31,2 88,5
1998 46,7 31,6 78,3
1997 40,9 30,0 70,9
1996 48,8 27,6 76,4
1995 40,2 22,2 62,4
Samtals 460,0 304,8 764,8

    Á þessu tímabili hefur áætluð stærð refastofnsins vaxið úr um það bil 3.000 refum upp í rúm 7.500 dýr haustið 2001. Þess verður að geta að meiri óvissa er í áætlaðri stofnstærð árið 2001 en árið 1995 sem orsakast af þeirri aðferðarfræði sem notuð er við mat á stærð stofnsins.

Refastofninn.


Ár

Áætluð stofnstærð

2001
7.600
2000 5.600
1999 4.800
1998 4.750
1997 4.000
1996 3.700
1995 3.000

    Upplýsingar um stærð minkastofnsins liggja ekki fyrir og ekki er mögulegt að gefa yfirlit yfir þróun stofnsins á þessu tímabili vegna skorts á upplýsingum. Í niðurstöðum nefndar um minkastofninn sem nýlega skilaði tillögum til umhverfisráðuneytisins um aðgerðir gegna stofninum er giskað á að stofninn sé allt að 35.000 dýr að hausti en jafnframt bent á að nefndar hafi verið hærri tölur.