Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 758. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1569  —  758. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um eftirlitsráðgjafa Umhverfisstofnunar.

     1.      Hver er að mati ráðherra reynslan af starfi eftirlitsráðgjafa Umhverfisstofnunar, áður Náttúruverndarráðs og Náttúruverndar ríkisins, vegna framkvæmda á svæðum úti um land?
    Reynslan af starfi eftirlitsráðgjafa er góð. Þeir hafa sinnt sínu starfi vel og haft góða þekkingu á náttúru landsins. Flestir hafa gegnt starfi eftirlitsráðgjafa í fjölda ára og eru komnir með mikla reynslu og þekkingu á hlutaðeigandi svæðum. Með þessu fyrirkomulagi hefur reynst kleift að samnýta sérfræðikunnáttu eftirlitsfulltrúanna og staðþekkingu. Samstarf eftirlitsráðgjafa við framkvæmdaraðila hefur oftast verið með ágætum, þó með örfáum undantekningum eins og kemur fyrir í mannlegum samskiptum.

     2.      Hvernig hefur verið háttað samstarfi Umhverfisstofnunar og eftirlitsráðgjafanna?
    Á síðasta ári ákvað Umhverfisstofnun að fyrirfram yrði ákveðið hvaða eftirliti ráðgjafarnir sinntu. Aðrar áherslubreytingar tengdust þeim skipulagsbreytingum sem urðu við stofnun Umhverfisstofnunar og samþættingar verkefna sem áður voru hjá Náttúruvernd ríkisins og Hollustuvernd ríkisins. Samskipti við Landsvirkjun vegna virkjanaframkvæmda á Austurlandi voru beint við stofnunina sökum umfangs og eðlis framkvæmdanna og óska framkvæmdaraðila. Einnig minnkuðu eftirlitsverkefni eftirlitsráðgjafa í þeim tilvikum sem hagkvæmara þótti að nýta aðra starfskrafta stofnunarinnar.

     3.      Er fyrirhuguð breyting á starfi og hlutverki eftirlitsráðgjafa Umhverfisstofnunar og ef svo er, í hverju er breytingin fólgin og hver eru markmið hennar?

    Með stærri stofnun, fleiri viðfangsefnum og fleiri starfsmönnum sem koma að eftirliti skapast meira svigrúm fyrir Umhverfisstofnun til að sinna sjálf eftirlitinu og gera það hagkvæmara. Stefnt verður að því að nýta sem best fastráðna starfsmenn Umhverfisstofnunar úti á landi. Nú hafa t.d. þjóðgarðarnir tvo fasta starfsmenn hver, í stað eins áður og því skapast svigrúm fyrir stofnunina til að láta fastráðna starfsmenn sinna eftirliti í meira mæli en áður. Vegagerðin hefur breytt skipulagi sínu og getur það kallað á breytingar á eftirlitssvæðunum. Miðað við núverandi uppbyggingu Umhverfisstofnunar verða þau svæði sem eftirlitsráðgjafar þjóna væntanlega færri þar sem stefnt er að því að nýta starfsstöðvar Umhverfisstofnunar á landsbyggðinni við eftirlitsverkefni. Þær eru nú á Akureyri og Egilsstöðum og í þjóðgörðunum í Skaftafelli, Jökulsárgljúfrum og á Snæfellsnesi.
    Ætlunin er að leggja meiri áherslu á að nýta staðkunnáttu eftirlitsráðgjafanna á hönnunar- og undirbúningsstigi framkvæmda þannig að bæði liggi fyrir skoðun starfmanna stofnunarinnar og eftirlitsráðgjafa þegar gerðar verða athugasemdir við útfærslu framkvæmda. Enn fremur er stefnt að auknu samstarfi við Vegagerðina í hverju umdæmi vegna vegaframkvæmda. Á grundvelli þess er ætlunin að meta hver eftirlitsþörfin er, hvernig eftirlitið þarf að fara fram og hvernig best sé að skipta því milli eftirlitsráðgjafa og Umhverfisstofnunar. Þessar hugmyndir eru í mótun og hafa ekki verið formlega kynntar.
    Eftirlitsráðgjafar starfa sem verktakar og eru þannig milliliður í samskiptum Umhverfisstofnunar og framkvæmdaraðila en það hefur í sumum tilfellum hægt á afgreiðslu mála. Úr því þarf að bæta.