Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 977. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1578  —  977. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um Fiskræktarsjóð.

Frá Össuri Skarphéðinssyni og Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hver hefur árlegur rekstrarkostnaður Fiskræktarsjóðs verið sl. fimm ár?
     2.      Hverjir voru helstu kostnaðarliðir í rekstri á þessum tíma og hvernig skiptast þeir?
     3.      Hverjir hafa skipað stjórn sjóðsins sl. fimm ár?
     4.      Hverjir hafa fengið styrki úr sjóðnum sl. fimm ár?
     5.      Hve hátt hlutfall styrkja fór til stofnana ríkisins eða verkefna sem þær tengdust og hve hátt hlutfall fór til annarra?
     6.      Hvernig er umsýslu sjóðsins háttað?
     7.      Hvernig ávaxtar sjóðurinn höfuðstól sinn?


Skriflegt svar óskast.