Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 839. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1583 — 839. mál.
samgönguráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um EES-reglur um bifreiðar.
1. Hvernig gengur að taka upp hér á landi reglur þær sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu um upphækkun og aðrar breytingar á jeppum, sendibílum og vörubílum?
Settar hafa verið samræmdar reglur um heildargerðarviðurkenningu bifreiða á markaði á Evrópska efnahagssvæðinu og hafa reglurnar verið innleiddar hér á landi. Hvert land getur þó sett eigin reglur um einstakar bifreiðar og breytingar á þeim ef þær falla undir heildargerðarviðurkenningu Evrópska efnahagssvæðisins. Ekki má fara með slíkar bifreiðar til annarra landa nema þær séu skoðaðar sérstaklega í viðkomandi landi.
2. Hvernig er eftirliti háttað með öryggi breyttra bifreiða?
Hér á landi skal samkvæmt gildandi reglum um gerð og búnað ökutækja færa bifreið sem breytt er til sérstakrar skoðunar í skoðunarstöð. Við skoðun er sannreynt að breytingar séu í samræmi við heimildir í reglugerð en einnig þarf að liggja fyrir að allir hlutir í stýrisbúnaði sem hefur veið breytt hafi verið athugaðir af Iðntæknistofnun, einkum með tilliti til styrkleika. Að öðru leyti gilda sömu reglur um reglubundna skoðun breyttra bifreiða og annarra bifreiða.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1583 — 839. mál.
Svar