Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 980. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1587 — 980. mál.
til viðskiptaráðherra um niðurstöðu Samkeppnisstofnunar í máli tryggingafélaganna.
1. Hver er afstaða ráðherra til þeirra ummæla forsvarsmanna Sjóvár – Almennra og Vátryggingafélags Íslands að hvorki hafi verið tilefni til umfangsmikillar rannsóknar Samkeppnisstofunar á meintu samráði tryggingafélaganna né að sekta þau og að ekki hafi verið um verðsamráð eða samstilltar aðgerðir tryggingafélaganna að ræða?
2. Er ástæða til að ætla að vegna fjárskorts Samkeppnisstofnunar og skorts á mannafla hafi tekið svo langan tíma að fá niðurstöðu í meint samráð tryggingafélaganna?
3. Telur ráðherra ástæðu til endurskoðunar á samkeppnislögum í ljósi þess að samkeppnisyfirvöld töldu ekki ástæðu til að beita fjársektum við brotum tryggingafélaganna vegna þess hve langan tíma rannsóknin tók?
4. Hvert er álit ráðherra á því að Samkeppnisstofnun geti ekki sinnt störfum sínum með eðlilegum hætti sökum fjárskorts og mun ráðherra beita sér fyrir auknum framlögum til stofnunarinnar á þessu eða næsta ári?
5. Hver var kostnaður Samkeppnisstofnunar við rannsóknina í heild og sundurliðað eftir árum?
6. Hver var aðkeyptur sérfræðikostnaður við rannsóknina í heild og sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1587 — 980. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um niðurstöðu Samkeppnisstofnunar í máli tryggingafélaganna.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.