Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 981. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1588  —  981. mál.




Skýrsla



forsætisráðherra um fátækt á Íslandi.

(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



    Félagsmálaráðherra óskaði eftir því í byrjun árs 2003 að stofnaður yrði starfshópur ráðuneyta til að skoða fátækt á Íslandi. Kanna átti sérstaklega skilgreiningar á fátækt, þá hópa sem fallið gætu undir skilgreiningarnar og benda á leiðir til úrbóta. Í starfshópinn voru skipuð þau Fjóla Agnarsdóttir, fjármálaráðuneyti, Gunnar Haraldsson, forsætisráðuneyti, Ingibjörg Broddadóttir, félagsmálaráðuneyti og Magnús Skúlason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Hópurinn hittist 17 sinnum á tímabilinu.
    Eftirfarandi skýrsla er afrakstur vinnu starfshópsins. Skýrslunni er skipt í þrjá hluta. Í þeim fyrsta er fjallað um skilgreiningar á fátækt. Í öðrum kafla skýrslunnar eru skoðaðir nánar þeir hópar sem falla kunna undir slíkar skilgreiningar og er umræðunni fyrst og fremst beint að öryrkjum, atvinnulausum og þeim sem fá fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum. Í þriðja kaflanum er fjallað um hvar skórinn kreppir helst og fjallað um nokkrar leiðir til úrbóta. Notast var við þau tölulegu gögn sem lágu fyrir í janúar 2004.

I. Skilgreiningar á fátækt

    Fátækt hefur aðallega verið skilgreind á þrjá vegu og endurspeglast í því hvernig fátækt er mæld. Í flestum vestrænum löndum hefur verið tekin upp hlutfallsleg (eða afstæð) aðferð við að mæla fátækt. Sú aðferð byggist á þeirri hugmynd að sá teljist fátækur sem ekki býr við þau lífskjör sem eru einkennandi fyrir það samfélag sem hann lifir í. Önnur aðferð er að skoða hve mikið fé einstaklingur eða fjölskylda þarf til þess að kaupa það sem nauðsynlegt telst til að lifa mannsæmandi lífi. Þriðja aðferðin byggist á huglægu mati fólks, þ.e. að láta fólk meta sjálft hvort það sé fátækt. Allar hafa þessar aðferðir og skilgreiningar kosti og galla sem hér verður fjallað nánar um.
    Miklu skiptir í allri þessari umræðu að skoða nánar hvernig sá hópur fólks, sem telst fátækur, er samsettur. Til hvaða úrræða skuli gripið ræðst að miklu leyti af þessari samsetningu, t.d. ef stór hluti hans er námsfólk, einstæðir foreldrar, atvinnulausir, o.s.frv.

Hlutfallsleg fátækt
    Hér á landi og víðast á Vesturlöndum hafa flestar rannsóknir, sem gerðar hafa verið á fátækt, byggt á því að skilgreina þá fátæka sem hafa samkvæmt ákveðnum skilgreiningum minna ráðstöfunarfé en gengur og gerist í þjóðfélaginu. Þennan mælikvarða má útfæra með ólíkum hætti. Annars vegar má miða við meðaltekjur sem eru einkennandi fyrir þjóðfélagið og hins vegar má miða við miðtekjur. Yfirleitt er svonefnd fátæktarlína dregin þannig að undir henni lenda þeir sem teljast hafa innan við helming af meðal- eða millitekjum, eftir því hvor viðmiðunin er notuð. Þá er ekki óalgengt að fátæktarlínan sé dregin ofan við aðra tíund tekjudreifingarinnar en sé sú skilgreining notuð eru 20% hverrar þjóðar ávallt undir fátæktarmörkum.
    Það að notast við hlutfallslega fátækt hefur þann kost að auðvelt er að bera saman aðstæður milli landa. Auk þess er hún ágætur mælikvarði á tekjudreifingu þó svo að tekjudreifing og fátækt þurfi ekki endilega að vera tengdar. Vel má hugsa sér samfélag þar sem tekjudreifing er ójöfn en þar sem þeir sem minnst bera úr býtum búa engu að síður við góðan efnahag.
    Helsti ókostur þessarar aðferðar er hins vegar sá að ekki er tekið tillit til aðstæðna og hvar fátæktarlínan er dregin styðst ekki við vísindaleg rök. Einnig skiptir litlu þótt tekjur allra í þjóðfélaginu hækki þá fækkar fátækum ekki. Eina leiðin til að koma í veg fyrir fátækt er því, samkvæmt þessari aðferð, að jafna tekjur allra. Þetta er afleiðing þess að í raun er það tekjujöfnunin ein en ekki tekjustigið sem skiptir máli í þessu samhengi.
    Í eftirfarandi töflum má sjá tekjudreifingu þjóðarinnar á verðlagi 2002, hjá einstaklingum, einstæðum foreldrum og fólki í hjúskap og sambúð. Þeim sem hafa tekjur er einfaldlega skipt niður í tíundir og eru þá jafnmargir í hverjum hóp, eða 10% í hverjum. Tölurnar í töflunni tákna meðaltekjur hvers hóps á ári. Í töflu 1 er litið til tekjudreifingar einstaklinga 20 ára og eldri. Yngra fólk en tvítugt er ekki tekið með í þessum útreikningum þar sem til þess hóps teljast námsmenn og aðrir þeir sem eru ekki komnir út á vinnumarkaðinn.

Tafla 1 Heildartekjur einstaklinga, 20 ára og eldri, meðaltal, þús.kr., á verðlagi 2002
Tekjuár I   II   III  IV  V   VI   VII  VIII  IX   X   Fj. í tíund
1995 101 254 400 581 792 994 1.262 1.598 2.070 3.395 7.800
1996 108 278 438 627 834 1.052 1.343 1.702 2.209 3.598 7.881
1997 104 292 466 667 875 1.114 1.426 1.814 2.355 3.874 8.088
1998 109 310 493 711 930 1.211 1.559 1.988 2.590 4.236 8.284
1999 137 378 594 820 1.065 1.377 1.745 2.196 2.825 4.647 8.043
2000 148 421 675 925 1.211 1.548 1.928 2.381 3.005 4.836 7.894
2001 167 460 729 1.006 1.339 1.703 2.095 2.554 3.202 5.073 7.624
2002 157 451 725 1.016 1.356 1.721 2.116 2.586 3.241 5.198 7.392

    Neðstu þrjár tekjutíundirnar samsvara mánaðartekjum sem eru lægri en lægstu umsamin laun og bætur. Því verður að ætla að í þeim hópum sé fólk sem hefur ekki stundað fulla vinnu allt árið, stundað nám eða verið í hlutastarfi o.þ.h. Með sama hætti kann að vera að í efstu tíundum sé fólk sem hefur haft tímabundið háar tekjur.
    Í töflu 2 er litið til heildartekna einstæðra foreldra eldri en 20 ára.

Tafla 2 Heildartekjur einstæðra foreldra, 20 ára og eldri, meðaltal, þús.kr., á verðlagi 2002
Tekjuár I   II   III  IV  V   VI   VII   VIII  IX   X   Fj. í tíund
1995 192 500 736 929 1.101 1.285 1.495 1.753 2.120 3.197 692
1996 198 513 755 944 1.125 1.321 1.556 1.826 2.243 3.392 705
1997 182 507 762 964 1.167 1.366 1.608 1.899 2.325 3.507 757
1998 186 533 798 1.016 1.245 1.475 1.752 2.098 2.581 3.942 776
1999 186 545 832 1.080 1.330 1.586 1.882 2.243 2.761 4.280 804
2000 181 549 848 1.131 1.407 1.694 2.003 2.359 2.873 4.470 840
2001 217 636 929 1.204 1.491 1.789 2.109 2.480 2.996 4.508 876
2002 224 658 965 1.240 1.515 1.824 2.134 2.519 3.073 4.679 899
    Eins og sjá má af þessum tölum ber að túlka þær varlega og ber að hafa sömu fyrirvara um neðstu tekjutíundirnar og hvað varðar töflu 1.
    Í töflu 3 er litið til tekjudreifingar hjóna og sambýlisfólks.

Tafla 3 Heildartekjur hjóna eða sambýlisfólks, 20 ára og eldri, meðaltal, þús.kr., á
verðlagi 2002

Tekjuár I II III IV V VI VII VIII IX X Fj. í tíund
1995 925 1.838 2.371 2.831 3.245 3.669 4.149 4.714 5.544 7.939 4.739
1996 952 1.899 2.492 2.994 3.438 3.892 4.406 5.007 5.880 8.347 4.800
1997 951 1.959 2.617 3.165 3.659 4.143 4.676 5.328 6.251 9.268 4.969
1998 975 2.088 2.853 3.459 3.996 4.537 5.133 5.863 6.933 10.273 4.933
1999 1.020 2.203 3.041 3.690 4.256 4.823 5.452 6.213 7.349 11.073 4.946
2000 1.065 2.279 3.163 3.843 4.430 5.013 5.647 6.414 7.558 11.326 5.044
2001 1.100 2.372 3.309 4.024 4.633 5.235 5.902 6.717 7.905 11.677 5.082
2002 1.088 2.383 3.322 4.038 4.658 5.282 5.974 6.827 8.046 11.897 5.136

    Sé litið til töflu 3 kemur í ljós að tekjumismunurinn milli þeirra sem eru í efstu tíundunum og þeirra sem eru í neðstu tíundunum hefur aukist nokkuð milli áranna 1995 og 2000, en hins vegar er ekki merkjanleg mikil breyting á misvægi milli annarra tíunda.

Altæk fátækt
    Það má ef til vill segja að altæka leiðin liggi beinast við enda hefur hún verið notuð í ýmsum löndum Evrópu og í Ameríku til að meta fátækt. Reynt er að meta hvað teljist til nauðsynja og hvað þær kosti. Þeir sem hafa lægri upphæð úr að spila en sem þessu nemur teljast fátækir. Þessi aðferð hefur þann kost að leitast er við að mæla fátækt en ekki aðeins dreifingu tekna og hún er að sumu leyti auðveld í framkvæmd. Hins vegar hefur hún þann galla að erfitt getur reynst að ákvarða hvað telst til lífsnauðsynja og hvað ekki. Slíkt mat er oft og tíðum mjög huglægt og getur auk þess verið ólíkt frá einum einstaklingi til annars. Annar augljós ókostur er að erfitt er að bera saman ástand í ólíkum löndum og á ólíkum svæðum.

Huglæg fátækt
    Sú aðferð að fara eftir því hvort fólki finnst það sjálft vera fátækt hefur þann kost að hún getur verið auðveld í framkvæmd auk þess sem fátækt getur að einhverju leyti tengst huglægu ástandi. Ókostirnir eru þeir að erfitt er að bera saman ástand í ólíkum löndum auk
þess sem oft og tíðum er frekar verið að mæla óánægju með kjör eða óhamingju frekar en efnislega fátækt.

Alþjóðlegur samanburður
    Alþjóðlegur samanburður er erfiður þrátt fyrir að sambærilegum aðferðum sé beitt. Eitt helsta vandamálið er að taka tillit til ólíkrar fjölskyldugerðar, svo sem fjölda fólks í heimili. Reynt hefur verið að taka tillit til slíkra þátta með því að útbúa jafngildismælikvarða. Yfirleitt er gert ráð fyrir því að eitthvert hagræði fylgi fjölgun heimilismanna. Dæmi um slíkan kvarða er sá sem notaður hefur verið af OECD

W = H/(1+0,7(Nf – 1)+ 0,5 Nb))



þar sem W er reiknuð fjárhagsleg velferð einstaklings, H samanlagðar tekjur heimilismanna,
Nf er fjöldi fullorðinna og Nb er fjöldi barna. Hér er gert ráð fyrir að sá fyrsti fullorðni hafi vægið 1 en þeir næstu fullorðnu vægið 0,7 en börn hafi hálft vægi. Sem dæmi má taka tvo einstaklinga. Annar heldur heimili með einum öðrum fullorðnum og tveimur börnum en hinn heldur heimili einn. Hafi sá sem heldur heimili einn 100.000 kr. ráðstöfunartekjur á mánuði þarf hinn, samkvæmt reglunni að hafa 270.000 kr. í ráðstöfunartekjur á mánuði til að hver og einn á því heimili sé jafnvel settur og sá sem heldur heimili einn. Sé ekki miðað við fyrrnefnt hagræði þyrfti fjögurra manna heimilið að hafa 400.000 kr. á mánuði í ráðstöfunartekjur til að jafna fjárhagslega velferð þess sem býr einn.
    Þetta dæmi er sett hér fram einungis í þeim tilgangi að sýna fram á erfiðleika við að bera saman einstaklinga sem búa við ólíka fjölskyldustærð og -gerð. Formúlur sem þessar eru yfirleitt mjög næmar fyrir breytingum á stikum (e. parameters). Ólík aldursdreifing getur einnig valdið því að samanburður milli landa verður ónákvæmur.
    Eitt er að bera saman fátækt milli landa en annað að bera saman þær aðgerðir sem ýmsar þjóðir hafa gripið til að jafna og bæta kjör hinna verst settu í þjóðfélögunum. Ísland hefur nokkra sérstöðu miðað við þau lönd sem við berum okkur alla jafna saman við. Atvinnuleysi hefur verið viðvarandi vandamál á Norðurlöndunum og mörgum öðrum Evrópulöndum. Hér á landi er atvinnuleysið hins vegar mun minna auk þess sem árstíðabundnar sveiflur í atvinnuleysi eru mun meiri. Þetta gerir það að verkum að fyrir suma hópa er fátækt ekki langvarandi vandamál heldur tímabundið.

II. Fátækt á Íslandi


    Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem hafa einna hæstu þjóðartekjur á mann. Við þetta bætist að sé litið til tekjuskiptingar miðað við önnur lönd er hún með því sem jafnasta sem þekkist. Aðrir velferðarmælikvarðar, svo sem útgjöld til heilbrigðismála sýna einnig að velferðarkerfið virðist með því besta sem þekkist. Engu að síður er ljóst að til eru þeir hópar sem eiga erfitt með að láta enda ná saman og lifa mannsæmandi lífi.
    Frá alda öðli hefur framfærsla fátækra verið á hendi hreppanna og seinna sveitarfélaganna. Sú regla er enn í gildi og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga byggist á lögum um félagsþjónustu
sveitarfélaga nr. 40/1991. Samkvæmt lögunum er markmið félagsþjónustu að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, m.a. með því að bæta lífskjör þeirra sem standa höllum fæti.
    Ýmis líknarfélög veita mat, húsaskjól og fjárhagsaðstoð. Ekki hefur farið fram rannsókn á umfangi þessarar aðstoðar.
    Matargjafir og hjálp þar sem gefinn er matur og föt þarf ekki að segja mikið um umfang fátæktar. Breytt viðhorf í þjóðfélaginu og breytt neyslumynstur getur haft þar áhrif.
    Í þessum kafla verður sjónum einkum beint að þeim hópum fólks sem leita aðstoðar sveitarfélaga, almannatrygginga og Atvinnuleysistryggingasjóðs Í töflu 4 má sjá hvað þeir hafa til ráðstöfunar sem fá greitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði, frá Tryggingastofnun ríkisins og þeir sem frá greiðslur frá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Önnur sveitarfélög hafa svipaðar viðmiðunarreglur og Reykjavík hvað varðar mat á fjárþörf. Allar fjárhæðir í töflunni miða við janúar 2004. Tekið skal fram að hér er verið að líta til ráðstöfunartekna, þ.e. þeirrar fjárhæðar sem eftir stendur þegar búið er að draga frá skatta og gjöld og bæta við barnabótum.

Tafla 4


Janúar 2004

Tryggingar-
stofnun

Atvinnuleysis-
tr. sjóður
Félags-
þjónustan
í Reykjavík
Tekjur
Einhleypur án barna 101.936 79.767 77.083
Einhleypur m. 1 barn 1 117.961 82.958 77.083
Einhleypur m. 2 börn 2 138.654 86.149 77.083
Hjón án barna 160.830 159.535 123.333
Hjón m. 1 barn 1 192.880 165.916 123.333
Hjón m. 2 börn 2 224.930 172.297 123.333
Ráðstöfunartekjur
Einhleypur án barna 90.105 74.529 74.840
Einhleypur m. 1 barn 140.374 111.885 110.491
    þ.a. barnabætur 18.399 19.449 19.626
    þ.a. meðlag 16.025 16.025 16.025
Einhleypur m. 2 börn 188.899 146.205 143.388
    þ.a. barnabætur 32.188 35.863 36.498
    þ.a. meðlag 32.050 32.050 32.050
Hjón án barna 153.773 149.058 123.333
Hjón m. 1 barn 197.545 164.942 136.540
    þ.a. barnabætur 12.082 12.121 13.207
Hjón m. 2 börn 237.598 178.916 148.647    
    þ.a. barnabætur 20.445 22.333 25.314
1) Barn undir 7 ára aldri. 2) 1 barn undir 7 ára og 1 barn eldri en 7 ára.

    Þó svo að margir eigi erfitt með að ná endum saman má nánast fullyrða að einungis þeir sem kröppust hafa kjörin leiti til sveitarfélaganna með fjárhagsaðstoð. Starfshópurinn komst fljótlega að þeirri niðurstöðu að til að fá sem gleggsta mynd af því hverjir glíma helst við fátækt á Íslandi væri fróðlegt að athuga þennan tiltekna hóp. Með því að skoða samsetningu hans og þróun síðustu ára má ætla að nokkuð skýr mynd fáist af kjörum þeirra sem höllustum fæti standa.
    Starfshópurinn leggur áherslu á að fleiri hópar fólks búa að öllum líkindum við fátækt svo sem foreldrar sem eru á vinnumarkaði en hafa lágar tekjur sem eru þó ofan við viðmiðunarmörkin sem sveitarfélögin setja sér við mat á fjárþörf. Í þessari skýrslu er hins vegar einungis fjallað um þennan skilgreinda hóp sem fær framangreindar greiðslur.

Hverjir hljóta fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna?
    Upplýsingar um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga á hverjum tíma geta gefið nokkra vísbendingu um fjárhagsaðstæður þeirra fjölskyldna sem búa við lökust kjörin. Þessar tölulegu upplýsingar eru hins vegar ekki fullnægjandi hvorki til að meta ástæður fátæktar né afleiðingar hennar. Ástæðurnar geta verið afar margvíslegar og sumar augljósar eins og lág laun, lágar bætur eða heilsubrestur, aðrar flóknari eins og samspil hinna ýmsu bóta og erfiðari við að eiga eins og misnotkun fíkniefna og skortur á ráðdeild. Afleiðingar fátæktar geta verið margþættar og haft til dæmis áhrif á uppeldisskilyrði barna, heilsu fólks og almenna þátttöku í samfélaginu.
    Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga til fjölskyldna
og einstaklinga sem ekki geta séð sér og sínum farborða. Sveitarfélögin setja sér reglur um þessa aðstoð og fjalla þær flestar annars vegar um rétt til lágmarksfjárhagsaðstoðar og er miðað við ákveðið lágmark og hins vegar um ýmsar heimildir til að veita aðstoð vegna sérstakra aðstæðna eða erfiðleika. Aðferðin við að reikna út fjárþörf er tiltölulega einföld, tekjur eru lagðar saman, þar með taldar almannatryggingar, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur o.s.frv., og þær dregnar frá ákveðnu lágmarksviðmiði. Sveitarfélagið greiðir síðan viðkomandi það sem upp á vantar.
    Sveitarfélögin nota tvenns konar reglur til að reikna út fjárhæð aðstoðarinnar en grunnforsendan, sem nefnd er hér að framan, gildir þó í báðum tilvikum, þ.e. ákveðið lágmarksviðmið sem talið er að hver fjölskylda þurfi til framfærslu. Allir sem náð hafa 18 ára aldri eru sjálfstæðir umsækjendur fjárhagsaðstoðar enda lýkur framfærsluskyldu foreldra við 18 ára aldur þó svo að hægt sé að sækja um menntunarframlag til meðlagsskylds foreldris til 20 ára aldurs ef ungmenni stundar nám. Meirihluti sveitarfélaganna tekur mið af fjölskyldustærðinni í heild, það er foreldrum/foreldri og börnum. Fjárþörf fjölskyldunnar er fundin með því að leggja saman allar tekjur og greiðslur, þar með taldar greiðslur vegna barna svo sem barnabætur og meðlög og þær dregnar frá viðmunarfjárhæðinni. Reykjavíkurborg og nokkur önnur sveitarfélög miða einungis við framfærsluþörf hinna fullorðnu í fjölskyldu en samhliða eru allar bætur og greiðslur vegna barna ekki taldar til tekna. Rétt er að taka fram að sveitarfélög veita ekki fjárhagsaðstoð vegna skulda.
    Stærsti hluti fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga rennur til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa tekjur undir þessum ákveðnu viðmiðum. Rétt er þó að nefna að einnig er veitt fjárhagsaðstoð vegna sérstakra fjárhagserfiðleika eða áfalla til að greiða fyrir ráðgjöf t.d. hjá félagsráðgjöfum og sálfræðingum og vegna tannlæknakostnaðar. Í Reykjavík nemur lágmarksviðmiðið 77 þús. kr. til einstaklinga og 123 þús. kr. til sambýlisfólks, miðað við janúar 2004. Þessi fjárhæð hjá öðrum sveitarfélögum er á milli 65 og 85 þúsund kr. á mánuði til einstaklinga og hækkar svo eftir stærð fjölskyldu. Fjárhæðin fyrir einstakling miðar víða við grunnbætur almannatrygginga (81.396 kr. á mánuði) eða atvinnuleysisbætur (fullar bætur eru 79.767 kr. á mánuði). Allar tekjur og aðrar greiðslur dragast frá þessum upphæðum eins og áður er sagt.
    Húsnæðiskostnaður, sem líklega er þyngsti einstaki útgjaldaliður heimilanna, er víðast ekki talinn með enda ekki reiknað með húsaleigubótum inni í tekjum þegar fjárþörf er metin. Fjölmennasti aldurshópurinn, sem fær fjárhagsaðstoð, er á aldrinum 25 til 39 ára.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Árið 1993 fengu alls 4.770 heimili fjárhagsaðstoð hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna, árið 1994 voru heimilin orðin 5.400 og náði hámarki árið 1995 þegar 6.016 heimili fengu aðstoð. Síðan fór heimilunum fækkandi og fengu 4.925 heimili fjárhagsaðstoð árið 2001. Ekki liggja fyrir nýrri heildartölur yfir allt landið en þessar tölur hafa hækkað milli áranna 2001 og 2002 hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.

Fjölskyldugerð þeirra sem fá fjárhagsaðstoð
    Á mynd 2 má sjá skiptingu þeirra sem hljóta fjárhagsaðstoð eftir fjölskyldugerð.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Fjölmennasti hópurinn, sem fær fjárhagsaðstoð, eru einstæðir, barnlausir karlar og hefur svo verið um alllangt skeið. Þetta hlutfall karla er enn hærra í Reykjavík þar sem þeir hafa verið um 40% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð. Sums staðar á landsbyggðinni og til dæmis í Kópavogi eru einstæðar mæður fjölmennasti hópurinn sem nýtur fjárhagsaðstoðar. Hafa ber í huga að bak við alla hópa nema einhleypa eru fleiri en einn fjölskyldumeðlimur og þessi mynd gefur ekki til kynna hversu há fjárhæð rennur til hvers hóps um sig.

Fjárhagsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar
    Á starfsárinu 2002 til 2003 voru afgreiddar 2.446 umsóknir um fjárhagsaðstoð. Fjöldi umsókna jókst um 31% milli áranna 2002 og 2003. Öryrkjar eru 54% þeirra sem leita eftir aðstoð hjá kirkjunni, aðrir hópar eru atvinnulausir sem eru 15% af hópnum og 13% þeirra sem sækja um aðstoð hafa lágar tekjur. Helstu ástæður beiðna um aðstoð eru miklar skuldir fólks, t.d. vegna húsnæðis og leikskólagjalda. Há húsaleiga er ein meginorsökin og „reynast leigugreiðslur erfiðar þeim sem njóta lægstra bóta, leigja jafnvel herbergi en þurfa samt að greiða um 40% af tekjum í leigu.“ Margir þurfa að leita aðstoðar í framhaldi af veikindum og lyfja- og lækniskostnaður reynist þeim ofviða. 1

Atvinnustaða þeirra sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda
    Þegar litið er til atvinnustöðu þeirra sem leita sér fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna sést að atvinnulausir fylla stærstan flokkinn hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Svo virðist sem fjöldi öryrkja, sjúklinga, nema og ellilífeyrisþega sé nokkuð stöðugur milli ára en fjöldi atvinnulausra fylgir að sjálfsögðu atvinnuleysinu.

Langtíma- eða skammtímavandi
    Sé litið til þess hve lengi fjárhagsaðstoð er veitt sést að flestir þiggja slíka aðstoð í nokkuð skamman tíma, þ.e. í 1–3 mánuði á ári. Það virðist benda til að í mörgum tilfellum sé um að ræða tímabundinn vanda þar sem fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hjálpar fólki til að brúa bilið yfir erfiðleikatímabil, svo sem vegna atvinnumissis eða veikinda.
    Á mynd 4 sést hver skiptingin hefur verið í Reykjavík. Um 10–15% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð eiga líklega við langtímavanda að stríða og þurfa að leita til Félagsþjónustunnar í 10–12 mánuði á ári. Á myndinni kemur ekki fram hve stór hluti leitar aðstoðar oftar en einu sinni.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Húsnæðismál og greiðsluvandi heimilanna
    Húsnæðiskostnaður vegur þungt í útgjöldum flestra heimila og ekki síst hjá þeim sem höllustum fæti standa. Sveitarfélögin bjóða flest upp á einhver úrræði í húsnæðismálum en svo virðist sem eftirspurninni eftir slíku húsnæði sé ekki nægjanlega sinnt. Stjórnvöld hafa komið til móts við efnaminni leigjendur íbúðarhúsnæðis þar sem húsaleigubætur eru nú tekjutengdar og ekki skattlagðar. Má nefna að margar fjölskyldur og einstaklingar lenda í fjárhagsvandræðum vegna húsnæðiskaupa, t.a.m. þegar fólk lækkar í launum eða missir vinnuna.
    Í úttekt sem Íbúðalánasjóður gerði fyrir starfshópinn á þróun greiðsluerfiðleika kemur fram að ekki sé beint orsakasamhengi á milli fjölda greiðsluerfiðleikamála og fátæktar á Íslandi. Rökin, sem nefnd eru fyrir því, eru þau að það sé ekki síður fólk með millitekjur sem hefur orðið fyrir tekjulækkun sem sækir um greiðsluerfiðleikaaðstoð. Æ fleiri leita sér þó aðstoðar en á sama tíma er hlutfall þeirra lána sem eru í vanskilum í sögulegu lágmarki á árunum 2001 og 2002. Það má því ætla að færri séu í vanskilum en oftast áður en fleiri leiti aðstoðar. Þetta mætti ef til vill túlka sem svo að fólk sé ábyrgara en oft áður í fjármálum sínum.
    Húsaleiga á almennum markaði er hátt hlutfall þeirra greiðslna sem fólk fær frá Atvinnuleysistryggingasjóði, Tryggingastofnun ríkisins og sveitarfélögum. Meðalleigufjárhæð á almennum vinnumarkaði í Reykjavík á árinu 2002 nam 52.081 kr. á mánuði en leiga hjá Félagsbústöðum nam 31.476 kr. Þessar fjárhæðir eru fengnar frá þeim sem fá greiddar húsaleigubætur. Hjá þeim sem hafa lægsta ráðstöfunarféð, sbr. töflu 4 hér að framan, kann húsaleiga að reynast mörgum ofviða.

Atvinnulausir
    Stærsti hópur þeirra, sem leitar fjárhagsaðstoðar hjá sveitarfélögunum, eru atvinnulausir. Það er því ljóst að ástand á vinnumarkaði hefur mikið að segja varðandi aðstöðu þessa hóps þrátt fyrir að bætt atvinnuástand bæti ekki vanda allra.
    Atvinnuleysi hér á landi hefur verið mun minna en gengur og gerist í flestum nágrannalöndum okkar. Annað einkenni atvinnuleysis hér á landi er að í flestum tilvikum er um að ræða tímabundið atvinnuleysi og skýrist það að hluta til af miklum árstíðarsveiflum í framboði atvinnutækifæra.
    Engin merki virðast vera um að þetta sé að breytast að nokkru marki. Þá er athyglisvert
að hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir lengur en í 6 mánuði hefur lækkað á undanförnum
árum. Árið 1995 var þetta hlutfall 28,4% en árið 2002 var það 19,4%.
    Fullar atvinnuleysisbætur nema nú 79.767 kr. ef miðað er við 21,67 virkan dag í mánuði
(3.681 kr. á dag). Með hverju barni eru greiddar 147 kr. á dag eða 3.185 kr. á mánuði. Frá
þessum fjárhæðum dregst 4% lífeyrisjóðsgjald og nema bæturnar þá 76.577 kr. á mánuði og 3.058 kr. með hverju barni. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að atvinnuleysisbætur hér á landi eru ekki miðaðar við að vera varanlegt úrræði gegn atvinnuleysi. Atvinnuleysisbætur hafa frekar verið hugsaðar til að brúa bil sem myndast þegar fólk missir vinnuna og er að leita sér að annarri vinnu. Hér á landi hefur jafnan verið mun minna atvinnuleysi en í nágrannalöndunum. Þar sem yfirleitt hefur verið sæmilegt framboð atvinnutækifæra hefur þessi háttur verið hafður á. Stefna stjórnvalda hefur frekar miðað að því að tryggja næga atvinnu en að leysa vanda atvinnulausra með greiðslu atvinnuleysisbóta. Þannig má segja að hvati hafi verið í kerfinu til atvinnuleitar. Vanda þeirra sem af ýmsum sökum, félagslegum eða heilsufarslegum, eiga óhægt um vik að finna sér atvinnu við hæfi hefur verið reynt að leysa með öðrum hætti, t.d. í gegnum tryggingakerfið.
    Á mynd 5 má sjá útgjöld til fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna annars vegar og tölur um heildar atvinnuleysi hins vegar. Á henni má sjá töluverða fylgni milli atvinnuleysis og ásóknar í félagslega aðstoð.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Öryrkjar
    Næststærsti hópurinn, sem leitar sér fjárhagsaðstoðar hjá félagsþjónustu sveitarfélaga, eru öryrkjar. Örorkulífeyrisþegum hefur fjölgað mjög á síðasta áratug en árið 1991 voru þeir 5.056 en árið 2001 voru þeir 9.780. Örorkulífeyrisþegar eru þeir sem metnir eru með meira en 75% örorku en það er hámarksörorka. Þeir fá örorkulífeyri og tekjutryggingu sem er tekjutengd. Á sama tíma hefur örorkustyrkþegum fækkað mikið en þeir hafa 50 – 65% örorkumat. Þeir voru 1.670 árið 1991 en 893 árið 2001.
    Ein skýring á þessari miklu fjölgun öryrkja er sú að örorkumat breyttist 1. September 1999 þannig að einungis læknisfræðilegt mat er lagt til grundvallar örorku. Fram að þeim tíma gat það haft áhrif á örorkumat ef einstaklingur var í vinnu og hafði tekjur, þá var hann ekki metinn öryrki. Nú er ekki tekið tillit til þess heldur eingöngu til heilsufarslegs ástands.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Hinn 1. janúar 2003 tóku gildi lög um breytingu á almannatryggingalögum sem fela í sér lækkun á skerðingarhlutfalli tekjutryggingarauka lífeyrisþega.
    Skerðingarhlutfallið lækkaði úr 67% í 45% og nær þessi breyting bæði til aldraðra og öryrkja. Þá var tekjutrygging og tekjutryggingaauki hækkuð með samþykkt reglugerðar nr. 823/2002 um 1.600 m.kr. og á árinu 2004 um 1.090 m.kr.
    Fullar bætur einstaklings, sem býr einn, eru nú 101.936 kr. á mánuði. Einstaklingur með eitt barn fær 117.961 kr. og einstaklingur með tvö börn fær 138.654 kr. Fullar bætur hjóna, sem bæði eru öryrkjar en án barna, eru 160.830 kr. Hjón með eitt barn fá 192.880 kr. og hjón með tvö börn 224.930 kr.
    Með samkomulagi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Öryrkjabandalags Íslands frá 25. mars sl. hækkar grunnlífeyrir öryrkja frá 1. janúar 2004. Er með samkomulaginu komið sérstaklega til móts við þá sem verða öryrkjar á unga aldri en gert er ráð fyrir allt að tvöfaldri hækkun grunnlífeyris til þeirra sem yngstir verða öryrkjar. Grunnlífeyrir er nú 21.249 kr. sem getur þá hækkað í 42.498 kr. fyrir yngstu öryrkja. Kostnaður vegna þessa samkomulags er áætlaður um 1.000 m.kr. á ári. Í viðauka er tafla yfir upphæðir aldurstengdra örorkuuppbóta frá 1. janúar 2004.

Barnabætur
    Barnabætur á Íslandi eru tvíþættar. Annars vegar tekjutengdar barnabætur sem eru háðar fjölda barna og hjúskaparstöðu og hins vegar ótekjutengdar barnabætur. Ótekjutengdar barnabætur eru greiddar með börnum yngri en 7 ára. Með tekjutengingu barnabóta er verið að færa barnabætur til tekjulægri fjölskyldna í stað þess að þær séu almennar tilfærslur til allra barnafjölskyldna.
    Töluverðar breytingar hafa orðið á barnabótakerfinu á undanförnum árum. Barnabætur voru að fullu tekjutengdar frá árinu 1997. Á árinu 2000 voru aftur gerðar breytingar á barnabótakerfinu. Helstu breytingar voru að eignaskerðing barnabóta var felld niður og skerðingarhlutfall tekna lækkaði um 2% á tveimur árum. Ótekjutengdar barnabætur voru teknar upp fyrir börn yngri en 7 ára. Samanlagt nam áætlaður kostnaðarauki ríkissjóðs vegna þessara breytinga um 2 milljörðum króna.

Kjör einstæðra foreldra
    Tæplega 22% barna á Íslandi (0–17 ára) búa hjá einum fullorðnum. Talsverður munur er á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu hvað þetta varðar. Þannig búa 25% barna á höfuðborgarsvæðinu hjá einum fullorðnum en hlutfallið er 29% í Reykjavík. Þetta eru alls 11.235 börn og búa 93% þeirra hjá mæðrum sínum. Börnum einstæðra foreldra fjölgar jafnt og þétt, þau voru 16% allra barna árið 1995 og 20% árið 1999. Ein meginniðurstaða rannsóknar á högum barnafjölskyldna, sem gerð var árið 1994, var sú að einstæðir foreldrar búa um margt við lakari aðstæður en giftir og skapar það börnum í þeim fjölskyldum mun óhagstæðari stöðu. 2 Skýrsla félagsmálaráðherra um kjör einstæðra foreldra, sem lögð var fyrir Alþingi 1999–2000, benti til svipaðrar niðurstöðu. Þar kom m.a. fram að 58% einstæðra foreldra ættu fasteign meðan 90% hjóna og sambúðarfólks með börn ættu fasteign í árslok 1997. Þá er rétt að benda á að húsnæðiskostnaður einstæðra foreldra er hlutfallslega mikill þar sem þeir eru að greiða fyrir húsnæði með einum tekjum ásamt greiðslum með börnum en húsnæðisþörfin er svipuð og hjá hjónum og sambýlisfólki svo og greiðslubyrðin.

III. Leiðir til úrbóta


Barnafólk
    Af þeim sem leita sér aðstoðar hjá félagsþjónustu sveitarfélaga er barnafólk, ekki síst einstæðar konur með börn, nokkuð stór hópur. Fátækt kemur ekki síður niður á börnum en foreldrum og er líklegt að börn fátækra foreldra hafi færri tækifæri en önnur t.d. til þátttöku í íþróttum, tónlistarnámi og ýmsu öðru sem telst eðlilegur hluti af leik og starfi barna í nútímasamfélagi og getur verið kostnaðarsamt.
    Af þessum sökum hefur stundum verið nefnt að breytingar á barnabótakerfinu gætu verið æskilegar til að koma fátækum barnafjölskyldum til hjálpar. Í því skyni taldi starfshópurinn forvitnilegt að skoða nánar hvernig barnabætur koma fátækari fjölskyldum til góða og hvort fýsilegt væri að breyta því á einhvern hátt. Nánar tiltekið var athugað hvaða áhrif það hefði að hækka skerðingarmörk barnabótanna en komið hefur fram í umræðunni að skerðingarmörk barnabóta séu of lág og komi því illa við þá fátækustu. Í viðauka eru tvær töflur þar sem sýnd eru áhrif hækkunar á skerðingarmörk tekna. Hækkunin hefur ekki mikil áhrif á ráðstöfunartekjur tekjulægstu hópanna. Hafa verður í huga að slíkar aðgerðir hafa áhrif á fleiri en þá tekjulægstu og þar með meiri kostnað í för með sér sem kemur ekki fátækum barnafjölskyldum sérstaklega til góða.

Skattar
    Almennt virðist ljóst að breytingar á skattkerfinu séu ekki vænlegar til að breyta kjörum þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Kostnaðurinn er mikill fyrir ríkissjóð en lítill ábati fyrir hvern og einn, auk þess sem flestar breytingar koma öðrum en þeim fátæku mest til góða.

Lægstu launin
    Þegar horft er til launamanna er ljóst að þeir hafa kröppust kjörin sem lægst hafa launin. Meginhlutverk stjórnvalda í þessu efni er að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi kaupmáttaraukningu lægstu launa í þjóðfélaginu.

Atvinnumál

    Hafa verður í huga að umbætur í atvinnumálum og hagvexti eru viðfangsefni sem stjórnvöld eru stöðugt að vinna að. Svo virðist sem farsælasta leiðin til að bæta hag þeirra verst settu sé að tryggja lausn vanda þeirra sem glíma tímabundið við fátækt vegna atvinnuleysis með nægu starfsframboði. Hvað varðar þá sem fylla þennan hóp til lengri tíma þarf líklega að leita annarra úrræða.

Barnabætur
    Starfshópurinn leggur til að kannaður verði möguleiki á að endurskoða barnabótakerfið með það fyrir augum að styðja betur við fátækar barnafjölskyldur. Hér þarf þó að huga að jaðaráhrifum slíkra breytinga. Eins og áður er fram komið hefur úttekt starfshópsins á barnabótakerfinu með þeim hætti að hækka skerðingamörkin ekki sýnst fýsileg leið til bæta kjör þeirra, sbr. töflur í viðauka. Það mætti hins vegar taka heildarkerfið til athugunar og athuga hvort annars konar barnabætur – annað kerfi – geti komið þessum hópi til góða.

Mál sem snúa að sveitarfélögum
    Eins og fram kemur í þessari skýrslu er félagslega kerfið á Íslandi þannig uppbyggt að hin raunverulega neyðarhjálp fyrir fátæka er á hendi sveitarfélaganna. Sveitarfélögin gætu gert ýmislegt annað til að létta undir með fátækum og þá sérstaklega efnalitlum barnafjölskyldum. Má í því sambandi nefna tvennt. Í fyrsta lagi mætti tekjutengja leikskólagjöld og létta þannig undir með fátæku barnafólki en leikskólagjöld eru veigamikill þáttur í útgjöldum slíkra heimila. Þannig er foreldrunum einnig gefinn aukinn kostur á því að stunda hvort sem er nám eða vinnu. Gjöld vegna hinnar svokölluðu skóladagvistar eru tekjutengd að einhverju marki hjá a.m.k. hluta sveitarfélaganna. Í öðru lagi má nefna að íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga hefur eflst mjög á síðastliðnum áratugum. Slík þróun er mjög jákvæð en kostnaður heimilanna hefur vaxið að sama skapi. Miklu skiptir að börn frá efnaminni heimilum fái tækifæri til að taka virkan þátt í slíku starfi. Sveitarfélög gætu komið að niðurgreiðslu slíkra gjalda hvort sem er beint eða með samningum við íþróttafélög og aðra sem vinna uppbyggilegt starf með börnum.
    Mikilvægt er, þrátt fyrir það sem að framan er sagt, að gæta þess að það barnastarf, sem fram fer á vegum sveitarfélaganna, sé foreldrum ekki of kostnaðarsamt en t.d. grunnskólinn hefur alla tíð verið ókeypis. Leikskólinn er nú talinn fyrsta skólastigið og er ekki óeðlilegt að hugsa sér að þátttaka í því skólastigi sé ókeypis en greitt verði fyrir fæði og annað sem ekki tengist beint námi og leik. Ljóst er, að slíkar aðgerðir auka útgjöld sveitarfélaga og þarf því að standa undir þeirri útgjaldaaukningu með tekjuöflun eða samdrætti í annarri þjónustu.

Lokaorð
    Í þessari skýrslu hefur verið einblínt á þá hópa sem oftast eru nefndir í umræðu um fátækt hér á landi og leita helst til þeirra aðila sem veita fjárhagsaðstoð. Eins og skýrt kemur fram hefur fjárhagsaðstoð hér á landi löngum verið á höndum sveitarfélaga og því eðlilegt að stór hluti skýrslunnar beinist að þeirri samhjálp sem sveitarfélögin veita. Hlutverk ríkisins hefur frekar snúið að almennum umbótum svo sem að viðhalda atvinnu í landinu, kaupmætti launa og bótakerfi almannatrygginga.
    Umræða um fátækt á Íslandi hefur ávallt valdið nokkrum deilum og sýnist sitt hverjum um ástandið á hverjum tíma. Í því sambandi skiptir miklu að ávallt liggi fyrir upplýsingar um raunverulega stöðu þeirra sem við kröppust kjör búa.


Rit sem stuðst var við

Félagsþjónustan í Reykjavík, 2002.
Hjálparstarf Kirkjunnar, Starfsskýrsla 2002–2003.
Sigrún Júlíusdóttir, Friðrik H. Jónsson, Nanna K. Sigurðardóttir og Sigurður J. Grétarsson.
    Barnafjölskyldur, samfélag – lífsgildi – mótun, Félagsmálaráðuneytið, 1995.
Staðtölur almannatrygginga, 2001.

Viðauki
Barnabætur
    Skerðingarmörk tekna fyrir einstætt foreldri fyrir tekjuárið 2002 eru 704.459 kr. og hjón eða sambýlisfólk 1.408.916 kr. Meðfylgjandi töflur sýna áhrif breytinga við hækkun á skerðingarmörkum tekna.

Einstæðir foreldrar
    Áætlaður kostnaðarauki ríkissjóðs vegna hækkunar skerðingarmarka tekna í 800.000 krónur nemur um 170 milljónir króna, vegna hækkunar í 900.000 krónur um 400 milljónir króna og hækkun í 1.000.000 krónur um 630 milljónir króna.
    Tafla V-1 sýnir tekjutengdar barnabætur fyrir einstæða foreldra og er miðað við álagningu 2003. Fyrstu tveir dálkarnir sýna barnabætur miðað við ákveðnar tekjur. Hinir dálkarnir sýna viðbót við barnabæturnar miðað við hækkun skerðingarmarka. Um er að ræða árlegar barnabætur.

Tafla V-1. Tekjutengdar barnabætur einstæðra foreldra.

Hækkun skerðingarmarka
Í kr. 800.000 900.000 1.000.000
Tekjur     Einstæðir foreldrar með eitt barn
840.000 196.216 2.866 1.200 0
960.000 192.616 2.866 3.000 1.800
1.080.000 189.016 2.866 3.000 3.000
1.200.000 185.416 2.866 3.000 3.000
    Einstæðir foreldrar með tvö börn
840.000 396.242 6.688 2.800 0
960.000 387.842 6.688 7.000 4.200
1.080.000 379.442 6.688 7.000 7.000
1.200.000 371.042 6.688 7.000 7.000
    Einstæðir foreldrar með þrjú börn
840.000 598.979 8.599 3.600 0
960.000 588.179 8.599 9.000 5.400
1.080.000 577.379 8.599 9.000 9.000
1.200.000 566.579 8.599 9.000 9.000
    Einstæðir foreldrar með fjögur börn
840.000 804.427 8.599 3.600 0
960.000 793.627 8.599 9.000 5.400
1.080.000 782.827 8.599 9.000 9.000
1.200.000 772.027 8.599 9.000 9.000


Hjón eða sambýlisfólk
    Tafla V-2 sýnir sams konar útreikning fyrir hjón eða sambýlisfólk.

Tafla V-2. Tekjutengdar barnabætur hjóna eða sambýlisfólks.


Hækkun skerðingarmarka
Í kr. 1.600.000 1.800.000 2.000.000
Tekjur     Hjón með eitt barn    
840.000 112.115 5.733 2.400 0
960.000 104.915 5.733 6.000 3.600
1.080.000 97.715 5.733 6.000 6.000
1.200.000 90.515 5.733 6.000 6.000
    Hjón með tvö börn
840.000 244.407 13.376 5.600 0
960.000 227.607 13.376 14.000 8.400
1.080.000 210.807 13.376 14.000 14.000
1.200.000 194.007 13.376 14.000 14.000
    Hjón með þrjú börn
840.000 382.120 17.198 7.200 0
960.000 360.520 17.198 18.000 10.800
1.080.000 338.920 17.198 18.000 18.000
1.200.000 317.320 17.198 18.000 18.000
    Hjón með fjögur börn
840.000 525.255 17.198 7.200 0
960.000 503.655 17.198 18.000 10.800
1.080.000 482.055 17.198 18.000 18.000
1.200.000 460.455 17.198 18.000 18.000

Töflur V-3 og V-4 sýna yfirlit yfir þróun barnabóta frá 1988 á verðlagi 2003.


Tafla V-3. Þróun barnabóta frá 1988 – einstætt foreldri

Þróun barnabóta frá 19881 - einstætt foreldri


Á verðlagi 2003 Skerðing af tekjuskattsstofni
Tekju-
ár
Fyrsta
barn
Umfram
eitt barn
Börn
< 7 ára
Barnabóta-
auki
Skerðingar-
mörk tekna
Skerðingar-
mörk eigna
Fyrsta
barn
Annað
barn
Þriðja
barn
Hvert barn
    umfr. þrjú
1988 140.453 140.453 46.817 121.019 1.193.868 9.279.611 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1989 135.504 135.504 45.167 113.773 1.098.523 8.816.857 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1990 129.204 129.204 43.067 107.175 1.047.459 8.586.428 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1991 97.673 103.851 42.330 130.946 1.069.511 8.547.324 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1992 94.938 100.940 41.148 138.578 776.211 8.519.942 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1993 91.846 97.654 39.809 133.306 755.263 8.290.015 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1994 92.637 98.490 40.147 134.645 760.646 8.349.086 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1995 91.272 97.040 39.558 132.390 747.910 8.209.292 6,0% 11,0% 15,0% 0,0%
1996 89.262 94.903 38.687 129.475 731.439 8.028.511 6,0% 11,0% 15,0% 0,0%
1997 214.854 220.395 38.001 - 718.458 7.886.020 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
1998 216.621 222.207 38.313 - 724.366 7.950.875 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
1999 214.659 220.195 37.965 - 717.805 7.878.852 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
2000 215.812 221.379 38.169 - 735.677 - 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
2001 208.367 213.742 36.852 - 724.091 - 4,0% 8,0% 10,0% 0,0%
2002 204.288 209.557 36.130 - 718.548 - 3,0% 7,0% 9,0% 0,0%
2003 205.288 210.584 36.308 - 722.070 - 3,0% 7,0% 9,0% 0,0%
1) Fram að árinu 1997 voru barnabætur að frádregnum barnabótaauka ótekjutengdar. Frá og með 2001 eru barnabætur fyrir börn yngri en 7 ára ótekjutengdar.


Tafla V-4. Þróun barnabóta frá 1988 - hjón eða sambýlisfólk

Þróun barnabóta frá 19881 - hjón


Á verðlagi 2003 Skerðing af tekjuskattstofni
Tekju-
ár
Fyrsta
barn
Umfram
eitt barn
Börn
< 7 ára
Barnabóta-
auki
Skerðingar-
mörk tekna
Skerðingar-
mörk eigna
Fyrsta
barn
Annað
barn
Þriðja
barn
Hvert barn
umfr. þrjú
1988 46.817 70.228 46.817 121.019 1.790.802 12.372.815 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1989 45.167 67.752 45.167 113.773 1.648.681 11.755.810 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1990 43.067 64.603 43.067 107.175 1.572.043 11.448.570 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1991 13.008 40.352 42.330 130.946 1.604.267 11.396.432 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1992 12.643 39.223 41.148 127.838 1.552.422 11.358.981 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1993 12.232 37.947 39.809 122.976 1.510.528 11.052.437 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1994 12.335 38.275 40.147 124.211 1.521.291 11.131.190 7,0% 6,0% 5,0% 4,0%
1995 12.155 37.713 39.558 122.131 1.495.819 10.944.814 6,0% 11,0% 15,0% 0,0%
1996 11.887 36.882 38.687 119.441 1.462.879 10.703.793 6,0% 11,0% 15,0% 0,0%
1997 128.998 153.549 38.001 - 1.436.916 10.513.820 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
1998 130.059 154.812 38.313 - 1.448.733 10.600.289 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
1999 128.881 153.410 37.965 - 1.435.609 10.504.266 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
2000 129.574 154.235 38.169 - 1.471.352 - 5,0% 9,0% 11,0% 0,0%
2001 125.104 148.914 36.852 - 1.448.180 - 4,0% 8,0% 10,0% 0,0%
2002 122.653 145.998 36.130 - 1.437.094 - 3,0% 7,0% 9,0% 0,0%
2003 123.254 146.713 36.308 - 1.444.139 - 3,0% 7,0% 9,0% 0,0%
1) Fram að árinu 1997 voru barnabætur að frádregnum barnabótaauka ótekjutengdar. Frá og með 2001 eru barnabætur fyrir börn yngri en 7 ára ótekjutengdar.



Öryrkjar

Tafla V-5

Aldurstengdar örorkuuppbætur frá 1. jan. 2004:
Upph. í kr.
18 og 19 ára 100% 21.249
20 og 21 árs 95% 20.187
22 og 23 ára 90% 19.124
24 og 25 ára 85% 18.062
26 og 27 ára 80% 16.999
28 og 29 ára 70% 14.874
30 og 31 árs 60% 12.749
32 og 33 ára 50% 10.625
34 og 35 ára 40% 8.500
36 og 37 ára 30% 6.375
38 og 39 ára 20% 4.250
40 til og með 43 ára 10% 2.125
44 til og með 48 ára 5% 1.062
49 til og með 59 ára 2,25% 531
60 til og með 66 ára 1,50% 319

Neðanmálsgrein: 1
1 Hjálparstarf kirkjunnar. Starfsskýrsla 2002–2003.
Neðanmálsgrein: 2
2 Sigrún Júlíusdóttir et al. 1995.