Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 931. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1595  —  931. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Láru Stefánsdóttur um virðisaukaskattsskyldu kennslu á námskeiðum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hver er munurinn á virðisaukaskattsskyldu kennslu á námskeiðum annars vegar þar sem kennari er viðstaddur og hins vegar á námskeiðum á netinu þar sem nemendur stunda sjálfsnám án kennara?

    Skattskyldusvið virðisaukaskatts er skilgreint mjög víðtækt í 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Nær skattskyldan til allra vara og verðmæta, nýrra og notaðra, og til allrar vinnu og þjónustu sem ekki er sérstaklega undanþegin í 3. mgr. lagagreinarinnar. Skylda til að innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð hvílir á hverjum þeim sem í atvinnuskyni eða með sjálfstæðri starfsemi sinni selur eða afhendir vöru eða verðmæti ellegar innir af hendi skattskylda vinnu eða þjónustu, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 3. gr. laganna.
    Samkvæmt 3. tölul. 3. mgr. 2. gr. laganna er rekstur skóla og menntastofnana, svo og öku-, flug- og danskennsla, undanþeginn virðisaukaskatti. Við túlkun þess hvað telst til undanþeginnar kennslu- og menntastarfsemi í skilningi ákvæðisins er fyrst og fremst litið til þess hvort námsgrein hafi unnið sér fastan og almennan sess í skólakerfinu. Þá hefur einnig verið miðað við að nám sem felur í sér faglega mennun eða endurmenntun sé undanþegið virðisaukaskatti, en með faglegri menntun eða endurmenntun er átt við kennslustarfsemi sem miðar að því að viðhalda eða auka þekkingu nemenda eingöngu vegna atvinnu þeirra, jafnvel þótt námsgreinin hafi ekki unnið sér fastan og almennan sess í skólakerfinu. Í öðrum tilvikum er starfsemi sem ekki hefur unnið sér fastan og almennan sess í skólakerfinu skattskyld, svo sem námskeið sem í eðli sínu eru tómstundafræðsla. Öku-, flug- og danskennsla er þó sérstaklega undanþegin. Þá ber að geta þess að fræðsla og kynning sem felur í sér auglýsingar eða ráðgjöf er ávallt skattskyld.
    Það er mat ríkisskattstjóra að fjarkennsla á internetinu, sem felst í stöðugum samskiptum nemenda og kennara, eins eða fleiri, sem fylgjast með framvindu námsins hjá hverjum nemanda, sé undanþegin virðisaukaskatti skv. 3. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt, að því leyti sem kennslan er á sviði sem ákvæðið tekur til, sbr. framansagt. Þegar hins vegar um er að ræða sölu á námskeiðum/kennslu á gagnvirkum vef, á þann veg að engin samskipti eiga sér stað á milli kennara og nemanda, er það álit ráðuneytisins og ríkisskattstjóra að ekkert undanþáguákvæði 3. mgr. 2. gr. laganna taki til þeirrar þjónustu og því beri að innheimta virðisaukaskatt. Slík sala fellur undir 1. mgr. 14. gr. laganna og ber 24,5% virðisaukaskatt.