Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 927. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1596 — 927. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um virðisaukaskatt af refa- og minkaveiðum.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að virðisaukaskattur af veiðum á mink og ref verði endurgreiddur?
Almenna reglan er sú að sveitarfélög þurfa að greiða virðisaukaskatt af aðkeyptri þjónustu. Hins vegar njóta sveitarfélög endurgreiðslna vegna kaupa á tiltekinni vinnu og þjónustu. Endurgreiðsluheimildir þessar eru tilgreindar á tæmandi hátt í 3. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og 12 gr. reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. Eru þær m.a. vegna sorphirðu, snjómoksturs og kostnaðar sem stafar af náttúruhamförum. Einnig vegna vinnu sérfræðinga, svo sem verkfræðinga, löggiltra endurskoðenda og viðskiptafræðinga, og þjónustu vaktstöðva samræmdrar neyðarsímsvörunar.
Þessar endurgreiðsluheimildir eru að vissu leyti brot á meginreglum virðisaukaskatts en eiga sér sögulegar skýringar og eiga rót sína að rekja til ráðstafana í söluskattslögunum til að jafna samkeppnisstöðu.
Á síðustu árum hefur fremur verið stefnt að því að fækka umræddum endurgreiðsluákvæðum en ekki fjölga þeim.
Með hliðsjón af framansögðu hefur ráðherra ekki í hyggju að beita sér fyrir því að virðisaukaskattur af veiðum á mink og ref verði endurgreiddur.
2. Hvaða rök eru fyrir því að sveitarfélög þurfi að greiða virðisaukaskatt af skotveiði umfram aðra aðkeypta þjónustu, svo sem snjómokstur og sorphirðu?
Sem fyrr segir er almenna reglan sú að sveitarfélög þurfa að greiða virðisaukaskatt af aðkeyptri þjónustu, sbr. meginreglur virðisaukaskattslaganna. Allar undanþágur frá meginreglunni um skattskyldu eru til þess fallnar að veikja virðisaukaskattskerfið og grafa undan því. Fjölgun undanþágna hefur í för með sér skaðleg fordæmisáhrif en með fleiri undanþágum fjölgar þeim sem telja sig einnig eiga að njóta undanþágu. Hinar tilteknu endurgreiðsluheimildir sveitarfélaga eiga sér sögulegar skýringar úr tíð söluskattsins. Sé vilji til fulls samræmis í þessum efnum væri eðlilegra að afnema gildandi undanþágur frekar en að fjölga þeim.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1596 — 927. mál.
Svar