Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 832. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1598 — 832. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Péturs H. Blöndals um útlán lífeyrissjóða.
1. Eru dæmi þess að lífeyrissjóðir láni út fé á vöxtum sem eru lægri en markaðsvextir og jafnvel lægri en vextir af sambærilegum ríkistryggðum skuldabréfum og ef svo er, hvaða lífeyrissjóðir eiga í hlut?
Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu nema vextir hjá 10 stærstu lífeyrissjóðunum sem bjóða sjóðfélagalán á bilinu 5,0%–6,7% og eru meðaltalsvextir um 5,5%. Vaxtakjör á sjóðfélagalánum taka í flestum tilfellum mið af húsbréfavöxtum að viðbættu álagi og eru vextirnir yfirleitt breytilegir og endurskoðast reglulega af stjórnum sjóðanna. Eitt þekkt dæmi er um að lífeyrissjóður láni á vöxtum sem eru lægri en vextir af ríkistryggðum skuldabréfum, þ.e. Lífeyrissjóður verkfræðinga en samkvæmt heimasíðu sjóðsins eru sjóðfélögum boðin lán á 3,5% vöxtum.
2. Hvaða áhrif hefur slík ráðstöfun til langs tíma á
a. tryggingafræðilega stöðu sjóðanna,
b. stöðu lífeyrisþega sjóðanna,
c. skuldbindingar Tryggingastofnunar ríkisins?
Tryggingafræðileg staða sjóðanna.
Við mat á áhrifum fjárfestingarráðstafana einstakra lífeyrissjóða er eðlilegt að horfa til fjárfestingarstefnu og ávöxtunar og áhættu af fjárfestingum í heild, fremur en afmarkaðra þátta. Þannig getur sjóðfélagalánum á lágum vöxtum verið ætlað að stuðla að áhættudreifingu á móti öðrum áhættumeiri fjárfestingum. Slík ráðstöfun getur haft áhrif séu lán til einstaklinga endurmetin í samræmi við 20. gr. reglugerðar nr. 391/1998. Sé lánað með lágum vöxtum gefur núvirðing á skuldabréfum miðað við 3,5% raunávöxtunarkröfu í tryggingafræðilegri úttekt lítið sem ekkert umframvirði eigna.
Áhrif á stöðu lífeyrisþega sjóðanna.
Góð langtímaávöxtun eigna stuðlar að bættum lífeyrisréttindum sjóðfélaga. Samkvæmt ákvæði 4. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, skal lágmarkstryggingarvernd, sem lífeyrissjóður veitir miðað við 40 ára inngreiðslutíma iðgjalds, fela í sér 56% af þeim mánaðarlaunum sem greitt er af í mánaðarlegan ellilífeyri. Stjórn lífeyrissjóðs mótar fjárfestingastefnu á grundvelli 37. gr. lífeyrissjóðslaganna og reglna nr. 966/2001, um fjárfestingastefnu lífeyrissjóða. Stjórn lífeyrissjóðs skal móta fjárfestingarstefnu sem leiðir til þess að lífeyrissjóðurinn uppfylli lágmarksréttindaákvæði 4. gr. lífeyrissjóðslaganna.
Áhrif á skuldbindingar Tryggingastofnunar ríkisins.
Erfitt er, ef ekki útilokað, að segja til um áhrif lánveitinga lífeyrissjóða á skuldbindingar almannatrygginga Tryggingastofnunar ríkisins. Þannig er um flókið samspil að ræða milli greiðslna frá Tryggingastofnun, sem í sumum tilvikum eru tekjutengdar, annars vegar og greiðslna frá lífeyrissjóðum hins vegar. Þá verða áhrif lánveitinga á afkomu lífeyrissjóða ekki metin með góðu móti.
3. Stenst slík ráðstöfun 1. málsl. 1. mgr. 36. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða?
Í 36. gr. laga nr. 129/1997 er að finna ákvæði um í hvaða verðbréfum lífeyrissjóðum er heimilt að fjárfesta og hvaða almennra skilyrða skuli gætt við fjárfestingar lífeyrissjóða. Þau almennu skilyrði eru að fé lífeyrissjóðs sé ávaxtað á þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu.
Samkvæmt 3. tölul. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 129/1997 er lífeyrissjóði meðal annars heimilað að fjárfesta í skuldabréfum tryggðum með veði í fasteign samkvæmt nánari skilyrðum. Lán til sjóðfélaga, sem veitt eru samkvæmt sérstökum reglum sjóðsins um slík lán, falla þar undir. Þó ætla verði stjórnum lífeyrissjóða nokkurt svigrúm til að ákvarða kjör slíkra lána, verða þær á hverjum tíma að geta rökstutt að 36. gr. laganna sé fylgt. Í því efni ber þeim m.a. að horfa til ávöxtunar viðkomandi lífeyrissjóðs, að hvaða marki sé þörf áhættudreifingar á móti öðrum eignum og hver áhætta mismunandi eignaflokka er.
Í árslok 2003 voru sjóðfélagabréf um 11% af hreinni eign lífeyrissjóða (Hagtölur SÍ). Lítil vanskil af sjóðfélagabréfum lífeyrissjóðanna benda til að þau séu í heild áhættulítil.
4. Hver hefur eftirlit með framkvæmd þessa ákvæðis laganna?
Stjórn lífeyrissjóðs ber ábyrgð á starfsemi hans, sbr. 29. gr. laga nr. 129/1997. Stjórninni ber m.a. að móta fjárfestingarstefnu, sbr. VII. kafla laganna. Við lífeyrissjóð skal endurskoðunardeild eða sjálfstætt starfandi eftirlitsaðili annast innra eftirlit, sbr. 34. gr. laganna. Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða, sbr. IX. kafla laganna.
5. Hver gæti verið ábyrgð sjóðstjórnar?
Eitt af meginhlutverkum stjórnar lífeyrissjóðs er samkvæmt lögum nr. 129/1997 að móta fjárfestingastefnu sem leiðir til þess að lífeyrissjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt ákvæði 4. gr. um lágmarkstryggingavernd og ákvæði 39. gr. um að skuldbindingar og eignir lífeyrissjóðs skuli ávallt vera í jafnvægi.
Ábyrgð stjórna lífeyrissjóða er ekki skilgreind í lögum. Ætla má að stjórnarmenn séu samkvæmt almennum reglum skyldir til að bæta lífeyrissjóði tjón sem þeir valda sjóðnum í störfum sínum hvort sem slíkt væri unnið af ásetningi eða gáleysi.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1598 — 832. mál.
Svar