Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 928. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1601 — 928. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um greiðsluskyldu ríkissjóðs umfram heimildir fjárlaga.
1. Til hvaða fjárráðstafana hefur verið gripið á þessu ári sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum ársins og leita þarf heimildar Alþingis fyrir, sbr. 44. gr. laga um fjárreiður ríkisins frá 1997? Hverjar eru fjárhæðirnar í hverju tilviki og hefur fjárlaganefnd Alþingis verið gerð grein fyrir þeim?
Ekki hefur reynt á ófyrirséða greiðsluskyldu úr ríkissjóði á þessu ári. Þó er nú gert ráð fyrir að útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs verði 680 millj. kr. umfram áætlanir vegna meira atvinnuleysis en spáð var í forsendum fjárlaga.
2. Hver er áætlaður kostnaður ríkissjóðs við þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið á árinu, sundurliðað eftir kjarasamningum, og hvernig samræmist sá kostnaður fjárlögum ársins? Hvaða fleiri kjarasamninga er áformað að gera á árinu, hver er hlutur þeirra í heildarlaunakostnaði ríkisins, sundurliðað eftir kjarasamningum, og mun áætlun fjárlaga raskast ef þeir kjarasamningar verða svipaðir þeim sem þegar hafa verið gerðir og ef svo er, hve mikið?
Aðeins hefur verið gerður einn kjarasamningur á árinu og er hann við Starfsgreinasambandið og felur í sér að 14 kjarasamningar eru felldir saman í einn og skal atkvæðagreiðslu vera lokið fyrir 25. maí. Gera má ráð fyrir að sjálfseignarstofnanir sem reka hjúkrunarheimili geri hliðstæða samninga. Kostnaður við samninginn umfram forsendur fjárlaga til viðkomandi stofnana er áætlaður á bilinu 100–150 millj. kr. að ótöldum kostnaði við samninga sjálfseignarstofnana. Til að mæta þeim kostnaði og síðari kjarasamningum er óskipt fjárveiting á launa- og verðlagslið fjármálaráðuneytisins sem nemur 520 millj. kr.
Á þessu ári er áætlað að gerðir verði 65 kjarasamningar. Ólokið er gerð samninga við lyfjafræðinga, sjómenn, flugmenn, iðnaðarmenn og verkstjóra en samningar við þessa hópa eru þegar útrunnir. Um mánaðamótin ágúst–september renna út samningar við skipstjórnarmenn, bryta og vélstjóra. Framangreindar starfsstéttir vega ekki þungt í launaútgjöldum ríkissjóðs og ættu að rúmast innan fjárheimilda í fjárlögum. Kjarasamningar við stéttarfélög opinberra starfsmanna renna út í lok nóvember að undanskyldum samningum við flugumferðarstjóra, lögreglumenn, lækna og sjúkraflutningamenn sem renna allir út á næsta ári. Samningarnir ná yfir stærstan hluta launaútgjalda ríkisins og vega því þungt, en þar sem þeir renna út í lok ársins er ekki að vænta að kostnaðarauki árið 2004 verði teljandi.
3. Er ástæða til að ætla að útgjöld ríkissjóðs á árinu verði umfram fjárlög ársins vegna nýrra laga sem samþykkt hafa verið á þessu ári? Ef svo er, hvaða lög er um að ræða og hvað er áætlað að útgjöldin verði mikil á árinu í hverju tilviki og hvaða fjárlagaliðir eiga í hlut?
Aðeins ein lög sem hafa verið afgreidd á þessu ári, um breytingu á lögum um Siglingastofnun vegna siglingaverndar, hafa áhrif á útgjöld ríkissjóðs. Gert er ráð fyrir að þau lög hafi 60 millj. kr. útgjaldaauka í för með sér. Þar af falla 30 millj. kr. til hjá ríkislögreglustjóra, um 10 millj. kr. hjá Landhelgisgæslu Íslands og 10 millj. kr. hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Loks verður kostnaðarauki hjá Siglingastofnun 10 millj. kr. og er gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárlögum. Samtals má því gera ráð fyrir 50 millj. kr. útgjöldum á þessu ári umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlögum.
4. Hafa ákvarðanir einstakra ráðherra eða ríkisstjórnarinnar á þessu ári leitt til þess að útgjöld ársins verða fyrirsjáanlega umfram heimildir fjárlaga? Ef svo er, hverjar eru ákvarðanirnar, við hvaða lagaheimildir styðjast þær, hver eru umframútgjöldin í hverju tilviki, hverjir eru fjárlagaliðirnir og hvernig er ráðgert að mæta kostnaðinum?
Ríkisstjórnin hefur tekið nokkrar ákvarðanir sem hafa áhrif á útgjöld ríkissjóðs á þessu ári. Fyrirhugað er að sækja um heimildir vegna þeirra í fjáraukalögum fyrir árið 2004 sem verða lögð fram í byrjun október í haust. Annars vegar eru ákvarðanir sem teknar voru til að greiða fyrir kjarasamningum á almennum vinnumarkaði og koma fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 7. mars sl. og hins vegar eru nokkrar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar vegna aðkallandi verkefna.
Kostnaðar vegna yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er samtals áætlaður 425 millj. kr. árið 2004 og færist á Atvinnuleysistryggingasjóð. Þar af eru 330 millj. kr. vegna sérstakrar hækkunar atvinnuleysisbóta umfram forsendur fjárlaga og 95 millj. kr. til eflingar á starfsmenntasjóðum verkafólks. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fara þess á leit við Alþingi að í fjárauklalögum fyrir árið 2004 fái eftirfarandi verkefni samtals 303 millj. kr. fjárveitingu:
1. Menningarstofnanir, viðhald og stofnkostnaður til að ljúka framkvæmdum við Þjóðminjasafn Íslands, samtals 100 millj. kr.
2. Fjölgun lögreglumanna í Reykjavík um tíu frá miðju ári, samtals 35 millj. kr.
3. Flutningur í þágu öryggissveita Atlantshafsbandalagsins á þyrlum og öryggisbúnaði frá Hollandi til Afganistans, samtals 30 millj. kr.
4. Fundur Sameinuðu þjóðanna haldinn á Íslandi vegna stofnunar reglulegs ferlis til að meta ástand hafanna, samtals 33 millj. kr.
5. Verkefni Norrænu eldfjallastöðvarinnar færð til Háskóla Íslands frá og með 1. júlí 2004, samtals 15 millj. kr., sbr. frumvarp um breytingu á lögum nr. 41/1999, um Háskóla Íslands.
6. Samþykkt að gera viðbótarsamning um TETRA-fjarskiptakerfið sem felur í sér allt að 77 millj. kr. árlegan kostnað.
7. Að tillögu fjárlaganefndar hefur ríkisstjórnin samþykkt að fara fram á 13 millj. kr. fjárveitingu sem skiptist þannig: Til Snorrastofu, 6 millj. kr. fjárveiting sem felld var niður í fjárlögum 2004 en átti að vara lengur. Þjóðsagan um Gretti, teiknimynd, 6 millj. kr. þar sem fyrir mistök var aðeins gert ráð fyrir 1 millj. kr. til verkefnisins í fjárlögum 2004. Loks verði 1 millj. kr. varið til að standa undir kostnaði við fjarnám í opinberri stjórnsýslu hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála, félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Samtals nema framangreind verkefni 728 millj. kr. og verður gerð tillaga um að þau fái brautargengi í fjáraukalögum fyrir árið 2004. Útgjöldin hafa verið kynnt í ríkisfjármálanefnd þar sem sæti eiga formaður og varaformaður fjárlaganefndar ásamt þremur embættismönnum fjármálaráðuneytisins. Farið er fram á útgjöldin í samræmi við ákvæði stjórnarskrár um að fjárveitingavaldið sé í höndum Alþingis og að önnur lög geti ekki takmarkað það vald.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1601 — 928. mál.
Svar