130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1603 — 987. mál.
Skýrsla
samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2003 (flugmálaáætlun).
(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)
2. FLUGMÁLAÁÆTLUN
2.1 Fjármál.
Tekjur og framlög.
Markaðar tekjur.
Flugvallagjald. Eftirfarandi tafla og mynd sýna þróun tekna af flugvallagjaldi árin 1997–2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan og myndin sýna hafa tekjur af flugvallagjaldi ársins 2003 ekki verið jafnháar frá árinu 1997. Þá ber einnig að geta þess að gjaldskrá fyrir flugvallagjald hefur ekki hækkað á umræddu tímabili.
Afgreiðslugjald. Tekjur af afgreiðslugjöldum vegna skráninga loftfara, útgáfu skírteina og endurnýjun lofthæfisskírteina urðu á árinu 2003 12,5 millj. kr.
Framlög úr ríkissjóði.
Á árinu 2003 var framlag ríkissjóðs til flugmálastjórnar 979 millj. kr. Þá ber að geta þess að heimild fékkst fyrir millifærslu á umframtekjum flugvallagjalds ársins 2003 til reksturs að upphæð 104,7 millj. kr.
Ríkistekjur.
Eftirfarandi tafla sýnir sundurliðun ríkistekna:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Sértekjur.
Tekjur vegna alþjóðaflugþjónustu. Þessar tekjur eru vegna reksturs á B-hluta Flugmálastjórnar, en uppgjör liggur ekki fyrir. Tekjurnar eru áætlaðar í fjárlögum og samgönguáætlun árið 2003 1.377,6 millj. kr.
Aðrar sértekjur. Eftirfarandi tafla sýnir sundurliðun annarra sértekna:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Gjöld.
Rekstur og þjónusta.
Yfirstjórn. Rekstrarútgjöld yfirstjórnar hækka um 9,4% milli áranna 2002 og 2003. Launagjöld hækka um aðeins 0,8%, en önnur rekstrarútgjöld hækka nokkuð, eða um 23,2%, sem skýrist af því að á árinu 2003 var kostnaður vegna viðhalds á flugturnsbyggingunni í Reykjavík, að upphæð 23,1 millj. kr., bókfærður á yfirstjórn.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og sést á töflunni hafa tekjur lækkað um 11,1% milli ára og hafa því gjöld umfram tekjur hækkað verulega frá fyrra ári.
Flugumferðarþjónusta innan lands. Útgjöld flugumferðarsviðs hækkuðu um 10,6% á milli ára. Laun lækkuðu um 2,1%, en önnur rekstrargjöld hækkuðu um 73,7% vegna þjónustu flugumferðarþjónustunnar í Kosovo og aukins reksturs ATS-skólans, en á móti hækkuðu tekjur þjónustunnar verulega frá fyrra ári.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir hafa gjöld umfram tekjur lækkað um 0,6% milli áranna 2002 og 2003.
Eftirlit og öryggismál. Á undanförnum árum hafa umsvif flugöryggissviðsins aukist jafnt og þétt, vegna krafna um aukið eftirlit ásamt meiri gæðakröfum. Laun og launatengd gjöld hækka um 9,9% á milli ára, en önnur rekstrargjöld aðeins um 0,7%.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir hafa rekstrarútgjöld hækkað á milli áranna 2002 og 2003 um 5,6%, en tekjur hafa hækkað verulega, eða um 23,4%. Rekstrarafkoma ársins 2003 er því verulega betri, miðað við fyrra ár.
Alþjóðaflugþjónusta. Eins og áður er getið liggur ekki fyrir uppgjör ársins 2003 vegna alþjóðaflugþjónustunnar og þar af leiðandi framlag Íslands til þjónustunnar, en útgjöldin eru áætluð í fjárlögum ársins og samgönguáætlun, samtals 1.475,1 millj. kr.
Flugvalla- og flugleiðsöguþjónusta. Á undanförnum árum hefur áætlunarflugvöllum fækkað verulega. Engu að síður er nauðsynlegt að viðhalda mannvirkjum á þeim flugvöllum þar sem áætlunarflug hefur lagst af. Þannig hafa önnur rekstrargjöld ekki lækkað í takt við þróunina. Á árinu 2003 hækkuðu önnur rekstrargjöld um 7,2% frá árinu áður, en laun og launatengd gjöld hækkuðu aðeins um 2,6%, sem skýrist af fækkun starfsmanna þeirra flugvalla sem áður voru áætlunarflugvellir.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og sést á töflunni hafa tekjur hækkað á milli ára um 5,7%. Gjöld umfram tekjur hafa því hækkað um 5,5% milli áranna 2002 og 2003.
Í eftirfarandi töflum er gerð grein fyrir rekstrarafkomu fimm stærstu áætlunarflugvallanna, þ.e. Reykjavíkur-, Akureyrar-, Vestmannaeyja-, Egilsstaða- og Ísafjarðarflugvallar. Aðrir minni áætlunar- og þjónustuflugvellir verða teknir saman í einni niðurstöðutölu í töflum 18 og 19.
Reykjavíkurflugvöllur. Rekstur Reykjavíkurflugvallar lækkaði um 4,5% milli áranna 2002 og 2003, eða um 13,1 millj. kr. Heildarútgjöldin urðu 5 millj. kr. undir áætlun, eða sem nemur 1,8%. Tekjur flugvallarins hækkuðu um 1,5% frá árinu áður.
Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld eftir stjórnunarsviðum og samanburð við áætlun ársins 2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Rekstur flugvalla- og flugleiðsögusviðs varð 3,1% lægri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir. Rekstur aðflugsþjónustu var samkvæmt áætlun.
Í næstu töflu er sýndur samanburður á rekstrarútgjöldum og tekjum hinna ýmsu verkefna í starfsemi flugvallarins árin 2002 og 2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Taflan sýnir að gjöld umfram tekjur urðu 214,2 millj. kr. og lækkuðu um 6,2% frá fyrra ári. Hlutfall tekna af gjöldum er 23,4%, sem er nokkur hækkun frá árinu áður. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu 2003 er 617 kr. á móti 696 kr. árið á undan og er það 11,3% lækkun, en farþegum sem fóru um flugvöllinn fjölgaði um 5,7% milli ára, sem skýrir þessa lækkun að hluta.
Akureyrarflugvöllur. Rekstrarniðurstaða Akureyrarflugvallar fyrir árið 2003 er sú að flugvöllurinn fór 13,2 millj. kr. fram úr rekstraráætlun ársins, eða 9,7%.
Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöldin árið 2003 eftir stjórnunarsviðum og samanburð við rekstraráætlun ársins:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir kostaði rekstur Akureyrarflugvallar tæpar 149 millj. kr. á árinu 2003 án fjármagns- og stofnkostnaðar. Heildarútgjöld flugvallarins á árinu 2003 voru 7,0 millj. kr. hærri en árið á undan, eða 4,9%.
Næsta tafla sýnir samanburð á rekstrarútgjöldum og tekjum milli áranna 2002 og 2003, ásamt hlutfalli tekna af gjöldum og framlag á hvern farþega sem um flugvöllinn fóru árið 2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í töflunni kemur fram að gjöld umfram tekjur urðu 128 millj. kr. á árinu 2003, samanborið við 126 millj. kr. árið 2002 og er hækkunin aðeins 1,9% sem skýrist af því að tekjur hækkuðu um 28,4% milli ára. Hlutfall tekna af gjöldum var á árinu 2003 14,0%, samanborið við 11,4% á árinu 2002. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu var 747 kr. sem er nokkur lækkun frá árinu áður, eða 7,0%.
Egilsstaðaflugvöllur. Heildarrekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar á árinu 2003 urðu aðeins 1,0 millj. kr. hærri en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir, eða 1,4%. Rekstur flugvallarins kostaði á árinu rúmar 74,5 millj. kr. og hefur því hækkað um 2,6 millj. kr. frá árinu áður, eða um 3,6%. Tekjur flugvallarins hækkuðu nokkuð, eða um 19,8%.
Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld Egilsstaðaflugvallar fyrir árið 2003 og samanburð við rekstraráætlanir ársins:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og fram kemur í töflunni hækkaði starfsemi flugvalla- og flugleiðsögusviðs um 3,7% umfram rekstraráætlun, en flugumferðarsviðs vegna aðflugsþjónustu lækkaði hins vegar um 4,9%.
Í næstu töflu er sýndur samanburður á gjöldum og tekjum áranna 2002 og 2003, ásamt framlagi á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í töflunni kemur fram að rekstrarútgjöld hækkuðu milli ára um tæpar 2,6 millj. kr., eða 3,6%. Einnig sýnir taflan að gjöld umfram tekjur hafa hækkað um 1,8% frá árinu 2002, en hlutfall tekna af gjöldum er 11,8% árið 2003, á móti 10,2% á árinu 2002. Framlag á hvern farþega sem fór um flugvöllinn á árinu lækkar verulega, eða úr 1.009 kr. á fyrra ári í 773 kr. árið 2003, eða um 23,4%. Þetta skýrist af verulegri fjölgun farþega á árinu 2003 frá fyrra ári, eða um 33,7%.
Vestmannaeyjaflugvöllur. Rekstrarafkoma Vestmannaeyjaflugvallar varð ekki eins góð á árinu 2003 og á fyrra ári. Rekstrarútgjöldin hækkuðu um 9,0% milli ára, eða tæpar 5 millj. kr. Bæði stjórnunarsviðin voru yfir rekstraráætlun, sem nemur 6,3%.
Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöldin á árinu 2002 ásamt samanburði við áætlanir:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir urðu heildarútgjöld Vestmannaeyjaflugvallar 57,9 millj. kr.
Tekjur flugvallarins á árinu 2003 lækkuðu hins vegar um 22% frá árinu áður, eða úr 4,7 millj. kr. í 3,7 millj. kr. Skýringin er minni farþegaflutningar um flugvöllinn frá árinu áður, eða sem nemur 8,5%.
Í næstu töflu er sýndur samanburður á gjöldum og tekjum áranna 2002 og 2003, ásamt ýmsum öðrum upplýsingum:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir hafa heildarrekstrarútgjöld á árinu 2003 hækkað frá fyrra ári um 9,0%. Taflan sýnir einnig að hlutfall tekna af gjöldum hefur lækkað úr 8,9% árið áður í 6,4% á árinu 2003 og að framlag á hvern farþega er 1.204 kr. á móti 987 kr. árið 2002, sem er 22,0% hækkun.
Ísafjarðarflugvöllur. Mjög góður árangur varð í rekstri Ísafjarðarflugvallar á árinu 2003. Eins og sjá má á töflunni hér að aftan voru heildarútgjöld flugvallarins samkvæmt rekstraráætlun.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og töflurnar sýna er rekstur Ísafjarðarflugvallar á árinu 2003 mjög vel viðunandi, þegar rekstrarútgjöld eru borin saman við áætlanir. Heildarrekstrarkostnaður flugvallarins á árinu 2003 varð 43,4 millj. kr. á móti 41,9 millj. kr. árið 2002 og hefur því hækkað um 1,4 millj. kr., eða 3,4%. Tekjur flugvallarins hækkuðu um 4% milli ára. Hlutfall tekna af gjöldum er eins og árið áður. Framlag á hvern farþega hækkaði um 0,7% milli ára, eða úr 934 kr. árið 2002 í 941 kr. árið 2003.
Aðrir áætlunarflugvellir í grunnneti. Rekstrarútgjöld annarra áætlunarflugvalla í grunnneti urðu 2,2% lægri en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir á árinu 2003. Um er að ræða 7 flugvelli og urðu heildarrekstrarútgjöld þeirra 67,3 millj. kr., en rekstraráætlanir gerðu ráð fyrir útgjöldum að upphæð 68,7 millj. kr., sem er 1,4 millj. kr. undir áætlunum.
Tekjur þessara flugvalla eru mjög litlar og urðu 4,9 millj. kr. á árinu 2003. Því var hlutfall tekna af gjöldum ekki nema 7,3% og framlag á hvern farþega sem um flugvellina fóru var að jafnaði 1.162 kr.
Eftirfarandi tafla sýnir samanburð á heildarútgjöldum flugvallanna og áætlun ásamt tekjum og öðrum upplýsingum á árinu 2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Aðrir áætlunarflugvellir utan grunnnets. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarafkomu þeirra tveggja áætlunarflugvalla utan grunnnets:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir er framlag með hverjum farþega óheyrilega hátt, en flugvellirnir hafa mjög litla flutninga, og eru í fullum rekstri.
Aðrir flugvellir og lendingarstaðir. Eftirfarandi tafla sýnir rekstrarútgjöld ársins 2003, borið saman við rekstraráætlanir sama árs:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.2 Sundurliðun einstakra gjaldaliða.
2.2.1 Viðhald.
Yfirborð brauta og hlaða. Undir þennan lið fellur allt yfirborðsviðhald flugbrauta og flughlaða sem hefur bundið slitlag, þ.e. malbik, klæðing og yfirborðsmerkingar.
Helstu verkefni vegna malbiks voru viðgerðir á flugbrautunum á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík. Helstu verkefni vegna klæðingar voru yfirlög með „Ralumac“ á flugbraut 07-25 í Vestmannaeyjum og flughlaðið á Ísafirði ásamt viðgerðum á flugbrautinni á Bíldudal. Þá voru flugbrautirnar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Bíldudal og Vestmannaeyjum málaðar og nokkrar stopplínur á flugbrautunum í Reykjavík.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Alls voru fjárveitingar samkvæmt samgönguáætlun ársins 2003 36 millj. kr., en bókfærður kostnaður á árinu nam 21,2 millj. kr.
Byggingar og búnaður. Undir þennan lið fellur allt meiri háttar viðhald bygginga sem gert er sjaldnar en árlega. Fjárveitingar ársins voru 9 millj. kr., en framkvæmt var fyrir 1,2 millj. kr. Á Egilsstöðum stóð til viðhald á gluggum og svalahandriðum, en verkið fór ekki af stað á árinu 2003, þar sem ekki tókst að ljúka undirbúningi, þannig að verkið yrði unnið við hagstæð veðurskilyrði. Þá átti einnig að skipta um klæðningu á veggjum á flugskýli nr. 3 í Reykjavík og mála gafla. Bæði þessi verk verða unnin á árinu 2004.
Ýmis verk vegna flugleiðsögu og tæknibúnaðar. Engin verk sem falla undir þennan lið voru unnin á árinu 2003, en verið er að skoða möguleika á því að kaupa upptökutæki fyrir þá áætlunarflugvelli sem ekki hafa slík tæki. Fjárveitingar ársins voru 7 millj. kr.
Tækjasjóður. Fjárveitingar til tækjasjóðs á árinu 2003 voru 75 millj. kr. Sjóðurinn skuldaði frá fyrra ári um 26 millj. kr. en ýmis tæki og búnaður var keyptur fyrir 16 millj. kr. á árinu 2003, eins og sést á eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.2.2 Stofnkostnaður.
2.2.2.1 Grunnnet.
Reykjavíkurflugvöllur.
Flugbrautir og hlöð. Haldið var áfram vinnu við fegrun og snyrtingu umhverfis á flugvallasvæðinu og lokið var við nýja girðingu ásamt fjarstýrðum hliðum umhverfis flugvöllinn, en sú framkvæmd hefur staðið yfir í áföngum á undanförnum árum. Ýmis önnur minni háttar verk voru unnin á árinu 2003 við flugbrautir og hlöð. Kostnaður við þessi verkefni varð á árinu 16,6 millj. kr. Fjárveiting ársins 2003 var hins vegar 89,5 millj. kr., en ráðgert hafði verið að endurbyggja flughlað sunnan flugskýlis nr. 1 á árinu, en þeirri framkvæmd var frestað og hluti af fjárveitingunni notaður til endurbyggingar flugbrautarinnar í Grímsey, þar sem þannig var hægt að ná fram hagstæðari framkvæmd með stærri áfanga.
Byggingar. Á árinu 2003 voru keyptar tvær húseignir á flugvallasvæðinu, annars vegar húsnæði sem áður hafði hýst Flugskóla Helga Jónssonar og hins vegar flugstöð Íslandsflugs og mun hún verða nýtt sem flugskólamiðstöð og fyrir annan flugrekstur. Fyrirhuguð var bygging nýrrar tækja- og sandgeymslu á árinu 2003 og er hönnun að mestu lokið, en byggingarframkvæmdir hafa tafist vegna skipulagsmála og færast því framkvæmdir yfir á árið 2004. Fjárveitingar vegna bygginga voru á árinu 131 millj. kr., en kostnaður ársins varð 35,5 millj. kr.
Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Reistur var á árinu nýr aðflugsstefnusendir LLZ-GP fyrir flugbraut 13 og varð kostnaður 23,6 millj. kr. Til að geta komið aðflugsljósum vegna flugbrautar 19 inn í hönnun og hugsanlega væntanlegt útboð á færslu Hringbrautar var nauðsynlegt að fá samþykki Reykjavíkurborgar og skipulagsnefndar fyrir ljósunum, þurfti að vinna ýmis gögn fyrir nefndina, en sú vinna kostaði um 2,2 millj. kr. Þá voru einnig sett upp brautarljós á flugbraut 06-24, en kostnaður á árinu varð 6 millj. kr. Áfram var unnið að gerð hindranakorta fyrir flugvöllinn. Heildarkostnaður við þessi verkefni varð á árinu 2003 32,1 millj. kr., en fjárveiting var 22 millj. kr.
Akureyrarflugvöllur.
Byggingar. Á árinu 2003 var keypt eldra flugskýli sunnan slökkvistöðvar sem nota á fyrir tækjageymslu. Kostnaður við kaupin, breytingar og endurbætur varð 31,4 millj. kr. Þá voru gerðar ýmsar breytingar í flugstöðinni vegna aðskilnaðar farþega í innanlands- og utanlandsflugi ásamt nýju farangursfæribandi í komusal. Unnið var áfram að gerð nýs deiliskipulags fyrir flugvöllinn. Fjárveiting vegna þessa liðar var á árinu 46 millj. kr., en kostnaður á árinu nam 37,2 millj. kr.
Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Unnið var á árinu við hönnun endurbóta á flugbrautarljósum flugvallarins og til þess varið 1,3 millj. kr.
Egilsstaðaflugvöllur.
Byggingar. Á árinu 2001 var keypt eldra flugskýli af Flugfélagi Austurlands til að nota fyrir geymslu snjóruðningstækja. Ýmsar breytingar og endurbætur þurfti að gera og lauk þeim á árinu 2003. Kostnaður varð 5,4 millj. kr.
Vestmannaeyjaflugvöllur/Bakki.
Byggingar. Hafinn var undirbúningur að byggingu nýrrar flugstöðvar á Bakkaflugvelli á árinu 2003 og nam kostnaður 0,8 millj. kr.
Aðflugs- og flugöryggisbúnaður. Í undirbúningi eru kaup og uppsetning á nýjum aðflugshallaljósum á Vestmannaeyjaflugvelli. Á árinu 2003 var fjárveiting til þessa verkefnis 20 millj. kr., en framkvæmdir frestast til ársins 2004.
Ísafjarðarflugvöllur/Þingeyri.
Flugbrautir og hlöð. Á Þingeyrarflugvelli var á árinu unnið að athugunum á valkostum sem til staðar eru vegna lengingar flugbrautarinnar og er sérstaklega verið að skoða þá út frá flugtæknilegum sjónarmiðum. Tveir sjálfstæðir vinnuhópar eru að meta þessa valkosti, annar á vegum Flugmálastjórnar og hinn á vegum Flugfélags Íslands. Vinnuhóparnir munu síðan koma sér saman um eina niðurstöðu. Ljóst er að verulegur kostnaðarmunur er á þeim valkostum sem til staðar eru. Fram hafa farið dýptar- og botnlagarannsóknir vegna lengingar út í sjó, gerð hafa verið hæðarlínukort byggð á loftljósmyndum af svæðinu og unnin forhönnun á valkostum.
Á Ísafjarðarflugvelli hefur verið unnið við rannsóknir, mælingar og hönnun á endurbótum öryggissvæða flugbrautarinnar til að geta gert raunhæfa kostnaðaráætlun. Reyna á að bæta öryggissvæðin eins og kostur er innan skynsamlegra marka, en ljóst er að þau geta aldrei uppfyllt staðla vegna landfræðilegra aðstæðna. Fjárveiting til þessara verkefna var á árinu 2003 12,5 millj. kr., en kostnaður 5,7 millj. kr.
Byggingar. Á árinu 2002 var hafinn undirbúningur að byggingu nýs flugturns á Ísafjarðarflugvelli, en framkvæmdir við 1. áfanga hófust árið 2003. Flugturninn var fullbúinn að utan í árslok og mun framkvæmdum ljúka á árinu 2004. Kostnaður á árinu 2003 varð 15,8 millj. kr., en fjárveiting ársins 14,5 millj. kr.
Bíldudalsflugvöllur.
Flugbrautir og hlöð. Unnið var á árinu við rannsóknir, mælingar og hönnun á endurbótum á öryggissvæðum flugbrautarinnar. Kostnaður varð 1,9 millj. kr. og fjárveiting 3 millj. kr.
Grímseyjarflugvöllur.
Flugbrautir og hlöð. Á árinu 2003 var hafin endurbygging flugbrautarinnar í Grímsey og lauk 1. áfanga verksins í árslok. Gert er ráð fyrir að verkinu muni ljúka á árinu 2004. Þar með verður Grímseyjarflugvöllur í hópi þeirra flugvalla sem eru með bundið slitlag. Kostnaður ársins varð 89,5 millj. kr., en fjárveiting 41 millj. kr. Eins og fyrr er getið var á árinu 2003 lánuð fjárveiting til þessa verkefnis frá Reykjavíkurflugvelli.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.2.2.2 Áætlunarflugvellir utan grunnnets.
Áætlunarflugvellir utan grunnnets eru tveir, þ.e. Gjögur- og Vopnafjarðarflugvellir. Engar fjárveitingar og framkvæmdir voru á þessum flugvöllum á árinu 2003.
2.2.2.3 Aðrir flugvellir.
Aðrir flugvellir og lendingarstaðir. Gerðar voru ýmsar endurbætur á öðrum flugvöllum og lendingarstöðum á árinu 2003 og varð kostnaður 4,5 millj. kr., þó mestur vegna Húsafellsflugvallar.
Æfingaflugvöllur. Unnið var að rannsóknum, frumhönnun og kostnaðaráætlun vegna endurbóta á gömlu malarflugbrautinni á Sandskeiði með það í huga að hún verði nothæf allt árið og verði með bundnu slitlagi. Áætlaður kostnaður við 800 metra flugbraut er 17 millj. kr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.2.2.4 Ýmis stofnkostnaður, búnaður og verkefni.
Flugstjórnarmiðstöð. Af þessum lið er greiddur hlutur Íslands í hinum ýmsu framkvæmdum á vegum Alþjóðaflugþjónustunnar hér á landi. Á árinu 2003 var þessi kostnaður 10,0 millj. kr.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Leiðarflug. Undirbúningur fyrir endurnýjun á fjarskiptabúnaði í Bláfjöllum er langt kominn. Kostnaðaráætlun og fjárveiting er 8 millj. kr.
GPS/AIS/upplýsingaþjónusta. Unnið var á árinu 2003 við uppbyggingu á gæðakerfi fyrir upplýsingaþjónustuna. Aðflugshönnuðir hafa sótt námskeið í RNAV/GNSS vegna GPS- aðflugs. Einnig er verið að kaupa stafræn kort frá Landmælingum Íslands vegna aðflugskortagerðar. Kostnaður á árinu 2003 varð 8,1 millj. kr., en fjárveiting 15 millj. kr.
Flugprófunarbúnaður. Á árinu 2003 var varið 1,3 millj. kr. til kaupa á nýjum flugprófunarbúnaði.
Veðurupplýsingakerfi. Verið er að vinna nýtt veðurupplýsingakerfi fyrir Bakkaflugvöll sem mun taka við af eldra kerfi. Einnig hefur verið unnið að því að koma upp stöðluðum búnaði sem safnar saman veðurupplýsingum frá flugvöllum. Fyrir valinu varð búnaður frá finnska fyrirtækinu VAISALA. Búið er að setja upp þennan búnað fyrir Reykjavíkurflugvöll. Kostnaður vegna þessa verkefnis var á árinu 2003 5,6 millj. kr., en fjárveiting 10 millj. kr.
Flugvernd og öryggismál. Gerð var aðstaða með tækjum í flugstöð Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli, til að koma fyrir vopnaleitarbúnaði til leitar í lestarfarangri. Einnig voru gerðar breytingar á vopnaleitarrými, þar sem fram fer leit á farþegum og handfarangri þeirra. Keyptar voru vélar til leitar í handfarangri og lestarfarangri. Þá voru smíðuð ný færibönd til að færa farangur að og frá flugvélum, ásamt tilheyrandi stjórnbúnaði.
Á Akureyrarflugvelli voru gerðar margs konar breytingar á flugstöðinni vegna Schengenkrafna og til að koma fyrir vopnaleitarbúnaði og tryggja ferli vopnaleitar. Keyptur var búnaður til leitar í handfarangri og lestarfarangri, málmleitarhlið og handleitartæki. Einnig voru smíðuð ný færibönd til að færa farangur að og frá flugvélum, ásamt tilheyrandi stjórnbúnaði.
Þá voru einnig gerðar ýmsar breytingar á flugstöðinni á Egilsstaðaflugvelli vegna sömu krafna og á Akureyri og keyptur sami búnaður.
Á Reykjavíkurflugvelli var sett upp aðgangsstýrikerfi fyrir flugvallarsvæðið innan girðingar. Heildarkostnaður vegna flugverndar og öryggismála nam á árinu 2003 58,5 millj. kr. Fjárveiting ársins var 44 millj. kr.
EGNOS. Uppsetningu EGNOS RIMS viðmiðunarstöðva lauk að mesti leyti á árinu 2003 og standa nú yfir prófanir fram eftir árinu 2004, en þá er búist við að kerfið verði samþykkt til almennrar notkunar.
2.3 Flokkun flugvalla.
Með þingsályktun um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2003–2006 breyttist flokkun flugvalla frá fyrri þingsályktunum um flugmálaáætlun. Flugvellir eru nú flokkaðir á eftirfarandi hátt: 1. Flugvellir í grunnneti. 2. Áætlunarflugvellir utan grunnnets. 3. Aðrir flugvellir utan grunnnets.
2.3.1 Flugvellir í grunnneti.
Eftirfarandi eru áætlunarflugvellir í grunnneti: Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar-, Egilsstaða-, Vestmannaeyja/Bakka-, Ísafjarðar/Þingeyrar-, Hornafjarðar-, Sauðárkróks-, Grímseyjar-, Bíldudals- og Þórshafnarflugvöllur.
2.3.2 Áætlunarflugvellir utan grunnnets.
Eftirfarandi eru áætlunarflugvellir utan grunnnets: Vopnafjarðar- og Gjögurflugvöllur.
2.3.3 Aðrir flugvellir utan grunnnets.
Eftirfarandi eru aðrir flugvellir utan grunnnets: Húsavíkur-, Kópaskers-, Norðfjarðar-, Patreksfjarðar-, Raufarhafnar-, Reykjahlíðar-, Rifs-, Siglufjarðar-, Blönduóss-, Flúða-, Hellu-, Húsafells-, Sandskeiðs-, Selfoss-, Stóra-Kropps- og Stykkishólmsflugvöllur.
Aðrir lendingarstaðir eru: Arngerðareyri, Álftaver, Breiðdalsvík, Borgarnes, Dagverðará, Fagurhólsmýri, Fáskrúðsfjörður, Geysir, Grímsstaðir, Borgarfjörður eystri, Búðardalur, Djúpivogur, Grundarfjörður, Gunnarsholt, Herðubreiðarlindir, Hólmavík, Króksstaðamelar, Hveravellir, Ingjaldssandur, Kaldármelar, Kerlingarfjöll, Kirkjubæjarklaustur, Melgerðismelar, Nýidalur, Reykhólar, Reykjanes, Skálavatn, Skógarsandur, Sprengisandur, Vík og Þórsmörk.
2.3.4 Flokkun flugvalla eftir alþjóðlegum staðli.
Flugvellir eru einnig flokkaðir eftir staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar samkvæmt viðauka 14. Þar er miðað við brautarlengdir og flugvélagerðir eins og sést í eftirfarandi töflu:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2.4 Þróun flutninga.
Á undanförnum árum hefur farþegum í innanlandsflugi fjölgað jafnt og þétt og náði hámarki árið 1999, en hefur síðan farið fækkandi. Á árunum 1982–2003 var aukningin um 30%. Á árinu 2003 fjölgaði farþegum frá árinu áður um 7%. Þróunin hefur orðið sú að farþegum sem fara um stærri flugvellina hefur fjölgað verulega, enda ferðatíðni meiri, að undanskildum Ísafjarðarflugvelli, en þar hefur farþegum sem fara um flugvöllinn fækkað um 10% frá árinu 1982. Á móti hefur farþegum fækkað sem notuðu minni flugvellina, en það hefur leitt til þess að áætlunarflugi hefur verið hætt til margra áfangastaða undanfarin ár.
Myndin hér að aftan sýnir þróun farþegaflutninga í innanlandsflugi 1982–2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Betri vegir út frá Reykjavík um Vesturland og norður í land hefur fyrst og fremst gert það að verkum að áætlunarflugi til flugvallanna á Snæfellsnesi, Hólmavík, Blönduósi og Siglufirði var hætt, þar sem flugið gat ekki keppt við einkabílinn. Þá hefur einnig bætt vegakerfi milli byggða í einstökum landshlutum stuðlað að þessari þróun, t.d. á Vestfjörðum og Austurlandi. Einnig hefur arðsemiskrafa flugrekenda nú á allra síðustu árum leitt til þessarar þróunar, sbr. að hætt hefur verið áætlunarflugi til Húsavíkur.
Eins og fram kemur í töflu 28 halda fjórir stærstu áætlunarflugvellirnir ríflega hlutfalli sínu í farþegaflutningunum, ásamt Grímseyjarflugvelli, þegar árin 1982 og 2003 eru borin saman. Aðrir flugvellir halda í horfinu, eða farþegum hefur fækkað mjög mikið.
Eftirfarandi töflur sýna fjölda farþega sem fóru um áætlunarflugvelli í grunnneti og utan grunnnets árin 1982 annars vegar og 2003 hins vegar:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á árinu 1998 hófust skráningar á farþegum sem fóru um Bakkaflugvöll í Austur-Landeyjum, en verulegt leiguflug fer um flugvöllinn frá Vestmannaeyjum, eða um og yfir 25.000 farþegar á ári.
Þegar þróun farþegaflutninga í innanlandsflugi frá árinu 1982 er skoðuð eftir landshlutum kemur eftirfarandi í ljós:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og taflan sýnir er hlutfallslega mest fjölgun farþega um flugvellina á Suðurlandi, þ.e. Vestmannaeyja- og Bakkaflugvöll. Norðurland eystra og Austurland halda ríflega sínu hlutfalli, en farþegaflutningar um flugvelli á Vestfjörðum eru á undanhaldi, enda hefur verið nokkur fólksfækkun í landshlutanum á undanförnum árum.
Eftirfarandi tafla sýnir þróun flutninganna eftir flugvallaflokkum:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Eins og sést á töflunni fara 80,8% farþegaflutninganna um áætlunarflugvelli í flokki I, en það eru Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöllur. Aðeins 0,9% fara um áætlunarflugvelli í flokki III.
Vöru- og póstflutningar með flugi hafa verið á stöðugu undanhaldi á undanförnum árum, eins og sést á myndinni hér að aftan. Lítil breyting varð milli áranna 2002 og 2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Á töflunni hér að aftan sést hvernig þróunin hefur verið frá árinu 1982 eftir landshlutum:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fylgiskjal IV.
Þróun flutninga 1995–2003.
Eftirfarandi myndir sýna þróun farþega,- vöru- og póstflutninga milli áranna 1995 og 2003. Mjög mikil breyting hefur átt sér stað í farþegaflutningum í innanlandsflugi á fyrrgreindu tímabili. Flug til margra áfangastaða hefur lagst af, en stóraukist frá Reykjavík til stærri áfangastaða eins og Akureyrar, Vestmannaeyja og Egilsstaða.
Vöru- og póstflutningar með flugi hafa minnkað verulega frá árinu 1982. Póstflutningar milli landshluta eru nú að mestu leyti með bílum og vöruflutningar einnig, nema til staða eins og Vestmannaeyja og Grímseyjar.
Áætlunarflugvellir í grunnneti:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Áætlunarflugvellir utan grunnnets:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.