Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 916. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1624 — 916. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um notkun ljósabekkja.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Mun ráðherra beita sér fyrir strangari reglum um ljósabekkjanotkun ungs fólks með hliðsjón af því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur mælst til þess að börn og unglingar yngri en 18 ára stundi ekki ljósaböð vegna hættu á krabbameini í húð?
Þekktar hafa verið í rúman áratug vísindalegar rannsóknir um að útfjólubláir geislar yllu sortuæxlum og fleiri gerðum af húðkrabbameini en útfjólubláa geisla er að finna bæði í ljósabekkjum og í sólargeislum. Geislar af þessum toga geta einnig valdið hrukkum, æðasliti og litabreytingum í húð en áhyggjurnar beinast einkum að því að sortuæxlum í húð hefur fjölgað verulega á undanförnum árum.
Reikna má með því að á árinu 2004 muni um 80 manns greinast með sortuæxli, þar af um 50 svokölluð ífarandi sortuæxli sem er alvarlegra form þessara æxla en staðbundin form þeirra. Tíðni húðæxla í heild hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum og hefur sortuæxlunum fjölgað mest en þau eru alvarlegasta tegund húðkrabba og algengasta krabbamein hjá konum á aldrinum 15–34 ára. Vegna þessa hefur verið gert sérstakt átak í að fræða almenning um þessa hættu.
Fyrir um það bil tveimur árum átti sér stað fræðsluátak á vegum Landlæknisembættisins, þar sem þessum upplýsingum var ítarlega komið á framfæri. Þá hafa húðlæknar vakið athygli á þessum vanda með árlegum „blettadögum“ þar sem fólki býðst að koma til þeirra sér að kostnaðarlausu og láta skoða grunsamlega bletti á húð.
Í mars sl. var áberandi fræðsluátak á vegum Geislavarna ríkisins, Landlæknisembættisins, Krabbameinsfélagsins og Félags íslenskra húðlækna sem sameiginlega birtu áberandi auglýsingu í dagblöðum sem beindist einkum að ungu fólki og foreldrum þess. Síðustu ár hefur orðið algengara að fermingarbörn, einkum stúlkur, hafi stundað ljósabekki í miklum móð fyrir fermingar eða fengið slíka meðferð í fermingargjöf. Gekk því fræðsluátakið út á að hvetja foreldra og forráðamenn fermingarbarna til að hafa þetta í huga fyrir fermingar. Óbeinar vísbendingar eru um að átakið hafi að miklum hluta skilað sér.
Að svo stöddu eru ekki uppi áform um strangari lög eða reglugerðir en áfram verður fylgst af kostgæfni með þróun þessara mála svo að grípa megi til frekari aðgerða teljist þess þörf.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1624 — 916. mál.
Svar