Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 723. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1630  —  723. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um Landssímann.

     1.      Hefur Landssími Íslands hf. tryggt fjárhagslegan aðskilnað í þeirri starfsemi sem lýtur sérstaklega að virðisaukandi þjónustu, t.d. internetþjónustu, GSM-farsímaþjónustu og NMT-farsímaþjónustu?
    Í reglugerð nr. 960/2001, um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja, sem sett var hinn 18. desember 2001, með stoð í 5. mgr. 29. gr. og 31. gr. laga nr. 107/1999, um fjarskipti, er mælt fyrir um það hvenær viðhafa skuli bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri fjarskiptafyrirtækja. Í 3. gr. reglugerðarinnar segir að fyrirtæki sem hafa umtalsverða markaðshlutdeild á ákveðnu sviði almennrar fjarskiptaþjónustu eða almennra fjarskiptaneta skuli aðgreina kostnað í bókhaldi í samræmi við reglugerðina. Reglur um bókhaldslega aðgreiningu gilda einnig um fjarskiptafyrirtæki sem stunda jafnframt aðra leyfisskylda starfsemi. Auk þess gilda reglurnar, að ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, fyrir önnur fyrirtæki sem stunda eingöngu fjarskiptastarfsemi ef þau reka net og veita þjónustu, ef þau veita mismundi tegundir fjarskiptaþjónustu eða ef Póst og fjarskiptastofnun telur sérstakar ástæður knýja á um bókhaldslega aðgreiningu. Í reglugerðinni er síðan mælt fyrir um fjárhagslegan aðgreiningu fjarskiptafyrirtækja á grundvelli reglugerðarinnar ef Póst- og fjarskiptastofnun hefur mælt fyrir um slíka aðgreiningu á grundvelli laga nr. 107/1999, um fjarskipti, og laga nr. 110/1999, um Póst- og fjarskiptastofnun. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um að Póst- og fjarskiptastofnun hafi farið fram á það við Landssímann að hann viðhafi fjárhagslegan aðskilnað í umræddri starfsemi.

     2.      Telur Landssíminn sig ekki lengur bundinn af ákvörðunum samkeppnisráðs í nokkrum málum, t.d. 30/1994, 11/1997 og 21/1998, um að reikningshald tiltekinna rekstrareininga Landssíma Íslands hf. og forvera hans skuli vera sjálfstætt og reikningsskil í samræmi við meginreglur laga um ársreikninga?

    Landssími Íslands hefur með höndum fjarskiptastarfsemi og skylda starfsemi á samkeppnismarkaði. Félagið er hlutafélag að einkarétti og er sem slíkt skráð á íslenskum hlutabréfamarkaði og ganga hlutabréf í félaginu kaupum og sölum í Kauphöll Íslands. Þrátt fyrir að íslenska ríkið eigi ráðandi hlut í Landssímanum hefur ríkið sem eigandi ekki áhrif á daglega stjórn hans né svarar fyrir stefnu hans, heldur kýs til þess sérstaka stjórn sem svarar fyrir stefnu félagsins og tekur ákvarðanir um málefni þess og ber á því stjórnunarlega ábyrgð. Í krafti stærðar og markaðsráðandi stöðu félagsins hvílir á því margvísleg lagaskylda samkvæmt fjarskiptalögum, samkeppnislögum, lögum um verðbréfaviðskipti og fleiri lögum. Í lögum er jafnframt mælt fyrir um eftirlitsskyldu ýmissa aðila gagnvart félaginu. Sem dæmi má nefna hefur Kauphöll Íslands eftirlit með aðilum sem skráðir eru á verðbréfamarkaði. Póst- og fjarskiptastofnun hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd fjarskiptamála á Íslandi samkvæmt fjarskiptalögum auk þess sem stofnuninni ber að stuðla að samkeppni á sviði fjarskiptaþjónustu og koma í veg fyrir óréttmæta viðskiptahætti. Samkeppnisyfirvöld hafa með höndum að framfylgja bannreglum samkeppnislaga, að ákveða aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja og óréttmætum viðskiptaháttum og stuðla að auknu gagnsæi markaðarins. Þrátt fyrir að ráðuneytið telji ekki eðlilegt að það svari fyrir stefnu eða ákvarðanir Landssímans í einstökum málum er þó ljóst að fyrirtækið hefur talið sig bundið af ákvörðunum samkeppnisyfirvalda og annarra eftirlitsstofnana sem beint hefur verið til þess og er ráðuneytinu ekki kunnugt um að framangreindir aðilar hafi gert athugasemdir við núverandi framkvæmd Landssímans á umræddum ákvörðunum samkeppnisyfirvalda. Í þessu sambandi má jafnframt benda á að Ríkisendurskoðun, sem er endurskoðandi Landsímans, hefur áritað reikninga félagsins og verður að teljast að í þeirri áritun felst m.a. viðurkenning á því að félagið hagi reikningsskilum sínum í samræmi við góðar reikningsskilavenjur og meginreglur laga um ársreikninga eins og spurt er um.