Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 976. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1636 — 976. mál.
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um ferðakostnað vegna tannréttinga.
1. Hvað líður endurskoðun reglna um greiðslu ferðakostnaðar vegna sérfræðiþjónustu tannréttingalækna, sbr. svar ráðherra við fyrirspurn fyrr á þessu þingi í 53. máli?
Eins og skýrt var frá í svari ráðherra við fyrirspurn í 53. máli fór ráðuneytið þess á leit við tryggingaráð, sem hefur samkvæmt almannatryggingalögum forræði á málinu, að ráðið endurskoðaði reglur um ferðakostnað á þann veg að þeir sem búa á landsbyggðinni og þurfa á tannréttingum að halda yrðu jafnsettir þeim sjúklingum á landsbyggðinni sem þurfa að leita sér almennrar læknisþjónustu út fyrir eigið hérað með tilliti til endurgreiðslu ferðakostnaðar.
Í svari Tryggingastofnunar, dags. 12. janúar 2004, var skýrt frá afgreiðslu tryggingaráðs á þann veg að tryggingaráð hefði samþykkt að vísa málinu aftur til heilbrigðisráðuneytisins í ljósi framkomins frumvarps um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (þskj. 415, 341. mál) sem felur í sér breytt hlutverk tryggingamálaráðherra og tryggingaráðs. Í frumvarpinu er m.a. fjallað um að þær heimildir sem tryggingaráð hafði til að setja reglur verði fluttar til ráðherra. Það verði því ráðherra sem framvegis setji reglur um endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga en ekki tryggingaráð. Það er ekki fyrr en málið hefur verið afgreitt sem lög frá Alþingi að hægt er að að endurskoða ferðakostnaðarreglur sjúklinga af hálfu ráðuneytisins.
2. Hvernig hyggst ráðherra taka á endurgreiðslu ferðakostnaðar vegna tannréttinga barna og unglinga á Austurlandi svo að þau beri ekki meiri kostnað en þau sem búa í landshlutum þar sem tannréttingaþjónusta er veitt?
Ekki er hægt að haga almennum ferðakostnaðarreglum þannig að greiðslur vegna ferðakostnaðar renni til sérstakra svæða. Ferðakostnaðarreglur verða að vera almenns eðlis og ná til allra landsmanna. Auknir fjármunir, sem ráðherra hefur sagst í fyrri svörum munu leita eftir vegna aukinna útgjalda vegna ferðakostnaðar, renna því ekki óskiptir til íbúa tiltekinna svæða, þótt enginn sé þar tannréttingalæknir. Gera má t.d. ráð fyrir því að Vestfirðingar og Norðlendingar þurfi einnig að sækja þessa þjónustu um langan veg þótt hægt sé að fá hana á Ísafirði og á Akureyri. Ferðakostnaðarreglur gera þó ráð fyrir því að alla jafna sé þjónustan sótt til þess staðar sem næst liggur.
Eins og fram kemur í svari við 1. lið lagði ráðuneytið til við tryggingaráð að ferðakostnaðarreglum yrði breytt á þann hátt að þeir sem búa á landsbyggðinni og þurfa á tannréttingum að halda verði jafnsettir almennum sjúklingum á landsbyggðinni með tilliti til endurgreiðslu ferðakostnaðar. Á þessu stigi er ekki gert ráð fyrir öðru en að ráðuneytið muni breyta reglunum á þann veg þegar ráðherra fær tök á því samkvæmt væntanlegum lögum þar um frá Alþingi.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1636 — 976. mál.
Svar