130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1643 — 992. mál.
Skýrsla
samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2003 (siglingamálaáætlun).
(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)
Inngangur.
Með lögum nr. 71 8. maí 2002 er mælt fyrir um samræmda áætlanagerð við framkvæmdir og rekstur í samgöngumálum.
Annars vegar er gert ráð fyrir áætlun til 12 ára sem tekur til fjáröflunar og útgjalda til flugmála, vegamála og siglingamála, þ.m.t. hafnamála og sjóvarna, og reksturs stofnana, ásamt með því að skilgreina grunnkerfið og marka stefnu fyrir allar greinar samgangna. Áætlunina skal endurskoða á fjögurra ára fresti.
Hins vegar kveða lögin á um að 12 ára áætlunin sé nánar sundurliðuð í fjögurra ára tímabil með áætlun fyrir hvert ár þar sem fram komi ábyrgð og fjárheimildir stofnana samgöngumála sundurliðað eftir einstökum framkvæmdum, rekstri, þjónustu og viðhaldi eftir því sem við á með sama hætti og fjárlögin. Þessi áætlun skal endurskoða á tveggja ára fresti.
Lögin gera enn fremur ráð fyrir því að árlega sé lögð fram á Alþingi skýrsla um framkvæmd samgönguáætlunar næstliðið ár.
Stefnumótun.
Í samgönguáætlun áranna 2003–2014 eru sett fram og sérstaklega sundurliðuð tiltekin meginmarkmið. Í gildandi fjögurra ára áætlun er mælt fyrir um að unnið skuli að ákveðnum rannsóknar-, úttektar- og stefnumótunarverkefnum sem falla undir meginmarkmiðin, sem eru:
– greiðari samgöngur (flytjanleiki samgöngukerfisins),
– hagkvæmni í uppbyggingu og rekstri samgangna,
– umhverfislega sjálfbærar samgöngur,
– öryggi í samgöngum.
Þá liggur fyrir verkefnaáætlun samgönguráðuneytisins áranna 2003–2007 en þar er gerð grein fyrir helstu verkefnum sem samgönguráðherra vill að unnið sé að á næstu missirum.
Markmið Siglingastofnunar.
Siglingastofnun Íslands er framsækin þjónustustofnun sem vinnur að öryggi sjófarenda og aukinni hagkvæmni í sjósókn. Með sérfræðiþekkingu og skilvirkri miðlun upplýsinga um málefni hafna og siglinga þjónar Siglingastofnun stjórnvöldum, sjófarendum og útgerðarmönnum.
Siglingastofnun Íslands er virkur þátttakandi í mótun heildarstefnu stjórnvalda um samgöngur, skip, hafnir, strandlengju og umhverfismál sjávar.
Stofnunin leggur áherslu á að tryggja að sérfræðiþekking og reynsla starfsmanna leggi góðan grunn að opinberum kröfum um málefni sjávar og sjófarenda. Á sama hátt stendur stofnunin öruggan vörð um að þessar kröfur séu uppfylltar.
Siglingastofnun vinnur einnig að því að tryggja að sjónarmið íslenskra útgerðarmanna og sjófarenda fái hljómgrunn í alþjóðlegu samstarfi, þannig að sérhæfð þekking og reynsla af íslenskum aðstæðum endurspeglist í alþjóðlegum reglum um siglingamál.
| Fjármál | |||
| (fjárhæðir í millj. kr.) | Samgönguáætlun 2003 |
Fjárlög og fjár aukalög 2003 |
Rauntölur |
| Tekjur og framlög | |||
| Markaðar tekjur | |||
| Skipagjald | 63,9 | 63,9 | 63,9 1 |
| Vitagjald | 103,5 | 103,5 | 103,5 2 |
| Sérstakt vörugjald til Hafnabótasjóðs 3 | 213,2 | 106,6 | 106,6 |
| Markaðar tekjur alls | 380,6 | 274,0 | 274,0 |
| Framlag úr ríkissjóði | 1.465,5 | 1.578,0 | 1.291,0 |
| Sértekjur | 124,5 | 124,5 | 183,4 |
| Aðrar ríkistekjur | 1,3 | 1,3 | 1,2 |
| Tekjur og framlög alls | 1.971,9 | 1.977,8 | 1.749,6 |
| Viðskiptahreyfingar | –120,1 | –120,1 | –120,1 |
| Til ráðstöfunar | 1.851,8 | 1.857,7 | 1.629,5 |
| Gjöld | |||
| Rekstur og þjónusta: | |||
| Yfirstjórn | 186,1 | 199,1 | 268,0 |
| Vitar og leiðsögukerfi | 105,0 | 105,0 | 107,4 |
| Skipaskoðun | 115,0 | 115,0 | 141,3 |
| Vaktstöð siglinga | 158,1 | 172,5 | 175,7 |
| Áætlun um öryggi sjófarenda | 15,0 | 15,0 | 19,3 |
| Hafnir, líkantilraunir og grunnkort | 17,5 | 17,5 | 11,0 |
| Rannsóknir og þróun | 40,0 | 40,0 | 27,3 |
| Minjar og saga | 5,0 | 5,0 | 3,0 |
| Rekstrargjöld alls | 641,7 | 669,1 | 753,0 |
| Stofnkostnaður | |||
| Tæki og búnaður | 20,7 | 20,7 | 7,7 |
| Vitar og leiðsögukerfi | 11,5 | 11,5 | 16,6 |
| Hafnir í grunnneti, ríkisstyrktar | 1.116,1 | 1.090,6 | 816,1 |
| Áður framkvæmt/afborganir | –120,1 | –120,1 | –120,1 |
| Hafnir utan grunnnets, ríkisstyrktar | 52,5 | 52,5 | 41,3 |
| Lendingarbætur | 3,8 | 7,8 | 7,0 |
| Ferjubryggjur | 6,5 | 6,5 | 0,4 |
| Sjóvarnargarðar | 102,5 | 102,5 | 90,9 |
| Hafnabótasjóður, framlag | 16,6 | 16,6 | 16,6 |
| Stofnkostnaður alls | 1.210,1 | 1.188,6 | 876,5 |
| Gjöld alls | 1.851,8 | 1.857,7 | 1.629,5 |
Rekstur og þjónusta.
Inngangur.
Siglingamálaáætlun nær til allra verkefna sem löggjafinn og samgönguráðuneytið hafa falið Siglingastofnun Íslands að annast. Þá er bæði átt við verklegar framkvæmdir og rekstur. Siglingamálaáætlun kemur í stað þriggja þingsályktana sem Siglingastofnun hefur verið falin framkvæmd á og tekur að auki til allra annarra rekstrarverkefna sem eru á forræði stofnunarinnar. Þingsályktanir þær sem hér er átt við voru samþykktar 19. maí 2001 og eru um hafnaáætlun, sjóvarnaáætlun og langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda. Siglingamálaáætlun sú sem hér er fjallað um og nær til áranna 2003–2006 tekur mið af fyrri áætlunum og ákvörðunum sem þær fólu í sér. Hún er síðan hluti af samgönguáætlun samkvæmt lögum nr. 71 8. maí 2002.
Yfirstjórn.
Skipulag.
Um stjórn, starfshætti og hlutverk Siglingastofnunar Íslands er fjallað í lögum nr. 6/1996. Hlutverk stofnunarinnar er fyrst og fremst að vinna að öryggi sjófarenda og að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið. Um hlutverk, skipan og verkefni hafna- og siglingaráðs er fjallað í 4. og 5. gr. laganna annars vegar og 6. og 7. gr. hins vegar.
Hafnaráð.
Hafnaráð er ráðgefandi aðili fyrir samgönguráðherra og siglingamálastjóra í hafna- og sjóvarnamálum.
Hafnaráð fjallar um breytingar á lögum og reglum sem varða hafnamál, framkvæmdaáætlanir fyrir einstök ár og til lengri tíma, svo og fjármál hafna, þar á meðal gjaldskrárbreytingar.
Í hafnaráði sitja:
| Nafn | Tilnefning |
| Sigríður Finsen, formaður | samgönguráðherra |
| Brynjar Pálsson | samgönguráðherra |
| Eyrún Ingibjörg Steinþórsdóttir | samgönguráðherra |
| Björn Magnússon | Hafnasamband sveitarfélaga |
| Ólafur M. Kristinsson | Hafnasamband sveitarfélaga |
| Friðrik J. Arngrímsson | Samtök atvinnulífsins |
Siglingaráð.
Siglingaráð er ráðgefandi aðili fyrir samgönguráðherra og siglingamálastjóra í siglinga- og vitamálum. Siglingaráð fjallar um breytingar á lögum og reglugerðum sem varða siglinga- og vitamál. Árið 2003 sátu eftirtaldir fulltrúar í siglingaráði:
| Nafn | Tilnefning |
| Daði Jóhannesson, formaður | samgönguráðherra |
| Guðmundur Hallvarðsson | samgönguráðherra |
| Ásbjörn Óttarsson | samgönguráðherra |
| Guðjón Ármann Einarsson | Farmanna- og fiskimannasamband Íslands |
| Ingólfur Sverrisson | Málmur, samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði |
| Friðrik J. Arngrímsson | Landssamband íslenskra útvegsmanna |
| Örn Pálsson | Landssamband smábátaeigenda |
| Ólafur J. Briem | Samband íslenskra kaupskipaútgerða |
| Sævar Gunnarsson | Sjómannasamband Íslands |
| Hilmar Snorrason | Slysavarnafélagið Landsbjörg |
| Helgi Laxdal Magnússon | Vélstjórafélag Íslands |
Innra skipulag og starfshættir SÍ.
Sú aðferðafræði sem nefnd er árangursstjórnun tengist viðamiklum endurbótum á opinberri stjórnsýslu víða um heim undanfarna áratugi. Hér á landi má rekja upphaf hennar til fjármálaráðuneytisins sem birti árið 1993 bækling undir nafninu „Umbætur og nýskipan í ríkisrekstri“ og var honum ætlað að skýra stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisrekstri. Í formála segir að kjarni þeirrar stefnu sé að „dreifa valdi, auka ábyrgð og flytja ákvarðanir sem næst vettvangi og ná með því hagkvæmari rekstri og betri þjónustu.“ Í framhaldi af því var m.a. gerð tilraun með svonefnda samningsstjórnun og síðar verkefnavísa. Árið 1997 var svo hafist handa við breytingar undir merki árangursstjórnunar. Hún er í raun og veru einföld aðferðafræði sem felst í síendurteknu ferli markmiðssetningar, mælinga og viðbragða við frávikum. Með því að endurtaka þetta ferli er stöðugt leitast við að bæta árangur af starfi einstakra stofnana. Bæði er stefnt að aukinni skilvirkni og því að ná þeim áhrifum á þjóðfélagið sem sóst er eftir. Allt stefnir þetta að því að bæta ríkisreksturinn og meta hvernig til hefur tekist.
Samgönguráðuneytið og SÍ undirrituðu 29. desember 2000 slíkan árangursstjórnunarsamning. Hann tók gildi 1. janúar 2001 og er ætlað að gilda í fimm ár eða til ársloka 2005. Undirbúningur að gerð samningsins hafði staðið frá ársbyrjun 1998, en áður hafði gilt samningsstjórnunarsamningur við Vita- og hafnamálastofnun tímabilið 1. janúar 1995 til 31. desember 1997.
Í ljósi þess að senn verða liðin 10 ár frá því að SÍ tók til starfa og brátt þarf að huga að endurnýjun framangreinds samnings var ákveðið snemma árs 2003 að nauðsyn bæri til að skipulegrar athugunar á starfsháttum og verkefnum SÍ. Þetta var ekki síður talið tímabært í ljósi nýrrar lagasetningar um ýmsa þætti í starfseminni, merkra þingsályktana, m.a. um samgönguáætlun, og ekki síst flutnings nýrra verkefna til stofnunarinnar.
Settur var á laggirnar starfshópur sem hefur leitt þetta verk og er nú lokið viðamiklu stöðumati þar sem farið hefur verið ofan í það umhverfi sem stofnunin vinnur í, bæði hið ytra sem knýr á um breytingar og hið innra, þ.e. þá starfsemi og mannauð sem í stofnuninni býr. Farið hefur fram sjálfsgreining á stofnuninni með tiltekinni aðferðafræði undir formerkjum samhæfðs árangursmats og tóku þátt í henni yfirstjórn og fjölmargir starfsmenn aðrir. Þá var gerð starfsmannakönnun sem og viðskiptamannakönnun, auk þess sem flestir starfsmenn SÍ ræddu um stöðu og framtíð stofnunarinnar á skipulegum vinnustofufundum.
Með framangreindum hætti var lagður vandaður grunnur að traustu stöðumati sem verður verkefni ársins 2004 ásamt með mótun framtíðarsýnar og skipulegu þroskaferli í takt við þá meginstrauma og stefnur sem lagðar hafa verið um þróun ríkisrekstrarins.
Undirbúningur laga og reglugerða á sviði siglingamála.
Siglingastofnun tók þátt í undirbúningi ýmissa lagafrumvarpa sem samgönguráðuneytið lagði fram á Alþingi 2002–2003. Frumvörpin fjölluðu m.a. um skráningu skipa, Siglingastofnun Íslands, vinnutíma sjómanna, vaktstöð siglinga, eftirlit með skipum, rannsókn sjóslysa og hafnir.
Innan Siglingastofnunar var á árinu 2003 unnið að undirbúningi ýmissa reglugerða, t.d. um asdik-búnað skipa, úrskurðarnefnd siglingamála, farþega- og flutningaskip, undanþágunefnd, mönnunarnefnd, hafnarríkiseftirlit, skráningu á afli aðalvéla skipa og um skoðanir á skipum og búnaði þeirra. Auk þess var á árinu 2003 unnið að gerð ýmissa reglugerða sem settar voru í upphafi árs 2004 í tengslum við breytt fyrirkomulag skipaskoðunar, svo sem reglugerð um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar, öryggi fiskiskipa 15 metra og lengri að mestu lengd og viðurkenningu flokkunarfélaga.
Siglingastofnun tók þátt í undirbúningi ýmissa lagafrumvarpa sem samgönguráðuneytið lagði fram á Alþingi 2002–2003.
Hér á eftir er listi yfir lög og reglugerðir sem sett hafa verið á árinu 2003 á sviði siglinga:
Lög:
Lög um breytingu á lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985, nr. 10/2003.
Lög um breytingu á lögum um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, nr. 29/2003.
Lög um breytingu á lagaákvæðum er varða vinnutíma sjómanna, nr. 31/2003.
Lög um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003.
Lög um eftirlit með skipum, nr. 47/2003.
Lög um breytingu á lögum um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, nr. 57/2003.
Lög um breytingu á sjómannalögum, nr. 35/1985, nr. 59/2003.
Hafnalög, nr. 61/2003.
Reglugerðir:
Reglur um breytingu á reglum um stöðugleika og öryggi fiskiskipa, nr. 553/1975, með síðari breytingum, nr. 189/2003.
Reglugerð um breytingu á reglugerð um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri, nr. 26/2000, með síðari breytingum, nr. 190/2003.
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um hönnun olíuflutningaskipa, nr. 310/2003.
Reglugerð um úrskurðarnefnd siglingamála, nr. 402/2003.
Reglugerð um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 416/2003.
Starfsreglur fyrir undanþágunefnd, nr. 417/2003.
Reglugerð um mönnunarnefnd skipa, nr. 420/2003.
Reglugerð um hafnarríkiseftirlit með sjóflutningum, nr. 589/2003.
Reglugerð um eftirlit og skráningu á afli aðalvéla íslenskra skipa, nr. 610/2003.
Reglugerð um breytingu á reglugerð um heilbrigðisþjónustu, lyf og læknisáhöld um borð í íslenskum skipum, nr. 365/1998, 921/2003.
Reglugerð um skoðanir á skipum og búnaði þeirra, nr. 1017/2003.
Gjaldskrá:
Gjaldskrá fyrir hafnir, nr. 193/2003.
Gjaldskrá fyrir hafnir, nr. 398/2003.
Gjaldskrá Siglingastofnunar Íslands, 1001/2003.
Alþjóðasamstarf.
Siglingastofnun tekur þátt í víðtæku alþjóðasamstarfi, m.a. á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit (Paris MOU), Siglingaöryggisstofnunar Evrópu (EMSA), Evrópska efnahagssvæðisins (EES), Evrópusambandsins (ESB), Norðurlandasamstarfs, alþjóðasamtaka í hafnamálum (PIANC), alþjóðasamtaka vitastofnana (IALA) og víðar.
Á vettvangi IMO hefur frá árinu 1999 sérstakur starfshópur unnið að því í að samræma kröfur um smíði og búnað fiskiskipa við kröfur Torremolinos-bókunarinnar frá 1993. Starfshópurinn skilaði lokaskýrslu um málið í september árið 2001. Í umfjöllun um lokaskýrsluna var ákveðið að fela sex undirnefndum á vegum IMO að fjalla nánar um málið á grundvelli fyrirliggjandi skýrslu. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á árinu 2004.
Siglingastofnun tók einnig þátt í vinnuhópi á vegum IMO sem vinnur að nýjum reglum um smíði og búnað skipa sem sigla á Norður-Íshafssvæðinu.
Um annað alþjóðasamstarf vísast til kaflanna um rannsóknir og þróun og hafnarríkiseftirlit.
Upplýsingamiðlun.
Siglingastofnun Íslands leggur áherslu á markvissa miðlun upplýsinga og greiðan aðgang að gagnasöfnum stofnunarinnar í takt við samræmda stefnu stjórnvalda, sbr. t.d. upplýsingalög og almenn gjaldtökufyrirmæli. Fylgst er grannt með þróun rafrænnar stjórnsýslu og þeim áhrifum sem hún hefur á starfsemi SÍ.
Vefur stofnunarinnar, www.sigling.is, og fréttabréf hennar Til sjávar mynda kjarnann í upplýsingastarfseminni. Fréttabréfið kom út fjórum sinnum árið 2003, en áskrift að því er ókeypis. Því er dreift til allra skráðra skipa og báta, útgerða, hafna, sveitarfélaga, alþingismanna, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Í blaðinu er að finna greinar og fréttir um það helsta sem er að gerast á vettvangi stofnunarinnar. Haldið er úti öflugri heimasíðu sem birtist með nýju og breyttu fyrirkomulagi árið 2003. Þar eru auk stöðugs fréttaflutnings settar fram ítarlegar upplýsingar um alla þætti starfseminnar á skipulegan og greinargóðan hátt. Þar má nefna laga- og reglugerðaskrá, upplýsingar um veður og sjólag, útgáfuskrár, gjaldskrár, eyðublöð og flest það annað sem auðvelda má almenningi og viðskiptavinum samband við stofnunina.
Hér að framan var minnst á upplýsingar um veður og sjólag, sem byggjast á afar víðfeðmu og merkilegu gagnasafni, sem þróast hefur og eflst undanfarin ár. Sértæk söfnun upplýsinga með ölduduflum og tenging þeirra við veðurfræðileg gögn frá Veðurstofu Íslands, sem og áralöng athugun á sambandi vinda og sjávarfalla, hafa gert stofnuninni kleift að byggja upp þetta safn sem síðan nýtist til rauntímafræðslu um veður til fiskimanna og annarra sæfarenda við strendur landsins. Nytsemi upplýsinganna birtist ekki síður í nýtingu þeirra við hönnun hafnarmannvirkja, ákvörðun siglingaleiða og skyldra atriða.
Þá heldur stofnunin rafræna skrá yfir sérhvert fljótandi far sem er yfir 6 metrar á lengd eða stærri mælt stafna á milli. Hún hefur að geyma margvíslegar upplýsingar um flota landsmanna og nýtist í margs konar tilgangi, vegna eftirlits með öryggi skipa, sem eigendaskrá, við úthlutun fiskveiðiheimilda o.fl.
Af öðrum gagnasöfnum má nefna, svo sem leiðir af eðli máls, afar ítarlegt og margþætt safn teikninga og annarra grunngagna sem til hafa orðið vegna starfsemi stofnunarinnar við hönnun, ráðgjöf og eftirlit með hafnamannvirkjum. Sama á við um skip og báta. Hér er um merkileg söfn að ræða af fleiri en einni ástæðu sem sótt er í af hafnarstjórnum, skipseigendum, sagnfræðingum o.fl.
Loks skal getið bókasafns stofnunarinnar, en þar er skipulega safnað saman ritum sem gagnast stofnuninni. Safnið er skráð og tengt Landskerfi bókasafna og er þannig aðgengilegt öllum þeim er leita vilja tiltekinna fræðirita, auk þess sem starfsmenn stofnunarinnar geta með nútímalegum hætti kannað hvað er að finna í öðrum sérsöfnum og fengið þaðan lánaðar bækur.
Vitar og leiðsögukerfi.
Siglingastofnun annast uppbyggingu og rekstur landsvitakerfisins og hefur umsjón og eftirlit með uppbyggingu og rekstri hafnarvita og innsiglingarmerkja. Til að reka vita- og leiðsögukerfi við Ísland fær Siglingastofnun til ráðstöfunar vitagjald sem er sérstakur skattur sem samkvæmt íslenskum vitalögum er lagt á íslensk skip og erlend skip sem taka íslenska höfn. Fjárhæð gjaldsins tekur mið af brúttótonnatölu skipsins.
Viðhald og eftirlit Siglingastofnunar með vitum landsins skiptist í stórum dráttum í eftirlit með búnaði og viðhald á vitabyggingum.
Á árinu 2003 var viðhald og eftirlit með vitum og leiðsögubúnaði með hefðbundnum hætti. Unnið var að viðhaldi á 18 vitabyggingum ásamt nokkrum sjómerkjum. Farið var í 70 vita til eftirlits og endurnýjunar ljós- og rafbúnaðar. Tveir ljósvitar og þrír radarsvarar voru rafvæddir með sólarorku.
Rekstur upplýsingakerfis Siglingastofnunar um veður og sjólag gekk vel á árinu. Kerfið gefur sjófarendum kost á nýjum upplýsingum um veður og sjólag umhverfis landið á klukkustundarfresti. Upplýsingarnar er hægt að nálgast á vef stofnunarinnar og í síma.
Skipaskoðun.
Skipaskrá.
Á hverju ári gefur Siglingastofnun út skrá yfir þilfarsskip og opna báta miðað við 1. janúar. Útgáfan er samkvæmt lögum um skráningu skipa, nr. 115/1985. Fyrsta janúar 2004 voru samtals 2.365 skip á skrá og brúttótonnatala þeirra var 233.403 brúttótonn. Annað árið í röð fækkaði skipum í íslenska skipastólnum. Fækkunin nam samtals 43 skipum.
Á aðalskipaskrá 1. janúar 2004 voru 1.128 þilfarsskip og brúttótonnatala þeirra var 226.081. Opnir bátar voru samtals 1.237 og brúttótonnatala þeirra var 7.322.
Tölurnar í töflunni hér á eftir eru miðaðar við 1. janúar ár hvert.
| Fjöldi og stærð í brúttótonnum | 2002 | 2003 | 2004 |
| Þilfarsskip | 1.136 | 1.135 | 1.128 |
| Brúttótonn | 230.748 | 235.775 | 226.081 |
| Opnir bátar | 1.329 | 1.273 | 1.237 |
| Brúttótonn | 7.745 | 7.473 | 7.322 |
| Heildarfjöldi | 2.465 | 2.408 | 2.365 |
| Heildarbrúttótonnatala | 238.493 | 243.249 | 233.403 |
Flokkuð skip.
Viðurkennd flokkunarfélög hafa heimild til að gera þær skoðanir á skipum sem eru í flokki hjá þeim og falla undir alþjóðasamninga, svo sem MARPOL og SOLAS. Hinn 1. janúar 2003 voru 154 skip hjá flokkunarfélögum.
| Flokkunarfélag | 2002 | 2003 | 2004 |
| Bureau Veritas (BV) | 9 | 9 | 9 |
| Germanischer Loyd (GL) | 6 | 7 | 7 |
| Loyd's Register of Shipping (LR) | 60 | 59 | 56 |
| Det Norske Veritas (NV) | 94 | 87 | 82 |
| Samtals | 169 | 162 | 154 |
Af öðrum verkefnum á sviði skipamála má nefna útgáfu atvinnuréttindaskírteina, þjónustu við mönnunar- og undanþágunefndir sjómanna og undirbúning og kynningu á laga- og reglugerðasetningu. Um alþjóðasamstarf á sviði siglingamála vísast í kaflann um alþjóðasamstarf.
Á árinu 2003 voru gefin út 92 alþjóðaatvinnuskírteini, STCW-skírteini, tvö atvinnukafaraskírteini, þrjú skírteini hafnsögumanns og þrjú leiðsögumannsskírteini. Skipasviðið gaf einnig út starfsleyfi til farþegaflutninga og var 41 slíkt leyfi gefið út árið 2003, átta starfsleyfi fyrir bátaleigur og fjögur leyfi til að stunda flúðasiglingar.
Skipaskoðun.
Skoðunarsvið Siglingastofnunar sinnir lögbundnu eftirliti stofnunarinnar með skipum. Aðalskrifstofa sviðsins er í Kópavogi en sjö umdæmisskrifstofur eru um land allt. Árið 2003 voru gerðar samtals rúmlega sex þúsund skoðanir.
Aðalskoðun skips skiptist í árlega búnaðar- og vélskoðun, bolskoðun sem gerð er annað hvert ár og öxulskoðun á fjögurra ára fresti. Aðrar skoðanir eru t.d. skyndiskoðanir, skoðanir á fjarskiptatækjum, brunavarnakerfum, hallaprófanir, rafmagnsskoðanir, skoðanir vegna nýsmíði o.fl. Mjög mismunandi er hvað felst í hverri skoðun fyrir sig og hvort um er að ræða skoðun á opnum bátum eða þilfarsskipum.
Fjöldi skipaskoðana eftir umdæmum.
| Bolskoðun | Búnaðar- skoðun |
Vélskoðun | Öxul- skoðun |
Annað | Samtals | |
| Kópavogur | 409 | 665 | 487 | 227 | 211 | 1.999 |
| Ólafsvík | 134 | 230 | 215 | 85 | 49 | 713 |
| Ísafjörður | 205 | 377 | 284 | 138 | 62 | 1.066 |
| Akureyri | 237 | 401 | 334 | 118 | 75 | 1.165 |
| Fáskrúðsfjörður | 106 | 212 | 197 | 50 | 15 | 580 |
| Vestmannaeyjar | 79 | 103 | 74 | 22 | 15 | 293 |
| Keflavík | 87 | 154 | 140 | 48 | 30 | 459 |
| Samtals | 1.257 | 2.142 | 1.731 | 711 | 457 | 6.275 |
Undirbúningur að breyttu fyrirkomulagi skipaskoðunar.
Árið 2001 var ákveðið að hefja endurskoðun á lögum um eftirlit með skipum, nr. 35/1993. Hagsmunaaðilar komu að þeirri vinnu og var eitt meginmarkmiðið að einfalda og samræma skoðanir og eftirlit í skipum. Með nýjum lögum um eftirlit með skipum, nr. 47/2003, var grunnur lagður að nýju fyrirkomulagi skipaskoðunar.
Við undirbúning breytinganna hefur sérstaklega verið gætt að því að fylgja regluverki því sem gildir á EES-svæðinu í þessu sambandi, þ.e. að tryggja að íslenskar sérreglur á þessu sviði brytu ekki á nokkurn hátt í bága við reglur á svæðinu um skipaskoðun og voru m.a. haldnir fundir með Eftirlitsstofnun EFTA af því tilefni.
Á vegum samgönguráðuneytis, Siglingastofnunar og fulltrúa nefndar um einföldun opinberra eftirlitsreglna voru við undirbúning þessa máls haldnir fjölmargir fundir þar sem hagsmunaaðilum var boðið að koma á framfæri athugasemdum sínum. Haldnir voru opnir kynningarfundir á vegum Siglingastofnunar og jafnframt hefur Siglingastofnun kynnt þessi mál í fréttabréfi sínu, Til sjávar, auk þess að kynna þetta á vefsíðu stofnunarinnar. Samgönguráðuneytið hefur einnig gert hið sama. Málið hefur enn fremur verið kynnt og er til umfjöllunar í siglingaráði.
Hagsmunaaðilum sem teljast þiggjendur þjónustunnar var boðið að taka þátt í vinnuhópi Siglingastofnunar sem og öllum hagsmunaaðilum í siglingaráði.
Við undirbúning breytinganna hefur verið haft að leiðarljósi að ekki verði dregið úr öryggi skipa og áhafna frá því sem nú er heldur allt gert til þess að tryggja öryggi og að öryggismál verði í betra horfi en áður.
Nýju lögin um eftirlit með skipum og viðeigandi reglugerð tryggja að skoðun á öryggisbúnaði skipa fari ætíð fram árlega og er því ekki verið að slaka á kröfum um öryggi skipa og áhafna þeirra.
Hafnarríkiseftirlit.
Í samræmi við ákvæði Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit sinnti Siglingastofnun Íslands að venju eftirliti með erlendum skipum árið 2003.
Alls komu til landsins 300 skip árið 2003. 75 skip frá 26 þjóðlöndum voru skoðuð eða 25% eins og fyrrnefnt samkomulag segir til um. Gerðar voru 113 athugasemdir og aðrar 188 teknar út samkvæmt ábendingum annarra aðildarríkja. Tvö skip voru sett í farbann, annað frá Spáni, hitt frá Noregi.
Eitt af markmiðum Parísarsamkomulagsins er að koma í veg fyrir siglingar skipa sem ekki uppfylla alþjóðakröfur um öryggi, aðbúnað og hollustuhætti áhafna og atvinnuréttindi þeirra sem og mengun frá skipum. Siglingum þessara svokölluðu undirmálsskipa hefur fækkað til muna eftir að skipum var bannað að koma til hafnar aðildarríkja Parísarsamkomulagsins eftir að hafa ítrekað verið sett í farbann.
Ein skoðunarherferð var á vegum hafnarríkiseftirlitsins á öryggisstjórnun í farþegaskipum.
Rannsókn sjóslysa.
Samkvæmt lögum um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000, er það m.a. hlutverk Siglingastofnunar að taka til formlegrar afgreiðslu tillögur rannsóknarnefndar sjóslysa til úrbóta í öryggismálum á sjó og gera henni grein fyrir þeim úrbótum sem gerðar hafa verið. Þá ber Siglingastofnun samkvæmt reglugerð nr. 133/2002 að eiga frumkvæði að sérstökum aðgerðum séu þær taldar nauðsynlegar.
Eftirfarandi töflur byggjast á upplýsingum frá rannsóknarnefnd sjóslysa og Tryggingastofnun.
Dauðaslys á fiskiskipum 1995–2003.
| 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | |
| Skip<12 m | 1 | 2 | 1 | 2 | 1 | |||
| Skip 12–24 m | 3 | 3 | 2 | |||||
| Skip>24 m | 5 | 4 | ||||||
| Samtals | 9 | 2 | 1 | 2 | 1 | 7 | 2 | 1 4 |
Fiskiskip sem fórust 1996–2003.
| 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | |
| Skip<12 m | 4 | 6 | 3 | 3 | 8 | 4 | ||
| Skip 12–24 m | 2 | 1 | 1 | 1 | 3 | |||
| Skip>24 m | 2 | 2 | 1 | 2 | 1 | 3 | ||
| Samtals | 8 | 9 | 3 | 3 | 10 | 3 | 4 | 7 5 |
Tilkynnt slys til Tryggingastofnunar 1995–2003.
| 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 |
| 459 | 434 | 460 | 378 | 381 | 361 | 348 | 413 | 379 |
Vaktstöð siglinga.
Markmið laganna um vaktstöð siglinga er að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna og efla varnir gegn mengun sjávar frá skipum. Til að ná því er kveðið á um að Siglingastofnun Íslands setji á fót vaktstöð siglinga, sbr. lög nr. 41/2003.
Stofnunin setti á fót vinnuhóp um framtíðarfyrirkomulag vaktstöðvar sem skilaði af sér áliti til samgönguráðherra 30. júní 2003, sbr. minnisblað þess efnis dagsett sama dag. Tillögur stofnunarinnar voru til umfjöllunar í ráðuneytinu í framhaldi af því en á haustdögum eftir fund samgönguráðherra og dómsmálaráðherra var ákveðið að ráðuneytin skiptust á verkefnum og fólst skiptingin m.a. í því að er gert ráð fyrir því að dómsmálaráðuneytið muni hafa með rekstur vaktstöðvar siglinga að segja.
Samkomulag um útfærslu verkaskiptingar milli ráðuneytanna og stofnunarinnar liggur ekki endanlega fyrir en unnið er með samkomulagsdrög sem búist er við að skrifað verði undir í byrjun árs 2004. Samkomulagsdrögin gera ráð fyrir eftirfarandi verkaskiptingu:
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið tekur við rekstri vaktstöðvar siglinga, þ.e. vöktun móttöku og miðlun upplýsinga skv. 2. gr. laga nr. 41/2003, og felur stofnunum á vegum þess að leysa þau verkefni sem vaktstöðinni eru falin samkvæmt sömu lögum. Verkefni vaktstöðvar siglinga, sbr. 2. gr., skulu útfærð í sérstökum þjónustusamningi hliðstæðum núgildandi þjónustusamningi milli Siglingastofnunar Íslands og Landssíma Íslands. Heimilt er að færa vaktstöðinni fleiri verkefni en um getur í 2. gr. laga um vaktstöð siglinga og skulu þau verkefni útfærð í áðurnefndum þjónustusamningi.
Siglingastofnun Íslands fer með stjórnsýslulega ábyrgð og samskipti við stjórnvöld er varða verkefni vaktstöðvar, sbr. lög nr. 41/2003. Í því felst að stofnunin hefur með höndum fjárhagslegt og faglegt eftirlit með vaktstöðinni og sinnir alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði, t.a.m. samstarf við Alþjóðasiglingamálastofnunina og Siglingaöryggisstofnun Evrópu. Reiknað er með að í framhaldi af undirritun samkomulags verði unnið að gerð ítarlegs þjónustusamnings milli Siglingastofnunar og dómsmálaráðuneytis um þá þjónustu sem vaktstöðinni er ætlað að sinna. Sá þjónustusamningur yrði í anda þess samnings sem stofnunin hefur haft við Landssíma Íslands.
Áætlun um öryggi sjófarenda.
Framkvæmd langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda 2001–2003 er á hendi Siglingastofnunar í samvinnu við verkefnisstjórn, en í henni sitja fulltrúar stéttarfélaga sjómanna, samtaka útgerða, Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Landhelgisgæslu, Siglingastofnunar og samgönguráðuneytis.
Á árinu 2003 var unnið að ýmsum málum á sviði öryggismála í samræmi við áætlunina. Gefnar voru út bækurnar „Lækningabók sjófarenda“ og „Stöðugleiki fiskiskipa“. Þrír fræðslupésar um öryggismál sjófarenda voru gefnir út, en þeir fjalla um öryggi í höfnum, öryggi farþega í skipum og öryggi smábáta á fiskveiðum. Útgefið fræðsluefni og myndbönd eru aðgengileg á sérstökum vef um öryggismál sjómanna, sem nálgast má á heimasíðu Siglingastofnunar.
Í undirbúningi eru ýmiss konar mál sem lúta að sjómannamenntun, öryggisfræðslu, lækningahandbók, starfi öryggisfulltrúa um borð í skipum og öryggisstjórnunarkerfi.
Á gildistíma langtímaáætlunar, þ.e. á tímabilinu frá 2001–2003, var varið 40 millj. kr. til verkefna samkvæmt henni, þ.e. 10 millj. kr. árið 2001, 15 millj. kr. árið 2002 og 2003.
Fræðast má frekar um framkvæmd áætlunarinnar árið 2003 í sérstakri skýrslu sem samgönguráðherra lagði fyrir Alþingi í apríl 2004, en öryggismál sjófarenda verða í framtíðinni hluti af samgönguáætlun samkvæmt lögum um samgönguáætlun, nr. 71/2002.
Þjónustusamningar um öryggismál.
Á ársfundi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem haldinn var á Akureyri í maí 2001, voru undirritaðir fimm samstarfsamningar milli félagsins og samgönguráðuneytisins. Grundvöllur samningsgerðarinnar var að ráðuneytið keypti tiltekna þjónustu af félaginu og jafnframt að Siglingastofnun mundi fyrir hönd verkkaupa annast almennt eftirlit með framkvæmdinni. Viðaukasamningur var gerður vegna málsins í apríl 2002.
Með vísan til ákvæða í téðum samningum um upplýsingaskyldu félagsins og eftirlitshlutverk stofnunarinnar þá var seinni hluta árs 2003 dregið saman efni um starfsemi ársins 2002. Það var síðan sett í sérstaka greinargerð stofnunarinnar. Gögn vegna starfseminnar árið 2002 bárust haustið 2003 og eru þau grundvöllur greinargerðarinnar um starfsemina fyrir það ár.
Á ríkisstjórnarfundi í nóvember 2003 var samþykkt breytt verkaskipting milli dómsmálaráðuneytis og samgönguráðuneytis. Í þessu fólst m.a. flutningur forræðis, framkvæmdar og eftirlits með þeim samningum sem hér er um fjallað. Í samræmi við þetta tekur dómsmálaráðuneytið við samningum um sjálfvirka tilkynningarskyldu, um björgunarbátasjóði og um þjálfunar- og fræðslumiðstöð að Gufuskálum frá og með 1. janúar 2004. Þar sem upplýsingar vegna ársins 2003 berast ekki fyrr en um mitt ár 2004 og þau gögn eiga að undirbyggja eftirlit og ákvarðanatöku vegna þessara samninga mun dómsmálaráðuneytið taki saman greinargerð um framkvæmd 2003 og leggja á ráðin með 2005. Samningurinn um Slysavarnaskóla sjómanna verður áfram á ábyrgð samgönguráðuneytisins og Siglingastofnunar.
Hafnir, líkantilraunir og grunnkort.
Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum á sviði hafna, líkantilrauna og grunnkorta fyrir 11,0 millj. kr. Í rannsóknunum felst gerð grunnkorta af höfnum, líkantilraunir og rannsóknir sem tengjast beint ákveðnum framkvæmdum í höfnum.
Áfram var unnið að líkani af Þorlákshöfn. Í tilraunum í líkaninu kom fram að hönnunarálag á fremri hluta nýja garðsins er litlu minna en á núverandi Suðurvarargarð. Því var ljóst að stórgrýti, allt að 30 tonnum, þyrfti í nýja garðinn til þess að hann stæðist svipað ölduálag og er á núverandi „dolos“-garði. Gerð var sérstök athugun á kyrrð við ytri enda Miðgarðs og möguleikum flutningaskipa til að snúa innan hafnar.
Unnið var áfram að frumathugunum á hafnargerð vegna kalkþörungaverksmiðju í Arnarfirði og frumtillögum að mannvirkinu.
Slysavarnir í höfnum.
Kannaðar voru slysavarnir í eftirtöldum höfnum árið 2003: Arnarstapahöfn, Bakkafjarðarhöfn, Bíldudalshöfn, Blönduóshöfn, Brjánslækjarhöfn, Búðahöfn, Drangsneshöfn, Hofsóshöfn, Hólmavíkurhöfn, Hvammstangahöfn, Norðurfjarðarhöfn, Ólafsvíkurhöfn, Patreksfjarðarhöfn, Raufarhöfn, Reykjaneshöfn, Reykjavíkurhöfn, Rifshöfn, Sauðárkrókshöfn, Siglufjarðarhöfn, Skagastrandarhöfn, Tálknafjarðarhöfn, Þorlákshöfn, Þórshöfn.
Farið var yfir lausan slysavarnabúnað í höfnunum svo sem björgunarhringi, björgunarnet, krókstjaka og fleira og ástand hans kannað. Einnig var gætt að ásigkomulagi innsiglingarmerkja og innsiglingarljósa. Þá var gætt að bryggjustigum og lýsingu stiga, kannað hvort kanttré og bryggjukantar væru málaðir og hvort innbára við stiga væri máluð.
Rannsóknir og þróun.
Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum og þróun fyrir 27,3 millj. kr. Í þeim fólst öflun grunnupplýsinga af ýmsu tagi með mælingum og öðrum rannsóknum til að stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum og vali á lausnum við mannvirkjagerð.
Unnið var að öldufarsrannsóknum við suðurströnd Íslands, einkum í tengslum við öldufar á siglingaleiðum frá Vestmannaeyjum upp að Bakkafjöru. Unnið var að öldufarsreikningum og kortlagningu öldu á siglingaleiðum fyrir Suðvesturlandi vegna leiðastjórnunarverkefnis sem miðar að því að afmarka siglingaleiðir olíu- og flutningaskipa á þessum slóðum. Einnig var hafinn undirbúningur að öldufarsreikningum fyrir Hornafjarðarós og Breiðamerkursand, en það verkefni er unnið í samvinnu við Vegagerðina. Lögð var sérstök áhersla á verkefni sem tengjast suðurströnd Íslands og var við það miðað að framlög til rannsókna verði aukin um 10 millj. kr. á ári til að standa straum af kostnaði við slík verkefni.
Í skýrslu starfshóps samgönguráðherra um samgöngur við Vestmannaeyjar sem lokið var við í mars 2003 voru birtar rannsóknir og tillögur að hugsanlegu ferjulægi á Bakkafjöru ásamt frumkostnaðarmati og tillögum að frekari rannsóknum.
Á fjölþjóðlegri ráðstefnu bandaríska verkfræðingafélagsins ASCE í Portland í Oregon í Bandaríkjunum er bar heitið Costal Structures 2003 var birt grein sem unnin var í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Titill hennar er: „Sirevåg Berm Breakwater. Design, Construction and Experience after Design Storm.“
Út kom á árinu 2003 skýrsla alþjóðlegrar vinnunefndar um bermugarða á vegum PIANC. Siglingastofnun tók virkan þátt í vinnu nefndarinnar. Skýrslan ber heitið: „State-of-the-art-of Designing and Constructing Berm Breakwaters.“ Forsíðu skýrslunnar prýðir mynd af bermugarðinum í Sirevåg í Noregi sem hannaður var af starfsmönnum Siglingastofnunar.
Í tengslum við rannsóknir á öryggi skipa á siglingaleiðum var á árinu 2003 þróaður búnaður sem getur mælt krafta vegna hröðunar þriggja grunnhreyfinga skipa á rúmsjó, þ.e. veltu, dýfu og lyftingar. Þessum búnaði var komið fyrir í tveimur skipum; gámaflutningaskipi sem siglir reglulega fyrir Suðvesturlandi og mun sigla bæði innri og ytri leið fyrir Reykjanes, og varðskipi sem mun sigla nokkrum sinnum um Reykjaneshrygg til að hægt verði að gera samtímasamanburð á kröftum og hreyfingum skipa eftir siglingaleiðum fyrir Reykjanes.
Haldið var áfram að fylgjast með og kanna botnbreytingar á Grynnslunum fyrir framan Hornafjarðarós.
Unnið var að stafrænum gagnagrunni fyrir sjávardýpi í Breiðafirði. Haldið var áfram að setja upp sjávarfallalíkan og að þróa líkan fyrir rek olíu og hluta á sjó.
Enn fremur var unnið að tilraunum með hreyfistöðugleika skipa og framsetningu stöðugleikagagna og smíði og þróun andveltugeyma skipa ásamt rannsóknum á vatnsþéttleika skipa.
Hafinn var undirbúningur að alþjóðlegri ráðstefnu um hafið, náttúruöflin og glímu mannanna við þessi öfl.
Minjar og saga.
Siglingastofnun Íslands er meðvituð um áratuga og um sumt aldagamla sögu sína. Þar hefur um margt verið lagður grunnur að byggingarsögu- og verktæknilegri framþróun í landinu, merkileg mannvirki reist, oft við erfiðar aðstæður, og aðstæður skapaðar til almennrar hagsældar með leiðsögu og öruggri landtöku.
Síðla árs 2002 kom gaf stofnunin út bókina Vitar á Íslandi – leiðarljós á landsins ströndum. Tilefnið var 125 ára afmæli Reykjanesvita, en bygging hans markaði upphaf ljósvitavæðingar landsins. Til verksins var ráðinn sagnfræðingur, sem að vitasögunni frágenginni hófst handa við ritun sögu hafnagerðar á Íslandi. Verkið er viðamikið, en gagnasöfnun er í fullum gangi og gert er ráð fyrir að verkinu ljúki síðla árið 2005. Þá bíður skrásetningar saga annarra verkefna sem SÍ fæst við, svo sem skipaeftirlits og almennra öryggismál sæfarenda.
Vitaafmælisins var einnig minnst með athöfn í Gróttuvita 1. desember 2003, en þann dag árið 1878 var kveikt á Reykjanesvita nýreistum. Þar var tilkynnt um friðun sjö vita í samvinnu við menntamálaráðuneytið og húsfriðunarnefnd.
Tæki og búnaður.
Árið 2003 var fjárfest í tækjum og búnaði fyrir 7,7 millj. kr. Hér er aðallega um að ræða skrifstofutæki svo sem tölvur og ljósritunarvélar.
Vitar og leiðsögukerfi.
Á árinu var unnið að undirbúningi á uppsetningu sjálfvirks auðkenniskerfis skipa, AIS. Keyptar voru fjórar grunnstöðvar og var ein sett upp hjá Siglingastofnun í Kópavogi og hefur hún verið í tilraunarekstri.
Hafnir.
Hér er að finna stuttorðar lýsingar á ríkisstyrktum hafnarframkvæmdum árið 2003 á hverjum stað fyrir sig og tölur um fjárveitingar til hafnarframkvæmda og ráðstöfun þeirra í töflum I—VII. Einnig er fjallað um varnir gegn landbroti af ágangi sjávar og greint frá verkum sem unnin hafa verið í höfnum án ríkisstyrkja.
Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir.
Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla um framkvæmdir í höfnum sem ekki voru ríkisstyrktar.
Akranes.
Dýpkun við aðalhafnargarð Akraneshafnar, sem hófst í október 2002, lauk í mars 2003. Í verkinu fólst dýpkun í 8,5 til 10,0 m dýpi við Aðalhafnargarð. Verkið var unnið af Hagtaki hf. og tókst vel.
Boðin var út í apríl endurbygging Aðalhafnargarðs sem fólst í rekstri stálþils framan við steypt ker. Hagtak hf. reyndist lægstbjóðandi með 66,3% af kostnaðaráætlun hönnuða. Verkið hófst í lok apríl og því lauk í ágúst. Þilið er um 180 m langt og dýpi er 10,0 m. Framkvæmdin tókst vel.
Ferjubryggjan á Akranesi var klædd með harðviði. Verkið fólst í því að loka bili á milli steyptra kerja með klæðningu úr harðviði. Samið var við trésmiðjuna Kjöl um verkið sem hófst í júlí og lauk í september. Framkvæmdin tókst vel og þykir aðstaða fyrir smábáta vera til fyrirmyndar eftir þessa breytingu.
Í október var boðin út vinna við að steypa þekju og leggja raf- og vatnslagnir við nýtt stálþil á Aðalhafnargarði og bárust 7 tilboð. Samið var við Skófluna hf. sem bauð 75,3% af kostnaðaráætlun hönnuða. Alls verða steyptir um 3.200 m 2 af þekju. Kostnaður vegna undirbúnings féll á verkið á árinu en verktakareikningar koma allir á árinu 2004.
Framkvæmdakostnaður: 124,7 millj. kr.
Borgarbyggð.
Á hafnaáætlun 2003 voru ætlaðar 6,0 millj. kr. til að fylla að gömlu bryggjunni í Borgarnesi þar sem hún var talin orðin hættuleg. Undirbúningur hófst en framkvæmd verksins var frestað til næsta árs.
Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.
Snæfellsbær.
Rifshöfn: Þar var unnið að þili á Norðurgarði samkvæmt hafnaáætlun. Verkið fólst í því að keyra út um 80 m langa fyllingu/garð og ramma við hann um 94 m langt stálþil, koma fyrir stálþilsfestingum, steypa kant með pollum á þilið og fylla að því. Einnig var innifalið í verkinu að fjarlægja gömlu staurabryggjuna og dýpka við nýju bryggjuna eins og hægt var með gröfu. Sú dýpkun er þó hvorki endanleg né fullnægjandi.
Verkið var boðið út í október 2002 og tilboð opnuð 12. nóvember 2002. Lægstbjóðandi var Ísar ehf. í Hafnarfirði. Störf að þessum verkhluta hófust í desember 2002 og lauk í júní 2003. Vinna við þekju og lagnir verður boðin út vorið 2004. Einnig er eftir að bjóða út raflagnir og lýsingu.
Í fjárlögum voru 24 millj. kr. ætlaðar til verksins og einnig voru 24 millj. kr. ætlaðar í endurbyggingu trébryggjunnar. Að fengnu samþykki Siglingastofnunar voru þessi fjárframlög sameinuð í framkvæmdina við þilið á Norðurgarði þar sem séð varð að fjárframlagið sem ætlað var til þess verks væri ekki nægjanlegt. Heildarkostnaður við verkið um áramót 2003/2004 var um 40 millj. kr.
Dýpkun við stálþil á Norðurgarði var boðin út í júní 2003 og tilboð opnuð 15. júlí. Innifalið í þessu útboði var einnig dýpkun milli Norðurtangabryggju og trébryggju í Ólafsvík. Lægsta tilboðið barst frá Hagtaki hf. sem bauð 41.978.000 kr. með vsk. Í fjárlögum voru 12,6 millj. kr. ætlaðar til dýpkunar í Rifshöfn. Tilboð verktaka var upp á 6,6 millj. kr. en raunkostnaður varð 7,0 millj. kr.
Dýpkunartæki voru flutt til Rifshafnar í lok júlí og vinna við dýpkunina við Norðurþil hófst 5. ágúst. Dýpkað var í –4,0 m. Fjarlægðir voru 5.565 m 3 efnis við Norðurþilið. Þar sem nægilegt fé var til ráðstöfunar var ákveðið að nýta það til frekari dýpkunarframkvæmda sem fólust í eftirfarandi:
Eftir að dýpkun lauk í Ólafsvík var ákveðið að dýpka við Austurþilið á Rifshöfn með því að breikka nýtanlegt svæði við þennan kant þar sem aðkoman hafði alltaf verið mjög þröng. Fjarlægðir voru við Austurþilið 10.670 m 3. Einnig voru fjarlægðir 10.890 m 3 af sandi við svonefndan „sandfangara“ við innsiglinguna í höfnina. Þetta var gert þar sem sandfangarinn hafði fyllst og var hættur að stöðva sandburðinn út í innsiglingarrennuna. Verkinu er lokið og varð kostnaður við þessar viðbótardýpkanir um 14,0 millj. kr.
Ólafsvík: Dýpkun í Ólafsvík var boðin út ásamt dýpkunarframkvæmdum í Rifshöfn eins og fyrr sagði. Verkið í Ólafsvík hófst um 20. ágúst og lauk 25. september. Verkið var unnið af Hagtaki hf. Í því fólst að dýpkað var í –5,0 m. Fjarlægt var bæði laust og fast efni. Ekki reyndist nauðsynlegt að sprengja þar sem hægt var að losa allt fasta efnið með „ripper“. Í fjárlögum voru 48,5 millj. kr. ætlaðar til dýpkunar í Ólafsvík. Tilboð verktaka hljóðaði upp á 35,4 millj. kr. og varð það raunkostnaður við verkið.
Unnið var að lengingu flotbryggju í Ólafsvík samkvæmt hafnaáætlun. Árið 2003 var unnið að raflögnum og lýsingu við flotbryggjuna sem er við enda stálþilsins við Suðurgarð. Er verkinu að fullu lokið og varð heildarkostnaður við það um 8,43 millj. kr.
Arnarstapi: Þar fór fram lenging grjótgarðs og viðgerð og var verkið unnið samkvæmt hafnaáætlun. Verkið var komið á lokastig og var á árinu 2003 unnið að því að koma fyrir lýsingu og innsiglingarljósi á enda grjótgarðsins. Var smíðað mastur sem fest var á enda grjótgarðsins og á það festir ljóskastarar sem lýsa niður á garðinn og auk þess innsiglingarljós. Einnig var festur tengikassi á staurinn. Þá var lögð ídráttarlögn fyrir rafstreng frá hafnarhúsinu í tengikassann á mastrinu og dregið í hana.
Heildarkostnaður við verkið var um áramótin 2003/2004 um 67,3 millj. kr.
Á Arnarstapa var enn fremur lagður steinsteyptur vegur niður brekkuna að höfninni, um 100 m að lengd, og var verkið unnið samkvæmt hafnaáætlun. Kantar voru steyptir báðum megin og sett niðurföll. Vegagerðin sá um að lækka efri hluta vegarins með því að fleyga ofan af klöppinni þar og fjarlægja efnið og bar kostnað af því. Þorgeir Árnason var verktaki við steypuvinnuna en Stafnafell ehf. sá um jarðvegsvinnuna, þar á meðal gróf- og fínjöfnun efnis undir steypuna og alla aðra undirbyggingu.
Framkvæmdakostnaður í Snæfellsbæjarhöfnum 2003: 81,3 millj. kr.
Grundarfjörður.
Þar var unnið að lengingu Stórubryggju, steypt þekja og komið fyrir vatns- og raflögnum. Verkið var unnið samkvæmt hafnaáætlun. Heildarframkvæmdakostnaður við verkið var um áramótin 2003/2004 um 190 millj. kr.
Allri vinnu við þekju og lagnir lauk á árinu 2002 en eftir var uppgjör við verktakann, Almennu umhverfisþjónustuna, sem fram fór vorið 2003, eftir skoðun á þekjunni. Að svo búnu var verktakanum greitt það fé sem eftir var að inna af hendi samkvæmt verksamningi.
Raflagnir og lýsing á hafnarsvæði voru boðin út í september 2002. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda, Kristmund Harðarson rafverktaka í Grundarfirði. Tilboð hans hljóðaði upp á 3.340.000 kr. Verktaki átti að skila verkinu 20. janúar 2003 og stóðst það.
Kostnaður við raflagnir á árinu 2003 nam um 1,56 millj. kr. Þar af var heimtaugargjald 1,25 millj. kr.
Gerð grjótvarnar við Stórubryggju lauk árið 2002 en eftir var að greiða fyrir grjótið sem unnið var úr námu í landi Grundarfjarðarbæjar. Þetta er eini kostnaðurinn sem féll á grjótvarnarverkið árið 2003.
Gerð öldudempandi fláa í Grundarfirði var boðin út í september 2003, en engin tilboð bárust. Var í framhaldi af því haft samband við nokkra verktaka og þeir beðnir um að gera tilboð í verkið. Aðalbreyting á skilmálum var þá sú að verktími var lengdur verulega. Lægsta tilboðið, 4.401.714 kr. sem var 81% af kostnaðaráætlun hönnuða, barst frá Tígri ehf. í Súðavík. Fyrirtækið hyggst hefja framkvæmdir í janúar 2004.
Í verkinu felst að sprengja brott eða fleyga um 2,5 m stall sem er á milli Litlu- og Stórubryggju. Stallurinn er nú frá kóta +1,0 m til –1,5 m. Einnig á að þykkja grjótvörnina og síkka þannig að hún nái niður á 1,5 m dýpi. Stallurinn olli verulegri ókyrrð milli bryggjanna og er gert ráð fyrir að þessi aðgerð muni draga úr henni.
Í fjárlögum ársins 2003 voru 5,6 millj. kr. ætlaðar til að steypa upptökubraut. Ákveðið var að fresta þessum framkvæmdum til næsta árs.
Í fjárlögum ársins 2003 voru ætlaðar 2,0 millj. kr. til að setja stig á flotbryggju og koma upp lýsingu við stiga á eldri bryggjurnar. Ákveðið var að fresta þessum framkvæmdum til næsta árs.
Framkvæmdakostnaður: 5,6 millj. kr.
Stykkishólmur.
Í Stykkishólmi var unnið að lengingu stálþils í Súgandisey samkvæmt hafnaáætlun. Verkið var boðið út í september 2003 og samið við lægstbjóðanda, sem var skipasmíðastöðin Skipavík hf. í Stykkishólmi. Samningsupphæð var 8.283.600 kr.
Í verkinu felst að lengja stálþilið við ferjulægi Baldurs í Súgandisey um 30 m og einnig er 10 m gafl. Steyptur verður kantur á þilið og komið fyrir pollum og þybbum.
Eftir er að steypa þekju við þilið og leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir raflagnir og enn fremur er öll raflagnavinna eftir. Í fjárlögum 2003 voru ætlaðar 9,9 millj. kr. í þekju og lagnir en tekin var ákvörðun um að fresta verkinu til ársins 2004.
Kostnaður við verkið var orðinn um 16 millj. kr. í lok árs 2003.
Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir 7,0 millj. kr. til hönnunar og undirbúnings lagfæringa á dráttarbrautinni í Skipavík en í október 2003 lagði Stykkishólmsbær erindi fyrir samgönguráðuneyti þar sem óskað var eftir samþykki ráðuneytisins við sölu bæjarins á dráttarbrautinni til Skipavíkur hf. Ráðuneytið féllst á þessa málaleitan og féll þar með niður styrkhæfni framkvæmda við dráttarbrautina.
Áætlað var að dýpka í Stykkishólmshöfn og fjarlægja um 5.000 m 3 efnis. Verkið var í fjárlögum og voru ætlaðar til þess 7,7 millj. kr. Í stað þess að bjóða verkið út var samið við Skipavík um að dýpka með gröbbun við nýja stálþilið í Súgandisey og við bátabryggjuna. Samtals voru fjarlægðir um 1.080 m 3 og varð kostnaður rúmar 2,5 millj. kr.
Framkvæmdakostnaður: 5,2 millj. kr.
Dalabyggð.
Aðstæður við gömlu bryggjuna í Búðardal hafa verið skoðaðar og kostnaðaráætlun gerð um viðgerð hennar en framkvæmdir munu ekki hefjast fyrr en árið 2004. Kostnaður vegna undirbúnings féll á verkið árið 2003 en verktakareikningar berast allir á árinu 2004.
Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.
Vesturbyggð.
Patreksfjörður: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir dýpkunarframkvæmdum og lagfæringum á innsiglingu en heimamenn frestuðu framkvæmdum. Einnig var á áætlun að hefja undirbúning að fyrsta áfanga endurbyggingar stálþils en því verki var einnig slegið á frest.
Bíldudalur: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir því að unnið yrði að lengingu flotbryggju en heimamenn frestuðu því verki. Lítils háttar var unnið að undirbúningi hafnaraðstöðu fyrir kalkþörungaverksmiðju sem áform eru um að reisa við Bíldudalshöfn.
Framkvæmdakostnaður: 0,1 millj. kr.
Bolungarvík.
Dýpkun hafnar og innsiglingar sem áformuð var á Bolungarvík árið 2003 var frestað. Verkefnið er í umhverfismati.
Framkvæmdakostnaður: 1,0 millj. kr.
Ísafjarðarbær.
Á Flateyri lauk endurbyggingu hafnarkants með ýmsum frágangi. Kostnaður varð 1,2 millj. kr.
Ísafjörður: Unnið var að endurbyggingu Ásgeirsbakka. Í verkinu fólst að brjóta kant og þekju, taka upp lagnir, skera ofan af gömlu þili við stagbita, reka nýtt þil um 100 m langt, ganga frá stögum, fylla upp í þilið og ganga frá lögnum að hluta til.
Verkið var boðið út og bárust þrjú tilboð sem opnuð voru 22. júlí 2003. Lægst var tilboð Guðlaugs Einarssonar ehf. í Hafnarfirði sem bauð 37.823.180 kr. sem nam 95,6% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins. Stálþil og stálþilsfestingar voru keyptar hjá Guðmundi Arasyni ehf.
Verktaki hóf störf 22. september 2003. Samkvæmt verkáætlun á verkinu að ljúka 15. janúar 2004 en ljóst þykir að það muni eitthvað dragast, m.a. vegna tafa af völdum veðurs og vegna þess að tími hefur farið í að fást við gamlar olíu- og frárennslislagnir sem ekki var vitað um þegar verkið var hannað.
Til Ísafjarðarhafnar voru keyptar fimm innsiglingarbaujur frá Finnlandi og komu starfsmenn hafnarinnar þeim fyrir á viðeigandi stöðum á innsiglingarleiðinni inn á Pollinn.
Samkvæmt hafnaáætlun átti að ljúka frágangi lagna og steypa þekju við stálþilsbakka í Sundahöfn og einnig að endurbyggja flotbryggju þar. Hvorutveggja var frestað.
Framkvæmdakostnaður í höfnum Ísafjarðarbæjar 2003: 43,1 millj. kr.
Súðavík.
Byggð var furubryggja við Suðurgarð, 31,5 m að lengd. Upphaflega var gert ráð fyrir 15 m langri léttbyggðri viðlegubryggju en heimamenn óskuðu eftir að hún yrði stækkuð í 30 m fullsterka bryggju. Var það gert og því þurfti að endurhanna bryggjuna.
Verkið var boðið út og tilboð opnuð 29. janúar 2003. Sex tilboð bárust, þeirra lægst var tilboð Íslenskra verktaka ehf. sem hljóðaði upp á 7.888.252 kr. og nam 72% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins.
Verkið fól í sér að byggð var trébryggja 7 m á breidd, 31 m á lengd, dýpi við hana er 4,0 m. Ljósamastur, rafbúnaður og tenglar voru settir upp og garðurinn lagfærður og breikkaður.
Aukaverk fólust í því að Rafsjá ehf. í Bolungarvík lagði raflagnir, G.S. trésmíði í Súðavík smíðaði töflukassa og rafbrunn og Tígur ehf. í Súðavík jafnaði yfirborð og breikkaði garðinn.
Til verksins voru keyptir 22 m 3 af fúavörðum furustaurum og 58 m 3 af fúavörðu söguðu timbri frá Svíþjóð. Boltaefni kom frá Sandblæstri og málmhúðun ehf. á Akureyri.
Verkið hófst 24. febrúar og því lauk 22. maí 2003 og var afhent verkkaupa fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Kostnaður varð 12,2 millj. kr.
Þvergarður á Suðurgarði var einnig styrktur. Kostnaður varð 0,1 millj. kr.
Framkvæmdakostnaður: 12,3 millj. kr.
Norðurfjörður.
Steypt var yfir þekju á gömlu bryggjunni. Verkið hófst í júníbyrjun og því lauk í endaðan júlí. Í samgönguáætlun var gert ráð fyrir að steypt yrði 250 m 2 þekja en við lokahönnun verksins kom á daginn að þörf var fyrir mun stærri þekju, eða 333 m 2, m.a. vegna kröfu ferskfiskseftirlits. Hafnarsjóðurinn steypti á sinn kostnað 70 m 2 til viðbótar og nær þá steypuþekjan alveg að plani framan við fiskverkunarhús.
Endurnýjaðar voru lagnir í bryggjunni og settir nýir pollar. Vegna þeirra breytinga sem gerðar voru á verkinu varð kostnaður við það umtalsvert hærri en gert var ráð fyrir í samgönguáætlun.
Boðin var út dýpkun norðan við gömlu bryggjuna ásamt sjóvörn við Gjögur. Eitt tilboð barst, frá Tígri ehf. í Súðavík, og nam það 60% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verktaki notaði brotfleyg til að losa klöpp á 10 x 10 m svæði efst við bryggjuna, gróf síðan upp efni niður á 2 m dýpi og setti efnið ofan við veg sem liggur að nýju bryggjunni. Verkið var unnið í október og nóvember og tókst framkvæmd þess ágætlega.
Framkvæmdakostnaður: 5,5 millj. kr.
Drangsnes.
Samið var við Króla ehf. um kaup og uppsetningu á 3 x 20 m flotbryggjueiningu frá SF MARINA í Svíþjóð. Hafnarsjóðurinn keypti auk þess 3 „fingur“ til að setja á bryggjuna. Nýju flotbryggjunni var komið fyrir framan við timburflotbryggjuna sem fyrir er. Uppsetningu var lokið í ágúst.
Lokið var uppgjöri vegna slitlags við bryggju í Kokkálsvík en það verk var unnið árið 2002.
Framkvæmdakostnaður: 3,5 millj. kr.
Skagaströnd.
Lokið var við uppsetningu á upplýsingakerfi fyrir sjófarendur sem samið var um við M&T undir lok ársins 2003. Kostnaður varð 1,2 millj. kr.
Að fenginni umsögn hafnaráðs féllst Siglingastofnun á þá beiðni hafnarstjórnar Höfðahrepps að meta upptökubraut fyrir smábáta styrkhæfa, en þetta verkefni var ekki á samgönguáætlun. Heimilað var að verja til verksins fjárveitingu sem ónotuð var frá síðasta ári, en því sem kann að vanta á hlut ríkisins í framkvæmdinni var vísað til endurskoðunar á samgönguáætlun.
Upptökubrautinni var valinn staður vestan við slippinn, um 25 m frá mjölskemmu. Samið var við Víðimelsbræður ehf. um að keyra út fyllingu undir brautina og Trésmiðju Helga Gunnarssonar ehf. um uppsteypu.
Brautin var tekin í notkun í desember, en uppgjöri var ekki að fullu lokið um áramót.
Framkvæmdakostnaður: 2,4 millj. kr.
Skagafjörður.
Sauðárkrókur: Í júní 2003 var boðin út dýpkun í innsiglingu og við Norðurgarð. Eitt tilboð barst, frá Björgun ehf., og var það 79% af áætluðum kostnaði verkhönnuðar. Verksamningur var gerður við Björgun ehf. 12. júlí og hófst verkið skömmu síðar með dýpkunarskipinu Perlunni. Því lauk í síðari hluta september.
Efninu var að mestum hluta dælt á land og notaði Vegagerðin það í uppfyllingu við Strandveg sem færður var fram á um 600 m kafla. Alls var dýpkað á um 45.000 m 2 svæði. Meðfram nýja þilinu við Norðurgarð var dýpkað 25 m breitt svæði í 8,5 m dýpi og þar fyrir framan var dýpkað í 8,0 m dýpi. Heildarmagn dýpkunar var um 38.000 m 3.
Unnið var að frágangi við stálþilið á Norðurgarði. Rafsjá hf. lauk samningsverki við raflagnir í bryggjuna og Króksverk hf. annaðist malbikun á þekju sem ólokið var frá síðasta ári.
Í samgönguáætlun var gert ráð fyrir að ónotuð fjárveiting í árslok 2002 yrði 11,1 millj. kr. en reyndist 1,6 millj. kr. lægri. Er það meginskýringin á því að nokkuð vantaði upp á hluta ríkisins í framkvæmdum ársins.
Framkvæmdakostnaður: 16,4 millj. kr.
Siglufjörður.
Byggð var harðviðarbryggja – Roaldsbryggja – við Síldarminjasafnið. Tilboð voru opnuð í júlí 2003. Fjögur tilboð bárust og reyndist tilboð Guðlaugs Einarssonar ehf. úr Hafnarfirði, að upphæð 3.254.600 kr., lægst, en það nam aðeins 45% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verkið fólst í því að byggja 51 m langa furubryggju á staurum, áfasta við steyptan landvegg, út frá vegfyllingu fyrir framan Síldarminjasafnið.
Verkinu lauk í byrjun október 2003.
Framkvæmdakostnaður: 4,2 millj. kr.
Jafnframt byggingu Roaldsbryggju var boðin út bygging harðviðarbryggju í smábátahöfn. Tilboð Guðlaugs Einarssonar var lægst, 4.784.100 kr., sem nam 61% af kostnaðaráætlun, og var gerður verksamningur við fyrirtækið á grundvelli þess. Verkið hófst í byrjun nóvember en var ekki lokið við áramót vegna tafa á afhendingu staura.
Framkvæmdakostnaður: 12,9 millj. kr.
Hafnasamlag Eyjafjarðar.
Ólafsfjörður: Dýpkað var í Ólafsfjarðarhöfn þar sem lausu efni var dælt með dýpkunarskipi ofan af móhellulagi í innsiglingu, hafnarmynni, innri og ytri höfn og í átt að vesturhöfn. Í heild var dælt upp 27.195 m 3 efnis.
Verki lauk í desember 2002, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002.“ Uppgjör fór fram að lokinni úttektarmælingu í mars 2003.
Undirbúningur fór fram að rekstri stálþils á Ólafsfirði sem boðið verður út árið 2004. Í desember 2003 voru um 80 tonn af stálþilsplötum og um 16,5 tonn af stálþilsfestingum keypt fyrir 7.091.108 kr. Kostnaður vegna undirbúnings, rannsókna og hönnunar árið 2003 var 725.263 kr.
Norðurgarður var styrktur á um 60 m kafla. Ekki fór fram útboð heldur var samið við Árna Helgason ehf. á grundvelli einingarverðs frá fyrri hluta verksins. Bætt var á garðinn um 2.500 m 3 af stórgrýti.
Dalvík: Þar var gerð viðhaldsdýpkun í hafnarmynni. Verkið var ekki boðið út heldur var samið um það við Björgun ehf. á grundvelli einingarverðs frá dýpkun í Ólafsfirði. Gert var ráð fyrir að dæla upp um 4.000 m 3 á var samið um 327 kr. á hvern m 3. Dæling hófst í janúar og var verkið tekið út í mars.
Samkvæmt ákvörðun heimamanna var tveimur verkefnum á Dalvík, sem voru á hafnaáætlun, frestað. Var um að ræða styrkingu grjótvarnar á Suðurgarði og endurbyggingu timburbryggju á Suðurgarði. Í stað þessara verka var heimilað að flýta framkvæmdum við Loðnulöndunarkant og smábátaaðstöðu en framkvæmdir við þessi verk hófust þó ekki árið 2003.
Vinnu við ferjuaðstöðu á Árskógssandi lauk.
Vinnu við ferjuaðstöðu í Hrísey lauk.
Framkvæmdakostnaður: 15,4 millj. kr.
Grímsey.
Hinn 31. júlí 2003 voru opnuð tilboð í dýpkun í Húsavíkurhöfn, höfnina í Flatey á Skjálfanda og Grímseyjarhöfn. Lægsta heildartilboðið átti Sæþór ehf. og var gerður verksamningur við fyrirtækið að upphæð 5.524.372 kr. Verkið hófst 1. september og því lauk í byrjun október 2003. Í því fólst að flytja 2.875 m 3 efnis brott af dýpkunarsvæði fyrir framan kerið á Norðurgarðinum og á ferju- og löndunarsvæði upp með honum. Einnig var hreinsað í innri höfn.
Þekja á Aðalhafnargarði var endurbyggð. Verkið var boðið út og tilboð opnuð 30. júlí 2003. Lægstbjóðandi var Steypustöð Dalvíkur sem bauð 4.945.200 kr. sem var 100,3% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við fyrirtækið. Í samningsverkinu fólst að endursteypa 300 m 2 þekju og 47 m skjólvegg og endurnýja kanttré og polla. Aukaverk urðu nokkur. Þau fólust í því að bætt var við þekju 301 m 2 og skvettmúr var endurnýjaður. Þá var timburbryggja sem liggur að steyptu þekjunni of lág og var hækkuð um 20 cm. Verkið hófst 1. september og því lauk 3. nóvember 2003.
Framkvæmdakostnaður: 14,3 millj. kr.
Hafnasamlag Norðurlands.
Akureyri: Dýpkað var við slippsporin í fiskihöfninni á Akureyri í mars og slippsporin hreinsuð í júní. Verk þetta hafði verið boðið út árið 2001 og unnið árið 2002 að hluta til, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002“. Verki þessu lauk árið 2003 af Slippstöðinni ehf. og Björgun ehf. og var samið við fyrirtækin á grundvelli einingarverðs frá fyrri áfanga verksins.
Unnið var að öðrum áfanga þekju og lagna við vesturbakka Fiskihafnar. Verkið var boðið út og í því fólst m.a. að steypa upp ljósamasturshús og ganga frá því, leggja ídráttarlagnir fyrir vatn og rafmagn, tengja vatnið og setja upp þrjá úttaksbrunna fyrir vatn og tvo fyrir rafmagn. Enn fremur að jafna fyllingu og steypa 1.260 m 2 þekju. Verkið var boðið út að undanteknum raflagnaþættinum en um hann var samið við Rafeyri ehf. á Akureyri að undangenginni verðkönnun. Samningsverð við Rafeyri ehf. var 2.490.376 kr. Tveir aðilar buðu í útboðsverkið. Lægra tilboðið var frá Elinn ehf. á Sauðárkróki að upphæð 15.269.650 kr. sem nam 89,8% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verkið var unnið á tímabilinu 14. júlí til 9. október 2003.
Dýpkað var í Krossanesi þar sem efni var dælt ofan af föstum botni. Verkið var boðið út ásamt dýpkun í Ólafsfjarðarhöfn. Tilboð voru opnuð 15. nóvember 2002. Þrjú tilboð bárust og lægst reyndist tilboð Björgunar ehf. að upphæð 3.269.880 kr. sem nam 69,1% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verktakinn hóf dýpkunina 24. janúar 2003 og lauk henni í mars. Var alls dælt á um 7.600 m 2 svæði. Efni það sem upp kom var lélegt og var því að mestu hent. Viðbótarverk fólst í dýpkun á milli nýja þilsstæðisins og núverandi bryggju á um 1.400 m 2 svæði. Lokauppgjör fór fram 10. júlí að undangenginni dýptarmælingu.
Í nóvember 2002 voru boðin út í einu lagi gerð fyrirstöðugarðs vegna stálþils í Krossanesi og framkvæmdir við ósa Glerár vegna garðs fyrir nýja skolpdælustöð í Sandgerðisbót við Akureyri. Alls bárust níu tilboð, hið lægsta þeirra frá Norðurtaki á Sauðárkróki. Var gerður verksamningur við fyrirtækið að upphæð 5.193.200 kr. Verkið hófst 6. desember 2002 og því lauk í byrjun febrúar 2003. Í því fólst að byggður var fyrirstöðugarður um 120 m að lengd og um 7.800 m 3 að rúmmáli. Grjót í garðinn var sótt í grjótnámu Akureyrarbæjar.
Framkvæmdir við stálþil í Krossanesi voru boðnar út og tilboð opnuð 6. ágúst 2003. Í útboðsverkinu felst að gera skurð fyrir stálþil niður í kóta –13,6 m frá kóta –10,0 m. Reka skal 98 tvöfaldar stálplötur, alls 123 m að lengd og steypa kant með pollum, stigum og fríholtum. Lægst tilboð í verkið barst frá Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf. sem bauð 37.941.420 kr. er svaraði til 73% af kostnaðaráætlun hönnuða. Verkið hófst ekki fyrr en í byrjun árs 2004.
Hjalteyri: Þar var „sandfangari“ lengdur um 60 m. Verkið var ekki boðið út heldur samið við G.V. gröfur á Akureyri um að vinna verkið sem gert var í desember 2003 en kostnaður kom allur fram eftir áramótin. Þetta verk var unnið í stað viðhaldsdýpkunar sem áætluð var.
Framkvæmdakostnaður: 61,2 millj. kr.
Húsavík.
Lokaúttekt á brimvarnargarði á Böku fór fram í janúar 2003, en verkið var unnið á árunum 2001–2002, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir“ fyrir þessi ár. Ekki hefur enn verið samið um kröfur verktaka vegna aukins magns og lengri verktíma.
Hinn 31. júlí 2003 voru opnuð tilboð í dýpkun í Húsavíkurhöfn, Grímsey og Flatey á Skjálfanda. Tvö tilboð bárust, hið lægra frá Sæþóri ehf. að upphæð 65.424.000 kr. sem nam 107,4% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við Sæþór ehf. á grundvelli tilboðsins.
Verkið á Húsavík hófst ekki fyrr en eftir áramót. Í því felst dýpkun á um 4.000 m 2 svæði og gerð þilskurðar við Bökugarð. Dýpkun innan smábátahafnar var unnin sem aukaverk.
Dýpkun í Flatey á Skjálfanda var unnin í október 2003. Þetta verk var ekki á áætlun en heimild fékkst til að vinna það sem viðbótarverk við dýpkunina á Húsavík. Í verkinu fólst að hreinsa Flateyjarhöfn sem nánast var orðin full af þara. Áformað var að fjarlægja um 4.000 m 3 af efni úr höfninni en það varð allmiklu meira og nam greiðsla fyrir viðbótardýpkun 500.000 kr.
Framkvæmdakostnaður: 28,7 millj. kr.
Raufarhöfn.
Lokið var leiðréttingum á uppgjöri við hafnarsjóð vegna Löndunarbryggju, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2001.“
Dýpkun á Raufarhöfn og Þórshöfn var boðin út í sameiginlegu útboði og voru tilboð opnuð 12. mars 2002, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002“. Lægst var tilboð Sæþórs ehf. og var gerður verksamningur við fyrirtækið á grundvelli þess.
Í verkinu felst dýpkun á 60.153 m 2 svæði í innsiglingu og upp að nýjum stálþilskanti við Löndunarbryggju. Verkinu er ekki lokið og er áformað að verktakinn ljúki því vorið 2004.
Aukaverk fólust í því að sett voru þrjú legufæri í sunnanverða innsiglingu til að afmarka kantinn. Einnig voru sett legufæri og ljósdufl utarlega í innsiglingarrennu þar sem hún beygir til austurs. Gengið var frá öldumæliskapli.
Komið var fyrir upplýsingakerfi fyrir sjófarendur á árinu er kostaði 1,8 millj. kr. og gerð viðlega fyrir björgunarskip fyrir 1,9 millj. kr. Viðlega björgunarskips var ekki á áætlun en heimilað var að ráðast í það verk í stað þess að leggja slitlag á smábátagarð, en því var frestað.
Framkvæmdakostnaður: 34,6 millj. kr.
Þórshöfn.
Lokið var uppgjöri vegna lengingar Hafskipabryggju, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2001 og 2002“.
Í samgönguáætlun var gert ráð fyrir byggingu 135 m langs stálþils austan Nýjubryggju og 40 m trébryggju inn að stálþilinu. Við hönnun verksins var ákveðið að gera þá breytingu að bryggjan yrði öll höfð úr stálþili. Með því fæst betri nýting þar sem gaflar stálþilsins, sem ella hefðu gengið inn í grjótfláann, nýtast sem viðlega. Viðlegukantur verður alls um 190 m auk 25 m gafls sem nýta má til viðlegu að hluta. Stálþil og festingar voru boðin út í febrúar, alls 462 tonn af stáli.
Hinn 26. júní 2003 voru opnuð tilboð í rekstur stálþils og fyllingu í þil á Þórshöfn. Alls bárust sex tilboð, hið lægsta frá Gáma- og tækjaleigu Austurlands að upphæð 44.828.580 kr. sem nam 72,4% af kostnaðaráætlun hönnuða. Gerður var verksamningur við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess.
Í verkinu felst að lengja Nýjubryggju um 100 m til austurs með stálþili sem hannað er fyrir 9,0 m dýpi, síðan er 37 m þil til norðurs hannað fyrir 6 m dýpi og loks um 53 m með 4,0 m dýpi. Fylling að þili er alls um 17.400 m 3, enn fremur á að steypa 209 m langan kant með pollum og stigum. Verkið hófst í ágúst 2003 og átti að vera lokið 31. október 2003 en stendur enn. Dælingu efnis í þilið er lokið og er ljóst að efni í það er til muna meira en upphaflega var reiknað með. Vinna er hafin við að steypa kant.
Aukaverk fólust í því að þilgafl var lengdur um sjö plötur til að fá aukna viðlegu. Þá voru flotbryggja og landstöpull flutt og unnið við grjótkant og fyllingu í smábátalægi.
Dýpkun innsiglingar og innan hafnar fór fram á Þórshöfn. Verkið var boðið út ásamt dýpkun á Raufarhöfn og voru tilboð opnuð 12. mars 2002, sbr. „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002“. Í verkinu fólst að fjarlægðir voru 43.260 m 3 efnis í innsiglingunni og innan hafnar. Gerð grjótfláa við tengibraut milli Hafskipabryggju og Bátabryggju reyndist til muna ódýrari en reiknað hafði verið með. Aukaverk fólust í að dýpkunarsvæði VIII var stækkað og 3.000 m 3 efnis fjarlægðir þaðan. Einnig var hreinsað meðfram Löndunarbryggju og á dýpkunarsvæði II var dýpkað úr 6,5 m dýpi í 7,5 m og í 8,0 m út frá Hafskipabryggju. Auk dýpkunar sá Sæþór ehf. um að rífa olíubryggju samkvæmt tilboði.
Framkvæmdakostnaður: 163,7 millj. kr.
Bakkafjörður.
Greitt var heimtaugargjald vegna raflagnar að Löndunarbryggju og gengið frá uppgjöri við Mælifell vegna framkvæmda á árinu 2002. Lokið var dýptarmælingu og frágangi innsiglingarljósa vegna dýpkunar, sjá „Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002“.
Sjafnarbryggja var lengd um 20 m. Verkið var boðið út og tilboð opnuð í júlí 2002. Alls bárust fjögur tilboð í verkið, hið lægsta frá Mælifelli ehf. á Vopnafirði sem bauð 3.539.000 kr., en sú upphæð nam 98% af kostnaðaráætlun hönnuða. Gerður var verksamningur við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins.
Verkið fólst í því að lengja Sjafnarbryggju, sem er gömul furubryggja, um 10 m til beggja enda. Timbur var keypt í gegnum Ríkiskaup fyrir 1,8 millj. kr. Boltaefni var keypt af Sandblæstri og málmhúðun ehf. á Akureyri fyrir 260.000 kr.
Vegna tafa sem urðu á afhendingu timburs dróst verkbyrjun fram í september 2003 en verkinu lauk í byrjun nóvember það ár.
Framkvæmdakostnaður 2003: 2,4 millj. kr.
Vopnafjörður.
Gerð brimvarnargarðs milli Miðhólma og Skiphólma hófst í byrjun júní 2003. Í verkinu felst að byggður verður um 350 m langur brimvarnargarður milli Miðhólma og Skiphólma, að mestu á 8–9 m dýpi. Efnis í hann verður aflað með vinnslu grjóts og kjarna í Vestari- Hraungarði á Kolbeinstanga. Garðurinn verður byggður upp úr þremur grjótflokkum og sprengdum kjarna. Í hann fara um 124.200 m 3 af efni, þar af eru um 56.400 m 3 grjót og um 67.800 m 3 eru sprengdur kjarni. Hönnun og gerð útboðsgagna fór fram á Siglingastofnun Íslands, að hluta til á forsendum sem aflað var í líkantilraunum og með námurannsóknum á vegum jarðfræðistofunnar Stapa.
Verkið var boðið út og bárust í það átta tilboð sem opnuð voru 29. apríl 2003. Hæsta tilboðið nam 143,7% af kostnaðaráætlun hönnuða en lægstbjóðandi, Suðurverk hf., bauð 122.191.000 kr. sem var 81,0% af kostnaðaráætlun og var gengið til samninga við fyrirtækið eftir að úrslit útboðs lágu fyrir.
Verktaki hóf störf í júníbyrjun 2003 og hefur því miðað ágætlega. Um áramót var garðurinn kominn út í Miðhólma, búið að grjótverja neðansjávar að utan og innan og tengja garðinn við Skiphólma og byrjað að byggja garðkrónu næst Skiphólma. Áformað er að verkinu ljúki 31. janúar 2004.
Í upphafi verks var ákveðið að frumkvæði heimamanna að breyta legu brimvarnargarðsins lítillega þannig að bogar garðsins urðu krappari og garðurinn meira S-laga en upphafleg hönnun gerði ráð fyrir. Tenging garðsins við Skiphólma var unnin í nánu samráði við heimamenn.
Framkvæmdakostnaður: 101,9 millj. kr.
Seyðisfjörður.
Áfram var unnið að byggingu ferjuhafnar samkvæmt verksamningum sem gerðir voru á síðasta ári. Fékk ferjuhöfnin heitið Strandarbakki við vígslu 31. júlí 2003.
Gáma- og tækjaleiga Austurlands ehf. lauk sínu samningsverki að mestu í febrúar. Það fólst í að steypa kantbita á stálþilið sem verktakinn byggði á síðasta ári, en dýpkun lauk ekki fyrr en í maí 2003. Samið var við Gáma- og tækjaleiguna um tæplega 8.300 m³ viðbótardýpkun við gamla ferjulægið, sem nú nefnist Bjólfsbakki. Mest af því efni var tekið fram undan nýju brúnni á Fjarðará, en í vatnavöxtum sem urðu í ánni í nóvember 2002 barst fram töluvert af efni sem settist til innst við Bjólfsbakkann.
Meginástæðan fyrir því að dýpkun dróst svo á langinn var að dýpkunarskipið Skandia var fengið til að dæla á land mestum hluta þess burðarlagsefnis sem notað var í vegi, götur og plön. Ekki fékkst leyfi til að taka burðarlagsefnið úr námu við ós Sörlastaðaár eins og útboðsgögn gerðu ráð fyrir og varð því að ráði að dæla efninu úr sjó framan við ósinn.
Dýpkunarskipið Skandia dældi auk þess á land efni í uppfyllingu fyrir Seyðisfjarðarkaupstað milli nýja ferjulægisins og lands. Flatarmál lands sem sveitarfélagið aflar sér með uppfyllingu á leirunni framan við ós Fjarðarár er alls um 6 hektarar. Að auki er hafnarmannvirki ferjulægisins um 0,5 hektarar.
Malarvinnslan hf. vann að byggingu þjónustuhúss og landgangs, lagnavinnu við stálþilsbakkann, gerð ekjurampa, þekjusteypu, girðingu umhverfis tollsvæði og malbikun svæða innan tollgirðingar samkvæmt tveimur verksamningum sem gerðir voru í ágúst 2002.
Þjónustuhúsið var orðið fokhelt í ársbyrjun og þegar ný Norröna kom í reynslusiglingu þ. 22. apríl voru hús, landgangur og ekjurampur komin það vel á veg að hægt var að afgreiða ferjuna. Reglulegar siglingar Norrönu hófust svo 15. maí og voru upp frá því vikulega til 11. september.
Forúttekt innan húss á þjónustuhúsi var gerð 14. maí en lokaúttekt fór fram 4. nóvember, samtímis heildarúttekt á verki. Grunnflötur þjónustuhúss er 750 m² en heildar gólfflatarmál 1.000 m², þar af landgangur frá lyftuturni að ferju 73 m². Landgangurinn er í um 11 m hæð yfir bryggjuþekju, áfastur við lyftuturn en hvílir á tjökkum við útenda og hægt að hreyfa þar upp/niður um 1,7 m frá láréttri stöðu. Heildargreiðsla til verktaka vegna þjónustuhúss og landgangs varð 145.628.590 kr. að meðtöldum viðbótar- og aukaverkum.
Steypu á bryggjuþekju stálþilsbakka var lokið og aðrir verkhlutar þekjuverks langt komnir 31. júlí, en þá var haldin vígsluhátíð ferjuhafnar. Frágangi tollgirðinga, malbikaðra svæða og lóðar þjónustuhúss var síðan að mestu lokið 10. september þegar forúttekt var gerð. Lokaúttekt fór fram 4. nóvember og var þá enn ólokið ýmsum frágangi sem samkomulag er um að verktaki ljúki á næsta ári.
Steypt bryggjuþekja er 20 m breið, 3.867 m² að flatarmáli, og malbikað svæði innan tollgirðingar alls 5.130 m². Lengd fastra tollgirðinga er 238 m og lausar girðingar við aðkomubílastæði eru 200 m. Malbikuð bílastæði við þjónustuhús eru 1.043 m² og þöku- og hellulögð lóð 682 m².
Heildargreiðsla til verktaka vegna gatna, bílastæða, lóðar þekju og lagna, að meðtöldum viðbótar- og aukaverkum, varð 134.426.514 kr. Þar af var hafnargerðarþátturinn, bryggja og sérbúnaður vegna ferju, 62.555.099 kr. Afgangur upphæðarinnar skiptist milli Seyðisfjarðarkaupstaðar vegna bílaplana, gatna og frárennslislagna, 45.803.979 kr., og Vegagerðarinnar, 26.067.436 kr., vegna þjóðvega í þéttbýli.
Framkvæmdakostnaður 2003: 184,3 millj. kr.
Fjarðabyggð.
Neskaupstaður: Gengið var frá uppgjöri við Gáma- og tækjaleigu Austurlands vegna dýpkunar, sbr. framkvæmdaskýrslu síðasta árs. Ekki tókst að dýpka eins og til stóð því dæluskipið Skandia réð ekki við hörð sandlög og grjótrastir sem voru í botni innst á dýpkunarsvæðinu. Sem aukaverk tók verktakinn að sér að dæla upp efni í Viðfirði og losa í stæði undir skjólgarði norðan hafnar. Alls voru settir um 17.000 m 3 af efni undir skjólgarðinn.
Gengi var frá garðsendaljósum á skjólgarðinn sem byggður var við fiskihöfnina árið 2002. Lokið var frágangi lagna vegna lengingar Togarabryggju.
Mjóifjörður: Lokið var uppsetningu á flotbryggjum sem samið var um við Einar Dalberg Einarsson árið 2002.
Reyðarfjörður: Hafinn var undirbúningur að byggingu stóriðjuhafnar við Mjóeyri í Reyðarfirði. Boraðar voru rannsóknarholur við bryggjustæði til að ákvarða staðsetningu bryggjunnar. Í mars var gengið frá hafnarsamningi milli Fjarðaráls sf. og hafnasjóðs Fjarðabyggðar um uppbyggingu og rekstur Mjóeyrarhafnar. Byrjað var á hönnun 380 m stálþilsbakka sem gerður var fyrir 14,3 m dýpi og á að geta tekið á móti 80.000 brúttótonna skipum.
Verkfræðistofan Hönnun gerði árið 2001 tillögu að matsáætlun og sendi fyrirspurn til Skipulagsstofnunar um það hvort fyrirhuguð hafnargerð á Mjóeyri væri umhverfismatsskyld. Í úrskurði Skipulagsstofnunar frá því í ágúst 2001 kemur fram að verksmiðjuhöfnin á Mjóeyri er ekki matsskyld framkvæmd.
Eskifjörður: Þar var sett stálþil við bræðslu Eskju ehf. Verkið var boðið út og tilboð opnuð í síðari hluta júnímánaðar 2003. Alls bárust fjögur tilboð í verkið. Lægst reyndist tilboð Ísars ehf. í Hafnarfirði, að upphæð 25.799.200 kr. sem var 68,4% af kostnaðaráætlun hönnuða. Keypt var stálþilsefni og festingar í gegnum Ríkiskaup fyrir um 25 millj. kr.
Í verkinu fólst að reka niður 110 m langt stálþil við bræðslu Eskju ehf. og dýpka fyrir framan það í 10 m dýpi. Fergja þurfti svæðið við þilið áður en framkvæmdir hófust til að framkalla sig. Vegna þessa var ekið á staðinn talsverðu af efni úr Eskifjarðará og sá fyrirtækið R.H. gröftur á Eskifirði um þá framkvæmd. Fyrirtækið Björgun ehf. í Reykjavík var undirverktaki við dýpkun. Alls var dælt upp um 22.000 m 3 af efni sem notað var í landfyllingu bak við þilið. Ekki var steyptur kantur á þilið að sinni vegna hættu á sigi og verður beðið með það til næsta árs þegar þekja verður steypt. Settir voru pollar til bráðabirgða á þilið.
Framkvæmdakostnaður: 53,9 millj. kr.
Fáskrúðsfjörður.
Byggð var harðviðarbryggja við loðnuverksmiðju. Verkið var boðið út og tilboð opnuð í maí 2002, sbr. framkvæmdaskýrslu ársins 2002. Verkið hófst í júlí 2002 og því lauk í janúarlok 2003.
Heildarkostnaður við verkið varð 40.205.216 kr.
Framkvæmdakostnaður ársins 2003: 12,6 millj. kr.
Stöðvarfjörður.
Framkvæmdir við endurbyggingu Bæjarbryggju hófust á árinu. Útboð á boltaefni og harðviði fór fram og bryggjusmíðin var boðin út í september. Samið var við Elinn hf. á Sauðárkróki sem reyndist lægstbjóðandi. Verktakinn hóf störf í október en verkinu lauk ekki á árinu.
Sett var grjótvörn utan á gömlu bryggjuna. Verkið var boðið út og tilboð opnuð í aprílbyrjun 2003. Fjögur tilboð bárust. Lægst reyndist tilboð Guðjóns Sverrissonar frá Egilsstöðum að upphæð 16.449.801 kr. sem var 79% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Í verkinu fólst að lengja grjótvörn um 25 m út fyrir gömlu bryggjuna. Tilgangurinn með framkvæmdinni var að verja bryggjuna fyrir sjógangi og skapa meiri kyrrð á viðlegu innan hennar.
Grjót til verksins var tekið úr námu við Hvalsnes. Verkinu lauk í júlílok 2003.
Framkvæmdakostnaður: 19,8 millj. kr.
Djúpivogur.
Lokið var uppgjöri vegna þekju sem steypt var árið 2002, sbr. framkvæmdaskýrslu þess árs.
Framkvæmdakostnaður: 0,6 millj. kr.
Hornafjörður.
Unnið var að venjubundinni viðhaldsdýpkun innan hafnar með dæluprammanum Soffíu. Dælt var upp um 25.000 m 3. Uppgjöri vegna verksins lauk ekki fyrir áramót.
Í ágúst var boðin út dýpkun á Grynnslunum utan við Hornafjarðarós. Ekkert tilboð barst í verkið og varð niðurstaðan sú að fresta framkvæmdum um sinn.
Hafinn var undirbúningur að endurbyggingu Krosseyjarbakka sem á að koma til framkvæmda samkvæmt samgönguáætlun árið 2009.
Framkvæmdakostnaður: 3,0 millj. kr.
Vestmannaeyjar.
Í mars var í samræmi við hafnaáætlun boðin út gerð þekju á Ískant og Suðurkant og tilboð opnuð í apríl 2003. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda sem var Almenna byggingarfélagið ehf. í Hafnarfirði. Samningsverð var 26.300.000 kr.
Innifalið í útboðsverki var að steypa 3.620 m 3 þekju, leggja ídráttarrör fyrir rafmagn, koma fyrir vatnsbrunnum og steypa upp ljósamasturshús.
Sú breyting var gerð að þekjan var stækkuð í 4.070 m 3 og verulegur aukakostnaður hlaust af því að skipta um jarðveg undir þekju og rífa upp malbik og brunna við Ísstöð.
Verkið hófst í seinni hluta maí og lauk um miðjan október. Ýmsum frágangi lauk þó ekki fyrr en í desember og þá var gert upp við verktaka. Endanlegu uppgjöri verksins var ekki lokið um áramót.
Gerð stálþils á Norður- og Austurkanti Friðarhafnar var boðin út í mars og tilboð opnuð í aprílbyrjun. Samið var við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf., á Reyðarfirði á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að upphæð 39,5 millj. kr.
Stálþil og festingar komu til landsins í apríllok og kostuðu um 30,0 millj. kr.
Innifalið í verkinu var að reka niður 113 stálþilsplötur í nyrðri hluta Friðarhafnar, sem er um 142 m langur bryggjukantur, ásamt því að koma fyrir stálþilsfestingum og steypa kant með pollum á þilið. Nýja þilið var rammað niður um 1,5 m framan við gamalt þil því hér var um endurnýjun að ræða. Einnig var skipt um jarðveg á efsta 1,5 m laginu á öllu baklandi þilsins.
Lagt var rafmagn á Nausthamarsbryggju og var það gert í samræmi við hafnaáætlun. Verkið var boðið út í apríl 2003 og gengið frá samningi við lægstbjóðanda, sem var raftækjavinnustofan Geisli í Vestmannaeyjum, í sama mánuði. Tilboðsupphæð var tæpar 8,5 millj. kr.
Í verkinu fólst að dregið var í ídráttarrör, gengið frá tengingum og innstungum í rafmagnskassa út við kant og einnig tengingum og öðrum frágangi í töfluskápum í tveimur ljósamasturshúsum.
Heildarkostnaður við endurbyggingu Nausthamarsbryggju var um áramótin 2003/2004 kominn í 231,8 millj. kr.
Í samræmi við hafnaáætlun var unnið að ýmiss konar frágangi á smábátaaðstöðunni. Að mestu leyti fólust verkin í raflögnum og lýsingu en einnig var gengið frá vatnslögnum. Verkinu er ekki lokið þar sem eftir er að stilla flotbryggjurnar og inna af hendi lokagreiðslu fyrir það til verktaka. Einnig er eftir að kaupa og setja upp björgunarstiga.
Um áramótin 2003/2004 nam heildarkostnaður vegna smábátaaðstöðu um 27,0 millj. kr.
Að vanda sá Vestmannaeyjahöfn um dýpkun í höfninni með eigin dýpkunartæki. Dýpkað var við Nausthamarsbryggju og Friðarhafnarbryggju austanverða. Samtals voru fjarlægðir tæplega 10.000 m 3. Kostnaður við það nam 1,7 millj. kr.
Í nóvember var boðin út dýpkun í höfn og innsiglingu. Lægstbjóðandi var Sæþór ehf. og var gerður verksamningur við fyrirtækið. Verkið var ekki hafið um áramót en byrjað var á hönnun og undirbúningi við vesturkant Friðarhafnar sem á að vinna árið 2004 samkvæmt samgönguáætlun.
Eins og á síðasta ári var öllum framkvæmdum við þurrkví frestað.
Framkvæmdakostnaður: 122,8 millj. kr.
Sveitarfélagið Ölfus.
Unnið var að viðgerð á svokallaðri tunnu í innsiglingunni í Þorlákshöfn. Samið var við Sjóverk ehf. um framkvæmdina í október 2002.
Í verkinu felst að setja nýja stálstaura utan um gömlu tréstaurana og bolta þá í gjarðir sem halda gömlu staurunum. Setja á blikkhettur á gömlu staurana til að koma í veg fyrir að þeir frostspringi meira en orðið er.
Verkinu var ekki lokið um áramótin og stefnt að verklokum í mars eða apríl 2004.
Umfangsmikil endurbygging hafnarinnar í Þorlákshöfn hófst árið 2003 með byggingu svonefnds Austurgarðs sem er um 760 m langur brimvarnargarður af bermugerð. Auk sjálfrar byggingar garðsins fólst í verkinu vinnsla á grjóti og kjarna í námu á Hafnarsandi norðan Þorlákshafnar. Heildarmagn efnis í garðinn er um 230.000 m 3 sem skiptist í um 120.000 m 3 af grjóti og um 110.000 m 3 af kjarna.
Hönnun mannvirkisins og gerð útboðsgagna fór fram hjá Siglingastofnun Íslands. Hönnunarforsendur voru að hluta til fengnar með líkantilraunum og úr skýrslum um námurannsóknir frá jarðfræðistofunni Stapa.
Verkið var boðið út og tilboð opnuð 19. ágúst 2003. Fimm tilboð bárust, hið lægsta frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða ehf. að upphæð 216.762.250 kr. sem nam 89,9% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við fyrirtækið á grundvelli þessa tilboðs.
Verkið hófst í byrjun nóvember 2003 og er áætlað að því ljúki í desember 2004. Ekki hafa orðið neinar umtalsverðar breytingar á verkinu eða áætluðum framgangi þess.
Framkvæmdakostnaður 2003: 33,4 millj. kr.
Grindavík.
Fjarlægður var stór steinn og nokkrir minni sem fundust í þeim hluta innsiglingarinnar til Grindavíkur sem dýpkaður var árið 1997. Verkið var unnið af Sjóverki ehf. í febrúar og kostaði 1,2 millj. kr. Verkið var fjármagnað með ónotaðri fjárveitingu til skjólgarða en þeir urðu talsvert ódýrari en áætlað var, sbr. framkvæmdaskýrslu síðasta árs.
Lokið var uppgjöri vegna framkvæmda við skjólgarða á síðasta ári.
Framkvæmdakostnaður 2003: 2,2 millj. kr.
Sandgerði.
Lenging stálþils á Norðurgarði var á samgönguáætlun en var frestað að ósk heimamanna. Lítillega var unnið að frágangi raflagna við nýja stálþilið en annarri lagnavinnu og þekjusteypu slegið á frest.
Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.
Hafnasamlag Suðurnesja.
Reykjanesbær: Brimvarnargarðurinn í Njarðvíkurhöfn var lengdur um 60 m og berma byggð utan á eldri hluta hans. Hönnun garðsins og gerð útboðsgagna fór fram á Verkfræðistofu Suðurnesja undir umsjón Brynjólfs Guðmundssonar.
Verk þetta felur í sér tvo aðskilda verkþætti sem boðnir eru út í einu útboði. Sá verkþáttur sem fellur undir styrkhæfa hafnargerð felst í styrkingu og lengingu á öldubrjóti við Njarðvíkurhöfn ásamt efnisvinnslu til þeirrar framkvæmdar í grjótnámi á lóð fyrirhugaðrar stálröraverksmiðju í Helguvík. Annar verkþátturinn felst í lækkun lands á lóð þeirri í Helguvík, þar sem áformað er að stálröraverksmiðja rísi, niður í uppgefinn kóta og efnisvinnslu og gerð sjóvarnar í Reykjanesbæ ásamt landfyllingum, en þar er ekki um styrkhæfa hafnargerð að ræða.
Verkið var boðið út í lokuðu útboði og tilboð opnuð 10. febrúar 2003. Þeir sex verktakar sem gafst kostur á að bjóða skiluðu allir tilboðum. Lægst var tilboð ÍAV, 75.965.134 kr., í Njarðvíkurgarðinn og 245.732.825 kr. í lóðagerð í Helguvík, alls 321.697.959 kr. sem nam 58,7% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gerður verksamningur við fyrirtækið um framkvæmdirnar á grundvelli tilboðs þess.
Í samningsverkinu felst að brimvarnargarðurinn í Njarðvíkurhöfn verður lengdur um 60 m og byggð berma utan á eldri hluta hans. Í garðinn fara um 56.500 m 3 af efni, þar af um 37.400 m 3 af grjóti og um 19.100 m 3 af kjarna.
Verkið hófst í mars 2003 og var langt komið í árslok.
Framkvæmdakostnaður: 60,7 millj. kr.
Hafnarframkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.
Grundartangi.
Unnið var að undirbúningi að stækkun Grundartangahafnar, m.a. með hönnun á 250 m stálþili og þekju. Kostnaður var um 2,0 millj. kr.
Áætlað er að framkvæmdir við stækkun hafnarinnar hefjist á síðari hluta ársins 2004.
Hafnarfjörður.
Unnið var að uppfyllingu á nýju hafnarsvæði í Suðurhöfninni.
Framkvæmdakostnaður um 20 millj. kr.
Sjóvarnargarðar.
Dalabyggð: Í Búðardal verður gerður 150 m langur sjóvarnargarður vestan við frystihúsið. Verkið mun felast í að endurraða og styrkja núverandi sjóvörn. Samið hefur verið við Gilbert Elíasson um framkvæmdina. Lokið var við vinnslu efnis í námu árið 2003 og verður sjóvarnargarðurinn lagður árið 2004.
Kostnaður vegna undirbúnings féll á verkið á árinu 2003 en verktakareikningar bárust allir á árinu 2004.
Ísafjarðarbær: Sjóvarnargarður við Brimnesveg á Flateyri var endurbyggður og lengdur. Um 140 m voru endurbyggðir og um 50 m var nýbygging. Verkið var unnið af Græði sf. á Flateyri og var samningsverð 5.712.700 kr. Verktakinn hóf störf 30. október 2002 og var ráðgert að ljúka verkinu fyrir áramótin en vegna mikillar bleytu varð að fresta verklokum þar til í janúar 2003.
Súðavík: Gerð 100 m langs sjóvarnargarðs, sem hófst haustið 2002, lauk í janúar 2003, en verktakinn, Tígur ehf., hafði fengið heimild til að fresta verkinu fram yfir áramótin.
Árneshreppur. Gjögur: Leitað var tilboða í sjóvörn við Gjögur hjá Norðurtaki ehf. á Sauðárkróki og Tígri ehf. í Grundarfirði. Tilboð barst aðeins frá Tígri ehf. og var það um 40% yfir kostnaðaráætlun hönnuða. Gerður var verksamningur við Tígur ehf. og gerði fyrirtækið sjóvarnargarða fyrir framan tvö sumarhús á Gjögri, alls um 70 m að lengd.
Blönduósbær: Boðnar voru út sameiginlega sjóvarnir á Blönduósi, Skagaströnd og í Kálfshamarsvík og við Víkur í Skagabyggð. Samið var við lægstbjóðanda, Víðimelsbræður ehf. sem buðu 13.252.100 kr. í öll verkin og var það 93% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Gerð sjóvarnar á Blönduósi lauk ekki fyrir áramót.
Skagaströnd: Endurbyggður var elsti hluti sjóvarnar meðfram Fjörubraut, tæplega 200 m kafli frá sjóvörn sem gerð var 1998 við Hólanes og suður fyrir hús rækjuvinnslunnar að sjóvörn sem byggð var 1995. Verkið hófst í október og því lauk í byrjun desember.
Skagabyggð: Gerð var sjóvörn framan við útihús á bænum Víkum, alls um 110 m að lengd, og sjóvörn í Kálfshamarsvík var lengd um 80 m. Verkið var unnið í september.
Húsavík: Gerður var sjóvarnargarður á um 170 m kafla norðan Haukamýrarlækjar og á um 70 m kafla sunnan lækjarins. Í hann fóru um 1.050 m 3 af grjóti og um 745 m 3 af kjarna. Var samið við Ístak hf. um að vinna verkið þegar fyrirtækið hafði lokið vinnu við brimvarnargarð á Böku. Samningsverð í verksamningi var 5.400.000 kr.
Framkvæmdakostnaður: 5.520.368 kr.
Dalvík: Haldið var áfram sjóvarnarverkefni sem unnið hefur verið að á undanförnum árum. Samið var við Dalverk ehf. um verkið án útboðs, enda var um lítið verk að ræða, og fyrirliggjandi kostnaðartölur frá fyrri verkáföngum. Samningsverð var 1.900.000 kr. Í verkinu fólst að endurraða og byggja um 150 m langan sjóvarnargarð sunnan hafnar. Þetta var gert á tímabilinu ágúst til október 2003.
Árborg: Á Stokkseyri var gerður sjóvarnargarður við Kaðlastaði að Hraunsá. Um er að ræða 1.200 m langan sjóvarnargarð í framhaldi af eldri sjóvörn við byggðina í samræmi við sjóvarnaráætlun. Sjóvörnin er byggð ofan á og framan við gamla sjóvarnargarðinn án þess að raska honum. Við Hraunsá verður útbúin þrenging til að minnka innrennsli.
Verkið var boðið út í nóvember og bárust 12 tilboð. Samið var við lægstbjóðanda, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., sem bauð 67,2% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verkið hófst í lok desember 2002 og því lauk í apríl 2003. Tókst framkvæmdin í alla staði vel.
Framkvæmdakostnaður: 25,8 millj. kr.
Á Stokkseyri var sjóvarnargarður á milli Íragerðis og Hásteinsvegar styrktur og endurgerður á 130 m kafla. Grjótgarðurinn skemmdist í sjávarflóði árið 1990. Þá var einungis endurraðað grjóti í honum en styrkingar var þörf. Samið var við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd verksins sem unnið var í mars og tókst vel.
Framkvæmdakostnaður: 3,1 millj. kr.
Á Eyrarbakka var sjóvarnargarður milli gömlu bryggjunnar og samkomuhússins styrktur á um 30 m kafla á áfangaskilum.
Samið var við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. um framkvæmdina sem gerð var í mars og tókst með ágætum.
Framkvæmdakostnaður: 0,5 millj. kr.
Grindavík: Þar var um að ræða 4 minni verk, við Hraun, Litlubót, Húsatóftavöll og hús Stofnfisks við Húsatóftir, sem unnin voru saman sem eitt væri af Suðurverki ehf.
Undirbúningur verksins hófst með grjótvinnslu haustið 2002. Heildarlengd sjóvarnargarða er 530 m.
Framkvæmdakostnaður: 8,4 millj. kr.
Sjóvarnir á Reykjanesi: Í september 2003 var boðið út verkið „Sjóvarnir á Reykjanesskaga“ sem fól í sér gerð sjóvarna við Efri-Brunnastaði á Vatnsleysuströnd, við Auðna á Vatnsleysuströnd og á Garðskaga, að hluta til í Gerðahreppi og að hluta í Sandgerðisbæ, alls um 500 m á lengd og um 3.520 m 3 að rúmmáli. Verkið var boðið út. Þrjú tilboð bárust og lægstbjóðandi reyndist ABLtak ehf. sem bauð 8.519.660 kr. er nam 67% af kostnaðaráætlun hönnuða. Verkinu var ekki lokið um áramótin 2003/2004.
Framkvæmdakostnaður árið 2003: 4.811.000 kr.
Boðnar voru út sjóvarnir í Reykjanesbæ sem hluti af mun stærra verki sem fólst í losun á klöpp í Helguvík og gerð sjóvarnargarða, sbr. það sem ritað er um Njarðvíkurgarð í þessari skýrslu. Samið var um að Reykjaneshöfn mundi vinna verkið og var samningsverð 23.800.000 kr.
Verkið hófst í mars 2003 og við áramót var lokið tveimur áföngum af fimm.
Bessastaðahreppur: Gerð var sjóvörn við Gestshús. Tilboð voru opnuð í september 2003. Einungis eitt tilboð barst, frá Borgarvirki ehf. að upphæð 3.917.590 kr. er nam 96% af kostnaðaráætlun hönnuða.
Verkið fólst í byggingu um 150 m langs sjóvarnargarðs í fjörunni neðan við Gestshús á Álftanesi. Því lauk um miðjan desember 2003.
Framkvæmdakostnaður: 4.121.307 kr.
Seltjarnarnes: Samið var við Borgarvirki ehf. um framhald á sjóvörn við Kotgranda á Seltjarnarnesi, en fyrri hlutinn var byggður árið 2002. Samningsupphæð var 5.467.176 kr. Alls fóru um 1.100 m 3 af kjarna í garðinn og um 1.600 m 3 af flokkuðu grjóti. Lengd sjóvarnargarðsins er um 240 m. Verkið hófst í byrjun september og því lauk í október.
Tafla 1. Kostnaður við hafnarframkvæmdir 2003 (fjárhæðir í millj. kr.).
| Höfn | Verkefni | Styrk- hlutfall |
Kostn.* jan.–júní |
Kostn. júlí–des. |
Heildar- kostn. |
Ríkishl. jan.–júní |
Ríkishl. júlí–des. |
Ríkishl. alls |
| 1. Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir | ||||||||
| Akranes | Dýpkun við aðalhafnargarð | 75% | 23,7 | 1,4 | 25,1 | 17,8 | 1,0 | 18,8 |
| Stálþil aðalhafnargarði | 60% | 75,1 | 20,0 | 95,1 | 45,1 | 12,0 | 57,1 | |
| Endurnýjun skipalyftu | 12,5% | 0,3 | 0,3 | |||||
| Klæðning á austurhlið ferjubryggju | 60% | 3,8 | 3,8 | 2,3 | 2,3 | |||
| Þekja og lagnir aðalhafnargarði | 60% | 0,4 | 0,4 | 0,3 | 0,3 | |||
| Borgarnes | Bryggjurif, fylling | 60% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | ||
| Snæfellsbær | Rifshöfn, Norðurþil | 60% | 22,6 | 1,6 | 24,2 | 13,6 | 1,0 | 14,6 |
| Arnarstapi, breikkun þekju | 60% | 5,1 | 5,1 | 3,0 | 3,0 | |||
| Rifshöfn, dýpkun við stálþil Norðurgarði | 75% | 0,4 | 19,8 | 20,2 | 0,3 | 14,9 | 15,2 | |
| Arnarstapi, lenging grjótgarðs | 75% | 0,8 | 0,1 | 0,9 | 0,6 | 0,1 | 0,7 | |
| Ólafsvík, lenging á flotbryggjum | 60% | 0,1 | 0,2 | 0,3 | 0,1 | 0,1 | 0,2 | |
| Ólafsvík, dýpkun | 75% | 0,8 | 29,8 | 30,6 | 0,6 | 22,3 | 22,9 | |
| Grundarfjörður | Lenging Stórubryggju, stálþil | 60% | 3,1 | 0,1 | 3,2 | 1,9 | 0,1 | 2,0 |
| Lenging Stórubryggju, grjótvörn | 75% | 2,0 | 2,0 | 1,5 | 1,5 | |||
| Öldudempandi flái | 75% | 0,4 | 0,4 | 0,3 | 0,3 | |||
| Stykkishólmur | Stálþil næst Brúarbás, Súgandisey | 60% | 2,3 | 0,3 | 2,6 | 1,4 | 0,2 | 1,6 |
| Dýpkun í höfn við Súgandisey | 75% | 2,6 | 2,6 | 2,0 | 2,0 | |||
| Búðardalur | Gamla bryggjan endurbyggð | 60% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | ||
| Vesturbyggð | Bíldudalur, kalkþörungahöfn | 60% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | ||
| Bolungarvík | Dýpkun hafnar og innsiglingar | 75% | 0,8 | 0,2 | 1,0 | 0,6 | 0,1 | 0,7 |
| Ísafjörður | Flateyri, endurbygging hafnarkants | 60% | 0,9 | 0,3 | 1,2 | 0,6 | 0,2 | 0,8 |
| Ísafjörður, endurbyggja flotbryggju | 60% | 0,1 | 0,1 | |||||
| Ísafjörður, endurbygging Ásgeirsbakka | 60% | 1,4 | 37,8 | 39,2 | 0,8 | 22,7 | 23,5 | |
| Ísafjörður, endurnýjun dufla | 75% | 1,2 | 1,4 | 2,6 | 0,9 | 1,0 | 1,9 | |
| Súðavík | Viðlegubryggja við Suðurgarð | 60% | 10,9 | 1,3 | 12,2 | 6,5 | 0,8 | 7,3 |
| Suðurgarður, þvergarður styrking | 75% | 0,1 | 0,1 | |||||
| Norðurfjörður | Endurbygging þekju á gömlu bryggju | 60% | 0,3 | 4,2 | 4,5 | 0,2 | 2,5 | 2,7 |
| Dýpka upp með gömlu bryggjunni | 75% | 1,0 | 1,0 | 0,7 | 0,7 | |||
| Drangsnes | Kokkálsvík, slitlag við bryggjur | 60% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | ||
| Kokkálsvík, flotbryggja | 60% | 3,4 | 3,4 | 2,1 | 2,1 | |||
| Skagaströnd | Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur | 75% | 1,2 | 1,2 | 0,9 | 0,9 | ||
| Upptökubraut fyrir smábáta | 60% | 1,2 | 1,2 | 0,7 | 0,7 | |||
| Skagafjörður | Sauðárkrókur, dýpkun og snúningssvæði | 75% | 0,6 | 13,7 | 14,3 | 0,5 | 10,2 | 10,7 |
| Sauðárkrókur, stálþil Norðurgarði. | 60% | 2,1 | 2,1 | 1,3 | 1,3 | |||
| Siglufjörður | Smábátahöfn, viðlegubryggja | 60% | 0,4 | 8,2 | 8,6 | 0,2 | 4,9 | 5,1 |
| Dýpkun í smábátahöfn | 75% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | |||
| Roaldsbryggja við Síldarminjasafn | 60% | 0,4 | 3,8 | 4,2 | 0,2 | 2,3 | 2,5 | |
| Hafnasamlag Eyjafjarðar | Ólafsfjörður, togarabryggja stálþil | 60% | –0,4 | 8,3 | 7,9 | –0,2 | 5,0 | 4,8 |
| Árskógssandur, ferjuaðstaða | 75% | 0,2 | 0,2 | 0,2 | 0,2 | |||
| Hrísey, ferjuaðstaða | 75% | 0,3 | 0,3 | 0,2 | 0,2 | |||
| Ferjuaðstaða gr. af Vegagerðinni | –4,8 | -4,8 | –3,1 | -3,1 | ||||
| Ólafsfjörður, dýpkun | 75% | 5,4 | 0,3 | 5,7 | 4,1 | 0,2 | 4,3 | |
| Dalvík, viðhaldsdýpkun | 75% | 1,9 | 1,9 | 1,4 | 1,4 | |||
| Ólafsfjörður, styrking grjótgarðs | 75% | 3,9 | 0,1 | 4,0 | 2,9 | 0,1 | 3,0 | |
| Ólafsfjörður, loðnulöndunarkantur | 60% | 0,2 | 0,2 | 0,1 | 0,1 | |||
| Grímsey | Endurbygging fremsta hluta hafnargarðs | 60% | 0,2 | 8,5 | 8,7 | 0,1 | 5,1 | 5,2 |
| Dýpkun við hafnargarðinn | 75% | 5,6 | 5,6 | 4,2 | 4,2 | |||
| Hafnasamlag Norðurlands | Akureyri, dýpkun við Krossanes, 2. áfangi | 75% | 5,7 | 0,5 | 6,2 | 4,3 | 0,4 | 4,7 |
| Akureyri. Fiskihöfn, Vesturbakki stálþil | 60% | 0,3 | 16,8 | 17,1 | 0,2 | 10,1 | 10,3 | |
| Akureyri, fiskihöfn dýpkun | 75% | 5,5 | 0,1 | 5,6 | 4,1 | 4,1 | ||
| Akureyri, stálþil Krossanesi, 2. áf. | 60% | 9,4 | 21,3 | 30,7 | 5,7 | 12,8 | 18,5 | |
| Sverrisbryggja endurbyggð | 60% | 1,6 | 1,6 | 1,0 | 1,0 | |||
| Húsavík | Brimvarnargarður við Böku | 75% | 1,5 | 13,9 | 15,4 | 1,1 | 10,4 | 11,5 |
| Bökugarður, stálþil | 60% | 4,0 | 1,0 | 5,0 | 2,4 | 0,6 | 3,0 | |
| Flatey, dýpkun | 75% | 6,5 | 6,5 | 4,9 | 4,9 | |||
| Húsavík, dýpkun | 75% | 1,8 | 1,8 | 1,3 | 1,3 | |||
| Raufarhöfn | Löndunarbryggja við bræðslu leiðr. | 60% | 2,4 | 2,4 | 1,4 | 1,4 | ||
| Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur | 75% | 1,8 | 1,8 | 1,4 | 1,4 | |||
| Dýpkun innsiglingarrennu, merking | 75% | 0,5 | 28,0 | 28,5 | 0,4 | 21,0 | 21,4 | |
| Viðlega fyrir björgunarskip | 60% | 1,9 | 1,9 | 1,1 | 1,1 | |||
| Þórshöfn | Bryggjurif | 60% | 2,0 | 2,0 | 1,2 | 1,2 | ||
| Grjótflái | 60% | 1,6 | 0,2 | 1,8 | 1,0 | 0,1 | 1,1 | |
| Hafskipabryggja, lenging | 60% | 1,9 | 0,2 | 2,1 | 1,2 | 0,1 | 1,3 | |
| Dýpkun innsiglingar og hafnar | 75% | 71,5 | 14,4 | 85,9 | 53,6 | 10,8 | 64,4 | |
| Stálþil | 60% | 21,7 | 50,2 | 71,9 | 13,0 | 30,1 | 43,1 | |
| Bakkafjörður | Lenging Sjafnarbryggju | 60% | 0,2 | 2,1 | 2,3 | 0,1 | 1,3 | 1,4 |
| Lenging löndunarbryggju | 60% | 0,1 | 0,1 | 0,1 | 0,1 | |||
| Vopnafjarðarhöfn | Löndunarbryggja, stálþil, lagnir | 60% | 3,6 | 0,8 | 4,4 | 2,2 | 0,5 | 2,7 |
| Dýpkun innsiglingar og merking | 75% | 1,8 | 0,4 | 2,2 | 1,3 | 0,3 | 1,6 | |
| Brimvarnargarður | 75% | 13,7 | 81,6 | 95,3 | 10,3 | 61,2 | 71,5 | |
| Seyðis- fjarðarhöfn |
Ferjulægi, stálþil | 60% | 35,5 | 17,8 | 53,3 | 21,3 | 10,7 | 32,0 |
| Sérbúnaður við ferjulægi | 75% | 102,5 | 21,4 | 123,9 | 76,9 | 16,0 | 92,9 | |
| Dýpkun rennu við Fjarðarhöfn | 75% | 7,0 | 0,1 | 7,1 | 5,3 | 0,1 | 5,4 | |
| Fjarðabyggð | Neskaupstaður, skjólgarður | 75% | 0,2 | 0,2 | 0,1 | 0,1 | ||
| Neskaupstaður, dýpkun | 75% | 23,4 | 0,7 | 24,1 | 17,6 | 0,5 | 18,1 | |
| Neskaupstaður, lenging togarabryggju | 60% | 0,3 | 0,2 | 0,5 | 0,2 | 0,1 | 0,3 | |
| Reyðarfjörður, stóriðja stálþilsbakki | 60% | 4,4 | 4,4 | 2,6 | 2,6 | |||
| Mjóifjörður, flotbryggja og frágangur | 60% | 1,1 | 0,1 | 1,2 | 0,6 | 0,6 | ||
| Eskifjörður, stálþil við bræðslu | 60% | 6,8 | 47,0 | 53,8 | 4,1 | 28,2 | 32,3 | |
| Reyðarfjörður, stóriðja dýpkun | 75% | 5,9 | 5,9 | 4,4 | 4,4 | |||
| Fáskrúðsfjörður | Stækkun loðnulöndunarbryggju | 60% | 0,9 | 0,3 | 1,2 | 0,5 | 0,2 | 0,7 |
| Endurbygging Bæjarbryggju | 60% | 0,2 | 11,2 | 11,4 | 0,1 | 6,7 | 6,8 | |
| Stöðvarfjörður | Grjótvörn utan á gömlu bryggju | 75% | 13,0 | 6,8 | 19,8 | 9,7 | 5,1 | 14,8 |
| Djúpivogur | Löndunarkantur, stálþil Gleðivík | 60% | 0,1 | 0,5 | 0,6 | 0,1 | 0,3 | 0,4 |
| Horna- fjarðarhöfn |
Grynnslin | 75% | 0,4 | 0,3 | 0,7 | 0,3 | 0,2 | 0,5 |
| Endurbygging Krosseyjarbakka | 60% | 2,3 | 2,3 | 1,4 | 1,4 | |||
| Vestmannaeyjar | Friðarhöfn, Norður-/austurkantur endurb. stálþil | 60% | 31,8 | 34,5 | 66,3 | 19,1 | 20,7 | 39,8 |
| Nausthamarsbryggja, endurbygging | 60% | 0,6 | 8,5 | 9,1 | 0,4 | 5,1 | 5,5 | |
| Dýpkun, pyttur | 75% | 0,1 | 1,6 | 1,7 | 0,1 | 1,2 | 1,3 | |
| Smábátaaðstaða, landstöplar, lýsing | 60% | 1,3 | 3,0 | 4,3 | 0,8 | 1,8 | 2,6 | |
| Friðarhöfn, stálþil vestur | 60% | 0,3 | 0,3 | 0,2 | 0,2 | |||
| Friðarhöfn–Ísk./Suðurkantur | 60% | 10,9 | 30,2 | 41,1 | 6,5 | 18,1 | 24,6 | |
| Þorlákshöfn | Tunna á garðsenda | 75% | 4,3 | 4,3 | 3,2 | 3,2 | ||
| Svartaskersgarður | 75% | 7,3 | 21,8 | 29,1 | 5,5 | 16,4 | 21,9 | |
| Grindavíkurhöfn | Skjólgarðar | 75% | 1,0 | 1,0 | 0,8 | 0,8 | ||
| Dýptarmælingar hreinsun | 75% | 1,2 | 1,2 | 0,9 | 0,9 | |||
| Sandgerði | Norðurgarður, lenging stálþils | 60% | 0,5 | 0,5 | 0,3 | 0,3 | ||
| Reykjanes- höfn | Njarðvík, grjótgarður | 75% | 18,8 | 41,9 | 60,7 | 14,1 | 31,4 | 45,5 |
| Af óskiptu fé | 0,3 | 0,3 | 0,3 | 0,3 | ||||
| Alls ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir | 572,1 | 694,3 | 1266,4 | 391,7 | 465,4 | 857,4 | ||
| II. Ferjubryggjur | ||||||||
| Arngerðareyri | 100% | 0,3 | ||||||
| Æðey | 100% | 0,1 | ||||||
| Alls ferjubryggjur | 0,4 | |||||||
| III. Lendingarbætur | ||||||||
| Haukabergsvaðall | 100% | 0,5 | ||||||
| Grunnavík | 100% | 0,2 | ||||||
| Selvík | 100% | 0,2 | ||||||
| Drangey | 100% | 4,0 | ||||||
| Lagarfljótsormurinn | 100% | 1,1 | ||||||
| Papey | 100% | 1,0 | ||||||
| Alls lendingarbætur | 7,0 | |||||||
| * Kostnaður janúar til júní 2003 er með virðisaukaskatti. | ||||||||
Tafla II. Kostnaður við sjóvarnir 2003
(fjárhæðir í millj. kr.).
| Heildarkostnaður | Ríkishluti | |
| Innri-Akraneshreppur | 1,0 | 0,9 |
| Snæfellsbær | –0,1 | –0,1 |
| Dalabyggð | 0,1 | 0,1 |
| Reykhólar | –0,1 | –0,1 |
| Vesturbyggð | 0,3 | 0,2 |
| Ísafjarðarbær | 2,8 | 2,4 |
| Súðavíkurhreppur | 2,4 | 2,0 |
| Árneshreppur | 3,1 | 2,7 |
| Blönduósbær | 0,5 | 0,4 |
| Höfðahreppur | 4,6 | 4,0 |
| Skagabyggð | 4,3 | 3,7 |
| Dalvíkurbyggð | 2,2 | 1,9 |
| Grímseyjarhreppur | –0,2 | –0,2 |
| Húsavíkurbær | 5,5 | 4,8 |
| Vopnafjarðarhreppur | 0,2 | 0,2 |
| Fjarðabyggð | –0,3 | –0,3 |
| Árborg | 29,5 | 25,8 |
| Ölfus | –0,1 | –0,1 |
| Grindavíkurbær | 8,6 | 7,5 |
| Reykjanesbær | 18,2 | 15,9 |
| Við Leiru | 3,1 | 2,7 |
| Gerðahreppur | 1,0 | 0,9 |
| Vatnsleysustrandarhreppur | 5,5 | 4,8 |
| Hafnarfjarðarbær | 0,4 | 0,3 |
| Bessastaðahreppur | 5,9 | 5,2 |
| Seltjarnarnesbær | 5,7 | 5,0 |
| Rannsóknir | 0,3 | 0,3 |
| Samtals millj. kr. | 104,4 | 90,9 |
Tafla III. Kostnaður við rannsóknarverkefni 2003
(fjárhæðir í millj. kr.).
| Hafnir, líkantilraunir og grunnkort: | |
| Reykjavík | 0,2 |
| Ólafsvík | 0,1 |
| Snæfellsbær | 0,1 |
| Bíldudalur | 0,3 |
| Seyðisfjörður | 0,3 |
| Eskifjörður | 0,2 |
| Þorlákshöfn, líkantilraunir | 8,2 |
| Reykjanesbær | 0,3 |
| Samtals | 11,0 |
| Rannsóknir og þróun: | |
| Rannsóknir, óskipt | 2,3 |
| Fræðigreinar | 1,1 |
| Stjórnvaldsverkefni | 1,0 |
| Háskólasetrið á Höfn | 0,2 |
| Norðausturleið | 0,1 |
| Brimvarnargarðar | 0,3 |
| Undirstöðurannsóknir á sjólagi | 4,3 |
| Hreyfistöðugleiki fiskiskipa | 0,2 |
| Vatnsþéttileiki skipa | 1,2 |
| Sjávarföll, sjávarflóð | 1,1 |
| Upplýsingakerfi fyrir sjófarendur | 0,9 |
| Andveltigeymar skipa | 3,7 |
| Rannsóknir við suðurströndina: | |
| Ferjulægi við Bakkafjöru | 4,1 |
| Hornafjarðarós | 0,7 |
| Rof við Vík í Mýrdal | 0,4 |
| Siglingaleiðir | 5,7 |
| Samtals | 27,3 |
| Kostnaður við rannsóknarverkefni samtals: | 38,3 |
Tafla IV. Staða ríkissjóðs vegna hafnargerðar 2003 (fjárhæðir í millj. kr.).
| Höfn | Staða ríkissjóðs í árslok 2002 |
Ríkishluti fram- kvæmda 2003 |
Fjárveiting 2003 | Staða ríkissjóðs í árslok 2003 |
||
| Vantar | Ónotað | Vantar | Ónotað | |||
| Akranes | 24,8 | 78,4 | 68,1 | 14,5 | ||
| Borgarnes | 0,1 | 0,1 | 3,5 | 3,5 | ||
| Snæfellsbær | 18,6 | 56,6 | 53,1 | 15,1 | ||
| Grundarfjörður | 5,8 | 3,8 | 7,2 | 9,2 | ||
| Stykkishólmur | 3,7 | 3,6 | 9,9 | 10,0 | ||
| Búðardalur | 1,0 | 0,1 | 0,6 | 1,5 | ||
| Reykhólahöfn | 0,5 | 0,5 | ||||
| Vesturbyggð | 18,3 | 0,1 | 18,2 | |||
| Tálknafjörður | 0,2 | 0,2 | ||||
| Bolungarvík | 28,9 | 0,7 | 15,4 | 43,6 | ||
| Ísafjarðarbær | 29,6 | 26,3 | 51,4 | 54,7 | ||
| Súðavík | 3,6 | 7,3 | 1,8 | 1,9 | ||
| Norðurfjörður | 3,4 | 3,1 | 0,3 | |||
| Drangsnes | 1,9 | 2,2 | 5,0 | 0,9 | ||
| Hólmavík | 2,6 | 2,6 | ||||
| Húnaþing vestra | 0,1 | 0,1 | ||||
| Blönduós | 0,9 | 0,9 | ||||
| Skagaströnd | 1,9 | 1,6 | 0,3 | |||
| Skagafjörður | 9,5 | 12,0 | 0,1 | 2,4 | ||
| Siglufjörður | 2,1 | 7,7 | 20,5 | 10,7 | ||
| Hafnasamlag Eyjafjarðar | 23,6 | 10,9 | 40,5 | 53,2 | ||
| Grímsey | 2,6 | 9,4 | 9,9 | 2,1 | ||
| Hafnasamlag Norðurlands | 26,6 | 38,6 | 30,4 | 18,4 | ||
| Húsavík | 11,5 | 20,7 | 97,0 | 87,8 | ||
| Kópasker | 2,1 | 2,1 | ||||
| Raufarhöfn | 57,5 | 25,3 | 32,2 | |||
| Þórshöfn | 43,4 | 111,1 | 116,4 | 48,7 | ||
| Bakkafjörður | 0,6 | 1,5 | 2,0 | 0,1 | ||
| Vopnafjörður | 9,1 | 75,8 | 102,4 | 35,7 | ||
| Borgarfjörður eystri | ||||||
| Seyðisfjörður | 54,6 | 130,3 | 98,0 | 22,3 | ||
| Fjarðabyggð | 63,2 | 58,6 | 7,8 | 12,4 | ||
| Fáskrúðsfjörður | 5,2 | 7,5 | 18,7 | 6,0 | ||
| Stöðvarfjörður | 0,4 | 14,8 | 17,3 | 2,1 | ||
| Breiðdalsvík | 0,2 | 6,4 | 6,6 | |||
| Djúpivogur | 0,8 | 0,4 | 2,0 | 0,8 | ||
| Hornafjarðarbær | 4,4 | 1,9 | 16,4 | 18,9 | ||
| Vestmannaeyjar | 53,2 | 74,0 | 137,7 | 116,9 | ||
| Eyrarbakki | 1,0 | 1,0 | ||||
| Þorlákshöfn | 31,5 | 25,1 | 76,9 | 83,3 | ||
| Grindavík | 158,8 | 1,7 | 93,0 | 67,5 | ||
| Sandgerði | 27,3 | 0,3 | -25,5 | 1,5 | ||
| Garður | ||||||
| Reykjaneshöfn | 5,5 | 45,5 | 50,2 | 0,8 | ||
| Óskipt | 11,0 | 0,3 | 5,9 | 16,5 | ||
| Samtals: | 177,9 | 570,3 | 857,6 | 1.143,1 | 75,1 | 752,9 |
Tafla V. Fjárveitingar til hafnarframkvæmda 2003
(fjárhæðir í millj. kr.).
| Almennar hafnir | 1.143,1 |
| Lendingarbætur | 7,8 |
| Ferjubryggjur | 6,5 |
| Samtals fjárveitingar | 1157,4 |
Tafla VI. Fjárveitingar til sjóvarna 2003
(fjárhæðir í millj. kr).
| Sjóvarnargarðar (fjárlagaliður 10-335) | |
| Ríkishluti | |
| Óskipt | 0,1 |
| Innri-Akraneshreppur | 0,9 |
| Snæfellsbær | 0,6 |
| Dalabyggð | 2,0 |
| Reykhólahreppur | 0,9 |
| Vesturbyggð | 5,7 |
| Ísafjarðarbær | 0,9 |
| Blönduós | 6,0 |
| Skagabyggð | 5,5 |
| Höfðahreppur | 3,0 |
| Dalvíkurbyggð | 4,7 |
| Grýtubakkahreppur | 0,6 |
| Húsavík | 4,9 |
| Vopnafjörður | 0,2 |
| Fjarðabyggð | 0,5 |
| Vestmannaeyjar | 4,5 |
| Árborg | 11,3 |
| Sveitarfélagið Ölfus | 5,5 |
| Grindavík | 0,5 |
| Sandgerði | 0,2 |
| Gerðahreppur | 2,6 |
| Vatnsleysustrandarhreppur | 6,8 |
| Bessastaðahreppur | 4,1 |
| Seltjarnarnes | 5,1 |
| Fjárheimildir* fluttar frá hafnargerð í Sandgerði til sjóvarna á eftirtöldum stöðum: |
|
| Árneshreppur | 2,1 |
| Reykjanesbær | 20,8 |
| Vatnsleysustrandarhreppur | 2,6 |
| Samtals | 102,6 |
|
*Fjáraukalög 2003. |
|
Tafla VII. Úthlutanir Hafnabótasjóðs 2003
(fjárhæðir í millj. kr.).
| Styrkir: | |
| a) Styrkir til nýframkvæmda | |
| Arnarstapi | 1,1 |
| Stykkishólmur | 2,0 |
| Suðureyri | 2,0 |
| Bolungarvík | 3,1 |
| Súðavík | 0,5 |
| Norðurfjörður | 0,7 |
| Drangsnes | 0,8 |
| Grímsey | 2,5 |
| Hjalteyri | 0,1 |
| Þórshöfn | 27,7 |
| Bakkafjörður | 0,5 |
| Vopnafjörður | 20,5 |
| Seyðisfjörður | 20,6 |
| Fáskrúðsfjörður | 1,3 |
| Stöðvarfjörður | 3,4 |
| Breiðdalsvík | 1,6 |
| Djúpivogur | 0,4 |
| b) Tjónastyrkir | |
| Engum tjónastyrkjum úthlutað. | |
| Styrkir alls | 88,8 |
| Lán: | |
| Engin lán veitt á árinu | |
| Lán alls | 0,0 |
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Tölur fyrir árið 2003 liggja ekki fyrir.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 Tölur fyrir árið 2003 liggja ekki fyrir.
- Neðanmálsgrein: 3
- 3 Sérstakt vörugjald til Hafnabótasjóðs var í samgönguáætlun 213,2 millj. kr. en var lækkað í fjáraukalögum um 106,6 millj. kr. Þjónustusamningur um öryggismál var felldur út úr siglingamálaáætlun.
- Neðanmálsgrein: 4
- 4 Ekkert dauðaslys var fiskiskipum á sjó eða skipum skráðum á skipaskrá en einn maður fórst á Breiðafirði við vinnu á þangskurðarpramma. Auk þess féll einn sjómaður milli skips og bryggju á Seyðisfirði.
- Neðanmálsgrein: 5
- 5 Tvö af skipunum voru dregin til hafnar.