Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 888. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1646 — 888. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um leyfi til rannsókna í Brennisteinsfjöllum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur verið brugðist við umsóknum Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur um leyfi til rannsókna í Brennisteinsfjöllum?
Á miðju ári 2000 barst iðnaðarráðuneyti erindi frá Hitaveitu Suðurnesja þar sem farið var fram á rannsóknarleyfi til jarðhitarannsókna í Brennisteinsfjöllum. Á sama tíma barst ráðuneytinu sams konar erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur. Í báðum tilvikum óskuðu umsækjendur eftir rannsóknarleyfi með fyrirheit um nýtingarleyfi.
Þetta var í fyrsta sinn sem tveir aðilar sóttu um rannsóknarleyfi á sem næst sama tíma frá því lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, voru sett. Í þeim lögum er ekki kveðið á um það að ekki megi veita tveimur hæfum aðilum rannsóknarleyfi á sama svæði og á sama tíma. Ráðuneytið hefur litið svo á að túlka beri lög nr. 57/1998 svo að heimilt sé að veita fleiri en einum aðila rannsóknarleyfi á sama svæðinu. Ráðuneytið telur að í slíkum tilvikum þurfi sérstaklega að tryggja að þær framkvæmdir eða rannsóknir sem leyfishafar hyggjast fara í séu ekki ósamrýmanlegar. Hins vegar verður að telja afar ólíklegt að tveir aðilar skuli samtímis standa að dýrum rannsóknum á sama jarðhitasvæðinu án þess að hafa fengið fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi.
Eðli málsins samkvæmt er ekki unnt að veita fleiri en einum aðila fyrirheit um forgang til nýtingar á sama svæði. Þar sem lög nr. 57/1998 mæla ekki fyrir um hvernig gert skuli upp á milli umsækjenda taldi ráðuneytið ekki unnt að veita öðrum umsækjandanna fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi. Var því beiðni um fyrirheit um forgang til nýtingar fyrir Hitaveitu Suðurnesja annars vegar og Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar hafnað í júní 2002. Ráðuneytið benti hins vegar umsækjendum á þann möguleika að þeir sameinuðust um rannsóknir á svæðinu og fengju tilskilin leyfi til þess ásamt fyrirheiti um forgang að nýtingu.
Í lok janúar 2003 sóttu fyrrgreind fyrirtæki sameiginlega um leyfi til að rannsaka umfang, magn og afkastagetu jarðhitasvæða í Brennisteinsfjöllum. Þar var farið fram á að fyrirtækjunum verði sameiginlega veitt nýtingarleyfi á svæðinu ef árangur rannsókna reynist jákvæður. Í apríl 2003 var óskað eftir umsögnum Orkustofnunar, umhverfisráðuneytis og viðkomandi sveitarfélaga um umsókn fyrirtækjanna um rannsóknarleyfi í samræmi við ákvæði laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Orkustofnun og sveitarfélögin tóku jákvætt í að rannsóknarleyfi yrði veitt, en umhverfisráðuneyti taldi að ekki ætti að svo komnu máli að veita Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur rannsóknarleyfi og fyrirheit um forgang að nýtingarleyfi.
Á fundi með umhverfisráðuneyti 26. águst 2003 var farið yfir forsendur fyrir áliti ráðuneytisins, en árið 2000 hafði ráðuneytið ekki lagst gegn því að rannsóknarleyfi yrði veitt, þó með ströngum skilyrðum. Á fundinum kom fram að undirstofnanir ráðuneytisins hefðu gert nokkrar athugasemdir um að upplýsingar vantaði, m.a. hvað varðaði aðkomuvegi að svæðinu, staðsetningu borplana, og auk þess kom ósk um að beðið yrði eftir niðurstöðum rammaáætlunar. Á fundi með orkufyrirtækjunum í september 2003 var ákveðið að freista þess að afla þeirra gagna og upplýsinga sem talið hafði verið að á skorti í umsókn fyrirtækjanna um rannsóknarleyfi. Þá voru niðurstöður rammaáætlunar kynntar í lok nóvember 2003 þar sem fram kom að virkjun í Brennisteinsfjöllum telst í þeim flokki virkjana er næst minnst umhverfisáhrif hafa.
Þegar framangreind viðbótargögn berast iðnaðarráðuneyti mun umsagnaraðilum lögum samkvæmt kynnt þau gögn og þeim gefið tækifæri á að tjá sig um þau. Komi ekki fram verulegar efnislegar og rökstuddar athugasemdir mun iðnaðarráðuneytið í framhaldi af því gefa út leyfi til jarðhitarannsókna í Brennisteinsfjöllum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1646 — 888. mál.
Svar