Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 965. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1660  —  965. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um hjónabönd öryrkja.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur ráðuneytið gert könnun á því hvers vegna öryrkjar eru síður í sambúð eða hjónabandi en aðrir þjóðfélagsþegnar?

    Félagsmálaráðuneytið hefur ekki gert slíka könnun og er ráðuneytinu ekki kunnugt um að slík könnun hafi verið gerð á Íslandi.
    Í Þjóðskránni eru 182.639 einstaklingar búsettir á Íslandi á aldrinum 18 ára til 67 ára miðað við 1. maí 2004. Af þeim voru 78.150 ekki skráðir með maka eða 42,8 %. Þannig voru 57,2% skráð með maka.
    Í Tryggva, tölvukerfi lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins, voru samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar 11.302 metnir öryrkjar 1. maí 2004 búsettir á Íslandi, meðtaldir eru einnig þeir sem ekki fá greiðslur vegna tekna. Af þeim voru 6.521 ekki skráður með maka, eða 57,7% af hópnum. Þannig eru 42,3% öryrkja skráðir með maka á móti 57,2% þjóðarinnar.
    Það er því ljóst að hlutfallslega eru töluvert fleiri öryrkjar sem eru ekki í sambúð eða hjónabandi en aðrir jafnaldrar þeirra í samfélaginu.
    Upplýsingar um örorkumat einstaklinga er að finna hjá Tryggingastofnun ríkisins. Það er því álit félagsmálaráðuneytis að fyrirspyrjandi beini þeirri spurningu til heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis eða Tryggingastofnunar ríkisins hvort gera eigi slíka könnun og með hvaða hætti. Mætti í þessu sambandi athuga samráð við Öryrkjabandalag Íslands.