Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 919. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1666 — 919. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um félagslega aðstoð við einstæða foreldra.
Inngangur.
Fjallað verður um félagsþjónustu sveitarfélaga sem veitt er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Við öflun upplýsinga var leitað til félagsmálastjóra sem ráðnir eru til að hafa umsjón með félagsþjónustu sveitarfélaganna. Upplýsingarnar hér á eftir byggjast á svörum félagsþjónustunnar í Reykjavík, í Kópvogi, í Mosfellsbæ, á Akureyri, í Garðabæ, í sveitarfélögum í Borgarfirði, í Vestur-Húnavatnssýslu og í Fjarðabyggð. Ekki hafa borist upplýsingar frá öðrum svæðum. Eru svör við 2. og 3. lið að hluta til byggð á þessum upplýsingum. Í svari við 1. lið er stuðst við upplýsingar frá Hagstofu Íslands og frá Félagsþjónustunni í Reykjavík ásamt gögnum úr félagsmálaráðuneyti. Ekki er fjallað um aðstoð í formi húsnæðis eða niðurgreiðslur vegna daggæslu barna í heimahúsum en greint er frá fjölskyldugerð þeirra sem fá húsaleigubætur.
Árið 2002 var samtals 10.631 einstæð móðir hér á landi og 877 einstæðir feður eða samtals 11.508 einstæðir foreldrar. Kjarnafjölskyldur voru alls 71.343 þannig að fjölskyldur einstæðra foreldra voru 16% allra kjarnafjölskyldna í landinu. Börn eru á alls 43.950 heimilum. Þar af eru börn hjá einstæðu foreldri á 26% heimilanna (11.508).
1. Hversu margir einstæðir foreldrar njóta félagslegrar aðstoðar?
Félagsleg aðstoð er veitt í margþættu formi í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga. Helstu þættirnir eru fjárhagsaðstoð, margþætt félagsleg ráðgjöf og félagsleg heimaþjónusta. Enn fremur er veitt úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda hjá þeim sem ekki eru færir um það sjálfir. Hér verður fjallað um fjárhagsaðstoð og aðra félagslega þjónustu, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Fjárhagsaðstoð.
Ekki eru til heildartölur yfir alla félagslega aðstoð sem veitt er hjá félagsþjónustu sveitarfélaga en í Landshögum 2003 má m.a. finna fjölda heimila sem hafa fengið fjárhagsaðstoð skipt eftir fjölskyldugerð árið 2001:
Eftirfarandi mynd sýnir greiðslur til mismunandi fjölskyldugerða. Þar kemur fram að einstæðir, barnlausir karlar eru fjölmennasti hópurinn sem fékk fjárhagsaðstoð á árunum 1992–2000, en árið 2001 verða heimili einstæðra mæðra fleiri.
Heimild: Landshagir.
Önnur félagsleg aðstoð.
Upplýsingar um aðra félagslega aðstoð liggja ekki fyrir yfir landið í heild. Frá Félagsþjónustunni í Reykjavík bárust eftirfarandi upplýsingar um fjölda heimila sem hafa fengið félagslega aðstoð og fjárhagsaðstoð.
Húsaleigubætur 2002.
Meiri hluti bótaþega á landinu var einhleypur eða 57%. Einstæðir foreldrar voru 29% bótaþega og 15% giftir eða í sambúð.
2. Hvers konar félagsleg aðstoð býðst einstæðum foreldrum?
Félagsþjónusta sem veitt er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga stendur öllum íbúum sveitarfélags til boða. Einstæðir foreldrar eru ekki tilgreindir sérstaklega í lögunum frekar en aðrar fjölskyldugerðir. Rétt er þó að vekja athygli á að sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón, samkvæmt lögunum, eiga einnig karl og kona sem búa saman og eru bæði ógift, enda hafi sambúðin verið skráð í þjóðskrá í a.m.k. eitt ár áður en umsókn um fjárhagsaðstoð er lögð fram. Þjónustan sem hér um ræðir er: fjárhagsaðstoð, félagsleg heimaþjónusta, margþætt félagsleg ráðgjöf, þjónusta við börn, þjónusta við aldraða, þjónusta við fatlaða, úrlausn í húsnæðismálum hjá þeim sem ekki eru færir um það sjálfir o.fl.
Sveitarfélögin bjóða einstæðum foreldrum hvert með sínum hætti sérhæfða aðstoð umfram lögbundna þjónustu. Til dæmis hefur Félagsþjónustan í Kópavogi rekið sérstakt „mæðrasambýli“. Félagsþjónustan í Reykjavík nefnir auk almennra skylduverkefna Kvennasmiðjuna sem er samstarfsverkefni Tryggingastofnunar ríkisins og Félagsþjónustunnar og er sérhönnuð fyrir einstæðar mæður. Einnig má nefna þjónustusamning við Félag einstæðra foreldra þar sem Félagsþjónustan í Reykjavík greiðir félaginu ákveðið gjald fyrir tiltekna þjónustu.
Einstæðir foreldrar fá víða niðurgreidda daggæslu barna í heimahúsum og þeir greiða lægri leikskólagjöld en hjón og fólk í sambúð.
3. Hefur þurft að grípa til aðgerða vegna grunar um að aðstoð sé veitt á röngum forsendum, t.d. að foreldrar skrái sig einstæða þótt þeir séu í sambúð? Hvernig er eftirliti með slíku háttað?
Ekki fengust bein svör við þessum lið frá félagsþjónustunni en hér verður fjallað almennt um þetta viðfangsefni. Hvorki kom fram í svörum sem bárust að félagsþjónustan hefði þurft að grípa til aðgerða vegna þessa né að hún hefði sérstakt eftirlit með því að aðstoð væri veitt á réttum forsendum. Landslög og vinnureglur á hverjum stað eru taldar tryggja þetta svo sem kostur er.
Sveitarfélögunum ber samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga að veita íbúunum ákveðna, tilgreinda þjónustu. Sveitarfélögin hafa að vissu marki sjálfdæmi um það með hvaða hætti þau veita þjónustuna, svo framarlega sem þjónusta og aðstoð er í samræmi við lögbundnar skyldur. Með íbúa sveitarfélags er átt við þann sem á lögheimili í sveitarfélaginu. Fjölskyldugerð umsækjanda og börn á framfæri eru oftast tilgreind þegar óskað er eftir aðstoð og gilda þá staðfest og lögmæt gögn um lögheimilisskráningu og hjúskaparstöðu. Sama á við um aðrar upplýsingar sem mat á aðstoð byggist á, svo sem læknisvottorð, launaseðla, greiðslur frá almannatryggingum eða skráningu atvinnuleysis. Ef upp kemur grunur um að lögheimilisskráning sé ekki rétt getur sveitarfélag haft samband við Hagstofu Íslands vegna málsins. Það breytir hins vegar ekki því að mat á umsókn um aðstoð tekur mið af gildandi skráningu lögheimilis. Það er ekki fyrr en lögheimilisskráningu hefur verið breytt að forsendur fyrir umsókn breytast. Það er á hinn bóginn ekki hlutverk félagsþjónustunnar að hafa slíkt eftirlit með höndum, en hún getur að sjálfsögðu vakið athygli þar til bærra yfirvalda á nauðsyn á að kanna hvort lögheimilisskráning í ákveðnum tilvikum sé í samræmi við lög um lögheimili, nr. 21/1990.
Félagsþjónustan í Reykjavík greinir frá því að þar sé unnið samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í lögunum séu markmið þjónustunnar skilgreind, en þau eru: að aðstoða fólk til sjálfshjálpar, bera virðingu fyrir sjálfsákvörðunarrétti þess og hafa samráð við notendur í hvívetna. Félagsþjónustan sé þannig þjónustustofnun en ekki eftirlitsstofnun, hvað þá refsivald. Í starfsreglum séu skýr ákvæði um hvaða gögn umsækjendur eigi að leggja fram til sönnunar eða staðfestingar á aðstæðum sínum og unnið sé eftir því án nánari eftirgrennslana.
Félagsþjónustan í Kópavogi hefur ekki haft sérstakt eftirlit með þessu. Ef grunur leikur á að ekki hafi verið veittar réttar upplýsingar um hjúskaparstöðu er rætt við viðkomandi, en mið sé þó ævinlega tekið af því sem fram kemur í þjóðskrá. Félagsþjónustan telur sig ekki hafa til neinna úrræða að grípa ef grunur leikur á að skráning sé ekki rétt.
Ef rökstuddur grunur kemur upp hjá félagsþjónustunni á Akureyri um að fólk sé ekki með rétta lögheimilisskráningu tekst yfirleitt að leysa slík mál með viðræðum við viðkomandi. Ekki er um að ræða sérstakt eftirlit.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1666 — 919. mál.
Svar

| Fjöldi | % | |
| Einstæðir karlar með börn | 99 | 2 |
| Einstæðar konur með börn | 1.743 | 35 |
| Einstæðir barnlausir karlar | 1.686 | 34 |
| Einstæðar barnlausar konur | 839 | 17 |
| Hjón/sambúðarfólk með börn | 356 | 7 |
| Hjón/sambúðarfólk án barna | 203 | 4 |
| Heimili alls | 4.925 |
Eftirfarandi mynd sýnir greiðslur til mismunandi fjölskyldugerða. Þar kemur fram að einstæðir, barnlausir karlar eru fjölmennasti hópurinn sem fékk fjárhagsaðstoð á árunum 1992–2000, en árið 2001 verða heimili einstæðra mæðra fleiri.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Landshagir.
Önnur félagsleg aðstoð.
Upplýsingar um aðra félagslega aðstoð liggja ekki fyrir yfir landið í heild. Frá Félagsþjónustunni í Reykjavík bárust eftirfarandi upplýsingar um fjölda heimila sem hafa fengið félagslega aðstoð og fjárhagsaðstoð.
| 2001 | 2002 | 2003 | |
| Félagsleg aðstoð | |||
| Fjöldi einstæðra foreldra | 1.617 | 1.621 | 1.677 |
| Heildarfjöldi | 5.259 | 8.013* | 8.154 |
| Þar af fengu fjárhagsaðstoð | |||
| Fjöldi einstæðra foreldra | 1.019 | 1.139 | 1.157 |
| Heildarfjöldi | 2.955 | 3.575 | 3.779 |
| * Skýring á fjölgun milli ára er að 67 ára og eldri voru talin með frá og með 2002 í heimaþjónustu. | |||