Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 798. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1668 — 798. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um fjárfestingar viðskiptabanka.
Viðskiptaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) til að svara fyrirspurninni. SBV leitaði eftir svörum frá Íslandsbanka hf., KB-banka hf. og Landsbanka Íslands hf. Meðfylgjandi svör eru tekin upp úr innsendum upplýsingum frá viðskiptabönkunum þremur.
1. Hvert var markaðsvirði hlutafjáreignar viðskiptabankanna og dótturfyrirtækja þeirra í fyrirtækjum skráðum í Kauphöll Íslands í milljörðum króna og sem hlutfall af markaðsvirði skráðra hlutabréfa í lok áranna 2000 og 2003? Hvert var markaðsvirði hlutafjáreignar viðskiptabankanna í öðrum félögum á sama tíma?
Markaðsvirði hlutafjáreignar viðskiptabankanna þriggja og dótturfyrirtækja þeirra í fyrirtækjum skráðum í Kauphöll Íslands var 17,2 milljarðar kr. í lok árs 2000 og 34 milljarðar kr. í lok árs 2003. Hlutafjáreign viðskiptabankanna í skráðum fyrirtækjum nam 4,1% af heildarmarkaðsvirði fyrirtækja í Kauphöll Íslands í lok árs 2000 og 5,2% í lok árs 2003.
Markaðsvirði hlutafjáreignar viðskiptabankanna í öðrum fyrirtækjum var 15,9 milljarðar kr. í lok árs 2000 og 34,3 milljarðar kr. í lok árs 2003.
2. Hver var fjöldi fyrirtækja og dótturfélaga sem viðskiptabankarnir áttu hlut í innan lands og erlendis í lok áranna 2000 og 2003?
Viðskiptabankarnir áttu samtals hlut í 410 fyrirtækjum í lok árs 2000 og 400 fyrirtækjum í lok árs 2003. Þess ber að geta að í mörgum tilfellum eiga tveir eða allir viðskiptabankanna hlut í sama fyrirtæki.
3. Hvernig skiptist hlutafjáreignin innbyrðis milli bankanna og hverjar voru fimm verðmætustu eignirnar hjá hverjum banka um sig í lok áranna 2000 og 2003?
Hlutabréfaeignin skiptist þannig á milli bankanna:
Fimm verðmætustu hlutafjáreignir Íslandsbanka í lok árs 2000 voru Glitnir hf., R Raphael & Sons PLC, Íslandsbanki hf., Ker hf. og Baugur hf. Í lok árs 2003 voru það Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Straumur hf., Framtak fjárfestingarbanki hf., Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og R. Raphael & Sons PLC.
Fimm verðmætustu hlutafjáreignir KB-banka í lok árs 2000 (þ.e. Kaupþings hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.) voru Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Össur hf., Kaupthing Lux. SA, Sól-Víking hf. og Samherji hf. Í lok árs 2003 voru það Kaupthing Bank Sverige, Norvestia Oy, Vátryggingafélag Íslands hf., Singer & Friedlander Grp. plc. og Baugur Group hf.
Fimm verðmætustu hlutafjáreignir Landsbanka í lok árs 2000 voru Vátryggingafélag Íslands hf., The Heritable Bank Ltd., Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf., Kaupás hf. og Lýsing hf. Í lok árs 2003 voru það Eimskipafélag Íslands hf., The Heritable Bank Ltd., Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf., Landsafl hf. og Landsbanki Lúxemborg SA.
4. Hversu hátt hlutfall af eignum bankanna var í erlendum og innlendum skuldabréfum og erlendum og innlendum hlutabréfum í lok áranna 2000 og 2003?
Í lok árs 2000 var hlutfall erlendra skuldabréfa 0,43% af eignum viðskiptabankanna þriggja að meðaltali og innlendra skuldabréfa 6,04%. Hlutfall erlendra hlutabréfa var 0,82% og innlendra hlutabréfa 3,62%.
Í lok árs 2003 var hlutfall erlendra skuldabréfa 0,41% af eignum viðskiptabankanna þriggja að meðaltali og innlendra skuldabréfa 5,42%. Hlutfall erlendra hlutabréfa var 1,06% og innlendra hlutabréfa 3,22%.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1668 — 798. mál.
Svar

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.