Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 984. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1673  —  984. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu.

     1.      Hvaða ríki hafa undirgengist og fullgilt sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu og hver ekki?
    Tvö ríki, Kenýa og Srí Lanka, hafa fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu sem gerður var í New York 31. október 2003 og þannig undirgengist skuldbindingar samkvæmt samningnum. Samningurinn öðlast gildi þremur mánuðum eftir að 30 ríki hafa afhent fullgildingarskjöl sín.

     2.      Ef Ísland er ekki meðal þeirra ríkja sem hafa undirgengist og fullgilt sáttmálann, hver er skýringin á því?
    Utanríkisráðuneytið hefur nú ásamt viðeigandi fagráðuneytum til athugunar fullgildingu ýmissa alþjóðasamninga. Til dæmis hafa utanríkisráðuneytið og dóms- og kirkjumálaráðuneytið nú til skoðunar fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri, skipulagðri glæpastarfsemi ásamt viðbótarbókun við samninginn til að koma í veg fyrir, afnema og refsa fyrir viðskipti með einstaklinga, einkum konur og börn, sem gerð voru í New York 15. nóvember 2000 og Evrópusamning um netglæpi sem gerður var í Búdapest 23. nóvember 2001 ásamt viðbótarbókun við samninginn þar sem verknaðir, sem lýsa kynþátta- og útlendingahatri og framdir eru með því að hagnýta tölvukerfi, eru lýstir refsiverðir sem gerð var í Strassborg 28. janúar 2003. Í framhaldi af því er gert ráð fyrir að samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu verði tekinn til skoðunar í ráðuneytunum tveimur.
    Tekið skal fram að Ísland er aðili að tveimur alþjóðasamningum sem beint er gegn spillingu. Annars vegar er um að ræða samning um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum sem gerður var í París 17. desember 1997, en hann var fullgiltur af Íslands hálfu 17. ágúst 1998 og öðlaðist gildi 15. febrúar 1999. Hins vegar er um að ræða Evrópusamning á sviði refsiréttar um spillingu sem gerður var í Strassborg 27. janúar 1999, en hann var fullgiltur af Íslands hálfu 11. febrúar 2004 og mun öðlast gildi að því er Ísland varðar 1. júní 2004.

     3.      Hvaða ákvæði er að finna í sáttmálanum um gagnsæi í fjárreiðum stjórnmálaflokka og í stjórnsýslunni?
    Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu hefur það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu á ýmsum sviðum samfélagsins. Tekur samningurinn bæði til hins opinbera og til einkaaðila. Samningurinn hefur að geyma fjölmörg ákvæði er varða gagnsæi í stjórnsýslu sem stefna að framangreindu markmiði. Um gagnsæi í fjármögnun framboða til opinberra starfa sem kosið er til og fjármögnun stjórnmálaflokka er fjallað sérstaklega í 3. mgr. 7. gr. samningsins og hljóðar ákvæðið svo í íslenskri þýðingu:
    „Hvert aðildarríki skal og taka til athugunar að samþykkja viðeigandi laga- og stjórnsýsluákvæði, sem fara saman við markmið þessa samnings og eru í samræmi við grundvallarreglur innlendra laga þess, í því skyni að auka gagnsæi fjármögnunar framboða til opinberra starfa sem kosið er til og, þar sem við á, fjármögnunar stjórnmálaflokka.“