Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 998. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1675  —  998. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um uppbyggingu bráðadeilda Landspítala – háskólasjúkrahúss.

Flm.: Lára Margrét Ragnarsdóttir, Einar Oddur Kristjánsson,
Drífa Hjartardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson.


    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að skipa nefnd til að meta kosti og galla þess að reisa eina byggingu fyrir allar bráðadeildir Landspítala – háskólasjúkrahúss, annaðhvort við Hringbraut eða í Fossvogi. Nefndin geri athugun á fjárhagslegri hagkvæmni, framkvæmdahraða og hagstæðustu kostum með árangursgreiningu („cost-benefit“-greiningu) svo að bráðaþjónusta Landspítala – háskólasjúkrahúss komist sem fyrst á einn stað og að unnt verði að sinna bráðasjúklingum á viðunandi hátt og skila jafnframt hagræðingu sem var höfuðmarkmið sameiningar sjúkrahúsanna í Reykjavík.
    Nefndin skili áliti sínu fyrir 1. október 2004.

Greinargerð.


    Á undanförnum áratug hafa þrjú bráðasjúkrahús í Reykjavík sameinast í eitt sjúkrahús, Landspítala – háskólasjúkrahús (LSH). Allt frá sjöunda áratugnum hafa verið umræður um ávinning af hugmyndum um framangeinda sameiningu, hvar og hvernig skuli koma fyrir allri starfsemi eins bráðasjúkrahúss. Skiptar skoðanir voru um sameiningu sjúkrahúsanna, en eftir stofnun LSH hafa komið fram eindregnar óskir stjórnenda sjúkrahússins um að bráðaþjónustan verði undir einu þaki. Talið er útilokað að uppfylla skilyrði um árangur af sameiningu sjúkrahúsanna ef bráðaþjónustan verði ekki flutt undir eitt þak. Fram hefur komið álit stjórnenda LSH um að enn hafi ekki náðst væntanleg hagræðing af sameiningu og megnið af rekstrarhalla LSH er útskýrt sem óhagræði af því að ekki sé unnt að veita bráðaþjónustu í einni byggingu.
    Um 1970 kom fram hugmynd um framtíðaruppbyggingu eins sjúkrahúss sem skyldi staðsett á lóð Landspítala við Hringbraut sem fyrirhugað var að stækka. Stjórnendur LSH fengu fyrir nokkrum árum sænska arkitekta til að teikna og leggja fram tillögur um framtíðarhúsnæði á lóð spítalans við Hringbraut miðað við stækkun lóðar. Dönsk ráðgjafarskrifstofa, Ementor, lagði einnig fram tillögur fyrir nokkrum árum um framtíðaruppbyggingu LSH. Í skýrslu ráðgjafa Ementor er komist að þeirri niðurstöðu að hagkvæmast sé að stækka og byggja við spítalann í Fossvogi og öll bráðaþjónsta verði þar. Önnur þjónusta, svo sem rannsóknastofur og ýmis önnur starfsemi, t.d. hjúkrun langveikra sjúklinga, væri heppileg á lóðinni við Hringbraut. Enn fremur segir í skýrslu Ementor að stækkun spítalans í Fossvogi tæki mun skemmri tíma en stækkun við Hringbraut.
    Í umræðum meðal starfsfólks í heilbrigðisþjónustu og í fjölmiðlum er álitið að kostnaður við uppbyggingu við Hringbraut gæti numið 40 milljörðum króna miðað við núverandi verðlag, en að sama skapi sé kostnaður við stækkun í Fossvogi áætlaður 10–12 milljarðar króna. Því er ástæða að kanna frekar hvort ekki mætti verja mismuni á hönnunar- og byggingarkostnaði á annan hátt. Í húfi eru miklir fjármunir.
    Nú þegar er ekki unnt að sinna langlegusjúklingum sem þarfnast fyrst og fremst góðrar hjúkrunar. Fyrirsjáanleg er mikil fjölgun slíkra sjúklinga í náinni framtíð. Nú liggja langlegusjúklingar á bráðadeildum við Hringbraut og í Fossvogi og eru rúm fyrir bráðasjúklinga því teppt á þessum deildum. Því er talið rétt að meta hvort mismunur á kostnaði við uppbyggingu við Fossvog og Hringbraut samkvæmt skýrslu ráðgjafa Ementor gæti frekar nýst til að veita öllum sjúklingum sem þarfnast sjúkrahúsvistar betri og hagkvæmari þjónustu.
    Vert er að minnast að þegar hugmyndir og áætlanir um stækkun Landspítala og lóðar spítalans við Hringbraut komu fyrst fram var alls ekki séð fyrir sú gríðarlega þensla sem orðið hefur í uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu, enda byggt á staðtölum frá því fyrir eða um 1970. Síðan eru liðnir hátt í fjórir áratugir. Þegar Landspítali var reistur á sínum tíma stóð hann í „útjaðri“ byggðar í Reykjavík. Hið sama gilti um staðsetningu Borgarspítalans þegar hann var reistur í Fossvogi. Aðstæður hafa breyst mikið síðan þá og forsendur einnig. Í því sambandi má nefna aukinn íbúafjölda á höfuðborgarsvæðinu sem LSH ber að sinna, ásamt allri landsbyggðinni, aukinn fjölda aldraðra sem þurfa meiri þjónustu, tæknivæðingu, betri lyf sem leitt hafa til styttri meðallegu og bætta þjónustu við bráðasjúklinga. Auk þess er stór hluti þjónustu, sem áður var veitt á sjúkrahúsum, nú veittur á læknastofum eða í tengdri þjónustu. Eldra fólk kýs að vera heima í lengstu lög og er því mun veikara en áður fyrr þegar það leggst inn á hjúkrunardeildir. Því er brýnt að langveikir sjúklingar hafi tryggingu fyrir því að komast inn á hjúkrunardeildir þegar þeir geta ekki lengur dvalið annars staðar.
    Flutningsmenn leggja áherslu á að fyrst og fremst skuli veita áfram jafngóða eða betri þjónustu við sjúklinga, utan sjúkrahúsa, á hjúkrunarheimilum og sjúkrahúsum en gæta jafnframt hagræðingar í rekstri. Því sé rétt að skoða vandlega kosti og galla á öllum fram komnum hugmyndum og tillögum um staðsetningu þeirrar þjónustu sem LSH ber að veita.