Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 999. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1676 — 999. mál.
um könnun á aðdraganda og ávinningi af sameiningu sjúkrahúsa í Reykjavík.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd er kanni hvernig hagnaður af sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík í lok níunda og á tíunda áratugnum var áætlaður. Sérstaklega verði kannað hvernig áætlaður var hagnaður af sameiningu Landakotsspítala og Borgarspítala og síðan af sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í núverandi Landspítala – háskólasjúkrahús.
Nefndin skoði sérstaklega og meti aðferðir sem stuðst var við til að áætla ávinning af sameiningu þessara sjúkrahúsa. Einnig kanni nefndin hvers vegna ekki var gengist í uppsetningu kostnaðargreiningarkerfa, eins og DRG-kerfisins, fyrir sameininguna og hvers vegna ekki var þegið boð um faglega og fjárhagslega aðstoð við að þróa og byggja upp DRG-kerfið, sem nú er að verða fullþróað innan Landspítala – háskólasjúkrahúss, einkum þegar kerfið hafði á þeim tíma, þ.e. fyrir tuttugu árum, verið notað víða. Einkanlega verði kannað hvort notkun á DRG-kerfinu hafi hafist í Evrópu fyrir 1990 og hvaða árangri DRG-kerfið hafði skilað í Bandaríkjunum á þeim tíma. Enn fremur verði kannað vel hvort og þá hvers vegna stjórnendur í heilbrigðisþjónustu kynntu sér ekki kosti DRG-kerfisins og árangur af notkun þess í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Nefndin kanni einnig ástæður þess að stjórnendur í heilbrigðisþjónustu hafa nú á síðustu árum lagt mikla áherslu á uppsetningu þessa kostnaðargreiningarkerfis sem forsendu fyrir kostnaðargreiningu og áætlanagerð sjúkrahúsa, einkanlega Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Nefndin skili álit sínu fyrir 1. nóvember 2004.
Á sjöunda áratugnum var í Bandaríkjunum unnið að uppbyggingu kostnaðargreiningarkerfis, DRG-kerfis, sem auðveldaði stjórnendum í heilbrigðisþjónustu, einkum stjórnendum sjúkrahúsa á þeim tíma, að gera áætlanir um kostnað og kostnaðargreina heilbrigðisþjónustuna með það fyrir augum að útskýra vaxandi kostnaðaraukningu í heilbrigðisþjónustu og ekki síður til að auðvelda ákvarðanir um fjárframlög til þjónustunnar og stjórnun sjúkrahúsa. DRG-kerfið náði ekki til allra sérgreina í heilbrigðisþjónustu þegar það var tekið upp sem kostnaðargreiningarkerfi í Bandaríkjunum um 1980 en í heimsókn annars aðalhöfunda DRG- kerfisins til Íslands um miðjan níunda áratuginn kom fram vilji höfunda til að kosta að meiri hluta uppsetningu og aðlögun DRG-kerfis miðað við Evrópustaðal, sem Ísland studdist við, ásamt því að bæta kerfið og þróa til að taka til allflestra sérgreina í læknisþjónustu.
Kynning á DRG-kerfinu hérlendis er álitin hafa hafist þegar á árinu 1983 innan Ríkisspítala og á Landakotsspítala. Námskeið í heilsuhagfræði sem m.a. kynnti kosti og galla kerfisins voru haldin 1984 á vegum Stjórnunarfélags Íslands. Í eins árs framhaldsnámi hjúkrunarfræðinga í stjórnun við Hjúkrunarskóla Íslands og síðar í Nýja hjúkrunarskólanum var DRG-kerfið kynnt markvisst fram til 1989. Á árunum þar á eftir kynntu erlendir fyrirlesarar kosti og galla DRG-kerfis í Háskóla Íslands. Árið 2003 var hafið skipulagt nám í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Um miðjan níunda áratuginn fór starfsmaður Ríkisspítala í kynnisferð til Bandaríkjanna og kynnti sér árangur af notkun DRG-kerfisins, ræddi við höfunda þess, heimsótti sjúkrahús í Nýja Englandi, Florida og Ohio og heimsótti einnig þá aðila í stjórnarskrifstofum í Washington D.C. sem höfðu yfirumsjón með opinberum greiðslum til heilbrigðisþjónustu innan Bandaríkjanna. Í framhaldi af þeirri ferð kom, eins og að framan greinir, annar höfundur DRG-kerfisins, Robert Fetter, prófessor við Yale-háskólann í Connecticut, til Íslands og fundaði með stjórnendum Ríkisspítala þar sem m.a. var rætt um og boðin fagleg og fjárhagsleg aðstoð við uppsetningu og aðlögun við íslenskar aðstæður. Þetta boð átti einnig að gagnast áframhaldandi þróun DRG-kerfisins almennt í þeirri mynd sem það var þá og enn fremur þróa kerfið fyrir fleiri sérgreinar, jafnvel í heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa. Ísland var talið kjörið land til slíkrar þróunar.
Um sama leyti, miðjan níunda áratuginn, er talið að umræða um nauðsyn á kostnaðargreiningu hafi verið almenn meðal þeirra sem fengust við stjórnun í íslenskri heilbrigðisþjónustu og í ræðum og riti bent á nauðsyn kostnaðargreiningar. Umræða um kostnaðargreiningu og nauðsyn hennar kom fram á Alþingi 1991–1992. Næstu ár kom ítrekað fram í umræðum á Alþingi að uppsetning og notkun kostnaðargreiningar eins og DRG fyrir sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík væri forsenda þess að meta til fulls árangur af fyrirhugaðri sameiningu. Framfarir í læknisfræði og tækni væru örar og nauðsyn bæri til að sýna nákvæmar kostnað við rekstur sjúkrahúsa miðað við hvers kyns sjúkdómstilfelli hefði verið meðhöndluð og hvers konar rannsóknar- og lækningaaðferðum væri beitt. Eina tiltæka mælitækið til svo nákvæms yfirlits yfir kostnað væri DRG-kostnaðargreiningarkerfið sem tæki til fjölmargra þátta sjúkrahúslækninga. Ekki yrði unnt að meta nægilega árangur af sameiningu sjúkrahúsanna miðað við þær takmörkuðu upplýsingar úr bókhaldi sem þá voru tiltækar og því ekki unnt að gera raunhæft mat á ávinningi sameiningar sjúkrahúsa. Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á 130. löggjafarþingi 2003–2004, þskj. 1089 – 609. mál, var notkun DRG-kerfis „ekki talin forsenda fyrir sameiningu spítalanna“ og erfitt að sjá „hvaða áhrif DRG-mælingar hefðu getað haft við ákvörðun um sameiningu spítalanna“.
Um þessar mundir er fyrirsjáanlegur „halli“ á Landspítala – háskólasjúkrahúsi (LSH) eins og verið hefur frá sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítalans og í reynd hefur verið halli á rekstri sjúkrahúsa í fleiri áratugi. Fjárlaganefnd Alþingis hefur ítrekað óskað eftir nákvæmari upplýsingum við gerð fjárlaga. Í umfjöllun stjórnenda LSH undanfarin ár um fjárveitingar og sparnað á LSH er DRG-kerfið, sem tekur til læknisfræðilegra þátta ásamt öðrum upplýsingum, svo sem kostnaðargreiningarkerfi hjúkrunar, talin forsenda markvissrar stjórnunar og hagræðingar. RAI-hjúkrunarkerfið hefur verið notað um nokkurn tíma en það tekur til hjúkrunarþjónustu við aldraða en ekki hjúkrunar í bráðaþjónustu. Í flestöllum löndum sem við berum okkur saman við hefur DRG-kerfið verið tekið í notkun og reynst gott tæki til stjórnunar og hagræðingar í heilbrigðisþjónustu og talið skýra vel kostnaðarþróun og „halla“ á rekstri sjúkrahúsa.
Flutningsmenn telja því tímabært og rétt að kanna hvers vegna svo góðu boði um uppsetningu DRG-kerfis á Íslandi fyrir tæpum tveimur áratugum var hafnað, hvort upplýsingar úr DRG-kerfi í notkun fyrir sameiningu sjúkrahúsanna hefði skipt sköpum nú, þegar reynt er að skýra „halla“ á rekstri LSH og flokka „hallann“ annars vegar sem kostnað við sameiningu og hins vegar sem aukinn rekstrarkostnað með greinargóðum skýringum. Flutningsmenn telja rétt að fram komi rökstudd greinargerð um hvort höfnun á boði um þróun og uppsetningu DRG-kerfis á Íslandi hefði getað haft áhrif á ákvörðun um sameiningu sjúkrahúsanna og enn fremur hver heildarkostnaður hefur verið vegna seinkunar og síðar hægfara uppsetningar DRG-kerfisins. Einnig er talið rétt að kanna hvort seinkun á upptöku DRG-kerfis í íslenskri heilbrigðisþjónustu hefur haft áhrif á ákvarðanir um fjárveitingu til sjúkrahúsa, sameiningu sjúkrahúsa, stjórnun og fagleg vinnubrögð á undanförnum árum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1676 — 999. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um könnun á aðdraganda og ávinningi af sameiningu sjúkrahúsa í Reykjavík.
Flm.: Lára Margrét Ragnarsdóttir, Einar Oddur Kristjánsson,
Drífa Hjartardóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd er kanni hvernig hagnaður af sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík í lok níunda og á tíunda áratugnum var áætlaður. Sérstaklega verði kannað hvernig áætlaður var hagnaður af sameiningu Landakotsspítala og Borgarspítala og síðan af sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í núverandi Landspítala – háskólasjúkrahús.
Nefndin skoði sérstaklega og meti aðferðir sem stuðst var við til að áætla ávinning af sameiningu þessara sjúkrahúsa. Einnig kanni nefndin hvers vegna ekki var gengist í uppsetningu kostnaðargreiningarkerfa, eins og DRG-kerfisins, fyrir sameininguna og hvers vegna ekki var þegið boð um faglega og fjárhagslega aðstoð við að þróa og byggja upp DRG-kerfið, sem nú er að verða fullþróað innan Landspítala – háskólasjúkrahúss, einkum þegar kerfið hafði á þeim tíma, þ.e. fyrir tuttugu árum, verið notað víða. Einkanlega verði kannað hvort notkun á DRG-kerfinu hafi hafist í Evrópu fyrir 1990 og hvaða árangri DRG-kerfið hafði skilað í Bandaríkjunum á þeim tíma. Enn fremur verði kannað vel hvort og þá hvers vegna stjórnendur í heilbrigðisþjónustu kynntu sér ekki kosti DRG-kerfisins og árangur af notkun þess í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Nefndin kanni einnig ástæður þess að stjórnendur í heilbrigðisþjónustu hafa nú á síðustu árum lagt mikla áherslu á uppsetningu þessa kostnaðargreiningarkerfis sem forsendu fyrir kostnaðargreiningu og áætlanagerð sjúkrahúsa, einkanlega Landspítala – háskólasjúkrahúss.
Nefndin skili álit sínu fyrir 1. nóvember 2004.
Greinargerð.