Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 980. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1681  —  980. mál.




Svar



viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um niðurstöðu Samkeppnisstofnunar í máli tryggingafélaganna.

     1.      Hver er afstaða ráðherra til þeirra ummæla forsvarsmanna Sjóvár – Almennra og Vátryggingafélags Íslands að hvorki hafi verið tilefni til umfangsmikillar rannsóknar Samkeppnisstofunar á meintu samráði tryggingafélaganna né að sekta þau og að ekki hafi verið um verðsamráð eða samstilltar aðgerðir tryggingafélaganna að ræða?
    Samkvæmt lögum var rannsókn á meintu samráði tryggingafélaga á höndum Samkeppnisstofnunar og kom ekki á borð viðskiptaráðuneytis. Í niðurstöðu samkeppnisyfirvalda kemur fram að tilefni hafi verið til þessarar rannsóknar og nú hefur samkeppnisráð lokið málinu með sátt. Viðskiptaráðherra hefur marglýst því yfir að það sé ekki hlutverk ráðherra að hafa afskipti eða áhrif á efnislega umfjöllun mála hjá samkeppnisyfirvöldum og er því vísað til greinargerðar og ákvörðunar samkeppnisyfirvalda í málinu.

     2.      Er ástæða til að ætla að vegna fjárskorts Samkeppnisstofnunar og skorts á mannafla hafi tekið svo langan tíma að fá niðurstöðu í meint samráð tryggingafélaganna?
    Ýmsir samverkandi þættir hafi valdið því hversu langan tíma tók að ljúka þessu máli. Þar var fjárskortur ekki ráðandi þáttur en fram hefur komið að mannaskipti og önnur mál sem höfðu forgang hjá stofnuninni urðu til að seinka lokafrágangi málsins. Að mati stofnunarinnar er svo langur vinnslutími máls bagalegur en slíkt er ekki óþekkt í öðrum ríkjum. Gerðar hafa verið ráðstafanir til að svo langur dráttur á afgreiðslu mála endurtaki sig ekki hjá stofnuninni.

     3.      Telur ráðherra ástæðu til endurskoðunar á samkeppnislögum í ljósi þess að samkeppnisyfirvöld töldu ekki ástæðu til að beita fjársektum við brotum tryggingafélaganna vegna þess hve langan tíma rannsóknin tók?
    Ráðherra telur að ekki sé þörf á lagabreytingu af þessu tilefni.

     4.      Hvert er álit ráðherra á því að Samkeppnisstofnun geti ekki sinnt störfum sínum með eðlilegum hætti sökum fjárskorts og mun ráðherra beita sér fyrir auknum framlögum til stofnunarinnar á þessu eða næsta ári?
    Ráðherra hefur margoft ítrekað að Samkeppnisstofnun gegni mjög mikilvægu hlutverki í að standa vörð um frjálsa samkeppni með þjóðarhag að leiðarljósi. Aukin samþjöppun eignarhalds og fækkun fyrirtækja á þjóðhagslegum og mikilvægum mörkuðum gera starf stofnunarinnar sífellt umfangsmeira og flóknara og til hennar eru gerðar æ meiri kröfur. Af þessum ástæðum þykir nauðsynlegt að efla starfsemi Samkeppnisstofnunar og skal enn áréttað að viðskiptaráðherra hefur beitt sér fyrir auknum framlögum til stofnunarinnar. Þannig hafa fjárveitingar til stofnunarinnar aukist úr 118,7 millj. kr. árið 2000 í 157,3 millj. kr. á fjárlögum ársins 2004. Er þess vænst að vilji sé fyrir því á Alþingi að styðja enn frekar við bakið á stofnuninni.
     5.      Hver var kostnaður Samkeppnisstofnunar við rannsóknina í heild og sundurliðað eftir árum?
     6.      Hver var aðkeyptur sérfræðikostnaður við rannsóknina í heild og sundurliðað eftir árum?

    Leitað var upplýsinga frá Samkeppnisstofnun um svör við 5. og 6. spurningu.
    Kostnaður við rannsóknina í heild og sundurliðað eftir árum var eftirfarandi:

Samkeppnisstofnun:

Tryggingamál, staða 12. maí 2004.

(Allar tölur eru á verðlagi hvers árs.)



Árið
Samkeppnisstofnun
kr.
Sérfræðikostnaður
kr.
Heildarkostnaður
kr.
1997 800.896 67.853 868.749
1998 3.700.899 3.700.899
1999 4.223.156 4.223.156
2000 1.538.802 553.600 2.092.402
2001 4.991.553 1.155.200 6.146.753
2002 4.425.893 117.000 4.542.893
2003 8.281.006 0 8.281.006
2004 1.385.741 750.000 2.135.741
Samtals 29.347.946 2.643.653 31.991.599