Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 920. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1687  —  920. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um atvinnumál fatlaðra.

     1.      Hver er stefna ráðherra í atvinnumálum fatlaðra?
    Stefnan byggist á hugmyndafræði laga um málefni fatlaðra, nr. 59/1992, og er markmið þeirra að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna. Í lögunum eru kynntar áherslur sem miða að því að auka möguleika fatlaðra til starfa á almennum vinnumarkaði.
    Einnig er lögð áhersla á þann anda laganna að megináherslur í atvinnumálum fatlaðra skuli vera á notkun almennra úrræða í stað sértækra sé þess nokkur kostur.
    Úrræðin sem hér um ræðir hafa einkum verið atvinnuleit, starfsráðgjöf, starfsprófun og starfsþjálfun á almennum vinnustöðum auk atvinnu með stuðningi. Einnig er brýnt að úrræði sem beinast að því að gera samninga um hlutdeildargreiðslu kostnaðar við fyrirtæki verði notuð í meira mæli en nú er. Þá er brýnt að samstarfsmenn fatlaðra fái leiðbeiningar og ráðgjöf um fatlanir og eðli þeirra þannig að fatlaðir geti orðið að fullu þátttakendur í samfélaginu.
    Framtíðarsýnin er að fötluðum verði sköpuð tækifæri til starfa við verðug verkefni sem eru til þess fallin að styrkja frelsi, jafnrétti, öryggi og mannlega reisn.
    Um þessar mundir er að hefjast vinna við stefnumótun í málefnum fatlaðra í þeim verkefnaflokkum sem tilheyra félagsmálaráðuneytinu. Einn þessara verkefnaflokka eru málefni fullorðinna sem eru fatlaðir. Þessi flokkur greinist í tvo undirflokka, búsetumál og atvinnumál, og er gert ráð fyrir að sérstakur hópur vinni að því að móta þessa stefnu. Víðtækt samráð verður haft við hagsmunaaðila þannig að breið samstaða náist um framtíðarsýn ásamt meginmarkmiðum og leiðum.
    Í slíkri stefnumótun er brýnt að skoðuð verði m.a. eftirfarandi atriði:
     1.      Skýr stefna í atvinnumálum fatlaðra til næstu tólf ára þar sem skilgreindir yrðu sex tveggja ára áfangar með mati á framvindu.
     2.      Þróun vinnumarkaðarins og þátttaka fatlaðra í þeirri þróun.
     3.      Efling frumkvæðis og nýsköpunar í atvinnumálum fatlaðra.
     4.      Styrking á almennri viðhorfavinnu í samfélaginu sem eykur möguleika fatlaðra til atvinnu á almennum vinnumarkaði.
     5.      Endurskoðun á bótakerfi almannatrygginga þannig að atvinna verði vænlegri kostur en bætur.
     6.      Skoðun góðra verkefna yrði gert að almennu verklagi í stjórnsýslunni þannig að skapaðar yrðu forsendur til eftirbreytni og þróunar.
     7.      Á hvern hátt sé unnt að auka atvinnu með stuðningi þannig að fleiri fatlaðir fái tækifæri til atvinnu á almennum vinnumarkaði.
     8.      Á hvern hátt sé unnt að tryggja aðgengi fatlaðra að upplýsingasamfélaginu þannig að þeir geti orðið virkir þátttakendur í þekkingarsamfélagi framtíðarinnar.
     9.      Á hvern hátt hægt sé að styrkja fyrirtæki og stofnanir til að ráða fatlaða til vinnu, þ.m.t. fjárhagslega með greiðslu eða ívilnunum og beinum styrkjum til breytinga á aðgengi.
     10.      Á hvern hátt hægt sé að vinna að enn markvissari starfsendurhæfingu fatlaðra með aukinni samhæfingu þjónustukerfa, sbr. skýrslu nefndar um starfsendurhæfingu (2004).
     11.      Að framkvæmdar séu reglulega nauðsynlegar rannsóknir á stöðu fatlaðra á vinnumarkaði þannig að raunhæfar upplýsingar séu til staðar á hverjum tíma til stefnumótunnar.
     12.      Á hvern hátt skuli staðið að gerð kjarasamninga við þá sem hafa skerta starfsorku.

     2.      Hvaða aðilar veita fötluðum stuðning við að komast út á almennan vinnumarkað?
    Þær stofnanir sem veita stuðning eru:
     Reykjavík: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík og Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins.
     Reykjanes: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi.
     Suðurnes: Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja.
     Suðurland: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Suðurlandi og Svæðisvinnumiðlun Suðurlands.
     Austurland: Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi og Svæðisvinnumiðlun Austurlands.
     Norðurland eystra: Fjölskylduþjónusta Akureyrarbæjar.
     Norðurland vestra: Svæðisvinnumiðlun Norðurlands vestra og Fjölskylduþjónusta Skagfirðinga.
     Vestfirðir: Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða.
     Vesturland: Svæðisvinnumiðlun Vesturlands.

     3.      Hver hefur árangurinn orðið af starfi þessara aðila?

    Sendur var út spurningalisti til framangreindra aðila, m.a. til að meta þátttöku fatlaðra á almennum vinnumarkaði og þá þjónustu sem í boði er til að efla þátttökuna. Flestar stofnanir hafa sent frá sér þær upplýsingar sem óskað var eftir en nokkrar eiga eftir að skila og er eftirfarandi flokkun dregin saman út frá þeim upplýsingum sem hafa borist.
    Samkvæmt samantekt fyrir árið 2003 voru aðstæður öryrkja á vinnumarkaðinum eftirfarandi:

Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin
Með atvinnu 241 70
Starfandi á almennum vinnumarkaði 143 37
— með stuðningi 143 19
— án stuðnings 0 18
Starfandi á vernduðum vinnustöðum 98 33
Starfhæfir en án atvinnu 70 23

    Sú hugmyndafræði sem flestar svæðisskrifstofur landsins starfa eftir er atvinna með stuðningi (ams) sem er byggð á vinnubrögðum „Supported Employment“. Meginmarkmið atvinnu með stuðningi er að aðstoða fatlaða við öflun atvinnutækifæra á almennum vinnumarkaði og finna störf og koma einstaklingum til vinnu á almennum vinnumarkaði út frá eigin forsendum og óskum. Einnig er lögð áhersla á einstaklingsmiðaðan stuðning eins lengi og þörf er á.
    Svæðisvinnumiðlanirnar vinna ekki eftir ákveðinni aðferðarfræði sem er sérsniðin fyrir fatlaða. Hins vegar er unnið eftir ákveðnum verklagsferlum. Leitast er við að finna störf við hæfi hvers og eins og einstaklingar upplýstir um mögulegan stuðning í atvinnuleit og um starfsþjálfunar- og reynsluráðningarsamninga sem þeir geta nýtt sér.