Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 896. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1698  —  896. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um námslán fyrir skólagjöldum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig sundurliðast útlán Lánasjóðs íslenskra námsmanna vegna skólagjalda í íslenskum háskólum og sérskólum á síðasta skólaári eftir skólum? Og hvernig sundurliðast fjöldi lánþega eftir skólum, sbr. þskj. 1187?
     2.      Til hvaða námsleiða var lánað í hverjum skóla og hve há fjárhæð samtals, sundurliðað eftir námsleiðum? Hver var fjöldi lánþega og hvert var meðallánið á hverri námsleið?
     3.      Hver er talinn verða kostnaður sjóðsins af lánveitingum, sundurliðað eftir námsleiðum og skólum miðað við núverandi reglur sjóðsins?


    Ráðuneytið leitaði eftir upplýsingum hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna og er eftirfarandi byggt á gögnum frá sjóðnum.
    Samtals tóku 1.157 námsmenn frá sautján skólum námslán fyrir skólagjöldum á síðasta skólaári. Samtals voru lánaðar 267,6 millj. kr. vegna skólagjalda en heildarlán á sama tíma voru 856,6 millj. kr. Nánari sundurliðun má sjá í töflunni.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Alls var lánað fyrir skólagjöldum á 29 námsleiðum í 17 skólum á háskólastigi á síðasta skólaári. Nánari sundurliðun er í töflunni hér á eftir ásamt upplýsingum um meðallán á hverri námsleið fyrir sig.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Miðað við gildandi reglur má gera ráð fyrir að kostnaður LÍN vegna affalla og niðurgreiðslu útlánavaxta sé um 45–50% útlána og þar með að lántakendur endurgreiði að meðaltali um 50–55% lánanna. Upphæð láns og tekjur lántakanda að námi loknu ráða mestu um kostnað við einstök lán.