Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 898. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1700 — 898. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um tekjur sérskóla af skólagjöldum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hverjar voru tekjur einstakra skóla af skólagjöldum vegna náms á sérskólastigi á síðasta skólaári og hvernig sundurliðast tekjurnar eftir námsleiðum í hverjum skóla?
2. Hve margir nemendur greiddu skólagjöldin og hvernig sundurliðast fjöldinn eftir námsleiðum í hverjum skóla?
3. Hver voru útgjöld skólanna vegna náms þar sem skólagjöld voru innheimt á síðasta skólaári og hvert var hlutfall skólagjaldanna af útgjöldunum, sundurliðað eftir skólum og námsleiðum?
4. Hver var fjárhæð skólagjaldanna á síðasta skólaári vegna náms á sérskólastigi sem hver nemandi þurfti að greiða og hvað var lagt til grundvallar ákvörðun um fjárhæðina, sundurliðað eftir námsleiðum og skólum?
Hugtakið sérskólar er ekki lengur notað. Með lögum um framhaldsskóla, nr. 80/1996, voru skólar sem áður störfuðu eftir lögum um sérskóla felldir undir þau lög og heita síðan framhaldsskólar. Í fyrirspurninni mun vera átt við skóla eins og tölvuskóla, Fiskvinnsluskólann, Lögregluskólann, Bankaskólann, iðnskólana, Stýrimannaskólann og Vélskólann.
Tölvuskólarnir eru einkaskólar sem ekki eru á vegum menntamálaráðuneytisins og verðleggja þjónustu sína án afskipta þess. Lögregluskólinn heyrir undir dómsmálaráðuneytið og Bankaskólinn undir bankana og hefur menntamálaráðuneytið ekki upplýsingar um skólagjöld sem þessir skólar innheimta, ef einhver eru. Fiskvinnsluskólinn var lagður niður fyrir nokkrum árum en starfaði síðustu árin samkvæmt lögum um framhaldsskóla.
Hvað varðar Iðnskólann í Reykjavík, Iðnskólann í Hafnarfirði, Stýrimannaskólann í Reykjavík og Vélskóla Íslands þá starfa þeir eftir lögum um framhaldsskóla eins og aðrir framhaldsskólar og hafa gjaldtökuheimildir sem tilgreindar eru í lögunum. Um er að ræða
innritunargjöld, 8.500 kr. á ári, og efnisgjöld, allt að 50.000 kr. á ári.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1700 — 898. mál.
Svar