Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 663. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1702 — 663. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur menntamálaráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 9. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
Hér verður gerð grein fyrir einstökum verkefnum talin eru upp í framkvæmdaáætlun menntamálaráðuneytisins frá 1998 ásamt kostnaði. Mörg verkefnanna eru unnin af starfsfólki ráðuneytisins og í þeim tilvikum er kostnaður ekki sérstaklega tilgreindur. Sé óskað ítarlegri skýringa á einstökum verkefnum er vakin athygli á skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fram á 127. löggjafarþingi, þskj. 1290 í 732. máli. Þá er einnig vakin athygli á að félagsmálaráðherra hefur lagt fram nýja framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og með henni fylgir skýrsla um stöðu verkefna úr endurskoðaðri áætlun vegna áranna 2002–2004, þskj. 1331 í 874. máli þessa þings.
1. Námskrárgerð.
„Í nýjum aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla verður sérstaklega tekið mið af lögum um grunnskóla og stefnu menntamálaráðuneytis í jafnréttismálum en þar er kveðið á um að nemendum sé ekki mismunað eftir kyni, búsetu, stétt, uppruna, trú eða fötlun. Þetta þýðir að allir skuli fá sem jöfnust tækifæri til menntunar. Þetta þýðir ekki endilega sömu úrræði fyrir alla, heldur sambærileg og jafngild tækifæri.“
Í maí 1997 skipaði menntamálaráðherra jafnréttisnefnd. Nefndin skilaði tillögum sínum varðandi framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum og um stefnumörkun í jafnréttisfræðslu í skólum í tengslum við endurskoðun aðalnámskráa fyrir grunn- og framhaldsskóla í nóvember 1998. Í framhaldi af störfum nefndarinnar var gefinn út bæklingurinn Jafnrétti til menntunar og var honum ætlað að vekja kennara og annað skólafólk til umhugsunar um lögbundið jafnrétti kynjanna til menntunar en í bæklingnum er bent á leiðir til að stuðla að jafnrétti í skólastarfi. Þáverandi menntamálaráðherra kynnti niðurstöður nefndarinnar á opnum fundi 18. mars 1999. Einnig var bæklingurinn sendur til allra framhaldsskóla og fór ráðuneytið fram á að efni hans yrði kynnt í viðkomandi skóla auk þess sem óskað var eftir því að efni hans yrði haft til hliðsjónar við gerð skólanámskráa. Kostnaður við nefndarstarfið var 258.750 kr.
Ný aðalnámskrá fyrir grunn- og framhaldsskóla tók gildi í júní 1999. Fræðsla um jafnrétti kynjanna er samofin markmiðum í nýjum aðalnámskrám bæði grunn- og framhaldsskóla, almennum hlutum þeirra og í hverri námskrá fyrir sig. Í aðalnámskrá beggja skólastiga er sérstök námskrá í lífsleikni, sem er ný námsgrein. Í námskrá í lífsleikni er að finna jafnréttismiðuð áfangamarkmið og þrepamarkmið fyrir einstaka aldurshópa.
Þess má geta að við endurskoðun aðalnámskrár framhaldsskóla frá janúar sl. var lögð rík áhersla á jafnréttismál. Þar segir á bls. 5: „Skólum ber að gæta jafnréttis nemenda til náms og bjóða þeim nám og kennslu við hæfi. Mikilvægt er að bæði piltum og stúlkum séu kynnt störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin karla- eða kvennastörf. Sérstök áhersla er lögð á jafnréttismarkmið í áfangalýsingum félagsfræði, uppeldisfræði og sálfræði, auk lífsleikninnar. Skólum ber einnig að gefa nemendum tækifæri til að spreyta sig á viðfangsefnum að eigin vali. Þau þurfa að höfða jafnt til pilta og stúlkna án tillits til uppruna, í dreifbýli eða þéttbýli, fatlaðra sem ófatlaðra.“ Í kafla um skólanámskrá var við sömu endurskoðun lagt til að skólar gerðu grein fyrir stefnu skólans í jafnréttismálum og hvernig hún birtist í daglegu starfi hans.
Í aðalnámskrá framhaldsskóla er einnig vísað til þess að skólum beri að gæta jafnréttis nemenda til náms og að verkefni skuli höfða jafnt til pilta og stúlkna. Sérstök áhersla er lögð á jafnréttismarkmið í áfangalýsingum félagsfræði, uppeldisfræði og sálfræði, auk lífsleikni.
Í stefnuriti ráðuneytisins, Enn betri skóli, frá 1998 sem lagt var til grundvallar við endurskoðun aðalnámskráa endurspeglast meginjafnréttisstefna ráðuneytisins. Þar segir m.a. eftirfarandi: „Jafnrétti til náms er fólgið í því að bjóða nemendum nám og kennslu við hæfi og gefa þeim tækifæri til að spreyta sig á viðfangsefnum að eigin vali.“ Við gerð námskráa fyrir grunn- og framhaldsskóla voru tillögur nefndar sem ráðherra skipaði til þess að fjalla um jafnréttismál og gera tillögur um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar og stefnumörkum varðandi jafnréttisfræðslu í skólum í tengslum við endurskoðun aðalnámskráa einnig hafðar til hliðsjónar.
Við úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskólakennara 1999 og 2000 var sérstök áhersla lögð á endurmenntunarnámskeið í tengslum við nýjar áherslur í aðalnámskrá, þar á meðal námskrá í lífsleikni. Einnig lagði Þróunarsjóður grunnskóla við úthlutun styrkja árin 2000 og 2001 sérstaka áherslu á að styrkja verkefni í lífsleikni og þróun lífsleikniáætlana í skólum.
2. Vinna að jafnrétti og gegn hefðbundinni verkaskiptingu.
„Menntamálaráðuneytið mun áfram leggja áherslu á að skólar vinni ötullega að því að tryggja jafnan rétt drengja og stúlkna, fræða nemendur um stöðu kynjanna og vinna gegn því að nemendur festist í farvegi hefðbundinnar verkaskiptingar kynjanna. Mikilvægt er að menntakerfið ýti ekki undir launamun kynjanna, til dæmis með því að hvetja konur sérstaklega til að stunda ákveðið nám en karla til að stunda annars konar nám.“
Ráðuneytið gaf út árið 1998 stefnuritið Menntun – menning – forsenda framtíðar. Í ritinu er m.a. yfirlýsing um að skólar skuli vinna ötullega að því að tryggja jafnan rétt drengja og stúlkna, vinna gegn því að nemendur festist um of í farvegi hefðbundinnar verkaskiptingar og styrkja sjálfsmat nemenda. Við gerð aðalnámskráa grunn- og framhaldsskóla var farið eftir þessari skýru stefnu varðandi stöðu kynja í skólum, svo og í nefndum á vegum ráðuneytisins.
Árið 2000 gaf ráðuneytið út bæklinginn Ábyrgð – frelsi – jafnrétti – val. Í ritinu geta nemendur og foreldrar kynnt sér þá kosti sem blasa við nemendum að loknu grunnskólanámi. Í ritinu er aukið valfrelsi undirstrikað og sú ábyrgð sem því fylgir og að í nýrri skólastefnu ættu allir að geta fundið nám við sitt hæfi.
Ráðuneytið var meðal samráðsaðila vegna ráðstefnunnar Konur og upplýsingatækni sem haldin var 14. apríl 2000 á vegum verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið sem heyrir undir forsætisráðuneytið.
Ráðuneytið ásamt fleirum styrkti verkefnið Konur til forystu og jafnara námsval kynjanna um 400.000 kr. á ári í tvö ár. Verkefnið var sameiginlegt jafnréttisverkefni jafnréttisnefndar Háskóla Íslands og Jafnréttisráðs. Verkefnið var unnið á árunum 2000–2002. Markmið verkefnisins var annars vegar að undirbúa stúlkur sem ljúka námi frá Háskóla Íslands undir forystustörf á þeirra framtíðarstarfsvettvangi og hins vegar að fjölga konum í raunvísindum, verk- og tölvunarfræði. Með þessu vildi Háskóli Íslands, með stuðningi samstarfsaðila að verkefninu, leggja sitt af mörkum til að jafna hlutdeild kynjanna í þekkingar- og upplýsingasamfélagi nýrrar aldar og til að jafna kynjaskiptingu í náms- og starfsvali karla og kvenna.
3. Jafnréttiskennsla í skólum verði efld.
„Jafnréttisfræðsla í skólum verði efld og lögð verði sérstök áhersla á styrkleika beggja kynja, skyldur beggja og réttindi. Sérstök áhersla verði lögð á fjölskyldufræðslu og náms- og starfsfræðslu bæði í grunn- og framhaldsskólum. Nauðsynleg forsenda jafnréttiskennslu er að jafnréttisfræðsla standi kennurum og skólastjórnendum til boða.“
Ráðuneytið átti aðild að norrænu samstarfsverkefni, Nord-lilia, um jafna stöðu kynja í starfsháttum og inntaki kennaramenntunar á árunum 1993–1997. Verkefnið var á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og byggðist á þróunarverkefnum í hverju landi. Í tengslum við verkefnið voru gefin út tvö rit, nokkur fréttabréf og fjöldi skýrslna um þróunarverkefnin.
Í námskrá í lífsleikni fyrir grunnskóla er að finna jafnréttismiðuð áfangamarkmið og þrepamarkmið fyrir einstaka aldurshópa. Í námskrá framhaldsskóla í lífsleikni eru einnig sett fram jafnréttismiðuð markmið.
4. Rannsóknir á stöðu kynjanna í skólakerfinu verði efldar.
„Menntamálaráðuneytið mun láta fara fram rannsókn á stöðu kynjanna í skólakerfinu þar sem sérstaklega verður hugað að líðan hvors kyns fyrir sig í skólum. Á grundvelli slíkra athugana verði kannað hvort tímabundin aðgreining kynjanna í námi í ákveðnum greinum eða þáttum tryggi betri námsárangur og líðan bæði stúlkna og drengja.“
Ráðuneytið styrkti rannsókn Félagsvísindastofnunar um 2.320.000 kr. en þar er fjallað um nám, viðhorf og námsferil fólks í framhaldsskóla sem fætt er 1975. Rannsóknin nær til eins árgangs og gefur miklar upplýsingar um menntun ungs fólks að grunnskóla loknum. Í rannsókninni eru m.a. könnuð tengsl sálfræðiþátta og námsárangurs við náms- og starfsval einstaklinga og hvort munur er á tengslum þessara þátta við náms- og starfsval karla og kvenna.
Ráðherra skipaði í september 2002 nefnd til að gera úttekt á mikilvægi félags- og tómstundastarfs ungs fólks á Íslandi. Nefndin skilaði í maí 2003 skýrslunni Úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks á Íslandi: skýrsla nefndar og tillögur. Þar er m.a. fjallað ítarlega um mikilvægi æskulýðsrannsókna og finna má tölulegar upplýsingar um þátttöku unglinga í félags-og tómstundastarfi. Kostnaður við nefnd þessa var 554.149 kr.
Í framhaldi af tillögum nefndarinnar gerði menntamálaráðuneytið samning við Rannsóknir og greiningu ehf. um æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk 2003 og Ungt fólk 2004. Í mars 2003 var lagður fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins spurningalisti á vegum Rannsóknar og greiningar ehf. Það var gert samhliða evrópskri könnun á vímuefnaneyslu unglinga, Espat 2003. Espat-könnunin er samevrópsk könnun á vegum Evrópuráðsins í Strassborg og er hún gerð í um þrjátíu aðildarlöndum Evrópuráðsins. Espat-könnunin var lögð fyrir árin 1995, 1999 og 2003 en þar er m.a. borið saman neyslumynstur grunnskólanema í Evrópulöndunum. Samhliða Espat var tækifærið notað til að leggja fyrir nemendur könnunina Ungt fólk 2003. Spurt var m.a. um þátttöku í félags-, tómstunda- og íþróttastarfi, um líðan, einelti, ástundun, viðhorf til heimabyggðar, netnotkun, bókalestur, leikhúsferðir, bókasöfn, klassíska tónleika, kaffihús, söfn, myndlistarsýningar, aðrar listsýningar og bíó svo nokkuð sé nefnt. Í rannsókn sem þessari er mikilvægt að geta síðan greint kynjamun fyrir hvern og einn þátt fyrir sig. Samkvæmt samningnum voru veittar 1.500.000 kr. til verkefnisins.
5. Íþróttauppeldi stúlkna verði eflt.
„Brottfall stúlkna úr íþróttum er mikið. Í ljósi þess mun menntamálaráðuneytið stuðla að því að íþróttauppeldi stúlkna verði sinnt í skólakerfinu ekki síður en drengja.“
Stefnt er að því að efla íþróttauppeldi stúlkna. Í aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla um íþróttir eru markmið sett fram með það í huga að þau nái til allra nemenda og höfði jafnt til áhugasviðs og þroska þeirra og að verkefnin höfði til beggja kynja. Í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var árið 1996 var skipuð nefnd til að fjalla um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna. Nefndin skilaði í október 1997 ítarlegri greinargerð og tillögum um leiðir til þess að auka þátt kvenna í íþróttum. Í kjölfar skýrslunnar var íþróttahreyfingin hvött til þess að taka á þessum málum, auk þess sem ýmis verkefni voru styrkt sem sérstaklega stuðluðu að því að minnka brottfall stúlkna úr íþróttum og efla sjálfsímynd þeirra. Má þar m.a. nefna styrk að upphæð 400.000 kr. til útgáfu á myndbandi, veggspjöldum og bæklingum sem báru yfirskriftina Afrekskonur í íþróttum. Einnig var veittur 200.000 kr. styrkur til þess verkefnis sem ætla má að geti mest áhrif haft á jafnrétti innan íþróttafélaga, gæðaverkefnisins Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Til að öðlast viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ þarf félag að uppfylla ákveðnar kröfur, m.a. um jafnrétti og tekið er fram að gæta þurfi að jafnrétti varðandi aðstöðu, fjármagn og þjálfun og að aðskilið skuli í bókhaldi hve mikið fé renni til stúlkna og hve mikið til drengja. Íþróttahreyfingin hefur jafnframt staðið að útgáfu á fræðsluefni sem m.a. hvetur til jafnréttis í íþróttum.
Í aðalnámskrá grunnskóla um íþróttir, líkams- og heilsurækt er tekið fram að markmið íþróttakennslu sé „að stuðla að alhliða þroska hvers nemanda, efla heilsufar hans og þroskagetu“. Jafnframt er tekið fram að markmið séu sett með það í huga að þau höfði til beggja kynja.
Íþróttasjóður styrkti um 200.000 kr. ráðstefnuna Konur og íþróttir árið 2001 og þess má geta að ráðuneytið styrkti um 400.000 kr. ráðstefnu með sama heiti sem fram fór í febrúar sl. á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og íþróttaskorar Kennaraháskóla Íslands.
6. Tölvur og upplýsingatækni.
„Menntamálaráðuneytið mun leggja aukna áherslu á að bæði kyn menntist um tölvur og upplýsingatækni. Sú fræðsla þarf að hefjast strax á yngri stigum grunnskólans til að draga úr þeim kynjamun sem þegar er orðinn umtalsverður í efri bekkjum grunnskóla.“
Upplýsinga- og tæknimennt er ný námsgrein í aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla frá árinu 1999, en þar er á það bent að verkefnin skuli höfða jafnt til drengja og stúlkna.
Á árlegum UT-ráðstefnum um upplýsingatækni í skólastarfi sem menntamálaráðuneytið stendur fyrir hefur m.a. verið fjallað um kynbundna tölvunotkun.
7. Stærðfræði og raungreinar.
„Menntamálaráðuneytið mun leita leiða til að auka áhuga stúlkna á þessum sviðum þegar í yngri bekkjum grunnskóla. Kannað verður hvort stúlkur þurfi sérkennslu á þessum sviðum.“
Miðað er við að öll markmið námskrárinnar í stærðfræði fyrir grunnskóla nái til allra nemenda og verkefni höfði til beggja kynja. Vísað er til jafnréttismarkmiða sem fram koma í almennum hluta aðalnámskrár. Í námskrá í náttúrufræði fyrir grunnskóla er sérstaklega á það bent að athugað skuli að nemendur festist ekki um of í farvegi hefðbundinnar verkaskiptingar og að einstaklingar af báðum kynjum fái sambærileg og jafngild tækifæri.
8. Styrkir til jafnréttisfræðslu.
„Við úthlutun styrkja úr Þróunarsjóði grunnskóla á skólaárinu 1998–1999 mun menntamálaráðuneytið leggja sérstaka áherslu á þróunarverkefni sem tengjast jafnréttisfræðslu og aðgerðum til að bæta stöðu drengja og stúlkna í skólunum.“
Veittir hafa verið styrkir úr Þróunarsjóði grunnskóla til ýmiss konar þróunarverkefna er sérstaklega varða jafnréttisfræðslu. Þess má geta að við úthlutun árin 2000 og 2001 lagði Þróunarsjóður grunnskóla sérstaka áherslu á að styrkja verkefni í lífsleikni og þróun lífsleikniáætlana í skólum.
Vorið 2003 hlaut Ármúlaskóli 350.000 kr. styrk úr Þróunarsjóði framhaldsskóla til að gera jafnréttisáætlun, einnig 300.000 kr. fyrir aðlögun námsefnis í heilbrigðisgreinum að þörfum fullorðins fólks með það að markmiði að fjölga körlum í heilbrigðisnámi. Verkmenntaskólinn á Akureyri fékk 400.000 kr. styrk vegna verkefnis um konur og tækninám.
Ráðuneytið hefur einnig styrkt jafnréttisátak Háskóla Íslands, Jafnréttisstofu og Rannsóknastofu í kvennafræðum um 500.000 kr. vegna þýðingar á bæklingnum Young women's guide to equality between women and men in Europe sem fyrst var gefinn út af European Women's Lobby undir forsæti Portúgala í ráðherraráði ESB árið 1999. Bæklingurinn, sem er eins konar leiðarvísir fyrir ungt fólk (15–25 ára), sérstaklega konur, hefur verið þýddur á fjölda tungumála. Markmiðið með útgáfu hans er að auka vitund ungra kvenna um jafnrétti. Þar er tekið á ýmsum málum, svo sem réttarstöðu, tvöföldu vinnuálagi, mismunun kvenna, heilbrigði, fóstureyðingum, ofbeldi o.s.frv. Einnig er að finna tölulegar upplýsingar um stöðu kynjanna og hugmyndir ungra kvenna í Evrópu um hvernig megi vinna að auknu jafnrétti. Í íslensku útgáfunni er gert ráð fyrir að fjallað verði sérstaklega um hvernig efni bæklingsins kemur strákum líka við og verður höfðað sérstaklega til þeirra, m.a. með því að fá stráka til að kynna hann. Hugmyndin er að dreifa bæklingnum í framhaldsskólum og félagsmiðstöðvum.
9. Nefndir og ráð.
„Þegar skipað er í ráð og nefndir á vegum menntamálaráðuneytisins mun sérstaklega verða tekið mið af jafnréttissjónarmiðum og kallað til fólk af báðum kynjum eftir því sem kostur er.“
Við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytisins er leitast við að gæta jafnræðis milli kynja. Þegar aðilar utan ráðuneytisins eru beðnir um tilnefningar í nefndir á vegum þess er ávallt vísað í 20. gr. jafnréttislaga, nr. 96/2000.
Í febrúar 2004 var skipting fulltrúa í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ráðuneytisins þannig að karlar voru 64% fulltrúa og konur 36%. Í nefndum sem skipaðar voru samkvæmt ákvörðun ráðherra voru karlar 62% fulltrúa og konur 37%.
Í nefndum, stjórnum eða ráðum sem skipað er í samkvæmt lögum, reglugerðum eða þingsályktunartillögum voru karlar 63% fulltrúa og konur 37%.
Í stjórnum og ráðum sem Alþingi kýs og heyra undir ráðuneytið voru karlar 58% fulltrúa og konur 42%.
10. Kvennasögusafnið.
„Framlag til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verður hækkað um 2,1 millj. kr. árið 1998 vegna reksturs Kvennasögusafns.“
Framlag til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns var í fjárlögum árið 1998 hækkað vegna reksturs Kvennasögusafns í samræmi við áætlunina.
11. Konur og fjölmiðlar – ímyndir kvenna og karla.
„Menntamálaráðuneytið mun beita sér fyrir athugun á aðgengi kvenna að fjölmiðlum og þá um leið þátttöku þeirra í ákvörðunum varðandi þróun þessara miðla. Einnig verði kannað hvaða kven- og karlímyndir íslenskir fjölmiðlar birta og hvernig megi vinna markvisst að því að umfjöllun fjölmiðla um líf og starf kvenna sýni þær í öllum sínum fjölbreytileika. Á grundvelli slíkra athugana verði unnið að stefnumótun á þessu sviði.“
Ráðuneytið og Skrifstofa jafnréttismála (nú Jafnréttisstofa) höfðu með sér samstarf um skipan nefndar um konur og fjölmiðla – ímyndir kvenna og karla. Nefndin skilaði skýrslu í febrúar 2001 þar sem bent er á leiðir til að auka hlut kvenna í fjölmiðlum. Ein af tillögum nefndarinnar var að koma upp gagnabanka fyrir fjölmiðlafólk með upplýsingum um konur með sérþekkingu á ýmsum sviðum. Ráðuneytið hefur styrkt verkefni um kvennagagnabanka, kvennaslóðir.is, um 300.000 kr. en að gagnabankanum stendur Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum ásamt átaksverkefninu Konur til forystu, jafnréttisnefnd HÍ, Kvennasögusafni Íslands og Jafnréttisstofu. Hugmyndin með gagnabankanum er að færðar verði inn grunnupplýsingar um konur í vísindum hérlendis, um stöður, trúnaðarstörf, vísindagreinar o.fl. Þessi aðferð tryggir að þær konur sem hafa áhuga á að láta til sín taka í umræðu um vísindi og tækni munu viðhalda upplýsingum um sig. Sams konar tilraun hefur verið gerð í Noregi og hefur einkum verið horft þangað um fyrirmynd. Það er trú aðstandenda kvennagagnabankans að hann verði mikilvægt tæki til þess að auka hlut kvenna í fjölmiðlum, nefndum, ráðum og stjórnum fyrirtækja og hins opinbera. Kostnaður við nefndarstarfið var 433.750. kr.
12. Fræðsla um greiningu á afleiðingum ofbeldis.
„Menntamálaráðuneytið mun beita sér fyrir því að í grunnnámi og við endurmenntun kennara, starfsfólks heilbrigðis- og félagsþjónustu, presta, lögreglu og annarra sem líklegir eru til þess að umgangast þolendur ofbeldis verði tryggð fræðsla um hvernig bregðast skuli við og aðstoða þá sem fyrir ofbeldinu hafa orðið.“
Í desember 1999 stóð menntamálaráðuneytið ásamt samtökum kennara og skólastjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, umboðsmanni barna og Landssamtökunum Heimili og skóli fyrir málþingi um skólareglur og aga. Í framhaldi af málþinginu var skólum sem mennta kennara sent bréf þar sem bent var á mikilvægi þess að fjalla um þessi málefni í tengslum við menntun kennara. Gefin var út endurskoðuð reglugerð um skólareglur í grunnskólum í apríl 2000. Hverjum skóla ber að setja sér skólareglur þar sem kveðið skal á um almenna umgengni, samskipti, stundvísi, ástundun náms og heilbrigðar og hollar lífsvenjur. Í reglugerðinni er m.a. ákvæði um að leita skuli til sérfræðiþjónustu skóla ef ekki tekst að leysa mál er varða hegðun nemenda innan skóla.
Einnig hefur verið stofnuð samstarfsnefnd sömu aðila til að móta stefnu hvað varðar verklag og viðbrögð skóla gagnvart einelti. Nefndin stóð fyrir málþingi um einelti haustið 2001 og í kjölfarið var unnið að því að styðja skóla til að koma á aðgerðaáætlun gegn einelti.
Ráðuneytið tilnefndi í janúar 2003 Erlend Kristjánsson, deildarstjóra æskulýðsdeildar, í samráðsnefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins um aðgerðir gegn ofbeldi gegn konum.
13. Jafnréttisnefnd ráðuneytisins og stofnana þess.
„Kanna skal stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gera áætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna. Verði það m.a. gert með markvissri fræðslu yfirmanna og annarra starfsmanna.“
Hinn 7. janúar 2003 var skipuð jafnréttisnefnd ráðuneytisins. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að fylgjast með stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess, móta stefnu og áætlanir ráðuneytisins í jafnréttismálum og vera ráðgefandi fyrir jafnréttisfulltrúa þess. Nefndin heyrir undir ráðuneytisstjóra.
Önnur verkefni:
Jafnréttisfulltrúi ráðuneytisins var skipaður í byrjun árs 2002 skv. 11. gr. jafnréttislaga. Hlutverk hans er að fjalla um og hafa eftirlit með jafnréttisstarfi á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Jafnréttisfulltrúi er tengiliður ráðuneytisins við Jafnréttisstofu og skal hann m.a. fylgja þessari framkvæmdaáætlun eftir. Með fulltrúanum starfar sérstök jafnréttisnefnd. Fulltrúinn og nefndin skulu standa fyrir könnun á stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gera aðgerðaáætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna. Sérstök áhersla verði einnig lögð á markvissa jafnréttisfræðslu stjórnenda og annarra starfsmanna.
Innan ráðuneytisins hefur jafnan verið leitast við að gæta jafnrar stöðu kynjanna. Ráðuneytið leitast við að vinna í samræmi við þau jafnréttissjónarmið að störf innan ráðuneytisins séu ekki kynbundin og að starfsmenn af báðum kynjum komi jafnt til greina við verkefnaval. Í febrúar 2004 voru konur í meiri hluta starfsfólks menntamálaráðuneytisins eða 68 % og karlar 32 %. Í stöðum skrifstofustjóra eru 57 % karlmenn og 43% konur. Jafn margar konur og karlar gegna stöðu deildarstjóra. Í stöðum sérfræðinga eru konur í meiri hluta eða 72% og 28% karlar. Meðal stjórnarráðsfulltrúa innan ráðuneytisins eru konur í miklum meiri hluta, eða 95% en karlar eru 5%. Karlar gegna stöðu aðstoðarmanns ráðherra og ráðuneytisstjóra.
Jafnframt má geta þess að 8. október 2003 var starfsfólki boðið upp á fyrirlestur um einelti og kynferðislega áreitni á vinnustað.
Jafnréttisfulltrúi hefur haldið kynningar fyrir allar deildir ráðuneytis um jafnréttismál. Farið hefur verið yfir lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og jafnréttisáætlanir ráðuneytisins og stjórnarráðsins. Áhersla var lögð á að fara yfir skýrslu um aðgerðir á vegum ráðuneytisins vegna áætlunarinnar 1998–2001 og þau verkefni sem vinna á að á árunum 2002–2004 á vegum ráðuneytisins.
Þess má geta að í desember 2003 var voru könnuð viðhorf starfsmanna ráðuneytisins til jafnréttismála. Spurt var um afstöðu til launajafnréttis, starfsframa og stöðuveitingar, starfsþjálfunar og endurmenntunar, samræmingar fjölskyldu- og atvinnulífs, kynferðislegrar áreitni og þátttöku í nefndum og ráðum. Við samningu spurninga var unnið út frá III. kafla laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þ.e. aðallega 13.–17. og 20. gr. Könnunin var gerð fyrir stjórnarráðið í heild. Með þessu móti fengust niðurstöður sem eru sambærilegar milli ráðuneyta og auk þess fékkst yfirlit yfir stöðu jafnréttismála hjá öllu stjórnarráðinu. Kostnaður ráðuneytisins við könnun þessa var 186.716 kr.
Jafnréttisáætlun menntamálaráðuneytisins er frá nóvember 2001 og er markmið hennar að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu og virðingu kvenna og karla innan ráðuneytisins, enn fremur að minna stjórnendur og starfslið ráðuneytisins á mikilvægi þess að allir fái notið sín án tillits til kynferðis. Ráðuneytið telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu og viðhorfum kvenna og karla.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1702 — 663. mál.
Svar