Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 922. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1703 — 922. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um íþróttaiðkun námsmanna.
1. Hyggst ráðherra stuðla að því að grunn- og framhaldsskólanemar fái námseiningar fyrir íþróttaiðkun?
Í 35. gr. grunnskólalaga, nr. 66/1995, með síðari breytingum, er að finna ákvæði sem heimilar menntamálaráðherra að viðurkenna nám utan grunnskóla sem jafngildi náms í skyldunámsgrein. Í sömu lögum er jafnframt fjallað um valgreinar í grunnskóla. Ef nemandi í 9. og 10. bekk stundar íþróttir reglubundið hjá íþróttafélagi getur hann óskað eftir því að skólinn meti það sem jafngildi valgreinar. Í þeim tilvikum þarf að leggja fram staðfestingu á að íþróttaiðkunin fullnægi þeim faglegu kröfum sem almennur hluti aðalnámskrár grunnskóla kveður á um og er það í höndum skólastjóra að meta slíkt.
Samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla er skólameisturum heimilt að meta íþróttaiðkun nemenda utan skólanna til eininga. Þær einingar geta komið í stað skylduáfanga í íþróttum eða nýst nemendum sem valeiningar og er íþróttaiðkunin þá metin til ákveðinna áfanga í íþróttagreinum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Aðalnámskrá framhaldsskóla kveður sérstaklega á um að nemendur sem stunda umfangsmikla líkamsþjálfun á vegum sérsambands og/eða íþróttafélags, undir stjórn sérmenntaðs þjálfara samhliða námi í framhaldsskóla, geta óskað eftir því við skólameistara að fá þjálfunina metna sem hluta af námskrárbundnu námi í íþróttum.
Þessu til viðbótar má nefna heimildir fyrir undanþágur frá skyldubundnum skólaíþróttum í grunnskóla og undanþágur fyrir afreksfólk í íþróttum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Með þessum undanþágum er verið að viðurkenna afburðaárangur nemenda í íþróttum og gera þeim auðveldara að stunda afreksíþróttir samhliða skólanámi, enda hafa þessir nemendur oft og tíðum tileinkað sér kunnáttu og færni umfram það sem aðalnámskrár kveða á um.
Á árinu 2000 setti menntamálaráðuneytið leiðbeinandi reglur um undanþágur frá skólaíþróttum á grunnskólastigi. Reglur þessar veita nemendum, að vissum skilyrðum uppfylltum, undanþágu frá námsgrein vegna afburðaárangurs í íþróttum. Íþróttaiðkun kemur þá í stað skyldunáms í skólaíþróttum. Sækja þarf um slíkar undanþágur til menntamálaráðuneytisins. Svipuð ákvæði eru til um undanþágur fyrir afreksfólk í íþróttum í framhaldsskólum. Þar skal koma til móts við afreksíþróttafólk með því að fjarvistir á námstíma, vegna keppnis- og/eða æfingaferða með landsliði, reiknist ekki með í skólasóknareinkunn. Þá er kveðið á um að fjarvera þessara nemenda á próftíma megi ekki útiloki þá frá því að gangast undir námsmat í lok skólaárs eða annar.
Af framansögðu má ráða að í lögum, reglugerðum og námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla er að finna ýmis ákvæði sem eiga að tryggja að nemendur geti fengið íþróttaiðkun viðurkennda sem þátt í skólastarfi með formlegum hætti. Ekki verður því séð að sérstök tilefni séu til frekari aðgerða á því sviði.
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir fjárveitingum til sveitarfélaga til niðurgreiðslu æfingagjalda íþróttaiðkenda á grunnskólastigi?
Samkvæmt íþróttalögum, nr. 64/1998, grundvallast íþróttastarfsemi utan skóla á framtaki og þátttöku frjálsra félagasamtaka. Fjárveitingar ríkisins til íþróttamála eru með beinum eða óbeinum hætti veittar heildarsamtökum sem síðan miðla þeim áfram til grasrótarinnar.
Óvefengt er gildi og mikilvægi iðkunar íþrótta fyrir þá sem þær stunda, ekki síst börn og ungmenni. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum ber sveitarfélögum að vinna að sameiginlegum velferðarmálum íbúa sinna eftir því sem fært þykir hverju sinni. Eitt af þessum velferðarmálum eru íþróttir en íþróttafélögin sinna mikilvægu þjónustuhlutverki fyrir sveitarfélögin í því efni. Mikilvægt er að sveitarfélög standi þétt að baki íþróttafélögunum og því starfi sem þar er í boði. Sveitarfélögin ákveða sjálf hvernig þau ráðstafa því fjármagni sem þau verja til íþróttamála og þar með hvaða verkefni þau leggja áherslu á. Dæmi munu um að sveitarfélög hafi leitað leiða til að niðurgreiða íþróttaiðkun ungra íbúa sinna og er það vel. Þá hafa mörg íþróttafélög í samvinnu við sveitarfélög einnig sett á stofn svokallaða íþróttaskóla fyrir yngri börn.
Fjárframlög ríkisins til íþróttamála renna til heildarsamtaka sem annast dreifingu þeirra til íþróttahreyfingarinnar og ber að virða sjálfstæði grasrótarinnar sem og sveitarfélaganna í þessum efnum. Ekki eru áform um að breyta farvegi fjárveitinga til íþróttamála með sérstökum fjárveitingum til sveitarfélaga til að niðurgreiða æfingagjöld íþróttaiðkenda á grunnskólaaldri.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1703 — 922. mál.
Svar