Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 376. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1714 — 376. mál.
dómsmálaráðherra um afdrif hælisleitenda, samkvæmt beiðni.
Samkvæmt beiðni (á þskj. 502) frá Jóhanni Ársælssyni og fleiri alþingismönnum er hér með lögð fram á Alþingi skýrsla um afdrif þeirra sem sótt hafa um hæli á Íslandi síðastliðin átta ár.
Eins og rakið er í bréfi ráðuneytisins til forseta Alþingis dags. 4. desember sl. getur ráðuneytið ekki tekið að sér upplýsingaöflun um hælisleitendur erlendis þar eð slíkt er andstætt reglum um persónuvernd og gæti það beinlínis valdið viðkomandi vandræðum að fyrirspurn um hann væri send. Ráðuneytinu er hins vegar kleift að vinna skýrslu um afgreiðslu mála hér á landi, um fjölda hælisleitenda, þjóðerni o.s.frv. Var Útlendingastofnun falið að vinna þá skýrslu sem hér fylgir.
Í skýrslunni kemur fram fjöldi umsækjenda á hverju ári, ætlað ríkisfang hvers og eins, aldur (uppgefinn aldur við komu), kyn og málsmeðferð hjá Útlendingastofnun og ráðuneytinu. Síðan er gerð grein fyrir afdrifum viðkomandi á Íslandi. Að jafnaði er ekki vitað um afdrif fólks erlendis en þar sem svo ber við er það tekið fram sérstaklega. Upplýsingar um menntun umsækjenda eru ekki fyrirliggjandi.
Útlendingastofnun (áður Útlendingaeftirlitið) hefur starfað eftir lögum nr. 45/1965, um eftirlit með útlendingum, og reglugerð settri samkvæmt þeim, nú samkvæmt lögum nr. 96/2002, um útlendinga, og reglugerð nr. 53/2003, um útlendinga, stjórnsýslulögum, alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna frá 1951 ásamt viðauka frá 1967, Mannréttindasáttmála Evrópu og öðrum samningum á sviði mannverndar og mannréttinda, auk þess sem starfað er eftir ákvæðum Norðurlandsamningsins og Dyflinnarsamningsins (nú Dyflinnarreglugerðarinnar). Þetta eru helstu réttarheimildir sem Útlendingastofnun beitir þegar umsókn um hæli er til meðferðar hjá stofnuninni.
Þær stofnanir, stjórnvöld og samtök er koma að þessum málaflokki eru eftirfarandi:
– Dómsmálaráðuneytið.
– Útlendingastofnun, áður Útlendingaeftirlitið.
– Rauði kross Íslands (RKÍ), samningur RKÍ og dómsmálaráðuneytisins frá 1998–2003 um umönnun hælisleitenda.
– Reykjanesbær, samnningur frá febrúar 2004.
– Lögreglan.
Kostnaður vegna hælisleitenda.
Samkvæmt samningi Rauða kross Íslands (RKÍ) og ráðuneytisins frá 1998–2003 var kostnaður vegna umönnunar hælisleitenda greiddur af RKÍ fyrstu þrjá mánuði eftir komu, en kostnaður eftir það var borinn af Útlendingastofnun. Almennur lækniskostnaður var greiddur af RKÍ en allur annar lækniskostnaður var greiddur af Útlendingastofnun. Þessum samningi var sagt upp um mitt ár 2003 og var hann ekki endurnýjaður. RKÍ sér nú alfarið um málsvarahlutverk fyrir hælisleitandann gagnvart lögreglu, Útlendingastofnun og ráðuneytið.
Þar sem stofnunin hafði ekki sérstakt fjárlaganúmer fyrr en 1. október 1999 er ekki greint frá kostnaði fyrir þann tíma.
Kostnaður Útlendingastofnunar vegna hælisleitenda árin 1999 og 2000 var 8.758.332 kr.
Kostnaður Útlendingastofnunar vegna hælisleitenda árið 2001 var 3.619.817 kr.
Kostnaður Útlendingastofnunar vegna hælisleitenda árið 2002 var 7.377.476 kr.
Kostnaður Útlendingastofnunar vegna hælisleitenda árið 2003 var 9.352.403 kr.
Frá og með 1 janúar 2004 er allur kostnaður vegna umönnunnar hælisleitenda, lækniskostnaður o.fl. greiddur af Útlendingastofnun. Stofnunin hefur gert samning við Reykjanesbæ um umönnun hælisleitenda og er Reykjanesbæ greitt fyrir þjónustuna samkvæmt þeim samningi. Innifalið í umönnun er gisting og fæði, ferðakostnaður hælisleitenda innanlands, komugjald til læknis, þ.m.t. almenn læknisskoðun við upphaf umönnunar Félagsþjónustu Reykjanesbæjar og ungbarnaeftirlit þegar það á við. Daggjald fyrir hvern hælisleitanda er 5.500 kr. á sólarhring hvort sem um er að ræða fullorðna eða börn. Árlegt fastagjald er 6,7 millj. kr. Þessi samningur er til eins árs. Áætlaður kostnaður vegna hælisleitenda fyrir árið 2004 er 36–40 millj. kr.
Endurviðtökusamningar/viðtökusamningar.
Nokkuð er um það að hælisleitendur hafi verið sendir til annarra ríkja þar sem þeir fengu beiðni sína um hæli tekna til meðferðar. Gerð er nánari grein fyrir þeim tilvikum í skýrslunni eftir því sem við á. Byggist þessi framkvæmd á skuldbindingum Íslands á alþjóðavettvangi bæði vegna Norðurlandasamstarfs og Schengen-samstarfs. Hér er um að ræða tvo samninga, Norðurlandasamninginn um afnám vegabréfaskoðunar við landamæri milli Norðurlandanna frá 12. júlí 1957 sem Ísland varð aðili að 24. september 1965 en gekk í gildi 1. janúar 1966 og Dyflinnarsamninginn frá 15. júní 1990 sem Ísland undirritaði 19. janúar 2001 en gekk í gildi 1. apríl 2001 og var gerður við Evrópusambandsríkin.
Chicago-samningurinn, sem gerður var á vegum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, tekur m.a. á ábyrgð farmflytjanda á ólöglegum farþegum um borð í flugfari og ábyrgð þess ríkis sem viðkomandi kemur frá, uppgötvist hinn ólöglegi farþegi, þ.e. ríkið þar sem flugfarið hóf ferðina er skuldbundið til að taka við einstaklingnum komi fram ósk þess efnis. Þessum samningi er ekki lengur beitt gagnvart hælisleitendum. Það varð óheimilt með lögum nr. 96/2002, um útlendinga, og honum var ekki beitt nema í takmörkuðum mæli fyrir þann tíma, sjá hvert ár fyrir sig. Ákvæðum samningsins er snúa að ólöglegum einstaklingum er hins vegar beitt þegar fólk sækir ekki um hæli en er skilríkjalaust eða hefur ekki heimild til að koma til landsins.
Túlkun og túlkar.
Tekið er fram að við rannsókn hvers máls er leitast við að afla túlks á því tungumáli sem hælisleitandanum hentar. Fyrst og fremst er leitað að túlkum á móðurmáli viðkomandi. Ef það tekst ekki er túlkað á því tungumáli sem viðkomandi getur tjáð sig á eða óskar eftir. Aldrei hefur komið til þess að kalla þurfi til túlk erlendis frá en ekki er ólíklegt að til þess gæti komið.
Birting úrskurða/ákvarðana fara fram þannig að fyrst er úrskurðarorð lesið á íslensku, síðan túlkar viðkomandi túlkur úrskurðarorðið, að þessu loknu fer fram birting úrskurðar/ ákvörðunar og er það með sama hætti. Þetta fer fram að viðstöddum fulltrúa Útlendingastofnunar, RKÍ, umsækjanda sjálfum og lögmanni ef svo ber við.
Uppsetning skýrslunnar.
Hér á eftir koma töflur fyrir hvert ár frá 1996–2003. Þar kemur fram eftirfarandi:
– ætlað ríkisfang viðkomandi (það ríkisfang sem umsækjandi kvaðst hafa),
– fjöldi umsækjanda frá tilteknu ríki,
– kyn umsækjanda,
– aldur umsækjanda,
– hjúskaparstaða umsækjanda við komu,
– á hvaða tungumáli var rætt við viðkomandi hælisleitanda,
– lok máls hjá Útlendingastofnun/ráðuneytinu,
– staða viðkomandi nú á Íslandi / erlendis.
Hvorki er heimilt að upplýsa Alþingi um ástæður einstakra hælisleitenda fyrir beiðni um vernd á Íslandi né að upplýsa hvaða ástæður réðu niðurstöðu í hverju máli fyrir sig. Bent er á að allir þeir sem fengu synjun á hælisumsókn, voru ekki taldir uppfylla skilyrði 2. tölul. A- liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951 með viðauka frá 1967. Liðurinn hefur að geyma skilgreiningu á því hver teljist vera flóttamaður samkvæmt samningnum. Í umræddu ákvæði kemur fram sú skilgreining að flóttamaður í skilningi samningsins eigi við hvern þann mann sem:
„… af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd þess lands; eða þann sem er ríkisfangslaus, og er utan þess lands, þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur, vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki, vegna slíks ótta, hverfa aftur þangað.“
Hvað varðar atvinnuþátttöku hælisleitenda á Íslandi er einvörðungu hægt að upplýsa um stöðu þeirra er hafa almennt dvalarleyfi og hvort atvinnuleyfi hefur verið gefið út en ekki hvort viðkomandi hefur haft viðurværi sitt af atvinnuþátttöku. Þeir sem hafa íslenskan ríkisborgararétt, hafa fengið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara eða hafa fengið búsetuleyfi eru ekki háðir veitingu atvinnuleyfis og hefur Útlendingastofnun því ekki upplýsingar til að finna út hvort eða hvar viðkomandi starfar enda hefur stofnunin ekki aðgang að staðgreiðsluskrám skattstjóra né fær Útlendingastofnun upplýsingar frá félagsþjónustum nema þegar fólk sækir um búsetuleyfi.
Hælisleitendur 1996.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu fjórir útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1996. Þrír hælisleitendur fengu synjun og voru endursendir á grundvelli Norðurlandasamningsins og voru þeir endursendir til viðkomandi ríkja. Einn útlendingur fékk dvalarleyfi en hann hefur aldrei getað lagt fram skilríki er staðfesta hver hann er. Maðurinn er talinn hættulegur, hann hefur tvisvar verið dæmdur fyrir alvarlega líkamsárás og afplánar nú sex ára fangelsisdóm. Hann er ógiftur og barnlaus.
Hælisleitendur 1997.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu sex útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1997. Einn fékk synjun á hæli og var endursendur til Norðurlandanna. Tveir fóru án gildra ferðaskilríkja frá Íslandi til Norður-Ameríku og þriðji umsækjandinn reyndi það en var stöðvaður.
Af þeim sex er hingað komu fengu þrír dvalarleyfi. Tveir þeirra fengu íslenskan ríkisborgararétt á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara. Annar sótti um skilnað að borði og sæng þremur mánuðum eftir veitingu ríkisborgararéttarins og hinn fékk lögskilnað rúmu ári eftir veitingu ríkisborgararéttarins en hann var ekki samvistum við eiginkonu sína í þó nokkurn tíma fyrir það tímamark. Hvorugur eignaðist börn í hjúskapnum.
Einn er með óbundið dvalar- og atvinnuleyfi, ókvæntur og barnlaus.
Hælisleitendur 1998.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 24 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1998. Af 24 hælisleitendum fengu 13 dvalarleyfi samkvæmt umsókn. Fjórir fengu synjun, brottvísun og endurkomubann og kærðu 3. Ráðuneytið staðfesti niðurstöðu í tveim málum en veitti dvalarleyfi í einu máli. Sex voru endursendir, þrír á grundvelli Norðurlandasamningsins og þrír á grundvelli landgöngusynjunar samkvæmt Chicago-samningnum.
Ekki var hægt að framfylgja brottvísun í þeim tveim málum sem staðfest voru af ráðuneytinu þannig að báðum umsækjendum var veitt tímabundið dvalarleyfi. Annar er hér enn þá en hinn er talinn farinn. Sá fyrri er fékk brottvísun og endurkomubann er hér enn þar sem ekki er hægt að afla ferðaskilríkja frá heimaríki. Hann var handtekinn í tilteknu Evrópuríki og endursendur til Íslands vegna brota hans á útlendingalöggjöf í því ríki og gegn broti á endurkomubanni er jafnframt var þar í gildi gagnvart honum. Hann hafði áður sótt um hæli í því ríki, fengið synjun, brottvísun og endurkomubann og fór þá til Íslands. Sá síðari hvarf af landi brott en var síðar framseldur til Íslands vegna meints skjalafals. Hann var fundinn sekur og fékk 12 mánaða fangelsi. Afplánun hans er lokið og er hann nú talinn farinn. Maðurinn á a.m.k. þrjú börn hérlendis sem ekki eru sammæðra.
Af þeim sem fengu dvalarleyfi er talið að einn sé farinn en hann var til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um smygl á fólki. Enginn hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt og er a.m.k. einn einstaklinganna enn skilríkjalaus og því ekki líklegt að sá geti fengið íslenskan ríkisborgararétt. Einn dvalarleyfishafa sótti um dvalarleyfi fyrir eiginkonu og tvö börn en hann er mikill sjúklingur og óvinnufær. Umsóknir voru samþykktar og hafa þau öll fengið búsetuleyfi. Fjölskyldan hefur sótt um að fá íslenskan ríkisborgararétt sem nú er til meðferðar hjá ráðuneytinu.
Af þeim er fóru úr landi, er einvörðungu vitað um afdrif eins en hann fór héðan til Noregs og stuttu eftir komuna var hann handtekinn vegna gruns um manndráp. Maðurinn fékk dóm í Noregi fyrir manndráp og mun hafa sótt um reynslulausn á árinu 2003. Lögmaður mannsins bað Útlendingastofnun um að veita manninum landvistarleyfi hérlendis en því var hafnað.
Hælisleitendur 1999.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 24 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1999. Af 24 hælisleitendum fengu 12 dvalarleyfi, þar af einn á grundvelli þess að vera flóttamaður. Einn kærði það að fá ekki hæli en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar, átta fengu synjun, brottvísun og endurkomubann og kærðu allir en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar í öllum málunum.
Afdrif þeirra 12 hælisleitenda sem fengu dvalarleyfi eru eftirfarandi: Einn fékk dvalarleyfi þar sem hann var úrskurðaður flóttamaður. Hann er með óbundið dvalarleyfi (búsetuleyfi) og Útlendingastofnun hefur engin afskipti haft af einstaklingnum frá árinu 2001. Fjögurra manna fjölskylda fékk dvalarleyfi og er nú með búsetuleyfi. Tveir eru giftir íslenskum ríkisborgurum. Annar hefur lagt fram gögn er staðfesta hver hann er og hefur hann fengið óbundið dvalarleyfi (búsetuleyfi) auk vegabréfs fyrir útlending. Hinn hefur ekki getað lagt fram gögn er staðfesta hver hann er og hefur hann tímabundið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar en hefur ekki fengið vegabréf fyrir útlending.
Einn dró umsókn sína um hæli til baka þar sem hann hafði gifst íslenskum ríkisborgara. Hann er nú kvæntur og með tvö börn á framfæri. Grunur leikur á að ríkisfang þess aðila sé ekki rétt en þar sem hann lagði fram vegabréf frá tilteknu ríki var ekki talið hægt að horfa fram hjá vegabréfinu þó svo fyrir lægi að hægt væri að kaupa vegabréf frá þessu tiltekna ríki án þess að vera ríkisborgari ríkisins. Hann hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt og umsóknin er til meðferðar hjá Alþingi. Einn fékk synjun á hæli en var veitt dvalarleyfi. Stuttu síðar var viðkomandi ákærður fyrir nauðgun en sú ákæra var dregin til baka. Síðar bárust upplýsingar um heimilisofbeldi sem ekki var kært. Viðkomandi er nú skilinn að lögum. Útlendingurinn er kominn með búsetuleyfi þar sem hann hefur aldrei hlotið dóm og fullnægði lagaskilyrðum.
Einn sótti um hæli þegar fyrir lá að honum ætti að vísa brott vegna ólögmætrar dvalar hérlendis og synjunar á dvalarleyfi. Útlendingastofnun úrskurðaði um synjun á hæli, útlendingurinn kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til ráðuneytisins en dró þá kæru til baka eftir að hann kvæntist íslenskum ríkisborgara. Í framhaldi af því var honum veitt dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar. Hinn íslenski maki kom ári seinna til Útlendingastofnunar og lýsti því yfir að eiginmaður hennar hefði lítið sem ekkert dvalist á heimili fjölskyldunnar og að blekkingum hefði verið beitt til að stofna til hjúskaparins. Hún kvaðst hafa upplýsingar um það að eiginmaður hennar flytti inn fólk gegn gjaldi og útvegaði því dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenska ríkisborgara eða dvalar- og atvinnuleyfi. Eiginkonan upplýsti jafnframt að hún væri alveg heilluð af hinum erlenda maka sínum og ætti erfitt með að standast töfra hans. Hún dró framburð sinn til til baka eftir að stofnunin hafði látið erlenda makann vita að honum bæri að fara. Eiginkonan berst nú fyrir því að erlendi makinn fái íslenskan ríkisborgararrétt.
Konu og barni hennar var synjað um landgöngu á Keflavíkurflugvelli. Sóttu þau þá um hæli en var synjað. Síðar sama ár fengu þau dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar þar sem eiginmaðurinn hafði sótt um hæli hér árið áður og fengið dvalarleyfi en hann er sjúklingur. Öll fjölskyldan er nú komin með búsetuleyfi. Fjölskyldan hefur sótt um að fá íslenskan ríkisborgararétt og umsóknin er nú til meðferðar. Útlendingastofnun hefur sérstaklega reynt að aðstoða fjölskylduna eftir bestu getu vegna þeirra alvarlegu veikinda er hrjá manninn.
Hælisleitendur 2000.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 25 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2000. Af 25 hælisleitendum fengu sex dvalarleyfi, þar af einn bráðabirgðadvalarleyfi á grundvelli veikinda. Synjun, brottvísun og/eða endurkomubann fengu 16, þar af kærðu 10 en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar í öllum málunum. Þrír hurfu eða fóru af landi brott.
Einn þeirra er fékk synjun og brottvísun var sendur úr landi. Íslenskur ríkisborgari fór til heimaríkis viðkomandi og giftist honum, greiddi síðan skuld hælisleitandans við íslenska ríkið, þ.e. framfærslu og ferðakostnað, og í framhaldi af því var viðkomandi veitt tveggja ára dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins. Þau eru enn í hjúskap.
Annar hælisleitandi er fékk synjun og brottvísun og var sendur úr landi fór fram á að fá að koma aftur til Íslands og starfa hér til að greiða upp skuld vegna dvalar hérlendis en hann var hér í rúmt ár. Áritun var ekki veitt.
Einn hælisleitandi kvaðst eiga unnustu hérlendis þegar honum var birt brottvísun og endurkomubann og að þau ætluðu að giftast. Útlendingurinn var sendur úr landi og hefur ekkert frekar frést af þeim ætlaða ráðahag.
Einn hælisleitenda fékk 12 mánaða fangelsisdóm fyrir innbrot. Hann kom hingað til lands, sótti um hæli, dró umsókn sína munnlega til baka hjá embætti Ríkislögreglustjóra og óskaði eftir að fá að fara. Hann var á leið úr landi með hluta þýfisins þegar hann var handtekinn. Hélt hann þá fram umsókn sinni um hæli en var synjað og vísað úr landi eftir að afplánun lauk.
Þrír hælisleitendur neituðu að gefa upp hverjir þeir væru. Einn dró umsókn sína til baka eftir að hafa gifst íslenskum ríkisborgara og hefur sá einstaklingur ýmist dvalist hér eða í Noregi. Hann er nú hér á grundvelli takmarkaðs dvalarleyfis á meðan beðið er eftir að hann geti aðstoðað við öflun gagna er staðfesta hver hann er. Hinum tveimur var synjað um hæli, þeim vísað brott og bönnuð endurkoma til Íslands. Ekki var hægt að framkvæma flutning þeirra þar sem öflun ferðaskilríkja tókst ekki. Aðilarnir fóru að lokum af sjálfsdáðum eftir að hafa verið hér í rúmt ár. Þeim var boðið að fá atvinnu- og dvalarleyfi en neituðu því staðfastlega.
Af þeim sex sem fengu dvalarleyfi fengu fjórir dvalarleyfi hérlendis þar sem ekki þótti forsenda fyrir að senda þá til síns heimaríkis vegna mikilla sviptinga í því ríki á þeim tíma. Þeir eru hér allir enn og eiga tveir í sambandi við íslenska ríkisborgara en annar þeirra kvaðst vera giftur og eiga sex börn í sínu heimaríki þegar hann kom til Íslands. Hann hefur aldrei óskað eftir fjölskyldusameiningu. Þrír hafa lagt fram skilríki frá sínu heimaríki er staðfesta hverjir þeir eru og hafa í framhaldi af því fengið ferðaskilríki fyrir útlendinga. Fjórði útlendingurinn er kominn með búsetuleyfi.
Hælisleitendur 2001.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 53 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2001. Af þeim 53 umsóknum sem lagðar voru fram árið 2001 var úrskurðað um synjun á hæli í 14 málum. Kært var til ráðuneytisins í 11 málum og var niðurstaða Útlendingastofnunar staðfest í þremur málum en átta var veitt dvalarleyfi. Jafnframt fékkst staðfesting á því erlendis frá að 27 umsækjendur höfðu sótt um hæli annars staðar áður en þeir komu til Íslands. Þeir voru annaðhvort endursendir til viðkomandi ríkja eða hurfu áður en kom að flutningi.
Ísland óskaði eftir viðtöku á grundvelli Norðurlandasamningsins í sjö málum, þar af fengust sex jákvæð svör. Embætti Ríkislögreglustjóra framkvæmdi fjórar brottvísanir á grundvelli Norðurlandasamningsins að beiðni Útlendingastofnunar en 2 hælisleitendur hurfu af landi brott áður en til flutningsins kom.
Ísland óskaði eftir viðtöku á grundvelli Dyflinnarsamningsins í 16 málum, þar af fengust 14 jákvæð svör en hafnað var viðtöku í tveimur málum. Ein beiðni barst til Íslands á grundvelli Dyflinnarsamningsins og var samþykkt að taka við hælisleitenda sem hafði verið hérlendis í meðferð. Ekki kom til þess að hælisleitandinn fengi málsmeðferð hérlendis þar sem hann fannst ekki þegar flytja átti hann til Íslands. Embætti ríkislögreglustjóra framkvæmdi 11 frávísanir á grundvelli Dyflinnarsamningsins að beiðni Útlendingaeftirlitsins en fjórir hælisleitendur hurfu af landi brott áður en að flutningi kom.
Þrír þeirra hælisleitenda sem fengu synjun, brottvísun og endurkomubann voru fjölskylda sem sótt hafði áður um hæli í X-ríki og átti fjölskyldufaðirinn sakarferil þar í landi. Fjölskyldan kærði niðurstöðu Útlendingastofnunar en hvarf áður en niðurstaða ráðuneytisins lá fyrir. Fólkið hafði þá selt öll raftæki í íbúð RKÍ. Annar sem fékk synjun, brottvísun og endurkomubann kærði ekki og hvarf. Einn hælisleitandi dvaldi hérlendis í þrjár vikur á meðan mál hans var til meðferðar. Sá kynntist íslenskum ríkisborgara hérlendis sem fór á eftir umsækjandanum þegar hann var endursendur til X-ríkis, giftist þar og í framhaldi af því fékk útlendingurinn dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins. Hjúskapurinn stendur enn, fólkið á tvö börn og önnur tvö á framfæri. Hjónin slitu samvistum tímabundið stuttu eftir að dvalarleyfi var endurnýjað (ágúst 2003) en tóku saman aftur í byrjun apríl 2004. Þá var lögð fram umsókn um íslenskan ríkisborgararétt fyrir hinn erlenda maka.
Þeir hælisleitendur er fengu synjun og brottvísun kærðu flestir en þrír undu ákvörðun og voru sendir til baka. Aðrir hælisleitendur hurfu áður en kom til úrskurðar eða hurfu stuttu eftir úrskurð.
Hælisleitendur 2002.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 117 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2002 (Umsóknir voru 118 þar sem einn kom tvisvar og sótti um hæli í bæði skiptin).
Af þeim 117 (118) umsóknum er voru lagðar fram úrskurðaði Útlendingastofnun um veitingu dvalarleyfis í fimm málum, synjun á hæli, brottvísun og endurkomubann í 14 málum en ein umsókn er enn til meðferðar vegna beiðni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og ákvörðunar Norðurlandaþjóðanna, þ.e. umsóknir írakskra ríkisborgara eru ekki afgreiddar, heldur er þeim veitt tímabundin vernd. Af þeim 14 sem fengu synjun á umsókn sinni, kærðu 13 og staðfesti ráðuneytið allar þær niðurstöður.
Útlendingastofnun sendi 36 umsækjendur til annarra Evrópuríkja samkvæmt gagnkvæmum endurviðtökusamningum. Þar af voru 34 sendir samkvæmt Dyflinnarsamningi (DS) en tveir endursendir samkvæmt Norðurlandasamningi.
Þess ber að geta að af þeim fjölda er dró umsókn til baka eða fór af landi brott lá fyrir samþykki á endurviðtöku í tveimur málum samkvæmt Norðurlandasamningi og samþykki á endurviðtöku í fimm málum samkvæmt Dyflinnarsamningi, þrátt fyrir að viðkomandi samningum væri ekki beitt sökum brotthvarfs viðkomandi.
Tveir hælisleitendur höfðu dvalist hérlendis í níu mánuði á vegum tiltekinnar alþjóðlegrar stofnunar áður en þeir sóttu um hæli. Þegar þeir áttu að fara til heimaríkis síns sóttu þeir um hæli og lögðu fram gögn máli sínu til stuðnings um ofsóknir og áreiti frá heimaríkinu. Rannsókn á tölvum þessarar alþjóðlegu stofnunar leiddi í ljós að annar umsækjanda hafði beðið um gögnin og óskað eftir röngum upplýsingum að heiman til að staðfesta frásögnina. Báðir umsækjendurnir drógu umsóknir sínar til baka þegar upp komst um blekkingarnar. Annar aðilanna tók ekki þátt í fölsuninni og giftist hann síðar erlendum ríkisborgara sem hér hefur dvalarleyfi. Þeim aðila var nýlega veitt dvalarleyfi á grundvelli þess hjúskapar og eiga þau von á barni.
Hælisleitendur er áttu umsóknir til meðferðar í öðrum DS-ríkjum voru allir sendir úr landi að undanskildum fimm þeirra. Þeir fengu allir dvalarleyfi vegna sérstakra fjölskylduaðstæðna. Fjögurra manna fjölskylda fékk dvalarleyfi hérlendis, þrátt fyrir að henni hefði verið synjað um hæli og dvalarleyfi í DS-ríki. Þetta var vegna sérstakra aðstæðna í fjölskyldunni og þeirra áfalla sem foreldrarnir höfðu þurft að þola. Foreldrarnir eru báðir í vinnu og með dvalar- og atvinnuleyfi sem eru grundvöllur búsetuleyfis.
Einn hælisleitandi hvarf stuttu eftir að hann hafði fengið synjun, brottvísun og endurkomubann en kom síðar í leitirnar hérlendis. Álitið var að hann hefði farið af landi brott en níu mánuðum síðar kom í ljós að hann hafði gifst íslenskum ríkisborgara á öðru nafni og með annað ríkisfang. Hafði hann þannig aflað sér dvalarleyfis með blekkingum. Mál þessa einstaklings er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og lögreglu með tilliti til brottvísunar og jafnvel ákæru.
Tveir hælisleitendur sem fengu synjun, brottvísun og endurkomubann fengu bráðabirgðadvalarleyfi þar sem ekki hefur tekist að afla þeim ferðaskilríkja. Annar þeirra hefur verið handtekinn í DS-ríki vegna ólögmætrar komu og gruns um vændi. Ekki er vitað hverjir þessir útlendingar eru og því hefur verið erfitt fyrir embætti ríkislögreglustjóra að afla ferðaskilríkja. Annar útlendingurinn hefur fengið bráðabirgðaatvinnuleyfi þrátt fyrir skilríkjaleysi.
Einn hælisleitandi sem sendur var til baka til síns heimaríkis sendi tölvupóst eftir heimkomu og þakkaði íslenskum stjórnvöldum fyrir gestrisnina en hann dvaldi hér í rúmt ár.
Annar hælisleitandi sem sendur var til baka ásamt fjölskyldu sinni hefur ítrekað sent tölvupóst eftir heimkomu og hótað tilteknum starfsmönnum Útlendingastofnunar og lögreglu vegna þess að hann og fjölskylda hans fengu ekki að dvelja á Íslandi.
Hælisleitendur 2003.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 80 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2003. Tekið skal fram að á árinu 2003, nánar tiltekið þann 1. september 2003, tók Dyflinnarreglugerðin við af Dyflinnarsamningnum. Til þess að valda ekki ruglingi er þó enn vísað til sendingar samkvæmt Dyflinnarsamningi (DS) þar sem ákvæðin eru mjög sambærileg.
Af þeim 80 umsóknum sem lagðar voru fram árið 2003 var úrskurðað um veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum í þremur málum. Synjað var um hæli í 21 máli, 26 útlendingar voru sendir úr landi á grundvelli Dyflinnarsamningsins eða Dyflinnarreglugerðarinnar og 30 útlendingar hurfu eða drógu umsóknir sínar til baka. Kærur til ráðuneytisins voru 12. Ein kæra var vegna synjunar á hæli og frávísunar sem síðar var staðfest hjá ráðuneytinu. Þrjár kærur vegna veitingar dvalarleyfis af mannúðarástæðum eru enn til meðferðar hjá ráðuneytinu. Einnig voru átta kærur lagðar fram vegna sendingar úr landi á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins, þar af hefur ráðuneytið staðfest eina en aðrar eru enn til meðferðar.
Þess má geta að þeir þrír hælisleitendur sem fengu dvalarleyfi af mannúðarástæðum hafa a.m.k. tvisvar ferðast til DS-ríkis í heimsókn til ættingja sinna þar. Hvorugt hjónanna hefur sótt um starf á Íslandi.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1714 — 376. mál.
Skýrsla
dómsmálaráðherra um afdrif hælisleitenda, samkvæmt beiðni.
(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)

| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Alsír | 3 | kk. | 26–31 | Ógiftir | Franska |
| Gambía | 1 | kk. | 26 | Ógiftur | Enska |
| Alls | 4 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 1 |
| Endursendir | 3 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 1 útrunnið |
| Ekki vitað | 3 |
Hælisleitendur 1997.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu sex útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1997. Einn fékk synjun á hæli og var endursendur til Norðurlandanna. Tveir fóru án gildra ferðaskilríkja frá Íslandi til Norður-Ameríku og þriðji umsækjandinn reyndi það en var stöðvaður.
Af þeim sex er hingað komu fengu þrír dvalarleyfi. Tveir þeirra fengu íslenskan ríkisborgararétt á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara. Annar sótti um skilnað að borði og sæng þremur mánuðum eftir veitingu ríkisborgararéttarins og hinn fékk lögskilnað rúmu ári eftir veitingu ríkisborgararéttarins en hann var ekki samvistum við eiginkonu sína í þó nokkurn tíma fyrir það tímamark. Hvorugur eignaðist börn í hjúskapnum.
Einn er með óbundið dvalar- og atvinnuleyfi, ókvæntur og barnlaus.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Kosovo-Albanía | 4 | kk. | 22–29 | Ógiftir | Albanska |
| Líbanon | 1 | kk. | 22 | Ógiftur | Arabíska |
| Marokkó | 1 | kk. | 35 | Ógiftur | Franska |
| Alls | 6 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 3 |
| Endursendir | 2 |
| Hvarf fyrir birtingu | 1 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Íslenskir ríkisborgarar | 2 |
| Búsetuleyfi | 1 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 3 |
Hælisleitendur 1998.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 24 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1998. Af 24 hælisleitendum fengu 13 dvalarleyfi samkvæmt umsókn. Fjórir fengu synjun, brottvísun og endurkomubann og kærðu 3. Ráðuneytið staðfesti niðurstöðu í tveim málum en veitti dvalarleyfi í einu máli. Sex voru endursendir, þrír á grundvelli Norðurlandasamningsins og þrír á grundvelli landgöngusynjunar samkvæmt Chicago-samningnum.
Ekki var hægt að framfylgja brottvísun í þeim tveim málum sem staðfest voru af ráðuneytinu þannig að báðum umsækjendum var veitt tímabundið dvalarleyfi. Annar er hér enn þá en hinn er talinn farinn. Sá fyrri er fékk brottvísun og endurkomubann er hér enn þar sem ekki er hægt að afla ferðaskilríkja frá heimaríki. Hann var handtekinn í tilteknu Evrópuríki og endursendur til Íslands vegna brota hans á útlendingalöggjöf í því ríki og gegn broti á endurkomubanni er jafnframt var þar í gildi gagnvart honum. Hann hafði áður sótt um hæli í því ríki, fengið synjun, brottvísun og endurkomubann og fór þá til Íslands. Sá síðari hvarf af landi brott en var síðar framseldur til Íslands vegna meints skjalafals. Hann var fundinn sekur og fékk 12 mánaða fangelsi. Afplánun hans er lokið og er hann nú talinn farinn. Maðurinn á a.m.k. þrjú börn hérlendis sem ekki eru sammæðra.
Af þeim sem fengu dvalarleyfi er talið að einn sé farinn en hann var til rannsóknar hjá lögreglu vegna gruns um smygl á fólki. Enginn hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt og er a.m.k. einn einstaklinganna enn skilríkjalaus og því ekki líklegt að sá geti fengið íslenskan ríkisborgararétt. Einn dvalarleyfishafa sótti um dvalarleyfi fyrir eiginkonu og tvö börn en hann er mikill sjúklingur og óvinnufær. Umsóknir voru samþykktar og hafa þau öll fengið búsetuleyfi. Fjölskyldan hefur sótt um að fá íslenskan ríkisborgararétt sem nú er til meðferðar hjá ráðuneytinu.
Af þeim er fóru úr landi, er einvörðungu vitað um afdrif eins en hann fór héðan til Noregs og stuttu eftir komuna var hann handtekinn vegna gruns um manndráp. Maðurinn fékk dóm í Noregi fyrir manndráp og mun hafa sótt um reynslulausn á árinu 2003. Lögmaður mannsins bað Útlendingastofnun um að veita manninum landvistarleyfi hérlendis en því var hafnað.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Albanía | 2 | kk. | 20–30 | Ógiftir | Albanska |
| Alsír | 1 | kk. | Ekki vitað | Ógiftur | Franska |
| Hvíta-Rússland | 1 | kk. | 31 | Ógiftur | Rússneska |
| Írak | 1 | kk. | 21 | Ógiftur | Arabíska |
| Júgóslavía | 1 | kk. | 32 | Ógiftur | Serbókróatíska |
| Kamerún | 1 | kk. | 21 | Ógiftur | Franska |
| Kosovo-Albanía | 9 | 2 kvk., 7 kk. | 0–27 | Ein hjón + 2 börn, aðrir ógiftir | Albanska |
| Líbía | 1 | kk. | 29 | Ógiftur | Franska |
| Makedónía | 1 | kk. | 38 | Ógiftur | Rússneska |
| Rússland | 1 | kk. | 44 | Ógiftur | Rússneska |
| Túnis | 1 | kk. | 32 | Ógiftur | Franska |
| Úkraína | 3 | kk. | 30–40 | Einn kvæntur | Rússneska |
| Víetnam | 1 | kk. | 27 | Ógiftur | Víetnamska |
| Alls | 24 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 13 |
| Synjun | 2 |
| Endursendir | 6 |
| Hurfu fyrir birtingu | 3 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Búsetuleyfi | 13 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 11 |
Hælisleitendur 1999.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 24 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 1999. Af 24 hælisleitendum fengu 12 dvalarleyfi, þar af einn á grundvelli þess að vera flóttamaður. Einn kærði það að fá ekki hæli en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar, átta fengu synjun, brottvísun og endurkomubann og kærðu allir en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar í öllum málunum.
Afdrif þeirra 12 hælisleitenda sem fengu dvalarleyfi eru eftirfarandi: Einn fékk dvalarleyfi þar sem hann var úrskurðaður flóttamaður. Hann er með óbundið dvalarleyfi (búsetuleyfi) og Útlendingastofnun hefur engin afskipti haft af einstaklingnum frá árinu 2001. Fjögurra manna fjölskylda fékk dvalarleyfi og er nú með búsetuleyfi. Tveir eru giftir íslenskum ríkisborgurum. Annar hefur lagt fram gögn er staðfesta hver hann er og hefur hann fengið óbundið dvalarleyfi (búsetuleyfi) auk vegabréfs fyrir útlending. Hinn hefur ekki getað lagt fram gögn er staðfesta hver hann er og hefur hann tímabundið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar en hefur ekki fengið vegabréf fyrir útlending.
Einn dró umsókn sína um hæli til baka þar sem hann hafði gifst íslenskum ríkisborgara. Hann er nú kvæntur og með tvö börn á framfæri. Grunur leikur á að ríkisfang þess aðila sé ekki rétt en þar sem hann lagði fram vegabréf frá tilteknu ríki var ekki talið hægt að horfa fram hjá vegabréfinu þó svo fyrir lægi að hægt væri að kaupa vegabréf frá þessu tiltekna ríki án þess að vera ríkisborgari ríkisins. Hann hefur sótt um íslenskan ríkisborgararétt og umsóknin er til meðferðar hjá Alþingi. Einn fékk synjun á hæli en var veitt dvalarleyfi. Stuttu síðar var viðkomandi ákærður fyrir nauðgun en sú ákæra var dregin til baka. Síðar bárust upplýsingar um heimilisofbeldi sem ekki var kært. Viðkomandi er nú skilinn að lögum. Útlendingurinn er kominn með búsetuleyfi þar sem hann hefur aldrei hlotið dóm og fullnægði lagaskilyrðum.
Einn sótti um hæli þegar fyrir lá að honum ætti að vísa brott vegna ólögmætrar dvalar hérlendis og synjunar á dvalarleyfi. Útlendingastofnun úrskurðaði um synjun á hæli, útlendingurinn kærði ákvörðun Útlendingastofnunar til ráðuneytisins en dró þá kæru til baka eftir að hann kvæntist íslenskum ríkisborgara. Í framhaldi af því var honum veitt dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar. Hinn íslenski maki kom ári seinna til Útlendingastofnunar og lýsti því yfir að eiginmaður hennar hefði lítið sem ekkert dvalist á heimili fjölskyldunnar og að blekkingum hefði verið beitt til að stofna til hjúskaparins. Hún kvaðst hafa upplýsingar um það að eiginmaður hennar flytti inn fólk gegn gjaldi og útvegaði því dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenska ríkisborgara eða dvalar- og atvinnuleyfi. Eiginkonan upplýsti jafnframt að hún væri alveg heilluð af hinum erlenda maka sínum og ætti erfitt með að standast töfra hans. Hún dró framburð sinn til til baka eftir að stofnunin hafði látið erlenda makann vita að honum bæri að fara. Eiginkonan berst nú fyrir því að erlendi makinn fái íslenskan ríkisborgararrétt.
Konu og barni hennar var synjað um landgöngu á Keflavíkurflugvelli. Sóttu þau þá um hæli en var synjað. Síðar sama ár fengu þau dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar þar sem eiginmaðurinn hafði sótt um hæli hér árið áður og fengið dvalarleyfi en hann er sjúklingur. Öll fjölskyldan er nú komin með búsetuleyfi. Fjölskyldan hefur sótt um að fá íslenskan ríkisborgararétt og umsóknin er nú til meðferðar. Útlendingastofnun hefur sérstaklega reynt að aðstoða fjölskylduna eftir bestu getu vegna þeirra alvarlegu veikinda er hrjá manninn.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Albanía | 4 | 2 kk., 2 kvk. | 5–35 | Hjón + 2 börn | Albanska |
| Hvíta-Rússland | 1 | kk. | 22 | Ógiftur | Rússneska |
| Írak | 4 | kk. | 24–32 | Ógiftir | Arabíska |
| Íran | 2 | kk. | 31–34 | Ógiftir | Arabíska |
| Króatía | 1 | kk. | 40 | Ógiftur | Ekki vitað |
| Líbía | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Franska |
| Rúmenía | 1 | kk. | 24 | Ógiftur | Rúmenska |
| Síerra Leóne | 2 | kk. | 24–28 | Ógiftir | Franska |
| Sýrland | 1 | kk. | 36 | Ógiftir | Enska |
| Úkraína | 6 | 2 kvk., 4 kk. | 13–39 | Ein hjón, aðrir ógiftir | Rússneska |
| Alls | 24 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Var veitt hæli | 1 |
| Dvalarleyfi | 5 |
| Synjun | 12 |
| Endursendir | 4 |
| Hurfu fyrir birtingu | 1 |
| Dró umsókn til baka | 1 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Búsetuleyfi | 10 |
| Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar | 4 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 10 |
Hælisleitendur 2000.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 25 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2000. Af 25 hælisleitendum fengu sex dvalarleyfi, þar af einn bráðabirgðadvalarleyfi á grundvelli veikinda. Synjun, brottvísun og/eða endurkomubann fengu 16, þar af kærðu 10 en ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Útlendingastofnunar í öllum málunum. Þrír hurfu eða fóru af landi brott.
Einn þeirra er fékk synjun og brottvísun var sendur úr landi. Íslenskur ríkisborgari fór til heimaríkis viðkomandi og giftist honum, greiddi síðan skuld hælisleitandans við íslenska ríkið, þ.e. framfærslu og ferðakostnað, og í framhaldi af því var viðkomandi veitt tveggja ára dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins. Þau eru enn í hjúskap.
Annar hælisleitandi er fékk synjun og brottvísun og var sendur úr landi fór fram á að fá að koma aftur til Íslands og starfa hér til að greiða upp skuld vegna dvalar hérlendis en hann var hér í rúmt ár. Áritun var ekki veitt.
Einn hælisleitandi kvaðst eiga unnustu hérlendis þegar honum var birt brottvísun og endurkomubann og að þau ætluðu að giftast. Útlendingurinn var sendur úr landi og hefur ekkert frekar frést af þeim ætlaða ráðahag.
Einn hælisleitenda fékk 12 mánaða fangelsisdóm fyrir innbrot. Hann kom hingað til lands, sótti um hæli, dró umsókn sína munnlega til baka hjá embætti Ríkislögreglustjóra og óskaði eftir að fá að fara. Hann var á leið úr landi með hluta þýfisins þegar hann var handtekinn. Hélt hann þá fram umsókn sinni um hæli en var synjað og vísað úr landi eftir að afplánun lauk.
Þrír hælisleitendur neituðu að gefa upp hverjir þeir væru. Einn dró umsókn sína til baka eftir að hafa gifst íslenskum ríkisborgara og hefur sá einstaklingur ýmist dvalist hér eða í Noregi. Hann er nú hér á grundvelli takmarkaðs dvalarleyfis á meðan beðið er eftir að hann geti aðstoðað við öflun gagna er staðfesta hver hann er. Hinum tveimur var synjað um hæli, þeim vísað brott og bönnuð endurkoma til Íslands. Ekki var hægt að framkvæma flutning þeirra þar sem öflun ferðaskilríkja tókst ekki. Aðilarnir fóru að lokum af sjálfsdáðum eftir að hafa verið hér í rúmt ár. Þeim var boðið að fá atvinnu- og dvalarleyfi en neituðu því staðfastlega.
Af þeim sex sem fengu dvalarleyfi fengu fjórir dvalarleyfi hérlendis þar sem ekki þótti forsenda fyrir að senda þá til síns heimaríkis vegna mikilla sviptinga í því ríki á þeim tíma. Þeir eru hér allir enn og eiga tveir í sambandi við íslenska ríkisborgara en annar þeirra kvaðst vera giftur og eiga sex börn í sínu heimaríki þegar hann kom til Íslands. Hann hefur aldrei óskað eftir fjölskyldusameiningu. Þrír hafa lagt fram skilríki frá sínu heimaríki er staðfesta hverjir þeir eru og hafa í framhaldi af því fengið ferðaskilríki fyrir útlendinga. Fjórði útlendingurinn er kominn með búsetuleyfi.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Afganistan | 3 | kk. | 25–33 | Einn giftur, aðrir ógiftir |
Farsi/enska |
| Albanía | 1 | kk. | 27 | Ógiftur | Albanska |
| Alsír | 2 | kk. | 25–27 | Ógiftur | Franska |
| Armenía | 2 | kvk. | 40–41 | Önnur gift, hin fráskilin |
Armenska |
| Frakkland | 2 | kk., kvk. | 24–28 | Hjón | Franska |
| Jórdanía | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Arabíska |
| Júgóslavía | 1 | kk. | 25 | Ógiftur | Albanska |
| Myanmar | 1 | kk. | 34 | Ógiftur | Enska |
| Rúmenía | 3 | kk. | 24–39 | Ógiftir | Rúmenska |
| Rússland | 5 | 1 kvk., 4 kk. | 26–40 | Ein hjón, aðrir ógiftir | Rússneska |
| Sýrland | 1 | kk. | 29 | Ógiftur | Enska |
| Tyrkland | 1 | kk. | 25 | Ógiftur | Tyrkneska |
| Úkraína | 2 | kk. | 25–48 | Ógiftur | Rússneska |
| Alls | 25 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 4 |
| Synjun | 17 |
| Endursendir | 2 |
| Drógu umsókn til baka | 2 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Búsetuleyfi | 1 |
| Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar | 2 |
| Dvalarleyfi | 1 |
| Dvalarleyfi og atvinnuleyfi | 3 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 18 |
Hælisleitendur 2001.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 53 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2001. Af þeim 53 umsóknum sem lagðar voru fram árið 2001 var úrskurðað um synjun á hæli í 14 málum. Kært var til ráðuneytisins í 11 málum og var niðurstaða Útlendingastofnunar staðfest í þremur málum en átta var veitt dvalarleyfi. Jafnframt fékkst staðfesting á því erlendis frá að 27 umsækjendur höfðu sótt um hæli annars staðar áður en þeir komu til Íslands. Þeir voru annaðhvort endursendir til viðkomandi ríkja eða hurfu áður en kom að flutningi.
Ísland óskaði eftir viðtöku á grundvelli Norðurlandasamningsins í sjö málum, þar af fengust sex jákvæð svör. Embætti Ríkislögreglustjóra framkvæmdi fjórar brottvísanir á grundvelli Norðurlandasamningsins að beiðni Útlendingastofnunar en 2 hælisleitendur hurfu af landi brott áður en til flutningsins kom.
Ísland óskaði eftir viðtöku á grundvelli Dyflinnarsamningsins í 16 málum, þar af fengust 14 jákvæð svör en hafnað var viðtöku í tveimur málum. Ein beiðni barst til Íslands á grundvelli Dyflinnarsamningsins og var samþykkt að taka við hælisleitenda sem hafði verið hérlendis í meðferð. Ekki kom til þess að hælisleitandinn fengi málsmeðferð hérlendis þar sem hann fannst ekki þegar flytja átti hann til Íslands. Embætti ríkislögreglustjóra framkvæmdi 11 frávísanir á grundvelli Dyflinnarsamningsins að beiðni Útlendingaeftirlitsins en fjórir hælisleitendur hurfu af landi brott áður en að flutningi kom.
Þrír þeirra hælisleitenda sem fengu synjun, brottvísun og endurkomubann voru fjölskylda sem sótt hafði áður um hæli í X-ríki og átti fjölskyldufaðirinn sakarferil þar í landi. Fjölskyldan kærði niðurstöðu Útlendingastofnunar en hvarf áður en niðurstaða ráðuneytisins lá fyrir. Fólkið hafði þá selt öll raftæki í íbúð RKÍ. Annar sem fékk synjun, brottvísun og endurkomubann kærði ekki og hvarf. Einn hælisleitandi dvaldi hérlendis í þrjár vikur á meðan mál hans var til meðferðar. Sá kynntist íslenskum ríkisborgara hérlendis sem fór á eftir umsækjandanum þegar hann var endursendur til X-ríkis, giftist þar og í framhaldi af því fékk útlendingurinn dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins. Hjúskapurinn stendur enn, fólkið á tvö börn og önnur tvö á framfæri. Hjónin slitu samvistum tímabundið stuttu eftir að dvalarleyfi var endurnýjað (ágúst 2003) en tóku saman aftur í byrjun apríl 2004. Þá var lögð fram umsókn um íslenskan ríkisborgararétt fyrir hinn erlenda maka.
Þeir hælisleitendur er fengu synjun og brottvísun kærðu flestir en þrír undu ákvörðun og voru sendir til baka. Aðrir hælisleitendur hurfu áður en kom til úrskurðar eða hurfu stuttu eftir úrskurð.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Afganistan | 1 | kk. | 55 | Giftur | Rússneska |
| Albanía | 8 | 4 kvk., 4 kk. | 0–31 | 2 hjón + börn, einn ógiftur |
Albanska |
| Alsír | 5 | kk. | 27–38 | Ógiftir | Franska |
| Bosnía | 1 | kk. | 24 | Ógiftur | Albanska |
| Georgía | 2 | kk. | 28–30 | Ógiftir | Rússneska |
| Hvíta-Rússland | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Rússneska |
| Írak | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Arabíska |
| Íran | 4 | kk. | 25–38 | Einn giftur + 2 börn, einn ógiftur |
Arabíska/ rúmenska |
| Kongó | 1 | kk. | 27 | Ógiftur | Franska |
| Kosovo-Albanía | 2 | kvk., kk. | 31–39 | Hjón | Albanska |
| Lettland | 1 | kk. | 36 | Ógiftur | Rússneska |
| Líbía | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Arabíska |
| Makedónía | 5 | 2 kvk., 3 kk. | 10–33 | Hjón + börn | Serbókróatíska |
| Nígería | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Enska |
| Rúmenía | 7 | 3 kvk., 4 kk. | 0–43 | 2 hjón + börn, 1 ógiftur |
Rúmenska |
| Rússland | 3 | kk. | 27–49 | Ógiftir | Rússneska |
| Slóvakía | 5 | 2 kvk., 3 kk. | 3–26 | Hjón + börn | Slóvakíska |
| Srí Lanka | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Enska |
| Tsjad | 1 | kk. | 30 | Ógiftur | Franska |
| Úsbekistan | 1 | kk. | 39 | Ógiftur | Rússneska |
| Úkraína | 1 | kk. | 27 | Ógiftur | Rússneska |
| Alls | 53 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 8 |
| Synjanir | 9 |
| Endursendir | 15 |
| Hurfu fyrir birtingu | 21 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara |
1 |
| Dvalarleyfi | 7 |
| Dvalarleyfi og atvinnuleyfi | 1 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 44 |
Hælisleitendur 2002.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 117 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2002 (Umsóknir voru 118 þar sem einn kom tvisvar og sótti um hæli í bæði skiptin).
Af þeim 117 (118) umsóknum er voru lagðar fram úrskurðaði Útlendingastofnun um veitingu dvalarleyfis í fimm málum, synjun á hæli, brottvísun og endurkomubann í 14 málum en ein umsókn er enn til meðferðar vegna beiðni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og ákvörðunar Norðurlandaþjóðanna, þ.e. umsóknir írakskra ríkisborgara eru ekki afgreiddar, heldur er þeim veitt tímabundin vernd. Af þeim 14 sem fengu synjun á umsókn sinni, kærðu 13 og staðfesti ráðuneytið allar þær niðurstöður.
Útlendingastofnun sendi 36 umsækjendur til annarra Evrópuríkja samkvæmt gagnkvæmum endurviðtökusamningum. Þar af voru 34 sendir samkvæmt Dyflinnarsamningi (DS) en tveir endursendir samkvæmt Norðurlandasamningi.
Þess ber að geta að af þeim fjölda er dró umsókn til baka eða fór af landi brott lá fyrir samþykki á endurviðtöku í tveimur málum samkvæmt Norðurlandasamningi og samþykki á endurviðtöku í fimm málum samkvæmt Dyflinnarsamningi, þrátt fyrir að viðkomandi samningum væri ekki beitt sökum brotthvarfs viðkomandi.
Tveir hælisleitendur höfðu dvalist hérlendis í níu mánuði á vegum tiltekinnar alþjóðlegrar stofnunar áður en þeir sóttu um hæli. Þegar þeir áttu að fara til heimaríkis síns sóttu þeir um hæli og lögðu fram gögn máli sínu til stuðnings um ofsóknir og áreiti frá heimaríkinu. Rannsókn á tölvum þessarar alþjóðlegu stofnunar leiddi í ljós að annar umsækjanda hafði beðið um gögnin og óskað eftir röngum upplýsingum að heiman til að staðfesta frásögnina. Báðir umsækjendurnir drógu umsóknir sínar til baka þegar upp komst um blekkingarnar. Annar aðilanna tók ekki þátt í fölsuninni og giftist hann síðar erlendum ríkisborgara sem hér hefur dvalarleyfi. Þeim aðila var nýlega veitt dvalarleyfi á grundvelli þess hjúskapar og eiga þau von á barni.
Hælisleitendur er áttu umsóknir til meðferðar í öðrum DS-ríkjum voru allir sendir úr landi að undanskildum fimm þeirra. Þeir fengu allir dvalarleyfi vegna sérstakra fjölskylduaðstæðna. Fjögurra manna fjölskylda fékk dvalarleyfi hérlendis, þrátt fyrir að henni hefði verið synjað um hæli og dvalarleyfi í DS-ríki. Þetta var vegna sérstakra aðstæðna í fjölskyldunni og þeirra áfalla sem foreldrarnir höfðu þurft að þola. Foreldrarnir eru báðir í vinnu og með dvalar- og atvinnuleyfi sem eru grundvöllur búsetuleyfis.
Einn hælisleitandi hvarf stuttu eftir að hann hafði fengið synjun, brottvísun og endurkomubann en kom síðar í leitirnar hérlendis. Álitið var að hann hefði farið af landi brott en níu mánuðum síðar kom í ljós að hann hafði gifst íslenskum ríkisborgara á öðru nafni og með annað ríkisfang. Hafði hann þannig aflað sér dvalarleyfis með blekkingum. Mál þessa einstaklings er til meðferðar hjá Útlendingastofnun og lögreglu með tilliti til brottvísunar og jafnvel ákæru.
Tveir hælisleitendur sem fengu synjun, brottvísun og endurkomubann fengu bráðabirgðadvalarleyfi þar sem ekki hefur tekist að afla þeim ferðaskilríkja. Annar þeirra hefur verið handtekinn í DS-ríki vegna ólögmætrar komu og gruns um vændi. Ekki er vitað hverjir þessir útlendingar eru og því hefur verið erfitt fyrir embætti ríkislögreglustjóra að afla ferðaskilríkja. Annar útlendingurinn hefur fengið bráðabirgðaatvinnuleyfi þrátt fyrir skilríkjaleysi.
Einn hælisleitandi sem sendur var til baka til síns heimaríkis sendi tölvupóst eftir heimkomu og þakkaði íslenskum stjórnvöldum fyrir gestrisnina en hann dvaldi hér í rúmt ár.
Annar hælisleitandi sem sendur var til baka ásamt fjölskyldu sinni hefur ítrekað sent tölvupóst eftir heimkomu og hótað tilteknum starfsmönnum Útlendingastofnunar og lögreglu vegna þess að hann og fjölskylda hans fengu ekki að dvelja á Íslandi.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Albanía | 10 | 3 kvk., 7 kk. | 3–37 | Hjón + 2 börn, aðrir ógiftir |
Albanska |
| Alsír | 3 | kk. | 27–36 | Ógiftir | Franska |
| Búlgaría | 3 | kvk., 2 kk. | 28–54 | Ekkja, 2 ógiftir |
Búlgarska |
| Eþíópía | 2 | kk. | 25–28 | Einn giftur | Enska |
| Georgía | 6 | 4 kvk., 2 kk. | 0–28 | Hjón + 2 börn, einn giftur, einn ógiftur | Rússneska/ spænska |
| Írak | 2 | kk. | 26–27 | Ógiftir | Enska |
| Ísrael | 1 | kk. | 24 | Giftur | Enska |
| Hvíta-Rússland | 3 | kvk., 2 kk. | 21–26 | Hjón, ógiftur | Rússneska |
| Kasakstan | 2 | kvk. | 5–26 | Ógift + barn | Rússneska |
| Kosovo | 1 | kk. | 25 | Ógiftur | Serbókróatíska |
| Króatía | 1 | kk. | 42 | Ógiftur | Serbókróatíska |
| Líbanon | 1 | kk. | 39 | Ógiftur | Arabíska |
| Líbía | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Arabíska |
| Makedónía | 1 | kk. | 24 | Ógiftur | Enska |
| Malí | 1 | kk. | 34 | Ógiftur | Franska |
| Máritanía | 1 | kk. | 34 | Fráskilinn | Franska |
| Marokkó | 1 | kk. | 23 | Ógiftur | Franska |
| Mongólía | 8 | kvk., 7 kk. | 24–34 | Ein hjón, aðrir ógiftir | Rússneska |
| Nígería | 3 | kk. | 23–28 | Ógiftir | Enska |
| Rúmenía | 40 | 16 kvk., 24 kk. | 0–65 | 9 hjón + 11 börn, 10 ógiftir |
Rúmenska |
| Rússland | 15 | 7 kvk., 8 kk. | 11–48 | 4 hjón, 3 ógiftir | Rússneska |
| Slóvakía | 4 | kvk., 3 kk. | 11–37 | Fjölskylda | Slóvakíska |
| Tsjetsjenía | 1 | kk. | 12 | Ógiftur | Rússneska |
| Úkraína | 4 | kk. | 21–51 | Ógiftir | Rússneska |
| Úsbekistan | 3 | kvk., 2 kk. | 18–39 | Hjón, ógiftur | Rússneska |
| Alls | 118 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 6 |
| Synjanir | 14 |
| Endursendir | 36 |
| Hurfu fyrir birtingu | 62 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar við íslenskan ríkisborgara |
2 |
| Dvalarleyfi | 3 |
| Dvalar- og atvinnuleyfi | 5 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 108 |
Hælisleitendur 2003.
Samkvæmt skrám Útlendingastofnunar sóttu 80 útlendingar um hæli hérlendis á árinu 2003. Tekið skal fram að á árinu 2003, nánar tiltekið þann 1. september 2003, tók Dyflinnarreglugerðin við af Dyflinnarsamningnum. Til þess að valda ekki ruglingi er þó enn vísað til sendingar samkvæmt Dyflinnarsamningi (DS) þar sem ákvæðin eru mjög sambærileg.
Af þeim 80 umsóknum sem lagðar voru fram árið 2003 var úrskurðað um veitingu dvalarleyfis af mannúðarástæðum í þremur málum. Synjað var um hæli í 21 máli, 26 útlendingar voru sendir úr landi á grundvelli Dyflinnarsamningsins eða Dyflinnarreglugerðarinnar og 30 útlendingar hurfu eða drógu umsóknir sínar til baka. Kærur til ráðuneytisins voru 12. Ein kæra var vegna synjunar á hæli og frávísunar sem síðar var staðfest hjá ráðuneytinu. Þrjár kærur vegna veitingar dvalarleyfis af mannúðarástæðum eru enn til meðferðar hjá ráðuneytinu. Einnig voru átta kærur lagðar fram vegna sendingar úr landi á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins, þar af hefur ráðuneytið staðfest eina en aðrar eru enn til meðferðar.
Þess má geta að þeir þrír hælisleitendur sem fengu dvalarleyfi af mannúðarástæðum hafa a.m.k. tvisvar ferðast til DS-ríkis í heimsókn til ættingja sinna þar. Hvorugt hjónanna hefur sótt um starf á Íslandi.
| Ætlað ríkisfang | Fjöldi | Kyn | Aldur | Hjúskaparstaða | Tungumál |
| Afganistan | 4 | kk. | 0–35 | Giftur + barn, 2 ógiftir |
Rússneska |
| Albanía | 12 | 6 kvk., 6 kk. | 6–52 | Hjón + 3 börn, aðrir ógiftir |
Albanska |
| Aserbædjan | 2 | kvk., kk. | 26–52 | Ekkja, ógiftur | Rússneska |
| Bosnía-Herz. | 1 | kk. | 39 | Ógiftur | Serbókróatíska |
| Búlgaría | 2 | kvk., kk. | 18–21 | Hjón | Búlgarska |
| Erítrea | 1 | kk. | 31 | Ógiftur | Amharíska |
| Georgía | 1 | kk. | 25 | Ógiftur | Rússneska |
| Hvíta-Rússland | 4 | kk. | 20–32 | Ógiftir | Rússneska |
| Írak | 3 | kk. | 27–31 | Ógiftir | Arabíska |
| Íran | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Arabíska |
| Kína | 4 | 2 kvk., 2 kk. | 20–23 | Ógiftir | Kínverska |
| Kongó | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Franska |
| Króatía | 1 | kk. | 25 | Ógiftur | Serbókróatíska |
| Líbía | 1 | kk. | 29 | Ógiftur | Arabíska |
| Líbería | 2 | kvk. | 6–32 | Ógift + barn | Enska |
| Makedónía | 1 | kk. | 44 | Ógiftur | Rússneska |
| Mongólía | 3 | 2 kvk., kk. | 16–49 | Hjón + barn | Rússneska |
| Nepal | 1 | kk. | 31 | Ógiftur | Enska |
| Nígería | 2 | kvk., kk. | 24–43 | Gift + barn | Enska |
| Pólland | 5 | 2 kvk., 3 kk. | 17–46 | Hjón + 3 börn | Pólska |
| Rúmenía | 16 | 3 kvk., 13 kk. | 7–38 | 5 hjón + 2 börn, aðrir ógiftir |
Rúmenska |
| Srí Lanka | 2 | kk. | 26 | Ógiftir | Sinhalis/enska |
| Tsjetsjenía | 3 | kvk., 2 kk. | 4–33 | Fráskilin + 2 börn | Rússneska |
| Tyrkland | 1 | kk. | 28 | Ógiftur | Tyrkneska |
| Úkraína | 2 | kk. | 28–51 | Ógiftir | Rússneska |
| Úsbekistan | 3 | kvk., kk. | 41–42 | Gift + barn, ógiftur | Rússneska |
| Þýskaland | 1 | kk. | 57 | Ógiftur | Þýska |
| Alls | 80 |
| Lok máls | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 3 |
| Synjanir | 21 |
| Endursendir | 26 |
| Hurfu fyrir birtingu | 30 |
| Staða nú | Fjöldi |
| Dvalarleyfi | 3 |
| Dvalar- og atvinnuleyfi | 0 |
| Farnir af landi brott – ekki vitað | 77 |