Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 639. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1742  —  639. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Örlygssonar um sjálfbærni landbúnaðarframleiðslu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hve mikill hluti landbúnaðarframleiðslu hér á landi getur flokkast undir sjálfbærni með tilliti til umhverfisvænnar notkunar?

    Samkvæmt íslenskri orðabók útgefinni árið 2002 er sá sjálfbær sem er sjálfum sér nægur, sem ekki skaðar aðra.
    Í riti umhverfisráðuneytisins „Velferð til framtíðar – sjálfbær þróun í íslensku samfélagi“, sem gefið var út árið 2002, kemur fram að sjálfbær þróun hafi verið skilgreind sem þróun sem mætir þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum.
    Ekki hefur verið gerð sértæk úttekt á því hve mikill hluti íslensks landbúnaðar getur flokkast undir sjálfbærni með tilliti til umhverfisvænnar notkunar en fullyrða má að atvinnugreinin sé í meginatriðum umhverfisvæn.
    Í áðurnefndu riti umhverfisráðuneytisins, „Velferð til framtíðar“, segir m.a. um landbúnað:
    „Framlag landbúnaðar til sjálfbærrar þróunar er margþætt og ekki einungis bundið við hefðbundna matvælaframleiðslu. Forgangsmál er að tryggja að nýting lands til beitar sé sjálfbær og að landgæði aukist samhliða framtíðarþróun búskaparhátta. Samningur hefur verið undirritaður milli sauðfjárbænda og ríkisvaldsins sem miðar í þá veru. Samdráttur í hefðbundnum búgreinum veldur því að beitarálag hefur minnkað á undanförnum árum en draga þarf enn frekar úr beit á viðkvæmum svæðum. Með friðun lands, beitarstjórnun og uppgræðsluaðgerðum má skapa forsendur fyrir aukinni nýtingu beitilanda í framtíðinni. Auka þarf þátttöku bænda í landbótaverkefnum. Uppbygging nytjaskógræktar er hluti af þessari þróun. Aukin áhersla á umhverfismál og hreinleika víða um heim getur skapað sóknarfæri fyrir íslenskan landbúnað þar sem mengun af völdum hans og hvers kyns efnanotkun er hverfandi miðað við það sem gerist annars staðar. Tryggja þarf að þessi ímynd hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða hvíli áfram á traustum grunni.“
    Veikasti hlekkurinn í sjálfbærni íslensks landbúnaðar hafa verið beitarmálin. Með markvissu samstarfi Landgræðslu ríkisins og fjölda bænda um land allt hefur á síðustu árum orðið mikil breyting til batnaðar í þessu efni og með ákvæðum um gæðastýringu í sauðfjárrækt, sbr. reglugerð nr. 175/2003, eru settar viðmiðunarreglur um mat á ástandi lands og landnýtingu. Stuðningsgreiðslur ríkisins eru að hluta skilyrtar áföngum um endurheimt landgæði á jörðum þar sem aðgerða er þörf í þeim efnum.