Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 969. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1766  —  969. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar um atvinnuleysi ungs fólks í Reykjavík.

     1.      Hvaða úrræði eru í boði fyrir ungt atvinnulaust fólk í Reykjavík (16–25 ára) á vegum stofnana félagsmálaráðuneytisins?
    Svæðisvinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins annast skráningu og skipulagningu úrræða fyrir íbúa Reykjavíkurborgar á öllum aldri. Í boði er einstaklingsbundin ráðgjöf hjá náms- og starfsráðgjafa vinnumiðlunar en þegar launafólk skráir sig í fyrsta skipti á atvinnuleysisskrá er þeim gert að sækja sérstakt kynningarnámskeið sem kallast Starfsleit 1. Þar fer fram kynning á þeim úrræðum sem í boði eru hverju sinni samhliða því að hlutaðeigandi fær aðstoð við gerð starfsleitaráætlunar.
    Í því skyni að mæta þörfum yngra fólks sem er án atvinnu var ráðgjöfin hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins endurskoðuð síðastliðið haust. Þær breytingar sem gerðar voru felast aðallega í auknu framboði á styttri námskeiðum sem ætluð eru ungu fólki sem hefur verið tiltölulega stuttan tíma án atvinnu. Eitt þessara námskeiða er áhugasviðsgreining sem hefur reynst vinsælt meðal ungs fólks. Enn fremur hefur verið boðið upp á fjarnámsmenntasmiðju í samvinnu við Framvegis – símenntunarstöð en það námskeið hefur einkum verið ætlað ungu fólki á aldrinum 16–24 ára enda þótt að það sé opið fleiri aldurshópum. Þá stendur til boða sérstakt verkefni sem nefnist Vertu þú sjálfur – en hver ertu? en þetta námskeið er einkum ætlað ungu fólki sem stendur utan við skólakerfið og nýtur því ekki ráðgjafar þar. Hrafnhildur Tómasdóttir, ráðgjafi hjá Mentor ehf. og hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins, þróaði verkefnið í samvinnu við Hitt húsið og Fjölsmiðjuna en Starfsmenntaráð styrkti verkefnið á síðasta ári. Það byggist á fræðilegri hugmyndafræði um alhliða einstaklingsbundna ráðgjöf um líf og starf viðkomandi í því skyni að einstaklingurinn verði hæfari til að takast á við líf sitt og stöðu.
    Námsstyrkir og námssamningar, sem eru hluti af framboði svæðisvinnumiðlanna, hafa einnig nýst ungu fólki í atvinnuleit. Enn fremur er boðið upp á tölvunámskeið af ýmsu tagi, sem og sjálfstyrkingarnámskeið. Þá hafa vinnuvélanámskeið sem m.a. eru haldin á vegum Vinnueftirlits ríkisins nýst ungu fólki sem hefur verið án atvinnu og þá sérstaklega körlum.
    Hafi starfsleit ekki borið árangur að tveimur til þremur mánuðum liðnum er viðkomandi gert að sækja annað námskeið sem kallast Starfsleit 2. Á því námskeiði er nánar farið í þau úrræði sem í boði eru fyrir atvinnulausa en á námskeiðinu beinist ráðgjöfin meira að einstaklingnum sjálfum. Enn fremur er starfsleitaráætlunin endurskoðuð.
    Fjölsmiðjan er verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16–24 ára. Markmiðið er að bjóða fjölþætta verkþjálfun og fræðslustarfsemi því unga fólki er þar starfar en Fjölsmiðjan er einnig þjálfunar- og endurhæfingarstaður fyrir ungt fólk sem þarf undirbúning fyrir frekara nám eða störf. Fjölsmiðjan var formlega stofnuð á árinu 2001 en félagsmálaráðuneytið/Vinnumálastofnun var einn af stofnendum smiðjunnar. Hefur stofnunin reynst ungu fólki mjög vel, einkum þeim er hvorki hafa fundið sig innan skólakerfisins né á vinnumarkaði.
     2.      Hefur verið gripið til sérstakra aðgerða í atvinnumálum þessa aldurshóps í Reykjavík og þá hverra? Ef ekki, hvenær stendur til að gera átak í atvinnumálum þessa aldurshóps og hvað á þá að gera?

    Á síðastliðnum vetri setti félagsmálaráðherra af stað sérstakt átak varðandi langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi ungs fólks. Sérstök verkefnastjórn hefur verið skipuð til að vinna að málinu í samstarfi við Vinnumálastofnun. Verkefnisstjórninni er ætlað að greina þennan vanda á einstökum svæðum og koma af stað sérstökum verkefnum á þeim stöðum þar sem atvinnuleysi framangreindra hópa er mikið. Í því sambandi er verkefnisstjórninni ætlað að hafa samráð við svæðisvinnumiðlanir viðkomandi svæðis, sveitarfélög, aðila vinnumarkaðarins og menntastofnanir.
    Verkefnisstjórnin ákvað að beina sjónum sínum til að byrja með að Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi ungs fólks og langtímaatvinnuleysi hefur verið nokkuð. Komið hefur verið á samvinnu ýmissa aðila sem koma að vinnumarkaðs- og menntamálum á Suðurnesjum en þar má nefna fulltrúa sveitarfélaga á svæðinu, menntastofnana og svæðisvinnumiðlunar. Sérstakur starfshópur var settur á laggirnar sem hefur unnið að mótun úrræða sem ætluð eru ungu fólki í atvinnuleit á svæðinu. Áhersla hefur verið lögð á menntamál í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
    Ráðgert er að verkefnisstjórnin muni einnig greina ástand mála á höfuðborgarsvæðinu eins fljótt og kostur er en ráðherra hefur þegar beint athygli stjórnarinnar að atvinnuástandi meðal ungs fólks á því svæði eftir samráð við Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
    Vinnumálastofnun ákvað í ársbyrjun 2004 að ungt fólk á atvinnuleysisskrá og langtímaatvinnulausir yrðu forgangshópar í vinnumarkaðsúrræðum svæðisvinnumiðlana á árinu. Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins hefur því á sama hátt og aðrar svæðisvinnumiðlanir á landinu lagt aukna áherslu á að vinna að málum ungs fólks í atvinnuleit. Þar á meðal hefur verið leitast við að virkja ungt fólk betur en áður til þátttöku í þeim úrræðum sem þegar eru fyrir hendi. Er sérstök áhersla lögð á vinnutengd úrræði sem m.a. fela í sér starfsþjálfunarúrræði og reynsluráðningu. Í þessu tilliti skiptir samstarf við opinberar stofnanir, þar á meðal sveitarfélögin, sem og fyrirtæki vítt og breitt um landið, verulegu máli í því skyni að tryggja gott framboð af verkefnum sem jafnvel gætu leitt til framhaldsráðninga þátttakenda að verkefni loknu.
    Enn fremur lagði stjórn stofnunarinnar áherslu á að svæðisvinnumiðlanirnar standi fyrir skemmri námskeiðum eða menntasmiðjum fyrir yngsta aldurshópinn. Í því sambandi var undirstrikuð þörfin á vinnumarkaðsúrræðum fyrir ungar konur í atvinnuleit. Þá hefur verið unnið að þróun nýrra námskeiða sem sérstaklega er ætluð þessum aldurshópi, sbr. t.d. námskeiðið Vertu þú sjálfur – en hver ertu?

     3.      Hefur verið gerð sérstök athugun á vegum ríkisins á stöðu ungra Reykvíkinga (16–25 ára) af erlendum uppruna hvað varðar atvinnu og brottfall úr framhaldsskólum? Ef svo er, hverjar eru niðurstöðurnar úr þeirri athugun? Ef ekki, stendur þá til að athuga þennan hóp sérstaklega í þessu ljósi?

    Það hefur ekki farið fram sérstök athugun á vegum félagsmálaráðuneytisins um stöðu ungra Reykvíkinga af erlendum uppruna. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun voru 220 erlendir ríkisborgarar á atvinnuleysisskrá í lok nóvember 2003 en miðað við forsendur stofnunarinnar er gert ráð fyrir að það sé sama hlutfall og var meðal landsmanna allra á þessum tíma eða um 3%. Flestir voru á aldrinum 30–39 ára en einungis 14% atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru á aldrinum 16–24 ára. Aldurssamsetning meðal erlendra ríkisborgara sem eru án atvinnu er önnur en meðal allra atvinnulausra. Ástæður þessa geta verið ýmsar, m.a. að aldurssamsetning erlendra ríkisborgara sé önnur en íslensku þjóðarinnar og að ungir erlendir ríkisborgarar skrái sig ekki á atvinnuleysisskrá þar sem þeir eiga ekki rétt á atvinnuleysistryggingum vegna lítillar atvinnuþátttöku. Það liggur fyrir að efla þarf rannsóknir á stöðu útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og þá sérstaklega samspil skóla og atvinnuþátttöku hjá ungum erlendum ríkisborgurum.

     4.      Hefur verið gerð einhver athugun á stöðu ungs fólks á aldrinum 16–18 ára sem hefur flosnað upp í námi og átt í erfiðleikum á atvinnumarkaði? Ef svo er, hverjar eru þá niðurstöðurnar? Ef ekki, stendur til að gera sérstaka athugun á högum þessa hóps?

    Félagsmálaráðuneytinu er ekki kunnugt um allar þær rannsóknir sem hugsanlega hafa verið gerðar á stöðu ungs fólks á aldrinum 16–18 ára sem hefur ekki fundið sig innan skólakerfisins. Í þessu sambandi má benda á rannsókn er fyrirtækið Rannsóknir og greining vann að um ungt fólk sem nefnist Utanskólarannsókn, félagsleg staða ungmenna utan framhaldsskóla og samanburður við jafnaldra þeirra í framhaldsskólum. Rannsókn þessi var unnin fyrir Lýðheilsustöð/Áfengis- og vímuvarnarráð, Íþrótta- og tómstundaráð Rauða kross Íslands og Félagsþjónustuna í Reykjavík. Markmið rannsóknarinnar var að skoða aðstæður ungmenna aldrinum 16–19 ára sem ekki hafa skráð sig í framhaldsskóla eða hætt námi og bera aðstæður þeirra saman við aðstæður jafnaldra þeirra sem stunda nám. Niðurstöður rannsóknarinnar byggjast á þremur rannsóknum: Rannsókn meðal ungs fólks í framhaldsskólum á Íslandi 2000, Rannsókn meðal fólks 16–19 ára utan framhaldsskóla 2001 og Ítarleg viðtöl við 16–19 ára utan framhaldsskóla 2003.
    Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að hagir og líðan þeirra ungmenna sem ekki stunda nám við framhaldsskóla eru síðri en þeirra ungmenna sem stunda nám í framhaldsskólum. Gjarnan hafa einstaklingar í þessum hópi átt við námserfiðleika að stríða en oft er þó erfitt að greina milli þess hvort um sértæka námsörðugleika sé að ræða eða hvort rekja megi vandann til bágborinna félagslegra aðstæðna. Tengsl þessara ungmenna við fjölskyldur sínar eru veikari en annarra ungmenna og svo virðist sem að þau leiti sér síður aðstoðar til utanaðkomandi aðila svo sem námsráðgjafa og fulltrúa félagsþjónustu og heilbrigðiskerfis. Enn fremur virðist sem að þessi hópur ungs fólks finni sig ekki innan framhaldsskólakerfisins en jafnframt koma fram vísbendingar um það að þessi ungmenni eigi einnig erfitt uppdráttar á vinnumarkaðinum. Nánari upplýsingar um rannsóknina er að finna á heimasíðu Rannsókna og greiningar: www.rannsoknir.is.
     Ljóst má þykja að niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að huga þurfi sérstaklega að þessum hópi ungs fólks. Er því mikilvægt að verkefnisstjórnin er fjallar um langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi ungs fólks hugi sérstaklega að þörfum þessa hóps. Það er hins vegar ekkert launungarmál að reynst getur erfitt að ná til þessara ungmenna þar sem þau eru hvorki í skóla né í vinnu. Þá eru líkur til að þessi aldurshópur skrái sig ekki á atvinnuleysisskrá hjá svæðisvinnumiðlunum þar sem einstaklingarnir hafa ekki áunnið sér rétt til atvinnuleysistrygginga vegna lítillar atvinnuþátttöku.

     5.      Kæmi til greina að félagsmálaráðuneytið yrði samstarfsaðili að rekstri sérstakrar vinnumiðlunar fyrir ungt fólk (16–25 ára) sem Reykjavíkurborg hefur stofnað?

    Samkvæmt lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, hefur félagsmálaráðherra yfirstjórn með opinberri vinnumiðlun í landinu, sem er eitt vinnusvæði. Settar hafa verið á laggirnar svæðisvinnumiðlanir sem hafa meðal annars það verkefni að aðstoða atvinnuumsækjendur við atvinnuleit og sjá til þess að atvinnulausir eigi kost á ráðgjöf og úrræðum, svo sem námi eða starfsþjálfun. Svæðivinnumiðlanir hafa ætíð lagt áherslu á að eiga gott samstarf við þá aðila er hafa látið sig varða stöðu atvinnumála á hlutaðeigandi svæði.
    Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins er þar engin undantekning og hefur verið töluverð samvinna milli vinnumiðlunarinnar og Hins hússins sem starfrækir vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík. Sem dæmi má nefna er fyrrnefnt verkefni Hrafnhildar Tómasdóttur sem meðal annars var unnið í samvinnu við Hitt húsið en a.m.k. eitt námskeið hefur verið haldið hjá Hinu húsinu. Standa vonir manna til að áfram haldist gott samstarf um ráðgjöf og úrræði fyrir ungt fólk á svæðinu enda slíkt samstarf lykillinn að aukinni skilvirkni í þjónustu við þennan hóp.