Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 918. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1781  —  918. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um verndaða vinnustaði.

     1.      Hversu margir verndaðir vinnustaðir eru í landinu, sundurgreint eftir landshlutum?
    Eftirfarandi upplýsingar eru miðaðar við 1. apríl sl. Þess skal þó getið að á sumum þessara staða er rekin blönduð starfsemi þar boðið er upp á verndaða vinnu, hæfingu og iðju.

Þrettán verndaðir vinnustaðir eru á höfuðborgarsvæðinu:
Ás vinnustofa, Brautarholti 6, Reykjavík.
Ásgarður – handverkstæði, Álafossvegi 22–24, Mosfellsbæ.
Blindravinnustofan, Hamrahlíð 17, Reykjavík.
Bjarkarás, Stjörnugróf 9, Reykjavík.
Hringsjá – starfsþjálfun fatlaðra, Hátúni 10d, Reykjavík.
Hæfingarstöðin Fannborg 6, Kópavogi.
Klúbburinn Geysir, Skipholti 29, Reykjavík.
Múlalundur, Hátúni 10c, Reykjavík.
Reykjalundur, Reykjalundi, Mosfellsbæ.
Vinnustaðir ÖBÍ, Hátúni 10, Reykjavík.
Vinnustofur Skálatúns, Skálatúni, Mosfellsbæ.
Vinnustofan Hólaberg, Gerðubergi 1, Reykjavík.
Örvi, Kársnesbraut 110, Kópavogi.

Einn verndaður vinnustaður er á Suðurnesjum:
Hæfingarstöðin í Keflavík, Hafnargötu 90, Keflavík.

Þrír verndaðir vinnustaðir eru á Suðurlandi:
Sólheimar, Grímsnesi, Selfossi.
Vinnustofa Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi, Gagnheiði 39, Selfossi.
Kertaverksmiðjan Heimaey, Faxastíg 46, Vestmannaeyjum.

Einn verndaður vinnustaður er á Austurlandi:
Stólpi, Lyngási 12, Egilsstöðum.

Tveir verndaðir vinnustaðir eru á Norðurlandi:
Hæfingarstöð við Skógarlund, Akureyri.
Plastiðjan Bjarg/Iðjulundur, Dalsbraut 1, Akureyri

Einn verndaður vinnustaður er á Vesturlandi:
Fjöliðjan, vinnu- og hæfingarstaður, Dalbraut 10–12, Akranesi.

     2.      Fá verndaðir vinnustaðir fjárveitingar til að finna og þróa ný verkefni? Ef ekki, hyggst ráðherra beita sér fyrir því?
    Verndaðir vinnustaðir fá ásamt öðrum þeim sem vinna að atvinnumálum fatlaðra samkvæmt reglugerð um atvinnumál fatlaðra, nr. 376/1996, fjárveitingar til rekstrar frá svæðisskrifstofum eða með beinum hætti með þjónustusamningum. Innan ramma þeirra fjárveitinga sem forstöðumenn viðkomandi starfseininga fá er gert ráð fyrir því að til falli allur sá kostnaður sem hlýst af starfseminni. Forstöðumenn bera jafnframt á því ábyrgð að verkefni séu ávallt við hæfi og leiti þeirra séu þau ekki til staðar. Almennt hafa forstöðumenn sýnt sérstaka atorku og hugmyndaflug í leit að verkefnum og má því segja að þróun verkefna hafi mjög oft verið í samræmi við þarfir notenda á hverjum tíma. Þess ber einnig að geta í þessu sambandi að hafin er vinna meðal Samtaka um vinnu og verkþjálfun (SVV) um samstarf sem hefur það að markmiði að styrkja enn frekar þróun og verkefnaleit í samstarfi þessara vinnustaða. Loks má geta þess að nokkur þróunarverkefni um verkefni og verkefnaleit hafa átt sér stað milli starfseininga í samráði og samvinnu við hinar ýmsu svæðisskrifstofur.
    Ráðherra væntir þess að áframhaldandi vinna við þróun og nýsköpun verkefna á þessu sviði skili enn meiri fjölbreytileika varðandi verndaða vinnu.