Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 879. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1787  —  879. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breytingu á l. um búnaðarfræðslu, nr. 57/1999, með síðari breytingum.

Frá 2. minni hluta landbúnaðarnefndar (JBjarn).



     1.      1. gr. orðist svo:
                  Lög þessi taka til menntastofnana landbúnaðarins sem eru Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri og Hólaskóli, Hólum í Hjaltadal.
     2.      Við 2. gr. Í stað orðanna „Landbúnaðarháskóla Íslands“ komi: Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
     3.      4. gr. falli brott.
     4.      Við 5. gr. Í stað orðanna „Landbúnaðarháskóli Íslands“ kemur: Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri.
     5.      6., 7. og 9. gr. falli brott.
     6.      Við 10. gr. Í stað orðanna „Landbúnaðarháskóla Íslands“ komi: Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
     7.      Við 11. gr. Í stað orðanna „Landbúnaðarháskóla Íslands“ í 1. og 2. mgr. komi: Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.
     8.      Við 12. gr. Í stað orðanna „Landbúnaðarháskóli Íslands“ komi: Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri.
     9.      Við 15. gr. Greinin falli brott.
     10.      Við 16. gr. Greinin orðist svo:
                  Í stað orðanna „Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri“ og „Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri“ í 39. gr. kemur í viðeigandi falli: Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri.
     11.      Við 17. gr. Greinin orðist svo: Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2005.
     12.      2. málsl. fyrstu málsgreinar ákvæðis til bráðabirgða orðast svo:
                  Starfsfólki framangreindra stofnana skulu boðin sambærileg störf hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.