Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 782. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1801  —  782. mál.




Nefndarálit



um frv. til ábúðarlaga.

Frá minni hluta landbúnaðarnefndar.



    Samhliða framlagningu frumvarps til ábúðarlaga var lagt fram frumvarp til jarðalaga. Nefndin hefur á fundum sínum fjallað um bæði frumvörpin.
    Með frumvarpi þessu er verið að skerða rétt ábúenda og leiguliða en styrkja rétt jarðareiganda sem í flestum tilfellum er ríkið.
    Er þetta grundvallarbreyting frá því sem gilt hefur um langt árabil um réttindi og skyldur í samskiptum leigusala og leiguliða við ábúð á jörðum. Þetta ótrygga ástand sem leiguliðar eru settir í veikir búrekstrarstöðu þeirra, skerðir lánshæfi þeirra og lánstraust til framkvæmda á jörðinni. Réttur landeiganda til að skipta út landspildum úr leigujörð er allt of sterkur. Leiguliðum er nánast gert ómögulegt að breyta búskaparháttum, svo sem að taka upp skógrækt vegna ákvæða um sterka stöðu jarðareiganda og rétt hans til eignar, t.d. á virðisauka skógarins.
    Þá má og geta þess að í lögum um prestssetur, nr. 137/1993, segir að ákvæði ábúðarlaga „taki til réttarsambands aðila eftir því sem við getur átt“. Eðlilegt er því að hafa gott samráð við stjórn prestssetrasjóðs um breytingar á ábúðarlögum en það hefur ekki verið gert.
    Að öðru leyti en því sem segir í þessu nefndaráliti er vísað til sjónarmiða sem koma fram í nefndaráliti minni hlutans um frumvarp til jarðalaga og fylgiskjala með því áliti (þskj. 1802).
    Meiri hluti landbúnaðarnefndar leggur til umfangsmiklar breytingar á frumvarpi til ábúðarlaga og frumvarpi til jarðalaga. Minni hlutinn bendir á að frumvörpin hafa verið skamman tíma til umræðu í landbúnaðarnefnd, áhrif þeirra breytinga sem frumvörpin geta haft í för með sér hafa ekki verið könnuð til hlítar og ekki hefur verið tekið tillit til athugasemda umsagnaraðila, þ.m.t. Bændasamtakanna, Þjóðkirkjunnar og margra sveitarfélaga. Á grundvelli þess leggur minni hlutinn til að málunum verði vísað til ríkisstjórnarinnar og þau unnin betur og lögð fyrir næsta reglulega þing til meðferðar. Ekkert liggur á því að endurskoða jarðalög og ábúðarlög en þeim mun mikilvægara að vanda til endurskoðunar þeirra.

Alþingi, 26. maí 2004.



Jón Bjarnason.






Prentað upp.