Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1010. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1869  —  1010. mál.




Frumvarp til laga



um breytingar á lögum um fyrirtæki á orkusviði.

Flm.: Guðlaugur Þór Þórðarson, Einar Oddur Kristjánsson,
Sigurður Kári Kristjánsson, Bjarni Benediktsson,
Birgir Ármannsson, Pétur H. Blöndal.


I. KAFLI

Breyting á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu
Reykjavíkur, nr. 139/2001, með síðari breytingum.

1. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.

II. KAFLI

Breyting á lögum um Landsvirkjun, nr. 42/1983, með síðari breytingum.

2. gr.

    Orðin „ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 2. gr. laganna falla brott.

III. KAFLI

Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Hitaveitu
Suðurnesja, nr. 10/2001, með síðari breytingum.
3. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi sem er ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 4. gr. laganna falla brott.

IV. KAFLI

Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Norðurorku,
nr. 159/2002, með síðari breytingum.

4. gr.

    Orðin „sem og iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi, ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi“ í 1. mgr. 3. gr. laganna falla brott.

V. KAFLI
Almenn ákvæði.

5. gr.

    Fyrirtækjum sem lög þessi taka til er heimilt að eiga áfram þær eignir sem keyptar hafa verið á grundvelli þeirra heimilda sem felldar eru brott í þessum lögum. Við kaup á eign í þeirra stað skal farið eftir ákvæðum gildandi laga um fjárfestingarheimildir fyrirtækjanna.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í frumvarpi þessu er lagt til að ákvæði laga um fyrirtæki á orkusviði er varða tilgang og fjárfestingarheimildir slíkra fyrirtækja verði þrengd. Heimildir fyrirtækja á orkusviði til að stunda eða taka þátt í starfsemi á ólíkum sviðum eru mjög víðar í gildandi lögum þar sem tilgangur þeirra er sagður m.a. vera „viðskipta- og fjármálastarfsemi“. Því miður hefur reynslan sýnt að ekki fer vel að orkufyrirtæki taki þátt í starfsemi sem er óskyld orkurekstri.
    Það er mismunandi á milli fyrirtækja á orkusviði hvernig þau hafa nýtt rúmar heimildir laga til reksturs og fjárfestingar. Segja má að eitt þeirra, Orkuveita Reykjavíkur, hafi gengið hættulega langt, farið út í alls óskyldan rekstur og greitt það dýru verði.
    Dæmi um fjárfestingar sem Orkuveita Reykjavíkur hefur farið út í eru rekstur net- og fjarskiptafyrirtækja, fiskeldi, risarækjueldi, hörverksmiðja og ljósmyndabanki.
    Starfssvið flestra starfandi orkufyrirtækja er þrengt samkvæmt frumvarpinu en ekki verður séð að það komi mikið að sök þar sem flest þeirra hafa haldið sig við rekstur sem samrýmist vel ákvæðum laga um rekstur þeirra eins og þau munu standa verði frumvarpið að lögum. Auk þess er fyrirtækjum heimilað skv. 5. gr. frumvarpsins að eiga áfram þær fjárfestingar sem þau hafa þegar lagt í á grundvelli gildandi laga. Við sölu slíkra eigna og endurfjárfestingar er fyrirtækjunum þó gert skylt að fylgja gildandi lögum á hverjum tíma.