Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1012. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1896 —  1012. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga um breytingu á útvarpslögum og samkeppnislögum.

Frá minni hluta allsherjarnefndar.



    Minni hlutinn telur Alþingi skylt að samþykkja lög er tryggja að þjóðaratkvæðagreiðsla geti farið fram um gildi laga nr. 48/2004 sem forseti synjaði staðfestingar 2. júní sl. Af orðalagi 26. gr. stjórnarskrárinnar má ljóst vera að Alþingi og framkvæmdarvaldinu ber að sjá til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið fari fram sem fyrst og því er nauðsynlegt að þingið afgreiði málið.
    Í umfjöllun allsherjarnefndar hefur komið skýrt fram að einu viðbrögðin sem hafin séu yfir allan vafa séu að láta þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram í samræmi við ákvæði 26. gr. stjórnarskrárinnar og láta um þá kosningu gilda einfaldar og óumdeildar kosningareglur. Undir þetta tóku allir þeir sérfræðingar sem komu fyrir nefndina.
    Önnur viðbrögð, svo sem þau að flytja frumvarp um að fella hið óstaðfesta frumvarp sem öðlast hefur lagagildi til bráðabirgða úr gildi, eru í besta falli vafa undirorpin. Sterk lögfræðileg rök hafa verið færð fyrir því að með öllu sé óheimilt að grípa inn í það ferli sem hófst með því að forseti synjaði frumvarpinu staðfestingar og sendi málið til þjóðarinnar. Nokkrir lögspekingar hafa orðað það svo að sennilega sé heimilt að fella lögin í heild úr gildi ef ekkert meira sé aðhafst. Loks hafa vissulega nokkrir lögfróðir menn haldið því fram að Alþingi sé meira og minna í sjálfsvald sett hvernig það bregst við og þannig fái frumvarp ríkisstjórnarinnar, svokallað „brellufrumvarp“, staðist. Það er þó minnihlutasjónarmið meðal þeirra sérfræðinga sem allsherjarnefnd kallaði fyrir sig.
    Afstaða minni hlutans er sú að við þessar aðstæður eigi stjórnarskráin að njóta vafans, ef svo má að orði komast, og Alþingi sé skylt að bregðast við á þann hátt sem öruggastur sé og hafinn yfir stjórnskipulegan vafa, þ.e. að láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fara fram.
    Eins og kemur fram í áliti Daggar Pálsdóttur og Hróbjarts Jónatanssonar, sem er fylgiskjal með frumvarpinu, þá verða borgararnir ekki sviptir stjórnarskrárvernduðum rétti sínum til að taka þær ákvarðanir í þjóðaratkvæðagreiðslu sem stjórnarskráin mælir fyrir um. Við umfjöllun nefndarinnar komu fram álit lögfróðra manna sem styðja enn frekar álit minni hlutans um að halda beri þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga sem forseti synjar að staðfesta og að einfaldur meiri hluti skuli ráða úrslitum. Frávikum frá fyrirmælum stjórnarskrárinnar sem ganga í þá átt að rýra vernd borgaranna ber ávallt að hafna, einkum ef gengið er á mannréttindi.
    Orðalag 26. gr. stjórnarskrárinnar er einfalt og skýrt og þar er hvorki að finna heimildir til að setja í almenn lög skilyrði um lágmarksþátttöku í atkvæðagreiðslu um gildi laga sem forseti hafnar að staðfesta né heldur heimildir til að setja þröskulda af nokkru tagi. Í frumvarpinu er þetta virt og byggt á þeirri grunnreglu að einfaldur meiri hluti þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni ráði úrslitum.
    Málið er uppbyggt á einfaldan hátt og vísar í grunninn til laga um kosningar til Alþingis og svipar þannig til laga um framboð og kjör forseta Íslands.
    Í umsögn um málið kom fram ábending um að þar sem orðið „yfirkjörstjórn“ kemur fyrir í frumvarpinu ætti e.t.v. að breyta því í fleirtölu en að athuguðu máli telur minni hlutinn réttara að hreyfa ekki við því heldur bendir á að þótt orðið sé í eintölu taki ákvæðin til allra yfirkjörstjórna í landinu.
    Minni hlutinn leggur til eina breytingu á frumvarpinu sem felur í sér að ný málsgrein bætist við 4. gr. þar sem tekið verði á því við hvaða dag skuli miða kjörskrár en í lögum um kosningar til Alþingis er miðað við fimm vikur fyrir kosningar. Lagt er til að málsgreinin verði leiðbeinandi þannig að viðmiðunardagurinn verði ekki ákveðinn þar heldur verði Hagstofu Íslands gert að ákveða viðmiðunardaginn fyrir allt landið. Viðmiðunardagurinn verði þó áður en utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst.
    Minni hlutinn leggur til að málið verði samþykkt með framangreindri breytingu sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    
Steingrímur J. Sigfússon sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 20. júlí 2004.



Guðjón A. Kristjánsson,


frsm.


Össur Skarphéðinsson.


Guðrún Ögmundsdóttir.



Ágúst Ólafur Ágústsson.