Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 31. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 31  —  31. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um aðgang allra landsmanna að GSM-farsímakerfinu.

Flm.: Jón Bjarnason.



    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að beita sér fyrir því, í krafti eignarhluta ríkisins í Landssíma Íslands, að fyrirtækið setji sér það markmið og hefjist þegar handa um að tryggja öllum landsmönnum aðgang að GSM-farsímakerfinu. Jafnframt felur Alþingi ráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til breytinga á fjarskiptalögum þess efnis að GSM-farsímakerfið verði skilgreint sem öryggis- og neyðarkerfi í byggð og á aðalþjóðvegum landsins.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var síðast flutt á 130. löggjafarþingi en varð þá eigi útrædd. Hún var send til umfjöllunar í samgöngunefnd og fékk nefndin nokkuð margar umsagnir um tillöguna. Umsagnir samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi, Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra voru afar jákvæðar svo og umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar sem í sínu erindi lögðu sérstaka áherslu á mikilvægi GSM-sambands fyrir ráðstefnuþjónustu og fundahald (sjá fylgiskjal). Tillagan er því endurflutt óbreytt ásamt fyrri greinargerð.
    Ekki þarf að deila um mikilvægi þess að fjarskipti séu traust. GSM-kerfið hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og almenningur sem og opinberir aðilar treysta á það í æ ríkari mæli. Nokkuð vantar þó upp á að kerfið nái til allra byggða landsins. Þá er það algjörlega undir símrekanda komið hversu hratt brugðist er við bilunum í kerfinu en slíkt getur haft verulega þýðingu í öryggistilliti.
    Samkeppnishæfni búsetu og atvinnulífs er mjög háð nútímafjarskiptum. Notkun GSM-farsíma hefur breiðst hratt út, einkum meðal ungs fólks og í viðskiptalífinu. Samkvæmt upplýsingum Póst- og fjarskiptastofnunar eru nú um 235 þúsund GSM-farsímanúmer í notkun hér á landi. Það að svæði í byggð séu í GSM-símasambandi er í huga fjölmargra einn af mælikvörðum á það hvort nútíminn hafi haldið þar innreið sína. GSM-símasamband er mikilvægt fyrir eflingu ferðaþjónustu og viðskipta í hinum dreifðu byggðum landsins. Ferðafólk og vegfarendur vítt og breitt um landið treysta orðið á að í byggð og á helstu þjóðvegum sé GSM-símasamband. Það er því gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið og alla íbúa þessa lands að eiga greiðan og öruggan aðgang að nútímafjarskiptum. Annað felur í sér mismunun. Gagnvart svo mikilvægri almannaþjónustu sem GSM-símafjarskipti eru orðin eiga íbúar landsins alls að búa við jafnrétti óháð búsetu hvað varðar aðgengi að þessari þjónustu. Í þessu samhengi verður jafnframt að leggja áherslu á að ekki verði slegið slöku við að efla gæði og öryggi annarrar fjarskiptaþjónustu, svo sem í almenna símkerfinu og NMT-farsímakerfinu.
    Ljóst er að talsverður kostnaður fylgir því að tryggja landsmönnum aðgang að GSM- kerfinu í allri byggð og á aðalþjóðvegum, og víða verður það ekki rekið á viðskiptagrunni frekar en mörg önnur almannaþjónusta. Því er nauðsynlegt og eðlilegt að gera þá kröfu að ríkisvaldið tryggi öllum íbúum þjóðarinnar jafnt aðgengi að þessari þjónustu.
    Unnt er að tryggja hámarksöryggi og útbreiðslu GSM-farsímakerfisins með ýmsum hætti. Nærtækast er að fela Landssíma Íslands, sem er að nær öllu leyti í eigu þjóðarinnar, að ráðast í verkið. Með því einu að lækka arðsemiskröfuna sem gerð er til fyrirtækisins má ná markmiðinu án þess að veita til þess fé úr ríkissjóði. Hvað varðar aðra hluthafa í félaginu þarf að vera tryggt að þeir eigi innlausnarrétt á hendur ríkinu á sínum hlutum.
    Hugnist mönnum ekki sú leið sem að framan greinir má tryggja útbreiðslu kerfisins með alþjónustukvöðum, en slíkar kvaðir falla að uppbyggingu þeirra fjarskiptalaga sem nú eru í gildi. Yrði sú leið farin hlýtur að teljast eðlilegt að fela Landssímanum að sjá um að uppfylla slíkar kvaðir, enda rekur fyrirtækið stærstan hluta þess fjarskiptakerfis sem fyrir er í landinu.
    Skilgreining GSM-farsímakerfisins sem öryggis- og neyðarkerfis í fjarskiptalögum leiðir til þess að tryggja verður þjónustuna.



Fylgiskjal.

Samtök ferðaþjónustunnar:


Umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgang
allra landsmanna að GSM-farsímakerfinu.

(23. febrúar 2004.)


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.