Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 78. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 78  —  78. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um atvinnuleysi.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hver er meginskýring þess að 75% allra atvinnulausra eru á höfuðborgarsvæðinu og að atvinnuleysi kvenna er nær tvöfalt meira en karla og hvernig ætlar ráðherra að bregðast við því?
     2.      Hvað hyggst ríkisstjórnin gera til að snúa við þeirri öfugþróun að 4–6 þúsund manns séu að jafnaði á atvinnuleysisskrá?