Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 93. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 93  —  93. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um breytingar á húsnæðismarkaði.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hve margir hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði síðan 23. ágúst þegar KB-banki kynnti ný húsnæðislán? Um hvaða fjárhæðir er að ræða og hvernig skiptist uppgreiðslan milli lánaflokka?
     2.      Hvaða breytingar hafa orðið á hlutdeild Íbúðalánasjóðs í nýjum lánveitingum með aukinni samkeppni við bankana og hvernig má ætla að þróunin verði á þessu og næsta ári?
     3.      Að hve miklu leyti ná tilboð banka og sparisjóða um lægstu vaxtakjör húsnæðislána og ótakmarkaðar lánsfjárhæðir (miðað við tilskilin veðmörk) til landsbyggðarinnar að mati Íbúðalánasjóðs og hvaða áhrif hefði það á húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni ef lánveitingar Íbúðalánasjóðs legðust af?



Skriflegt svar óskast.