Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 131. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 131 — 131. mál.
til viðskiptaráðherra um álag á Samkeppnisstofnun.
1. Hve mörg mál hafa beðið úrlausnar hjá Samkeppnisstofnun árlega sl. fimm ár og hver hefur meðalbiðtími eftir afgreiðslu verið á þessum árum?
2. Hvaða áhrif hefur það haft að Samkeppnisstofnun tók upp formlega forgangsröðun mála árið 2003?
3. Hve mörg mál hefur Samkeppnisstofnun tekið upp að eigin frumkvæði árlega sl. fimm ár og í hve mörgum málum á þessum tíma sem varða samkeppnishindranir hefur stofnunin talið sig hafa þurft að hafa frumkvæði að rannsókn?
4. Hve mikið fé telur Samkeppnisstofnun sig þurfa annars vegar til að geta með eðlilegum hætti afgreitt þau mál sem henni berast og hins vegar til að geta haft frumkvæði að rannsókn á málum sem varða alvarlegar samkeppnishindranir?
5. Hver er skoðun ráðherra á þeirri hugmynd að eftirlitsskyldir aðilar greiði að hluta eða öllu leyti kostnaðinn við samkeppniseftirlitið eða tiltekna þætti þess?
Skriflegt svar óskast.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 131 — 131. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um álag á Samkeppnisstofnun.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.