Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 132. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 132  —  132. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um gjaldskrá leikskóla.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Er ráðherra þeirrar skoðunar að giftir foreldrar og foreldrar í sambúð standi undir niðurgreiðslum til þeirra sem greiða lægri leikskólagjöld og um sé að ræða ólögmæta gjaldtöku?
     2.      Er ráðherra sammála þeim sjónarmiðum að gjaldskráin verði leiðrétt og sama gjald verði fyrir öll börn, en niðurgreiðslan komi af skattfé?
     3.      Er sambærilegur mismunur hjá stærstu sveitarfélögum á gjaldskrá eftir tekju- eða hjúskaparstöðu? Ef svo er ekki, er óskað samanburðar á gjaldskrám stærstu sveitarfélaganna.
     4.      Hversu mikil er niðurgreiðsla leikskólagjalda árlega, annars vegar fyrir þá sem njóta hennar og hins vegar miðað við útgjöld stærstu sveitarfélaganna?


Skriflegt svar óskast.