Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 141. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 141  —  141. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um rekstur sláturhúss í Búðardal.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvernig samræmist það stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum og eflingu atvinnulífs í Dalabyggð og nærsveitum að láta loka sláturhúsinu í Búðardal?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir aðgerðum sem stuðla munu að áframhaldandi rekstri sláturhúss og kjötvinnslu í Búðardal?