Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 193. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 193  —  193. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um starfrækslu fastanefndar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Íslandi.

Flm.: Ágúst Ólafur Ágústsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir,
Katrín Júlíusdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir.


    Alþingi ályktar að fela utanríkisráðherra að óska eftir við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að skrifstofa fastanefndar framkvæmdastjórnarinnar gagnvart Íslandi verði færð til Íslands í þeim tilgangi að efla tengsl Íslands við Evrópusambandið og skilning þess á íslenskum aðstæðum og samfélagi.

Greinargerð.


    Fastanefndir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) eru fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart viðkomandi ríki og starfa sem sendiráð ESB. Fastanefndirnar eru starfræktar í tæplega 130 ríkjum og alþjóðastofnunum. Meðal helstu verkefna þeirra er að veita upplýsingar um starfsemi og stefnumál sambandsins og miðla upplýsingum til ESB varðandi samstarf þeirra ríkja þar sem þær eru. Fastanefndirnar hafa einnig það hlutverk að liðka fyrir samstarfi einstakra ríkja og Evrópusambandsins.
    Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi var komið á fót árið 1987 og er staðsett í Ósló. Hjá fastanefndinni starfa að jafnaði 20 einstaklingar, þar af aðeins einn íslenskur starfsmaður. Núverandi yfirmaður fastanefndarinnar er Percy Westerlund sendiherra sem tók við embættisbréfi sínu í júní 2004. Hulda Herjólfsdóttir Skogland, MA í stjórnmálafræði, sér um málefni Íslands en að jafnaði er að auki hjá fastanefndinni einn íslenskur háskólanemi í starfsþjálfun.
    Fastanefndin starfar því bæði gagnvart Noregi og Íslandi. Ísland er eitt af fáum Evrópuríkjum sem ekki hefur fastanefnd með starfsstöð innan landamæra sinna. Ísland starfrækir hins vegar sendiráð í Brussel og eru því hefðbundnar gagnkvæmisskuldbindingar virtar hvað Ísland varðar.
    Burt séð frá hugsanlegri aðild Íslands að ESB er alveg ljóst að það mundi þjóna hagsmunum Ísland ef fastanefnd ESB gagnvart Íslandi væri hér á landi en ekki í Noregi. Með því fengju fulltrúar ESB meiri nálægð við íslenskt samfélag og íslenska hagsmuni. Slíkt eykur skilning sambandsins á íslenskum aðstæðum.
    Stærstur hluti milliríkjaverslunar Íslands er við ríki ESB og á alþjóðavettvangi er samstarfið einnig mikið. Þá er margs konar náið samstarf á milli Íslands og ríkja ESB og má þar nefna EES-samninginn og Schengen-samstarfið. Það skiptir því miklu máli að samband Íslands við ESB sé sem best.
    Þótt ákvörðun um staðsetningu fastanefnda ESB liggi hjá sambandinu og framkvæmdastjórn þess er alveg ljóst að áhugi og þrýstingur íslenskra stjórnvalda á að fastanefnd verði starfrækt hérlendis skiptir miklu máli. Flutningsmenn telja því að utanríkisráðherra beri að taka þetta mál upp gagnvart Evrópusambandinu og beita sér fyrir starfrækslu slíkrar fastanefndar hér á landi.