Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 194. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 194  —  194. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Flm.: Steingrímur J. Sigfússon, Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir,
Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson.


1. gr.

    Í stað „13,03%“ í 1. mgr. 23. gr. laganna kemur: 14,03%.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2005.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta felur í sér þá einföldu breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga að rýmka heimildir þeirra til álagningar útsvars um eitt prósentustig, þ.e. úr 13,03% í 14,03% af tekjuskattsstofni eins og hann er skilgreindur í viðeigandi ákvæðum laga um tekjuskatt og eignarskatt, nr. 90/2003. Frumvarpið er flutt í beinum tengslum við boðuð áform ríkisstjórnarinnar um að lækka álagningu tekjuskatts um sama hundraðshluta, þ.e. eitt prósentustig um næstu áramót. Samanlagt álagningarhlutfall tekjuskatts og hámarks útsvarsheimildar mun því haldast óbreytt nái frumvarpið fram að ganga og vera 38,78%. Hvergi yrði því um skattahækkun að ræða en lækkunin réðist af því í hve miklum mæli sveitarfélögin nýttu sér aukið svigrúm til útsvarshækkunar á móti lækkun á tekjuskatti til ríkissjóðs.
    Það er skoðun flutningsmanna að ekki verði undan því vikist að grípa til ráðstafana til að bæta stöðu sveitarfélaganna. Afkoma þeirra, sem vissulega er mismunandi, er í það heila tekið óviðunandi og hefur verið svo lengi. Þannig hafa sveitarfélögin sem heild verið gerð upp með halla og safnað skuldum nokkurn veginn samfellt í einn og hálfan áratug. Teljist ríkissjóður aflögufær um skatttekjur, sem vissulega má deila um, hlýtur því að vera nærtækast að færa þær tekjur a.m.k. að einhverjum hluta yfir til sveitarfélaganna. Á sveitarfélögunum standa miklar og vaxandi kröfur um þjónustu, þau hafa tekið við ýmsum nýjum verkefnum og fengið á herðar sínar nýjar skyldur, svo sem á sviði umhverfismála sem snerta eftirlit og leyfisveitingar svo dæmi sé tekið, sem ekki hafa fylgt auknir tekjumöguleikar. Í samskiptum við ríkisvaldið virðist sífellt sækja í það far að það halli á sveitarfélögin. Með yfirtöku kostnaðarsamra málaflokka hafa sveitarfélögin, hvað sem líður deilum um fullnægjandi tekjustofna á móti, óumdeilanlega fengið með í kaupunum miklar væntingar um úrbætur og aukin útgjöld, eins og sannast í tilviki grunnskólans. Í ýmsum samstarfsverkefnum hallar á sveitarfélögin með því að ríkið bindur kostnaðarþátttöku sína við framlög á fjárlögum sem oftar en ekki hrökkva hvergi nærri fyrir því kostnaðarhlutfalli sem ríkinu er að nafninu til ætlað að standa straum af. Dæmi um þetta eru húsaleigubætur og eyðing refa og minka. Svipaða sögu er einnig að segja af ákveðnum stofnkostnaðarverkefnum þar sem ætlunin er að ríki og sveitarfélög deili kostnaðinum. Óraunhæf kostnaðarviðmið eða norm valda því að ríkið leggur iðulega minna af mörkum hlutfallslega að lokum en ætlunin er, jafnvel samkvæmt lögbundnu kostnaðarhlutfalli. Loks er þess að geta að sveitarfélögin hafa orðið fyrir tekjutapi vegna ákvarðana um mál, óskyld þeim, svo sem um hagstæðara skattalegt umhverfi einkahlutafélaga sem leitt hefur til mikillar fjölgunar þeirra og tekjutaps sveitarfélaganna í formi minni útsvarstekna á móti sem talið er nema milljarði króna eða liðlega það.
    Svigrúm sveitarfélaganna til sjálfstæðra ákvarðana í uppbyggingu og rekstri og til umbóta, t.d. í félags- og umhverfismálum eða til að hlúa að nýsköpun í almennu atvinnulífi, er afar takmarkað eins og að líkum lætur í ljósi bágrar fjárhagsstöðu þeirra upp til hópa. Tilvist sveitarfélaganna einkennist af varnarbaráttu og sóknarfæri verða fá. Slíkt er óviðunandi því auðvitað þurfa sveitarfélögin að geta þróað og byggt upp þjónustu sína og tekið skref fram á við til eflingar velferðarsamfélagsins sem þau leggja ekki síst grunn að. Sem dæmi um slík verkefni má nefna það baráttumál Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að leikskóladvöl verði gerð gjaldfrjáls með sérstöku samstarfsverkefni sveitarfélaganna og ríkisins, en flutningsmenn þessa frumvarps flytja jafnframt um það tillögu á yfirstandandi þingi. Sama gildir um möguleika þeirra til að bæta kjör starfsmanna sinna og koma til móts við kröfur um launahækkanir, þó réttmætar og nauðsynlegar séu til að sveitarfélögin geti verið samkeppnisfær um hæft starfsfólk. Sú spennitreyja sem sveitarfélögin eru í að þessu leyti kristallast í yfirstandandi kennaradeilu. Alvarlegast er þó auðvitað að áframhaldandi fjárhagsvandi sveitarfélaganna grefur almennt séð undan þeirri mikilvægu nærþjónustu og þeim umhverfis- og velferðarverkefnum sem sveitarfélögin hafa með höndum. Þannig veikjast undirstöður velferðarsamfélagsins og sveitarstjórnir sjá sig jafnvel knúnar til óyndisúrræða eins og að selja eignir og láta af hendi aðstöðu sem þó er ómissandi fyrir undirstöðu samfélagsþjónustu á þeirra vegum.
    Tekjutap ríkissjóðs vegna áformaðrar eins prósentustigs lækkunar tekjuskatts er nálægt fimm milljörðum kr. brúttó en fjórum milljörðum kr. nettó. Sé heimild sveitarfélaganna til hækkunar útsvars aukin að sama skapi og fari úr 13,03% í 14,03%, þá gæfi það sveitarfélögunum svigrúm af sömu stærðargráðu til að auka útsvarstekjur sínar, sbr. fylgiskjal I. Það ber þó að taka skýrt fram í þessu sambandi að ónotaðar eru hjá sveitarfélögunum heimildir til álagningar útsvars sem nema rúmlega milljarði króna og með öllu er óvíst í hve ríkum mæli þau sveitarfélög sem eiga ónýttar heimildir fyrir mundu nýta sér aukið svigrúm. Einnig er ekki víst að öll sveitarfélög sem fullnýta heimildir sínar nú mundu nota sér aukið svigrúm til útsvarsinnheimtu, a.m.k. ekki þegar í stað. Hér ber einnig að leggja áherslu á mismunandi stöðu sveitarfélaganna, samspil eigin tekna þeirra og úthlutunar úr jöfnunarsjóði og fleira sem máli skiptir. Því fer fjarri að flutningsmenn telji þá ráðstöfun sem frumvarpið gengur út á einhverja allsherjarlausn. Æskilegast væri að breytingar af þessu tagi væru liður í heildarendurskoðun á tekjulegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga sem nauðsynlega þarf að fara fram og er forsenda þess að hægt sé í framhaldinu að ráðast í áfanga til eflingar sveitarstjórnarstiginu. Auknar heimildir til innheimtu útsvars væru þó skref í rétta átt fyrir sveitarfélögin. Þær mundu auka nokkuð svigrúm þeirra og sjálfstæði hvað varðar tekjuöflun og ef slíkri aðgerð yrði fylgt eftir með breytingum á úthlutunarreglum jöfnunarsjóðs, þannig að framlög sjóðsins nýtist til enn frekari tekjujöfnunar og jöfnunar á aðstöðu sveitarfélaganna, þá gæti það orðið til umtalsverðra bóta.



Fylgiskjal I.


Samband íslenskra sveitarfélaga:


Útsvarstekjur sveitarfélaga.

Útsvarsstofn v. launa 2003 (m.v. stöðuna 15. sept sl.) 489.848.589.191
Núverandi nýting 12,80% 62.700.619.416
Fullnýting heimildar 13,03% 63.827.271.172
Mismunur 1.126.651.755
Hækkun og fullnýting hennar 14,03% 68.725.757.063
Mismunur m.v. núverandi nýtingu (12,80%) 6.025.137.647
Mismunur m.v. hækkun úr 13,03% í 14,03% 4.898.485.892




Svnr.

Sveitarfélag
Útsvar
2003
Útsvar
2004

Breyting
Hækkun
pr.stig
Hám.
13,03%
Lágm.
11,24%
Útsvarsstofn des.v/launa 2002 Vægi svfél.
í stofni
0000 Reykjavíkurborg 12,70% 12,70% 186.630.657.048 0,41032767479 0,0521116147
1000 Kópavogsbær 12,70% 12,94% 12,94% 0,13 41.467.384.551 0,09117052874 0,011797466
1100 Seltjarnarneskaupstaður 12,46% 12,46% 8.698.501.630 0,0191245962 0,002382925
1300 Garðabær 12,46% 12,46% 16.159.194.608 0,0355277362 0,004426756
1400 Hafnarfjarðarkaupstaður 13,03% 13,03% 1 32.102.189.473 0,0705801339 0,009196591
1603 Bessastaðahreppur 13,03% 13,03% 1 2.844.461.659 0,006253856 0,00081488
1604 Mosfellsbær 12,94% 12,94% 9.874.240.231 0,0217095846 0,00280922
1606 Kjósarhreppur 13,03% 13,03% 1 190.816.915 0,00041953 0,0000547
2000 Reykjanesbær 12,70% 12,70% 16.566.025.376 0,0364221976 0,004625619
2300 Grindavíkurkaupstaður 13,03% 13,03% 1 3.627.749.506 0,007975999 0,001039273
2503 Sandgerðisbær 12,60% 12,70% Hækkun 0,10 1.948.758.930 0,004284557 0,00054414
2504 Gerðahreppur 12,70% 12,70% 1.768.882.052 0,003889078 0,00049391
2506 Vatnsleysustrandarhreppur 13,03% 13,03% 1 1.168.923.666 0,002570005 0,00033487
3000 Akraneskaupstaður 13,03% 13,03% 1 8.753.167.725 0,0192447855 0,002507596
3501 Hvalfjarðarstrandarhreppur 11,24% 11,24% 1 234.955.316 0,00051657 0,0000581
3502 Skilmannahreppur 11,24% 11,24% 1 197.184.591 0,00043353 0,0000487
3503 Innri-Akraneshreppur 12,50% 12,85% Hækkun 0,35 179.575.654 0,00039482 0,0000507
3504 Leirár- og Melahreppur 13,00% 13,03% Hækkun 0,03 1 138.195.555 0,00030384 0,0000396
3506 Skorradalshreppur 11,24% 11,24% 1 74.346.972 0,00016346 0,0000184
3510 Borgarfjarðarsveit 13,03% 13,03% 1 793.521.486 0,001744643 0,00022733
3601 Hvítársíðuhreppur 13,03% 13,03% 1 74.051.665 0,00016281 0,0000212
3609 Borgarbyggð 13,03% 13,03% 1 3.310.753.755 0,00727905 0,00094846
3701 Kolbeinsstaðahreppur 12,20% 12,20% 85.748.238 0,00018853 0,000023
3709 Grundarfjarðarbær 13,03% 13,03% 1 1.331.404.925 0,002927238 0,00038142
3710 Helgafellssveit 11,99% 11,24% Lækkun –0,75 1 68.362.125 0,0001503 0,0000169
3711 Stykkishólmsbær 13,03% 13,03% 1 1.839.031.791 0,00404331 0,00052684
3713 Eyja- og Miklaholtshreppur 12,70% 12,70% 144.409.480 0,0003175 0,0000403
3714 Snæfellsbær 13,03% 13,03% 1 2.734.074.261 0,006011158 0,00078325
3809 Saurbæjarhreppur 13,03% 13,03% 1 89.720.904 0,00019726 0,0000257
3811 Dalabyggð 13,00% 13,00% 824.633.904 0,001813047 0,0002357
4100 Bolungarvíkurkaupstaður 13,03% 13,03% 1 1.478.943.293 0,003251617 0,00042369
4200 Ísafjarðarbær 13,03% 13,03% 1 6.237.594.627 0,0137140261 0,001786938
4502 Reykhólahreppur 13,03% 13,03% 1 385.927.124 0,0008485 0,00011056



Svnr.

Sveitarfélag
Útsvar
2003
Útsvar
2004

Breyting
Hækkun
pr.stig
Hám.
13,03%
Lágm.
11,24%
Útsvarsstofn des.v/launa 2002 Vægi svfél.
í stofni
4604 Tálknafjarðarhreppur 12,99% 12,99% 496.122.507 0,001090779 0,00014169
4607 Vesturbyggð 13,03% 13,03% 1 1.620.379.786 0,00356258 0,0004642
4803 Súðavíkurhreppur 13,03% 13,03% 1 371.374.918 0,00081651 0,00010639
4901 Árneshreppur 13,03% 13,03% 1 68.463.360 0,00015052 0,0000196
4902 Kaldrananeshreppur 13,03% 13,03% 1 191.051.411 0,00042005 0,0000547
4908 Bæjarhreppur 12,30% 12,30% 121.718.335 0,00026761 0,0000329
4909 Broddaneshreppur 12,70% 12,70% 72.903.870 0,00016029 0,0000204
4910 Hólmavík/Kirkjubólshr. 13,03% 13,03% 1 655.928.514 0,00144213 0,00018791
5000 Siglufjarðarkaupstaður 13,03% 13,03% 1 2.246.837.048 0,004939914 0,00064367
5200 Sveitarfélagið Skagafjörður 13,03% 13,03% 1 5.716.841.972 0,0125690951 0,001637753
5508 Húnaþing vestra 13,03% 13,03% 1 1.515.054.140 0,00333101 0,00043403
5601 Áshreppur 12,45% 12,45% 75.741.973 0,00016653 0,0000207
5602 Sveinsstaðahreppur 12,41% 12,41% 97.213.036 0,00021373 0,0000265
5603 Torfalækjarhreppur 12,80% 12,80% 117.744.207 0,00025887 0,0000331
5604 Blönduósbær 13,03% 13,03% 1 1.323.769.216 0,00291045 0,00037923
5605 Svínavatnshreppur 12,20% 12,20% 153.793.164 0,00033813 0,0000413
5606 Bólstaðarhlíðarhreppur 12,75% 12,75% 94.577.685 0,00020794 0,0000265
5609 Höfðahreppur 13,03% 13,03% 1 1.004.575.197 0,002208667 0,00028779
5611 Skagabyggð 12,40% 12,40% 84.511.809 0,00018581 0,000023
5706 Akrahreppur 13,03% 13,03% 1 233.604.881 0,00051361 0,0000669
6000 Akureyrarkaupstaður 13,03% 13,03% 1 23.282.176.845 0,0511883827 0,006669846
6100 Húsavíkurbær 13,03% 13,03% 1 3.533.677.828 0,007769173 0,001012323
6200 Ólafsfjarðarkaupstaður 13,03% 13,03% 1 1.871.861.371 0,00411549 0,00053625
6400 Dalvíkurbyggð 13,03% 13,03% 1 2.893.655.113 0,006362014 0,00082897
6501 Grímseyjarhreppur 13,03% 13,03% 1 187.493.985 0,00041223 0,0000537
6504 Hríseyjarhreppur 13,03% 13,03% 1 260.766.488 0,00057332 0,0000747
6506 Arnarneshreppur 12,70% 13,00% Hækkun 0,30 248.025.974 0,00054531 0,0000709
6513 Eyjafjarðarsveit 12,70% 13,03% Hækkun 0,33 1 1.237.409.249 0,002720578 0,00035449
6514 Hörgárbyggð 12,80% 12,80% 454.360.478 0,00099896 0,00012787
6601 Svalbarðsstrandarhreppur 12,85% 12,85% 502.730.799 0,001105308 0,00014203
6602 Grýtubakkahreppur 13,03% 13,03% 1 626.319.691 0,001377032 0,00017943
6607 Skútustaðahreppur 13,03% 13,03% 1 661.264.600 0,001453862 0,00018944



Svnr.

Sveitarfélag
Útsvar
2003
Útsvar
2004

Breyting
Hækkun
pr.stig
Hám.
13,03%
Lágm.
11,24%
Útsvarsstofn des.v/launa 2002 Vægi svfél.
í stofni
6609 Aðaldælahreppur 13,03% 13,03% 13,03% 0,13 1 331.043.008 0,000727834 0,000094837
6611 Tjörneshreppur 12,85% 12,85% 77.484.903 0,00017036 0,0000219
6612 Þingeyjarsveit 13,03% 13,03% 1 807.012.127 0,001774303 0,00023119
6701 Kelduneshreppur 13,03% 13,03% 1 125.139.410 0,00027513 0,0000359
6702 Öxarfjarðarhreppur 13,03% 13,03% 1 455.518.656 0,001001507 0,0001305
6705 Raufarhafnarhreppur 13,03% 13,03% 1 441.431.235 0,00097053 0,00012646
6706 Svalbarðshreppur 12,36% 12,00% Lækkun –0,36 140.622.295 0,00030917 0,0000371
6707 Þórshafnarhreppur 13,03% 13,03% 1 631.229.566 0,001387826 0,00018083
7000 Seyðisfjarðarkaupstaður 13,03% 13,03% 1 1.164.406.857 0,002560074 0,00033358
7300 Fjarðabyggð 13,03% 13,03% 1 5.321.759.972 0,0117004646 0,001524571
7501 Skeggjastaðahreppur 13,03% 13,03% 1 216.980.414 0,00047705 0,0000622
7502 Vopnafjarðarhreppur 13,03% 13,03% 1 1.158.662.676 0,002547445 0,00033193
7505 Fljótsdalshreppur 13,03% 13,03% 1 93.674.900 0,00020595 0,0000268
7506 Fellahreppur 13,03% 13,03% 1 559.971.233 0,001231157 0,00016042
7509 Borgarfjarðarhreppur 13,03% 13,03% 1 199.926.466 0,00043956 0,0000573
7512 Norður-Hérað 13,00% 13,03% Hækkun 0,03 1 291.979.476 0,00064195 0,0000836
7605 Mjóafjarðarhreppur 13,03% 13,03% 1 51.279.306 0,00011274 0,0000147
7610 Fáskrúðsfjarðarhreppur 12,70% 12,70% 85.125.536 0,00018716 0,0000238
7613 Breiðdalshreppur 13,03% 13,03% 1 346.278.739 0,00076133 0,0000992
7617 Djúpavogshreppur 13,03% 13,03% 1 697.385.997 0,001533279 0,00019979
7618 Austur-Hérað 13,03% 13,03% 1 2.813.734.200 0,006186299 0,00080607
7619 Austurbyggð 13,03% 13,03% 1 1.303.381.624 0,002865625 0,00037339
7708 Sveitarfélagið Hornafjörður 13,03% 13,03% 1 3.388.717.693 0,007450462 0,0009708
8000 Vestmannaeyjabær 13,03% 13,03% 1 7.367.965.976 0,0161992697 0,002110765
8200 Sveitarfélagið Árborg 13,03% 13,03% 1 8.931.742.630 0,0196374017 0,002558753
8508 Mýrdalshreppur 13,03% 13,03% 1 630.424.368 0,001386056 0,0001806
8509 Skaftárhreppur 13,03% 13,03% 1 626.968.178 0,001378457 0,00017961
8610 Ásahreppur 11,24% 11,24% 1 171.099.561 0,00037618 0,0000423
8613 Rangárþing eystra 12,99% 12,99% 2.006.554.413 0,004411627 0,00057307
8614 Rangárþing ytra 12,40% 12,99% Hækkun 0,59 1.908.725.859 0,00419654 0,00054513
8701 Gaulverjabæjarhreppur 12,70% 12,70% 132.250.928 0,00029077 0,0000369
8706 Hraungerðishreppur 13,03% 13,03% 1 229.457.605 0,00050449 0,0000657
8707 Villingaholtshreppur 13,03% 13,03% 1 207.916.960 0,00045713 0,0000596



Svnr.

Sveitarfélag
Útsvar
2003
Útsvar
2004

Breyting
Hækkun
pr.stig
Hám.
13,03%
Lágm.
11,24%
Útsvarsstofn des.v/launa 2002 Vægi svfél.
í stofni
8710 Hrunamannahreppur 13,03% 13,03% 1 809.518.370 0,001779814 0,00023191
8716 Hveragerðisbær 12,99% 12,99% 2.492.936.819 0,005480991 0,00071198
8717 Ölfushreppur 12,70% 13,03% Hækkun 0,33 1 2.463.840.021 0,005417019 0,00070584
8719 Grímsnes- og Grafningshreppur 12,04% 12,04% 425.415.436 0,00093532 0,00011261
8720 Skeiða- og Gnúpverjahreppur 13,03% 13,03% 1 590.518.496 0,001298319 0,00016917
8721 Bláskógabyggð 13,03% 13,03% 1 1.089.798.311 0,002396039 0,0003122
Meðalútsvarsprósenta 12,80% 12,83% 67 5 454.833.218.706 1 12,8318%
Álagning
útsvars
Fjöldi
sveitarfélaga
Álagningar-
hlutfall
Hámark 67 13,03%
Lágmark 5 11,24%
Meðalálagning 12,83%
Fylgiskjal II.


Steingrímur J. Sigfússon
og Jón Bjarnason:


Sveitarfélögin svelt til hlýðni.
(Morgunblaðið, 29. september 2004.)


    Sveitarfélögin á Íslandi hafa lengi búið við óviðunandi afkomu og fer fjarri að það ástand sé bundið við minnstu sveitarfélögin. Taprekstur og skuldasöfnun er veruleiki sveitarfélaga af öllum stærðum og gerðum. Aukning skulda hefur að undanförnu hefur verið á bilinu 3–5 milljarðar á ári, t.d. tæpir 8 milljarðar samtals sl. tvö ár. Er það nokkuð í takt við aukningu heildarskulda sveitarfélaganna uppá um 35 milljarða samtals sl. 11 ár. Varðandi samanburð milli ára ber þó að hafa í huga að reikningsskilaaðferðum var breytt upp úr 2000.
    Þingmenn vinstri-grænna hafa ítrekað reynt að vekja athygli á þessum vanda og lagt til úrbætur í þeim efnum, því miður með litlum árangri. Gætt hefur ótrúlegs tómlætis um afkomu sveitarfélaganna, ekki síst í ljósi þess að á undanförnum árum hafa veigamiklir velferðarmálaflokkar færst þangað.

Lengt í hengingarólinni.
    Í stað aðgerða hefur gætt tilhneigingar af hálfu ríkisvaldsins til að hvetja menn til að lengja í hengingarólinni með sölu eigna. Enginn vafi er á því að um meðvitaða pólitík er að ræða. Einkavæðingarsinnar líta til þess með velþóknun að sveitarfélögin sjái iðulega engin önnur úrræði en að selja verðmætar félagslegar eignir sem þó eru sveitarfélaginu bráðnauðsynlegar til að veita undirstöðuþjónustu. Þetta lagar bókhaldið tímabundið en verður svo dýrara og þar með staðan verri til lengri tíma litið.
    Við nýjar framkvæmdir eru aðstæður yfirleitt þannig að aðeins er um tvennt að ræða; viðbótarlántöku til að fjármagna fjárfestingarnar eða semja um að þær fari fram í svokallaðri einkaframkvæmd. Þ.e. að einkaaðili byggi, reki og jafnvel eigi um aldur og ævi viðkomandi eign og sveitarfélagið borgi síðan árlega leigu. Yfirgnæfandi líkur eru á því að einkaframkvæmd reynist dýrari leið þegar upp er staðið. Fyrir því er sú einfalda meginástæða að í einkarekstrinum ætla menn sér arð sem þeir taka út árlega. Ekki er þó síður alvarlegt að þessi aðferð bindur sveitarfélagið á klafa langtímasamninga sem hafa að lokum í för með sér aukinn kostnað og geta einnig kostað erfiðleika við að ná fram ýmsum félagslegum og faglegum markmiðum.
    Fyrir nokkru áttu sveitarfélög á Vestfjörðum í miklum erfiðleikum. Þá datt ríkisstjórninni það snjallræði í hug að kaupa af þeim verðmætustu sameiginlegu eign þeirra, Orkubú Vestfjarða, vel rekna og þarfa stofnun sem sá Vestfirðingum fyrir rafmagni á hagstæðu verði. Í batnandi og sterkum fjárhag Orkubúsins gátu verið fólgnir miklir framtíðarmöguleikar fyrir Vestfirðinga. Þeir urðu engu að síður að sjá á eftir þessu gulleggi sínu til að fleyta sér áfram. Svipuðu máli gegnir víðar. Má nú síðast nefna Vestmannaeyinga sem fyrir stuttu seldu veitur sínar og eru nú lagðir af stað í aðra umferð eignasölu, þ.e. sölu fasteigna bæjarins til utanaðkomandi eignarhaldsfélags. Ekki höfum við þá trú að það sé einlægur vilji forsvarsmanna Vestmannaeyjakaupstaðar heldur þvert á móti að neyðin hrekji menn út í aðgerðir af þessu tagi. Það er umhugsunarefni að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaganna skuli taka slíkar aðgerðir góðar og gildar. Er opinberri eftirlitsnefnd stætt á því að leggja slík skammtímasjónarmið til grundvallar starfi sínu? Hvernig réttlætir nefndin það að leggja blessun sína yfir aðgerðir til meintrar lausnar á fjárhagsvanda sveitarfélaga sem þýða að eftir 15–20 ár, jafnvel fyrr, verður afkoman að öðru óbreyttu enn þá verri en ella?

Pólitíkin undir yfir og allt um kring.
    Ofan í fyrrgreindar aðstæður er nú farin í gang opinber áætlun um stórfellda sameiningu sveitarfélaganna. Nátengd eru áform um að færa yfir til þeirra enn aukin og mjög útgjaldafrek verkefni, s.s. á sviði heilbrigðismála og umönnunar aldraðra. Minna heyrist af þeim tekjum sem sveitarfélögin eiga að fá til að mæta hinum nýju verkefnum. Minnst hefur þó heyrst af aðgerðum til að lagfæra núverandi stöðu þeirra sem auðvitað er brýnasta verkefnið. Furðu sætir hversu þögulir og þolinmóðir sveitarstjórnarmenn hafa verið við þessar aðstæður.
    Enginn vafi er að óviðunandi afkoma sveitarfélaganna skapar stórfellda hættu hvað snertir framtíðarhorfur samábyrgs velferðarsamfélags á Íslandi. Þá er ljóst að bág afkoma sveitarfélaganna er einn mesti Akkilesarhællinn í byggðalegu tilliti. Félagshyggjufólk og áhugafólk um jafnvægi í byggðaþróun verður að láta þessa hluti til sín taka. Skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar koma svo eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Sé ríkissjóður aflögufær um skatttekjur, sem verulega má efast um, væri þá ekki nær að þær tekjur færðust a.m.k. að verulegu leyti yfir til sveitarfélaganna til að bæta afkomu þeirra? Ætla sveitarstjórnarmenn ekki að minna á tilveru sína í tengslum við þessa skattaumræðu, eða hvað?
    Vinstrihreyfingin – grænt framboð mun hafa það eitt af sínum forgangsverkefnum á komandi þingi að knýja fram umræður og vonandi aðgerðir til úrbóta í fjármálum sveitarfélaganna. Við núverandi ástand verður ekki lengur unað.