Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 202. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 202  —  202. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um grunnlínukerfi símans.

Frá Gunnari Örlygssyni.



     1.      Hvert er talið söluandvirði grunnlínukerfis símans á markaði nú og hversu hátt hlutfall er það talið vera af söluandvirði Landssíma Íslands hf.?
     2.      Hefur verið athugað hvort gerlegt sé fyrir ríkið að selja Landssíma Íslands hf. án grunnlínukerfisins og ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar?
     3.      Hefur verið athugað hvort ríkið geti notið tekna af grunnlínukerfinu eftir aðskilnað frá Landssíma Íslands hf. og ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar?


Skriflegt svar óskast.