131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 227 — 224. mál.
Frumvarp til innheimtulaga.
Flm.: Jóhanna Sigurðardóttir, Siv Friðleifsdóttir, Ögmundur Jónasson,
Arnbjörg Sveinsdóttir, Guðjón A. Kristjánsson, Margrét Frímannsdóttir,
Dagný Jónsdóttir, Katrín Fjeldsted, Lúðvík Bergvinsson,
Kolbrún Halldórsdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson.
I. KAFLI
Gildissvið o.fl.
1. gr.
Heimildir til að annast innheimtu.
Lög þessi taka ekki til innheimtustarfa lögmanna, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 77/1998, né heldur innheimtu opinberra aðila á sköttum og gjöldum, sem þeir annast sjálfir.
2. gr.
Frávíkjanleg ákvæði.
II. KAFLI
Skilyrði til að mega stunda innheimtu.
3. gr.
Skilyrði til að mega stunda innheimtu fyrir aðra.
a. að hann hafi fengið innheimtuleyfi skv. 15. gr., sbr. 4. gr.,
b. að innheimtan sé stunduð frá fastri starfsstöð hér á landi nema annað leiði af alþjóðasamningum sem binda Ísland og
c. að starfsábyrgðartrygging skv. 14. gr. sé í gildi.
4. gr.
Veiting innheimtuleyfis.
a. er lögráða og hefur undanfarin fimm ár hvorki farið fram á eða verið í greiðslustöðvun né bú hans verið tekið til gjaldþrotaskipta,
b. hefur ekki hlotið dóm í tengslum við atvinnurekstur fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, þessum lögum eða löggjöf um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld eða þeim sérlögum sem gilda um aðila sem lúta opinberu eftirliti með fjármálastarfsemi,
c. býr yfir nægilegri þekkingu eða starfsreynslu til að geta gegnt stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt,
d. hefur lögheimili hér á landi nema annað leiði af alþjóðasamningum sem binda Ísland,
e. er ekki í vanskilum með opinber gjöld eða vörsluskatta að fjárhæð 500.000 kr. eða hærri.
Innheimtuleyfi er einnig veitt samkvæmt umsókn frá lögaðila enda fullnægi framkvæmdastjóri eða yfirmaður viðkomandi starfsemi og meiri hluti stjórnarmanna á hverjum tíma skilyrðum 1. mgr.
Leyfi má ekki veita til lengri tíma en fimm ára í senn.
5. gr.
Innheimta eigin peningakröfu.
III. KAFLI
Samband innheimtuaðila og skuldara.
6. gr.
Góðir innheimtuhættir.
7. gr.
Innheimtuviðvörun.
Í viðvörun komi fram:
a. nöfn, kennitölur og heimilisföng skuldara, kröfuhafa eða umboðsmanns hans og innheimtuaðila,
b. lýsing á kröfu,
c. fjárhæð kröfu og skal sundurliða hver sé höfuðstóll og hverjar séu viðbótarkröfur, svo sem dráttarvextir og innheimtuþóknun,
d. frá hvaða degi dráttarvextir reiknast,
e. greiðslustaður og
f. að greiðslufall skuldara geti leitt til málshöfðunar eða annarra innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga og aukins kostnaðar fyrir skuldara.
Þá telst krafa greidd ef greiðsla hefur borist banka, sparisjóði eða póstgíróstofu áður en fresturinn er liðinn eða greiðslan er sannanlega sett í ábyrgðarpóst á síðasta degi frests.
Ef hætta er á að möguleikum á fullnustu kröfu verði spillt má víkja frá ákvæðum þessarar greinar um sendingu viðvörunar.
Ef skuldari hefur sannanlega hreyft mótbárum gegn peningakröfu er heimilt að bera ágreining um réttmæti kröfunnar undir dómstóla án þess að fyrst sé gætt ákvæða þessarar greinar.
8. gr.
Umboð innheimtuaðila.
IV. KAFLI
Samband innheimtuaðila og kröfuhafa.
9. gr.
Upplýsingaskylda innheimtuaðila.
Við lok innheimtustarfs samkvæmt lögum þessum skal innheimtuaðili að beiðni kröfuhafa afhenda honum skriflegt uppgjör er sýni hvað skuldari hafi verið krafinn um, hve mikið hann hafi greitt og hvenær og hver sé krafa innheimtuaðila um þóknun fyrir vinnu og útlagðan kostnað.
10. gr.
Meðferð innheimtufjár.
Innheimtuaðili, sem stundar innheimtu fyrir aðra, skal halda innheimtufénu aðskildu frá eigin fé. Skal féð án ástæðulauss dráttar lagt á vörslufjárreikning.
V. KAFLI
Greiðsla innheimtukostnaðar og hámarksfjárhæð hans.
11. gr.
Ábyrgð skuldara á greiðslu innheimtukostnaðar.
12. gr.
Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
13. gr.
Þagnarskylda.
14. gr.
Starfsábyrgðartrygging.
Falli vátrygging eða bankaábyrgð úr gildi skal hlutaðeigandi vátryggingafélag eða ábyrgðaraðili tilkynna það vátryggingar- eða ábyrgðartaka og viðkomandi eftirlitsaðila þegar í stað. Tryggingartíma telst ekki lokið fyrr en liðnar eru átta vikur frá því að vátryggingafélagið eða ábyrgðaraðilinn tilkynnti vátryggingar- eða ábyrgðartaka og eftirlitsaðila um tryggingarslit eða niðurfellingu ábyrgðar.
15. gr.
Leyfi og eftirlit.
Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með að innheimtustarfsemi, sem lög þessi taka til, sé í samræmi við ákvæði laganna, reglur á grundvelli þeirra og eftir atvikum samþykktir hlutaðeigandi aðila. Skal eftirlitið hafa aðgang að öllum upplýsingum sem að þess mati eru nauðsynlegar vegna eftirlitsins. Telji eftirlitið að starfsemi samkvæmt lögum þessum sé stunduð án tilskilins leyfis skal það hafa sambærilegan aðgang að upplýsingum hjá viðkomandi aðilum.
Fjármálaeftirlitið getur gefið innheimtuaðilum fyrirmæli um að breyta starfsháttum sínum ef hætta er á því að þeir brjóti í bága við lög þessi. Áður en til fyrirmæla kemur getur eftirlitið lokið málinu með sátt. Hafi sátt komist á gildir hún sem fyrirmæli.
Fjármálaeftirlitið getur til bráðabirgða lagt bann við leyfisbundinni innheimtustarfsemi, ef skilyrðum 3. gr. er ekki fullnægt, eða gefið innheimtuaðila frest til að fullnægja þeim. Verði eigi úr bætt getur það varðað sviptingu innheimtuleyfis.
Fjármálaeftirlitið fer með eftirlit samkvæmt lögum þessum og lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
16. gr.
Svipting innheimtuleyfis.
a. hann hefur brotið gegn skyldum sínum samkvæmt lögum þessum eða
b. skilyrði fyrir veitingu leyfis eru ekki lengur til staðar.
17. gr.
Refsingar.
Með mál út af brotum á lögum þessum skal fara að hætti opinberra mála.
18. gr.
Reglugerðarheimild.
19. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara orðast 3. mgr. 24. gr. laga nr. 77/1998, um lögmenn, svo:
Dómsmálaráðherra skal að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands gefa út leiðbeiningar handa lögmönnum um endurgjald sem þeim sé hæfilegt að áskilja umbjóðendum sínum úr hendi skuldara vegna kostnaðar af innheimtu peningakröfu. Óheimilt er lögmönnum að nota leiðbeiningar þessar í öðrum tilgangi. Heimild ráðherra takmarkast af heimild viðskiptaráðherra til að setja reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar samkvæmt innheimtulögum.
Greinargerð.
Frumvarp sama efnis var lagt fram á 127., 128. og 130. löggjafarþingi en var ekki afgreitt úr nefnd. Þá lagði viðskiptaráðherra fram sambærilegt frumvarp á 122. og 123. löggjafarþingi. Það náði ekki fram að ganga m.a. vegna ágreinings stjórnarflokkanna um málið. Þrátt fyrir mikilvægi þess að sett verði lög um innheimtu virðast stjórnarflokkarnir ekki hafa náð að leysa þann ágreining sem er þeirra á milli um málið. Það er skoðun flutningsmanna að málið sé brýnt og því verði að leggja það fyrir Alþingi á ný.
Markmiðið með þessu frumvarpi er að settar verði ákveðnar meginreglur um innheimtu til hagsbóta fyrir neytendur, m.a. um góða innheimtuhætti. Þá er frumvarpinu ætlað að draga úr óeðlilegum kostnaði skuldara af innheimtuaðgerðum og þá fyrst og fremst á frumstigi, þ.e. áður en til innheimtu á grundvelli réttarfarslaga kemur.
Slík löggjöf er vel þekkt hjá flestum nágrannaþjóðum okkar, m.a. á Norðurlöndum. Neytendasamtökin hér á landi hafa margoft farið fram á að sett yrðu lög um innheimtu. Með réttu telja þau að staða skuldara hér á landi sé afar veik og innheimtuaðilar geti hagað sér frjálslega við gjaldtöku af þeim sem lenda í fjárhagserfiðleikum og vanskilum.
Fyrirtækjum sem sérhæfa sig í innheimtum hefur fjölgað mikið hér síðustu ár og er lögum þessum m.a. ætlað að tryggja eftirlit með starfsemi þeirra og þá ekki síður með hagsmuni kröfuhafa í huga en skuldara. Þannig eru gerðar ítarlegar hæfiskröfur til innheimtuaðila og þeim gert að gæta góðra innheimtuhátta og að hafa starfsábyrgðartryggingu í gildi.
Frumvarpið hefur tekið nokkrum breytingum milli þinga að teknu tilliti til umsagna sem borist hafa frá aðilum utan þings.
Í þessu frumvarpi er lagt til að innheimtur sem lögmenn, sem starfa á lögmannsstofum, annast verði undanskildar lögunum. Í fyrri frumvörpum hefur verið lagt til að lögin næðu til innheimtu þeirra á frumstigi jafnt sem annarra innheimtuaðila en að sérreglur giltu um eftirlit með störfum þeirra. Lög um lögmenn taka til starfa þeirra og er þar m.a. kveðið á um skyldu þeirra til að fara að siðareglum í störfum sínum, hafa í gildi starfsábyrgðartryggingu og ítarleg ákvæði um vörslu fjármuna umbjóðenda þeirra og eftirlit með störfum þeirra.
Lagt var til í frumvarpinu, sem lagt var fram á 128. löggjafarþingi, og einnig í þessu frumvarpi að lögum nr. 77/1998, um lögmenn, yrði breytt á þann veg að dómsmálaráðherra yrði gert skylt að gefa út leiðbeiningar handa lögmönnum um endurgjald sem þeim væri hæfilegt að áskilja umbjóðendum sínum úr hendi skuldara vegna kostnaðar af innheimtu peningakröfu.
Í fyrri frumvörpum hafa opinberir aðilar og bankar og sparisjóðir verið undanþegnir en flutningsmenn leggja til að sú undanþága verði nú takmörkuð við opinbera aðila og innheimtu þeirra á sköttum og gjöldum. Bankar og sparisjóðir verða, samkvæmt því sem hér er lagt til, að hafa innheimtuleyfi og falla undir kröfur laganna ef þeir innheimta eigin kröfur eða annarra í atvinnuskyni. Vel þekkist að fjármálastofnanir eigi og reki sérstök innheimtufyrirtæki og því telja flutningsmenn takmarkaðar ástæður til að undanskilja banka og sparisjóið frá ákvæðum laga þessara.
Í frumvarpinu er fremur horft til þess hver það er sem innheimtir og hvort innheimta er framkvæmd í atvinnuskyni í stað þess að í fyrri frumvörpum var horft til þess á hvaða stigi innheimta er. Má telja líklegt að með þessu aukist líkurnar á því að lögin geti fylgt hugsanlegri þróun á þessu sviði.
Flutningsmenn telja að hér sé einnig tekið skref í þá átt að bæta stöðu skuldara við innheimtu á grundvelli réttarfarslaga með tillögu þeirra um breytingu á lögum um lögmenn, en þó þurfi að huga hið fyrsta að frekari bótum á því sviði.
Eins og áður segir er frumvarp þetta byggt á eldri frumvörpum ráðherra um sama efni þar sem að hluta var stuðst við norsk innheimtulög og til hliðsjónar höfð löggjöf annarra nágrannalanda um þetta efni.
Í eldri mynd frumvarpsins var að finna nokkuð ítarleg ákvæði um hvenær og hvernig innheimtuaðili mætti snúa sér beint til skuldara, þ.e. það sem kallað var að snúa sér persónulega til skuldara. Þetta var nokkuð gagnrýnt í umsögnum með vísan til þess að slíkt ákvæði tæki einna helst til háttsemi svokallaðra „handrukkara“ sem stunduðu sína starfsemi utan lagarammans. Eðlileg tengsl innheimtuaðila og skuldara hljóti að falla undir ákvæði frumvarpsins um eðlilega innheimtuhætti. Að teknu tilliti til þessarar gagnrýni er frumvarpið nú lagt fram í breyttri mynd. Það er þó e.t.v. rétt að nefnd sem fær málið til meðferðar skoði hvort tilefni sé til að hafa slíkt ákvæði í lögum enda hafa nokkrir aðilar mælt með því, þar á meðal Neytendasamtökin sem telja slíkt ákvæði nauðsynlegt og vísa m.a. til danskra innheimtulaga.
Samkvæmt frumvarpinu munu innheimtulög skiptast í sex kafla. Ákvæði I. kafla fjalla um gildissvið o.fl. Þar kemur m.a. fram að lögin gildi með vissum undantekningum um innheimtu gjaldfallinna krafna um greiðslu peninga og að unnt sé með samningi að víkja frá sumum ákvæðum laganna. Í II. kafla er fjallað um skilyrði til að mega stunda innheimtu, m.a. innheimtuleyfi. Í III. kafla er að finna ákvæði um samband innheimtuaðila, m.a. kröfuhafa, og skuldara, um góða innheimtuhætti og innheimtuviðvörun, en í IV. kafla eru ákvæði um samband innheimtuaðila og kröfuhafa, nánar tiltekið upplýsingaskyldu innheimtuaðila og meðferð innheimtufjár. Í V. kafla eru ákvæði um greiðslu innheimtukostnaðar og hámarksfjárhæð hans, m.a. þóknunar, sem ákveða skal í reglugerð ráðherra. Í VI. kafla eru ýmis ákvæði, m.a. um starfsábyrgðartryggingu, eftirlit með framkvæmd laganna, leyfissviptingu, refsingar og almenna reglugerðarheimild.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Innheimta opinberra aðila á sköttum og gjöldum fellur ekki undir lögin. Þykir eigi þörf á slíku þar eð innheimta skatta og gjalda er lögbundin og enginn kostnaður, annar en lögbundinn vaxtakostnaður, fellur á gjaldendur nema um sé að ræða útlagðan kostnað. Innheimta slíkra krafna er þannig almennt mun kostnaðarminni en almenn kröfuinnheimta. Virðist því réttur greiðenda í þeim fjölmörgu málum, sem hér um ræðir, vera nægilega tryggður samkvæmt gildandi lögum og verklagsreglum. Tekið skal fram að innheimtur sem opinberir aðilar fela einkaaðilum, sem tíðkast m.a. varðandi ýmis gjöld fyrirtækja í eigu sveitarfélaga, eru hér ekki undanþegnar.
Innheimtur lögmanna sem starfa á lögmannsstofum undanþegnar lögunum með rökum sem þegar hafa verið rakin í greinargerð. Þá er í greininni áréttað gildissvið laganna gagnvart réttarfarslögum.
Svo sem fram kemur í 1. mgr. þarf sá innheimtuleyfi sem annast innheimtu í atvinnuskyni. Innheimta launþega á launakröfu sinni félli samkvæmt þessu ekki undir lögin, t.d. ákvæðin um sendingu innheimtuviðvörunar.
Um 2. gr.
Önnur ákvæði laganna eru ófrávíkjanleg.
Um 3. gr.
Þeir sem stunda innheimtu vegna eigin starfsemi þurfa almennt ekki innheimtuleyfi nema þeir reki innheimtuna í atvinnuskyni þannig að innheimtukostnaðar sé krafist af skuldara.
Samkvæmt c-lið nægir ekki að starfsábyrgðartrygging skv. 14. gr. sé tekin heldur þarf innheimtuaðili jafnframt að sjá til þess að hún sé ætíð í gildi.
Um 4. gr.
Lögaðilar sem slíkir geta skv. 2. mgr. fengið innheimtuleyfi enda fullnægi framkvæmdastjóri eða yfirmaður viðkomandi starfsemi og meiri hluti stjórnarmanna á hverjum tíma skilyrðum 1. mgr. um lögræði o.fl.
Þá má ekki veita innheimtuleyfi til lengri tíma en fimm ára í senn.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Hér er um vísireglu að ræða svipað og sjá má t.d. í 20. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, um góða viðskiptahætti í atvinnustarfsemi. Krafan um góða innheimtuhætti gildir bæði um samskipti innheimtuaðila við skuldara og kröfuhafa þótt kaflaheitið gangi skemmra. Í framkvæmd skiptir reglan þó væntanlega mestu máli um samskipti innheimtuaðila og skuldara. Vernd ákvæðisins getur þá náð til fjölskyldu skuldara, atvinnurekanda hans og kunningja hans. Gæta verður góðra innheimtuhátta við sérhverja ráðstöfun eða athöfn sem er þáttur í innheimtunni.
Þrátt fyrir að í greininni sé beinlínis tekið fram að það brjóti í bága við góða innheimtuhætti að beita óhæfilegum þrýstingi, ónæði á heimili, tjóni eða óþægindum er eingöngu um að ræða nánari útfærslu á meginreglunni um góða innheimtuhætti án þess að um tæmandi talningu tilvika sé að ræða.
Um samband innheimtuaðila og kröfuhafa gildir sú meginregla að innheimtuaðila ber að fylgja fyrirmælum kröfuhafans. Á innheimtuaðilanum hvílir samt sem áður sú sjálfstæða skylda að hlýðnast ekki fyrirmælum kröfuhafa ef þau fela í sér eitthvað sem stríðir gegn góðum innheimtuháttum samkvæmt lögunum eða reglugerð á grundvelli þeirra.
Innheimtuaðili ætti ekki að taka að sér innheimtu kröfu ef hann hefur fjárhagslegra hagsmuna að gæta sem gætu farið í bága við hagsmuni kröfuhafans.
Sé aftur vikið að skiptum innheimtuaðila og skuldara gildir sú regla að innheimtuaðili á ekki að gefa skuldara rangar eða villandi upplýsingar um staðreyndir eða réttarreglur sem eru mikilvægar fyrir afstöðu hans til kröfunnar.
Það getur brotið gegn góðum viðskiptaháttum ef beitt er hótunum um að veita öðrum upplýsingar um stöðu skuldara, svo sem maka, atvinnurekanda eða kunningjum. Öðruvísi stendur á þegar um er að ræða aðra sem tengdir eru málinu á einn eða annan hátt, t.d. samskuldara eða ábyrgðarmann.
Það getur talist brot á góðum innheimtuháttum að breiða út persónulegar upplýsingar um skuldara, fjölskyldu hans eða vinnuveitanda. Um skilgreiningu á hugtakinu persónulegar upplýsingar vísast til laga nr. 77/2000, um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Það getur brotið gegn góðum innheimtuháttum að hóta að birta opinberlega upplýsingar um greiðsluhæfi skuldara í frekari mæli en heimilt er að lögum.
Endanlegt úrlausnarvald um það hvað teljist góðir innheimtuhættir er að sjálfsögðu í höndum dómstóla.
Um 7. gr.
Samkvæmt 1. mgr. skal senda eina viðvörun og gefa skuldara færi á að greiða kröfu innan ákveðins frests. Hugtakið skuldari er hér notað í víðri merkingu þannig að senda þarf viðvörunina öllum þeim sem kröfuhafi eða innheimtuaðili hyggst beina innheimtuaðgerðum að, t.d. ábyrgðarmönnum. Í grein þessari er kveðið á um minnst tíu daga frest en kröfuhafi eða annar innheimtuaðili getur haft frestinn lengri. Þótt skylt sé að senda eina viðvörun er heimilt að senda fleiri viðvaranir enda sé ekki með því brotið í bága við góða innheimtuhætti. Viðbótarviðvaranir geta verið kostnaðarsamari fyrir skuldara þar eð lágmarkskostnaður á grundvelli innheimtulaga miðast við greiðslu innan frests samkvæmt skylduviðvörun. Sé skylduviðvörun virt að vettugi og lögmanni síðan t.d. falin innheimta mundi innheimtubréf hans, hverju nafni sem nefnist, í því tilviki ekki falla undir hugsanleg reglugerðarákvæði um lágmarkskostnað vegna skylduviðvörunar.
Fresturinn telst frá sendingu viðvörunar. Í þessu felst að skuldari ber hallann af seinkun í pósti og því að viðvörunin komi ekki fram enda hafi hún verið send á nægilega tryggan hátt og á heimilisfang þar sem gild ástæða er til að ætla að unnt sé að ná til skuldara. Ef kröfuhafi eða innheimtuaðili hefur ekki ástæðu til að ætla að hafa megi upp á skuldara á öðru heimilisfangi verður almennt að teljast nægilegt að senda viðvörunina á það heimilisfang sem skuldarinn gaf kröfuhafanum upp. Ef ekkert heimilisfang var gefið upp telst almennt fullnægjandi að senda hana á lögheimili samkvæmt þjóðskrá.
Ef innheimta fer fram á grundvelli réttarfarslaga gilda ekki ákvæði þessara laga. Ef ekki er hins vegar farið beint í þessar aðgerðir með sendingu greiðsluáskorunar heldur sent innheimtubréf gilda almennar reglur laganna um viðvörun.
Í 2. mgr. er tekið fram hvað skuli standa í innheimtuviðvörun. Sú breyting er gerð frá fyrra frumvarpi að á eftir orðinu kröfuhafi er bætt við orðunum „eða umboðsmanns hans“. Er með þessu tekið sérstakt tillit til innheimtu á grundvelli handhafabréfa.
Í 3. mgr. segir að krafa teljist greidd ef greiðsla hefur borist áður en settur frestur er liðinn. Nægilegt er að greiðslan berist banka, sparisjóði eða póstgíróstofu eða sé sett í ábyrgðarpóst á síðasta degi frests enda sé slíkt sannað.
Í 4. og 5. mgr. er veitt heimild til að víkja frá ákvæðum greinarinnar um sendingu innheimtuviðvörunar í sérstökum tilvikum.
Samkvæmt 4. mgr. má víkja frá ákvæðunum ef hætta er á að möguleikum á fullnustu kröfu verði spillt. Nefna má hættu á að krafan fyrnist ef mál er ekki höfðað. Undir öllum kringumstæðum verður einungis vikið frá ákvæðunum að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir hættu á að fullnustumöguleikum verði spillt. Ef unnt er að fylgja ákvæðunum án þess að hættan aukist er innheimtuaðila það skylt.
Í 5. mgr. er tekið á því ef skuldari hreyfir sannanlega mótbárum gegn peningakröfu. Þá er innheimtuaðila heimilt að hverfa frá venjulegum innheimtuaðferðum, sem ella er skylt að gæta, og bera ágreining um réttmæti kröfunnar undir dómstóla. Í slíkum tilvikum er það meginreglan að innheimtuaðili þarf ekki að taka afstöðu til þess hvort mótbáran sé studd efnislegum rökum eða aðeins tilraun skuldara til að draga að greiða kröfuna.
Kjósi aðili að senda skuldara ítrekun yrði það að teljast heimilt enda sé ekki með því í bága við regluna um góða innheimtuhætti.
Um 8. gr.
Samningar um greiðslu skulu vera skriflegir.
Um 9. gr.
Grein þessi um upplýsingaskylduna er frávíkjanleg, sbr. 2. gr.
Um 10. gr.
Í 2. mgr., sem er ekki frávíkjanleg, er kveðið á um skyldu innheimtuaðila, sem stunda innheimtu fyrir aðra, til að halda innheimtufé aðskildu frá eigin fé. Til að fullnægja þeirri kröfu þarf að leggja féð á vörslufjárreikninga þannig að það verði ekki dregið undir gjaldþrotaskipti innheimtuaðilans ef til þeirra kemur.
Nefna má í þessu sambandi að í reglugerð nr. 201/1999, um fjárvörslureikninga lögmanna o.fl., segir í 1. gr. að lögmaður, sem tekur að sér að varðveita fjármuni fyrir umbjóðendur sína, skuli halda þeim skýrt aðgreindum frá eigin nafni og jafnframt sé honum skylt að veita stjórn Lögmannafélags Íslands upplýsingar um vörslufé, svo sem nánar sé kveðið á um í reglugerðinni. Í 4. gr. segir að fjárhæð, sem samsvarar stöðu fjárvörslureiknings í bókhaldi lögmanns, skuli varðveitt á sérstökum bankareikningi/-reikningum í viðskiptabanka eða sparisjóði, fjárvörslureikningi. Fjárvörslureikning skal stofna á nafni lögmanns og hefur hann formlega ráðstöfunarheimild yfir reikningnum. Lögmaður er ekki eigandi innstæðu á reikningi samkvæmt greininni og er innstæðan ekki hæft andlag aðfarargerða hjá honum eða grundvöllur trygginga fyrir viðskiptum hans eða annarra. Reikningur þessi skal aðgreindur frá eigin fé lögmanns og stendur innstæða á honum utan skuldaraðar við skipti á búi lögmanns.
Gengið er út frá því að í almennri reglugerðarheimild ráðherra felist heimild til að setja reglur um fjárvörslureikninga.
Um 11. gr.
Um 12. gr.
Með því að setja ákvæði um hámark þóknunar má stuðla að því að kröfur á hendur skuldara, þar sem skuldari hefur ekkert val um innheimtuaðila, verði ekki strax sendar í óeðlilega dýra innheimtu á kostnað hans. Kjósi kröfuhafi að greiða umframþóknun getur hann það. Á hinn bóginn er ekki stefnt að því að skuldari komist hjá því að greiða útlagðan kostnað, sem almennt yrði án efa innan hóflegra marka, og jafnvel áætlaðan kostnað. Með kostnaði er með öðrum orðum átt við beinan og óbeinan kostnað sem leiðir af innheimtu samkvæmt innheimtulögum. Reglugerðin næði ekki fremur en lögin til aðgerða á grundvelli réttarfarslaga, t.d. þóknunar lögmanna vegna aðfarar eða nauðungaruppboðs eða opinberra gjalda í því sambandi.
Um 13. gr.
Um 14. gr.
Um 15. gr.
Þá er í 2. mgr. gert ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið hafi almennt eftirlit með innheimtustarfsemi á grundvelli laganna.
Í 3. mgr. eru ákvæði um heimild Fjármálaeftirlitsins til að gefa innheimtuaðilum, m.a. kröfuhöfum, fyrirmæli um að breyta starfsháttum sínum og jafnframt um lok máls með sátt er gildi sem fyrirmæli.
Um 16. gr.
Um 17. gr.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Lagt er til að við gildistöku laga þessara verði jafnframt gerð sú breyting á 3. mgr. 24. gr. laga nr. 77/1998, um lögmenn, að dómsmálaráðherra skuli að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands gefa út leiðbeiningar handa lögmönnum um endurgjald sem þeim sé hæfilegt að áskilja umbjóðendum sínum úr hendi skuldara vegna kostnaðar af innheimtu peningakröfu. Óbreytt lögmannalög skylda ekki dómsmálaráðherra til setningar leiðbeininganna. Sú heimild sem hann nú hefur er víðtækari en skylda viðskiptaráðherra samkvæmt lögum þessum þar sem leiðbeiningar dómsmálaráðherra eiga auk þess að ná til þess kostnaðar sem kann að leiða af innheimtuaðgerðum á grundvelli réttarfarslaga, svo fremi sem dómsmál hefur ekki verið höfðað til heimtu kröfu, og þykir því rétt að breyta heimild dómsmálaráðherra í skyldu. Skylda dómsmálaráðherra mun þó augljóslega nú takmarkast af skyldu viðskiptaráðherra til að setja reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar sem til fellur á frumstigi innheimtu samkvæmt lögum þessum.