Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 225. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 228 — 225. mál.
um friðlandið í Þjórsárverum.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað þannig að friðlandsmörkin taki mið af náttúrufari og landslagi og því verði jafnframt lýst yfir að fallið sé frá öllum virkjanaáformum á svæðinu. Einnig verði sótt um að Þjórsárver komist á heimsminjaskrá UNESCO.
Miklar deilur hafa risið vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda í Þjórsárverum. Verin voru friðlýst árið 1981 og framkvæmdir við Norðlingaöldu og veitulón austast í verunum samræmast ekki samkomulagi því sem gert var þá. Með virkjanaframkvæmdum yrði gengið á ómetanleg náttúruverðmæti en eins og fram kemur í skýrslu um 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er um að ræða verðmætasta hluta hálendisins.
Árið 1999 kom iðnaðarráðuneytið í samráði við umhverfisráðuneytið á laggirnar verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Meginhlutverk verkefnisstjórnar var að semja tillögu að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, þar sem virkjunarkostir væru flokkaðir með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, áhrifa þeirra á náttúrufar, náttúru- og menningarminjar svo og á aðra landnýtingu. Verkefnisstjórnin kom á fót fjórum faghópum sem tóku fyrir virkjanakosti á Íslandi hver frá sínu sjónarhorni, en þar var samankomið einvalalið valinkunnra fræðimanna: Faghópur I fjallaði um náttúrufar og minjar, faghópur II hafði sem verkefni útivist og hlunnindi, faghópur III bar saman virkjanir með tilliti til áhrifa þeirra á efnahag og og byggðir, faghópur IV hafði það hlutverk að greina virkjunarkosti, meta orkugetu þeirra og stofn- og rekstrarkostnað.
Niðurstöðum 1. áfanga rammaáætlunar var skilað í nóvember 2003, afrakstri fjögurra ára vinnu. Þar kemur fram að Þjórsárver eru talin verðmætasta svæði hálendis Íslands með tilliti til náttúruverðmæta en alls var lagt mat á 41 svæði (bls. 42). Norðlingaölduveita er ekki fýsilegur kostur þar sem umhverfisáhrif eru mikil og orkan ekki slík að sköpum skipti. Aðrir kostir eru vænlegri. Hins vegar er talið hlutfallslega ódýrt að ráðast í þá framkvæmd.
Með úrskurði Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, í janúar 2003 um mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu, var verulega dregið úr umfangi Norðlingaöldulóns og það var fært út fyrir friðlandsmörkin. Aftur á móti fól úrskurðurinn í sér viðbótarframkvæmdir sunnan Hofsjökuls, tvö uppistöðulón með veituskurðum til austurs. Innan Þjórsárveranefndar hafði verið samkomulag um að fara ekki út í þessa framkvæmd, sem gekk undir nafninu 6. áfangi Kvíslarveitu.
Úttektir sem gerðar hafa verið sýna að sú viðbótarframkvæmd sem felst í úrskurði setts umhverfisráðherra mun verulega spilla náttúrufari og landslagi í Þjórsárverum. Þetta kemur m.a. fram í meðfylgjandi greinargerðum þeirra Rogers Crofts og Jack D. Ives.
Í tillögum Umhverfisstofnunar að náttúruverndaráætlun 2004–2008 frá síðasta ári (2003, bls. 238–39) er lagt til að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað þannig að sem mest af gróðurlendi veranna lendi innan friðlandsmarka, sem og Þjórsárgljúfrin, þ.m.t. fossinn Dynkur, allt niður að Sultartangalóni. Í greinargerðum Crofts og Ives kemur fram að núverandi friðlandsmörk eru algjörlega ófullnægjandi og telja þeir nauðsynlegt að stækka friðlandið til mikilla muna svo svo verndun nái tilgangi sínum.
Í skýrslum Crofts og Ives er fjallað um möguleika á að koma Þjórsárverum á Heimsminjaskrá UNESCO. Þeir Crofts og Ives hafa báðir unnið með UNESCO og IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum) við að meta umsóknir um skráningu svæða á þennan virðingarlista. M.a. voru þeir umsagnaraðilar þegar Þingvellir komu til umfjöllunar. Báðir telja þeir að svæðið búi yfir þeirri sérstöðu á heimsvísu að rík ástæða sé til að kanna hvort það geti hlotið skráningu.
Fyrirhuguð Norðlingaölduveita var á sínum tíma réttlætt með því að hún væri eina framkvæmdin sem hægt væri að ljúka innan þess þrönga tímaramma sem aukin orkusala til stóriðju krafðist. Þessar forsendur eru ekki lengur fyrir hendi. Nú er ljóst að mæta má væntanlegri eftirspurn eftir orku með öðrum hætti en virkjun á vatnsvæði Þjórsárvera og því kjörið tækifæri fyrir stjórnvöld að falla frá öllum áætlunum um 6. áfanga Kvíslaveitu og taka ákvörðun um að stækka friðlandið í samræmi við náttúruverndaráætlun en þar koma fram tillögur um að færa mörk friðlandsins til samræmis við náttúrleg mörk Þjórsárvera. Sátt þarf að nást um framtíð veranna sem eru líklega verðmætasta svæðið á hálendi Íslands. Það verður ekki gert nema með því að stíga þetta skref. Með því yrði komið til móts við stóran hóp umhverfissinna og með varanlegum hætti tryggt að Þjórsárverum verði skilað óskertum til komandi kynslóða.
Fylgiskjal I.
Roger Croft,
varaformaður heimsnefndar
IUCN um verndarsvæði:
Staða Þjórsárvera.
Frá því í mars árið 1991 hafa Þjórsárver verið viðurkennd sem alþjóðlega mikilvægt votlendissvæði samkvæmt Ramsar-samningnum. Í skráningarskjali svæðisins er því lýst með eftirfarandi hætti: ,,Freðmýrar og heiðar, sundurskornar af fjölda jökul- og lindáa, svæðið er ríkt af tjörnum og vötnum og flæðiengjum sem þakin eru störum. Svæðið er umgirt eyðimörk úr eldfjallasandi. Svæðið er mikilvægasti varpstaður heiðargæsar (Anser brachyrrhynchus) á Íslandi og þar verpa um 10.000 pör.
Þjórsárver er stærsta og gróðurríkasta votlendi á hálendi Íslands. Þar er áberandi samspil vatns, landslags og gróðurs: opnir árfarvegir og sandeyrar í Þjórsá og aðliggjandi þverám, bæði jökulár og lindár, gróðurmynstur sem er dæmigert fyrir freðmýrar og barrskógabeltið, sem leiðir af sér fjölbreytt gróðurfar á flákaskiptu landi með fjölda tjarna. Svæðið er varpsvæði um 10.000 para af heiðargæsum, sem samsvarar um 4,4% af varpstofninum á Íslandi og Grænlandi.
Votlendið og náttúrufar Þjórsárvera verður ekki aðskilið mun stærra svæði. Það afmarkast af Hofsjökli og skriðjöklum hans til suðurs og austurs, sem eru Blautukvíslarjökull, Múlajökull og Þjórsárjökull. Jökulísinn þekur að hluta til öskju sem fallið hefur saman og er um 300 m djúp. Það sem eftir stendur af gígnum eru tindarnir á öskjubrúninni sem gnæfa upp úr jöklinum. Allmörg fjöll, m.a. Arnarfell, Ólafsfell og Hjartarfell, hindra framrás jökulsins til suðurs og veita fram jökulvatni eftir árfarvegum sem að lokum sameinast Þjórsá. Skriðjöklarnir eru breiðir og Múlajökull er eitt besta dæmið í heiminum um framrás jökuls á hásléttu. Þessir jöklar eru uppspretta vatnakvísla sem eru forsenda alls lífs á svæðinu, án þessa vatns og jarðefna sem í því eru, væri líffræðileg fjölbreytni svæðisins ekki sú sem hún er. Sunnar á svæðinu fellur Þjórsá í um 12 km löngu gljúfri sem býr yfir fjölda fossa, þeirra merkastir eru Dynkur og Gljúfurleitarfoss, og aðliggjandi dalverpum. Við suðurenda gljúfursins fellur Þjórsá í Sultartangalón, sem er hluti vatnsvirkjana á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Svæðið allt frá Hofsjökli að þeim stað þar sem Þjórsá fellur fram úr gljúfrunum er í alþjóðlegu samhengi afar mikilvægt bæði vegna lífríkis og þeirrar landmótunar sem það endurspeglar.
Við þetta bætist útsýnið og náttúrufegurð svæðisins sem njóta má með ýmsum hætti. Hvort sem flogið er yfir það, gengið um votlendið og vaðið yfir árkvíslar eða litið yfir svæðið frá aðliggjandi hæðum eins og Biskupaþúfu, blasir við baksviðið: íshettan, skriðjöklarnir, tindarnir, hæðir og fjöll í fjarska, vatnsmikil áin, sandeyrar, votlendi og tjarnir. Þetta samspil mótar afar fjölbreytilegt landslag, sem á sér fáa líka í heiminum og áreiðanlega hvergi á Íslandi. Síbreytileg birtan eykur enn einum þætti í þessa sérstæðu mynd.
Svæðið tengist einnig menningu aðliggjandi samfélaga bænda beggja vegna Þjórsár sem hafa lengi haft þar hefðbundar beitarnytjar á sumrin og gera enn. Árlegir fjárflutningar á afréttina og fjallferðir á haustin eru mikilvægir viðburðir í samfélaginu.
Af þessum fjölþættu ástæðum, vegna náttúrfars, fegurðar og menningar, hefur allt svæðið frá gljúfurmynninu við Sultartangalón að hátindi Hofsjökuls, mikið verndargildi sem síbreytilegt náttúrulegt vistkerfi.
Tillögur að vatnsaflsvirkjunum.
Þegar hefur verið ráðist í nokkrar virkjunarframkvæmdir á svæðinu, lítið uppistöðulón, u.þ.b. 3 ferkílómetra að stærð (Þjórsárlón), og veituskurði til Kvíslavatns [auk annarra veitumannvirkja austan Þjórsár]. Þessi mannvirki hafa áhrif á flæði vatns á suð-austurhluta svæðisins. Að öðru leyti hafa mannvirki ekki áhrif á Þjórsá þar til hún fellur í Sultartangalón.
Tillögur að vatnsaflsvirkjum í Þjórsárverum, sem lið í því að auka virkjun Þjórsársvæðisins, hafa verið til umfjöllunar í mörg ár. Eldri tillaga, sem fól í sér 1,115 m langa stíflu og 29 ferkílómetra stórt lón, fékkst ekki samþykkt. Umfangsminni framkvæmdir eru nú til umfjöllunar í kjölfar mats á umhverfisáhrifum sem lauk í janúar 2003, þar sem fyrri tillögu var hafnað. Nýja tillagan felur í sér tvö lón efst í Þjórsá, þ.e. Arnarfellslón (0,3 km að stærð, stundum nefnt Þjórsárjökulslón) og Vesturkvíslarlón (4 ferkílómetrar að stærð), til viðbótar við núverandi Þjórsárlón og veituskurði til austurs. Þessi framkvæmd leiðir til þess að minna fellur til af vatni og jarðefnum í vatnsbúskap Þjórsár. Lengra til suðurs, nokkuð áður en Þjórsá fellur inn í gljúfrin, er ráðgert lón, Norðlingsöldulón (3,1 til 5,3 ferkílómetrar að stærð), sem veitir vatni með veitu til austurs Óhjákvæmilega mun það minnka rennsli vatns og framburð í mið- og neðri hluta Þjórsár og þannig hafa áhrif á eðlilega starfsemi kerfisins í heild.
Það eru einkum tvær spurningar sem vakna þegar þessar tillögur eru skoðaðar. Önnur spurningin snýst um grundvallaratriði en hin um framkvæmd.
Vegna mikilvægis Þjórsárvera á landsvísu og alþjóðlega hafa ýmsir komið þeim skoðunum á framfæri að ekki ætti að reisa orkumannvirki á svæðinu. Þetta er rökstutt með tilvísun í gildi þeirra sem náttúrulegrar arfleifðar. Hvaða stífla eða uppistöðulón sem er mun hindra flæði vatns og jarðefna sem eru undirstaða heilbrigðs vistkerfis. Auk þess spilla áformuð mannvirki fegurð gljúfranna til muna umfram það sem þegar er orðið. Á móti má segja að vatnsflæðinu hafi þegar verið breytt og því sé það ekki óspillt. Þessi rökfærsla er þó veik þar sem áhrif núverandi mannvirkja eru hlutfallslega lítil á vatnskerfi Þjórsár í heild. Vel kann að vera að það felist í því efnhagslegur ávinningur og stærðarhagkvæmni að byggja þessi mannvirki. En áformin má ekki meta út frá efnhagslegum rökum einum saman. Meta verður áformuð mannvirki á grundvelli kostnaðar- og nytjagreiningar og beita í þeim tilgangi viðurkenndum aðferðum til að meta hlutlæg og huglæg (efnisleg og eigindleg) gildi eins og til að mynda er gert við skilyrt verðmætamat.
Skýrsla um rammaætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma (birt í nóv. 2003) bendir til þess að til séu aðrir umhverfisvænni valkostir til virkjunar neðar í Þjórsá og á öðrum síður viðkvæmum svæðum í suðvesturhluta landsins. Leggja ætti áherslu á að skoða þessa kosti ef mæta þarf frekari eftirspurn eftir orku. Ef það er látið hjá líða er ekki hægt að taka ákvörðun um frekari vatnsaflsnýtingu sem væri í samræmi við ásetning íslensku ríkisstjórnarinnar að stuðla að sjálfbærri þróun sem og við alþjóðlegar skuldbindingar um að vernda Ramsarsvæði.
Þegar rætt er um framkvæmdaratriði er spurningin ekki hvort áformuð framkvæmd verði að veruleika heldur öllu fremur hver eigi að vera stærð stíflunnar og Norðlingaöldulóns. Umræðan um hæð stíflunnar og stærð lónsins hefur verið nokkuð ruglingsleg. Í skýrslu Landsvirkjunar hefur verið talað um lón í um 566 m y.s. og hins vegar í 568 m y.s., sem Landsvirkjun sækist eftir. Umræðan um þetta (mæliskekkjur) bendir til þess að fyrirtækið hafi ekki getað lagt fram jafnnákvæmar niðurstöður og áætlanir eins og gera verður kröfur um á jafnviðkvæmu svæði. Ljóst er að tilteknir opinberir þar til bærir aðilar, eins og t.d. Umhverfisstofnun, hafa fallist á ný og umfangsminni framkvæmdaáform á þeim grundvelli að þau hafi ekki áhrif á það svæði sem liggur innan verndarmarka. En þetta breytir ekki þeirri skoðun minni að meta verði áhrif mannvirkja á svæðið sem heild og meta allan kostnað og ávinning áður en endanleg ákvörðun er tekin. Þess háttar mat þurfa óumdeilanlega óháðir aðilar að framkvæma og gæta verður ítrustu hlutlægni við matið.
Verndaraðgerðir.
Friðlandið í Þjórsárverum var tilgreint sem Ramsarsvæði árið 1991 [var friðlýst 1981]. Mörk þess eru óeðlileg og virðast hafa verið dregin með tilviljunarkenndum hætti. Mörkin endurspegla hvorki náttúrfarsleg mörk né vistkerfið sem heild. Svæðið nýtur engrar annarrar sérstakrar verndar.
Umhverfisstofnun skilaði skýrslu til umhverfisráðherra árið 2003 og lagði til að verndarsvæðið í Þjórsárverum, Ramsarsvæðið, yrði u.þ.b. tvöfaldað að stærð. Stofnunin tilgreindi stækkun sem næði meðfram Þjórsá allt til enda gljúfranna auk þess sem svæðið stækkaði bæði til vesturs og austurs. Tillaga umhverfisráðherra að Náttúruverndaráætlun 2004–2008, sem kom fram í október 2003, fól ekki í sér þessa stækkun. Þetta voru mikil vonbrigði í ljósi þess hve færa má mörg rök fyrir stækkuninni í Þjórsárverum og þegar litið er til þess hve tillögur ráðherra varðandi önnur svæði á Íslandi fólu í sér mikla stækkun. Hugsanlega endurspeglar þessi ákvörðun umhverfisráðherra ákvörðun innan ríkisstjórnarinnar um að styðja fyrirliggjandi áform um vatnsaflvirkjun.
Ef fylgt væri bestu alþjóðlegu leiðbeiningum, væru Þjórsárver í heild vernduð, frá vatnaskilum í Hofsjökli að gljúframynninu við Sultartangalón. Ef beitt væri alþjóðlega viðurkenndum skilgreiningum, sem Alþjóðanáttúruverndarsamtökin (IUCN) hafa samþykkt, við stjórnun svæðisins, yrði það sett í verndarflokk II fyrir vernduð svæði. Í því fælist að svæðinu væri stjórnað með það í huga að vernda vistkerfið og gera það aðgengilegt til afþreyingar. Helstu markmið sem við eiga um svæði af þessu tagi skilgreinir IUCN þannig:
– Að vernda náttúrufar og landslag sem hafa gildi fyrir viðkomandi land og alþjóðlega, til andlegrar upplyftingar, vísindarannsókna, fræðslu, afþreyingar og ferðamennsku.
– Að viðhalda í eins náttúrulegu ástandi og mögulegt er, á dæmigerðum svæðum vegna landmótunar, samfélagi lífvera, erfðaefnum og tegundum og skapa aðstæður fyrir stöðugt og fjölbreytt vistkerfi.
– Að binda enda á og síðar koma í veg fyrir nýtingu eða starfsemi sem er skaðleg þessum markmiðum.
Þessi nálgun yrði í fyllsta samræmi við Ramsarsamninginn og núverandi verndunarmarkmið, þ.e. að þróa og viðhalda alþjóðlega mikilvægum votlendissvæðum sem hafa gildi fyrir varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu og mannlífs vegna þeirrar þjónustu sem vistkerfi viðkomandi svæða veita til að viðhalda náttúrulegri hringrás vatns og öðrum ferlum sem nauðsynlegir eru öllu lífi. Að gera uppistöðulón á svæðinu, jafnvel þó að það sé gert á grundvelli núverandi hugmynda sem eru umfangsminni er upprunalega var áformað, jafngildir því að Ísland brjóti í bága við ákvæði og framkvæmd Ramsarsamningsins.
Samhliða verndun er unnt að stunda fjölþætta starfsemi sem ekki spillir náttúruarfleið svæðisins, starfsemi sem eykur skilning almennings á náttúru svæðisins og eflir mögleika til að njóta þess sem svæðið býður án þess að ganga í berhögg við reglur sem IUCN setur um vernduð svæði í verndarflokki II. Hefðbundin beit og síðari tíma gönguferðir, fjallaklifur og ferðalög á vélsleðum geta haldið áfram. Í raun tel ég að það sé mögulegt að bæta aðgengi ferðamanna sé það gert með þeim hætti og að því marki sem fellur vel að náttúrulegri arfleifð, vistkerfum og burðargetu svæðisins frá vistfræðilegu sjónarmiði.
Undanfarið hafa verið óformlegar vangaveltur um það hvort hvort tilnefna bæri Þjórsárver til skráningar á heimsminjaskrá UNESCO. Við reglubundið mat norrænnar nefndar (Nordic World Heritage) á níunda áratugnum var svæðið ekki nefnt sem nýtt svæði á heimsminjaskrá. Þótt ég telji Þjórsárver hafa alþjóðlegt gildi, krefst það frekari athugunar að meta hvort þau standist kröfur heimsminjaskrár um einstakt fyrirbæri á heimsvísu. Eiginleikar svæðisins og mikilvægi þess að vistkerfið í heild starfi eðlilega renna traustum stoðum undir umsókn um skráningu þess.
Niðurstaða og tillögur.
Sá hluti Þjórsárvera, sem er verndaður sem Ramsarsvæði og svæðið í heild sem miðast við vatnasviðið suður af Hofsjökli að gljúfurmynni Þjórsár, er svæði sem hefur náttúruverndargildi bæði á landsvísu og alþjóðlega vegna samspils vatnafars, gróðurs og landmótunar á norðurhveli jarðar. Núverandi mörk verndarsvæðisins eru ófullnægjandi og ná ekki að endurspegla þau náttúrulegu verðmæti, útsýni, fegurð og menningu sem svæðið býr yfir. Samþykkja ætti tillögu Umhverfisstofnunar frá 2003 um stækkun svæðisins, sem umhverfisráðherra hafnaði. Til viðbótar ætti að stækka svæðið þannig að það nái til þess hluta Hofsjökuls sem er innan vatnasviðs Þjórsárvera. Svæðið fullnægir skilyrðum þeirra markmiða sem skilgreind eru í verndarflokki II í leiðbeinandi reglum IUCN um vernduð svæði. Miðað við ástand svæðisins í dag eru áhrif mannvirkja á Þjórsárverasvæðið afar lítil. Upprunalegum tillögum um virkjun hefur verið breytt þannig að áhrif fyrirliggjandi hugmynda eru minni en eldri áforma. Þessu ber að fagna. Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að fyrirliggjandi tillaga mun hafa djúpstæð og skaðleg áhrif á vistkerfi, vatnsbúskap og landmótun á svæðinu og einnig eyðileggja sjónrænt og fagurfræðilegt gildi svæðisins. Það kemur því á óvart að viðkomandi yfirvöld, sem veittu ráðgjöf í málinu, hafi getað stutt þessa nýju og smækkuðu útfærslu á framkvæmdum. Niðurstaða mín er sú að núverandi takmörkuð framkvæmdaáform hafi víðtæka eyðileggingu í för með sér. Sjálfstætt, hlutlægt og ítarlegt mat á þessu er nauðsynlegt. Líta verður til hlutlægra og huglægra gilda varðandi samfélag, efnahag, menningu og framkvæmd heildstæðrar kostnaðar- og nytjagreiningar með viðurkenndum aðferðum. Jafnframt þarf að bera þennan virkjunarkost saman við aðra neðar í Þjórsá og á öðrum svæðum á Suður- og Austur-Íslandi þar sem hugsanlega má afla jafnmikillar orku en með minni eyðileggingu fyrir umhverfi svæðisins og menningu er því tengist.
Forsendur skortir til að taka ákvörðun um að samþykkja fyrirliggjandi tillögu á grundvelli þess mats sem fram hefur farið. Setja ætti í forgang aðgerðir sem felli stærra svæði undir verndunarákvæði.
Fylgiskjal II.
Jack D. Ives, ráðgjafi í umhverfismálum og sjálfbærri þróun
við Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tókíó og
rannsóknaprófessor með heiðursnafnbót
við Carleton University í Ottawa:
Inngangur.
Þessi skýrsla er gerð eftir heimsókn mína til Íslands, dagana 23. til 30. júní 2003, í boði Landverndar, sem eru frjáls félagasamtök er eiga aðild að Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum (IUCN). Tilgangur heimsóknarinnar var að aðstoða Landvernd við mat á verndargildi Þjórsárvera. Á þeim átta dögum sem ég hafði til ráðstöfunar fékk ég tækifæri til að skoða mig um í Þjórsárverum og á aðliggjandi svæðum í tvo daga, þar með talin næturdvöl í Setrinu í grennd við Kerlingarfjöll. Ég naut einnig þeirrar góðu fyrirgreiðslu að eiga fundi með íslenskum sérfræðingum og vísindamönnum sem og fulltrúum aðila sem hafa ólíka afstöðu til þessa umdeilda máls sem hér um ræðir. Í þessum hópi voru Björn Stefánsson hjá Landsvirkjun ásamt fjórum sérfræðingum sem fyrirtækið kallaði til og veittu mér einstaklega skýrar og ítarlegar útskýringar á verkfræðilegum þáttum framkvæmdarinnar og tengdum náttúruverndarmálum, einnig stjórnarmenn og starfsmenn Landverndar, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og starfsmenn ráðuneytisins, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Gísli Már Gíslason prófessorar í Háskóla Íslands, Ragnhildur Sigurðardóttir, ráðgjafi í vistfræði, Guðmundur Páll Ólafsson, rithöfundur og baráttumaður um náttúruvernd, Aðalsteinn Guðmundsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Oddur Hermannsson landslagsarkitekt og Sigþrúður Jónsdóttir, talsmaður áhugahóps um verndun Þjórsárvera. Ég átti einnig samræður við Árna Bragason á Umhverfisstofnun og þá Kristin Hauk Skarphéðinsson og Snorra Baldursson á Náttúrufræðistofnun Íslands.
Til að fullkomna heimsóknina var skipulagt útsýnisflug yfir Þjórsárver og aðliggjandi svæði og naut ég sérlega góðrar yfirsýnar yfir þetta allt úr lofti. Ég hafði einnig aðgang að fjölmörgum vísindaskýrslum og gögnum frá stjórnvöldum.
Ég vil þakka sérstaklega vinsamlegt viðmót og áhugaverð svör sem allir framangreindir aðilar veittu mér.
Þjórsárver: verndun eða mannvirkjagerð?
Þessi fyrirsögn vísar til þeirrar spurningar hvort mannvirkjagerð geti verið með þeim hætti að náð verði ásættanlegum árangri í verndun náttúruverðmæta á svæðinu eða hvort ,,mannvirkjagerð“ og ,,náttúruvernd“ fari alls ekki saman.
Verndarsvæðið í Þjórsárverum, sem nær einungis til hluta af votlendissvæði Þjórsárvera, er frægt um víða veröld, fyrst og fremst vegna þess að það er varpland heiðargæsar (Anser brachyrrynchus) og margra annarra dýrmætra fuglategunda. Tengsl gæsanna við hið öfluga lífríki votlendisins eykur gildi þess. Að mínu mati er það þó staðsetning votlendissvæðisins í eyðimörk á miðhálendi Íslands, við suðurenda Hofsjökuls, sem gefur svæðinu afar óvenjulega náttúrulega umgjörð þar sem fram koma sterkar andstæður: svartir eyðimerkursandar, jökulhettur og sífrerafyrirbæri, gróskumikill grænn svörður og fjallahringur í fjarska. Mér kemur í hug samanburður við nokkur svæði heims sem eru fræg vegna landslags: hlutar Tíbetsléttunnar, Sagarmatha (Mt. Everest) þjóðgarðurinn, jökulkrýnd eldfjöll í Andesfjöllum og Altiplano-hásléttan, norðausturhluti Baffineyjar og Yellowstone-þjóðgarðurinn í Bandaríkjunum.
Athygli vekur að núverandi mörk friðlandsins eru beinar línur sem hafa verið dregnar með tilviljunarkenndum hætti þvert yfir náttúrlega heildstæð svæði og ná hvorki yfir votlendið í heild né heldur til aðliggjandi eyðisanda og jökla. Hefðu mörkin verið vel skilgreind frá upphafi hefðu ekki risið þær deilur sem nú eru uppi um nýtingu vatnsafls þarna.
Því hefur verið haldið fram að vatnsaflsvirkjanir á svæðinu hafi fram að þessu ekki haft nein afgerandi áhrif á náttúrleg ferli votlendisins, jafnvel frá sjónarhóli róttækustu náttúruverndarsinna. Virkjun vatnsfalla suðaustur af Þjórsá hefur einkum þjónað þeim tilgangi að bæta aðgengi að svæðinu. Þróun virkjunaráætlana Landsvirkjunar um nýtingu meginstraums árinnar og veranna á svæðinu við Hofsjökul þykir hafa sýnt að fyrirtækið taki tillit til umhverfismála. Áformað lón við Norðlingaöldu mun hafa mjög takmörkuð áhrif á votlendið innan friðlandsmarka í samanburði við fyrri áætlanir. Mér var sýnt með áhrifamiklu tölvulíkan hvernig skola má aur úr lóninu miðað við þessa nýju útfærslu.
Þetta lón (Norðlingaöldulón) er þó ekki það sem margir vísindamenn telja vera þann hluta verkefnisins er hugsanlega kynni að valda mestum skaða. Gert er ráð fyrir tveimur minni lónum austan við friðlandsmörkin. Annað lónið liggur rétt við mörkin. Báðum lónunum fylgja stíflur og veituskurðir. Úr þessum lónum þarf að hreinsa aur og sand, á a.m.k. tuttugu ára fresti. Við þessa hreinsun þarf að koma sandi, seti og aur fyrir á áreyrum. Þessi mannvirki yrðu staðsett rétt austur af Arnarfelli og yrðu áreiðanlega meiriháttar sjónmengun öllum þeim sem ganga á 1,150 metra hátt fjallið til að njóta einhvers tilkomumesta útsýnis á Íslandi. Til viðbótar mun þessi framkvæmd, til langs tíma litið, leiða til þess að efsti hlut vatnsfarvegs Þjórsár verður mikið til þurr á um 8 km löngum kafla neðan stíflnanna og vatnsflæðið verður verulega takmarkað í u.þ.b. 4 km til viðbótar þar fyrir sunnan. Mestur hluti þessa svæðis liggur innan núverandi marka friðlandsins. Vatnsfarvegurinn er 1 til 1,5 km breiður og talsverð hætta er á því að kaldir og þurrir (og tíðir) norð-austanvindar blási sandi og seti yfir sum gróskumestu svæði veranna.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að greina í þessari skýrslu frá öllum þeim vísindalegu niðurstöðum sem safnast hafa saman undanfarin ár. Ég læt því nægja að nefna helstu þætti sem einkenna svæðið:
1. Mikil líffræðileg fjölbreytni, þar með talinn freðmýragróður og háfjallagróður, sem nær upp í óvanalega mikla hæð í Arnarfelli.
2. Fuglalíf sem er þekkt um víða veröld.
3. Sífreri, þar með taldar freðmýrarústir.
4. Fjölbreytilegt skordýralíf.
5. Staðbundin eldfjallavirkni, heitir hverir meðtaldir.
6. Menningarminjar sem sýna hvernig fuglar voru fangaðir á öldum áður.
7. Landslagið.
Með tilliti til þess að ég hef starfað sem landmótunarfræðingur í meira en hálfa öld beini ég athyglinni að síðasta liðnum (nr. 7). Ég vísa til ferða minna um allan heim og legg áherslu á að þetta svæði sem markast af Kerlingafjöllum, Hofsjökli og Þjórsárverum, séð frá hæðardragi suð-austan við Þjórsá (til dæmis frá Sóleyjarhöfða) er eitt tignarlegasta og andlega mest örvandi landslag veraldar. Ég geri ráð fyrir því að ef mörk friðlandsins yrðu stækkuð þannig að þau næðu til Kerlingarfjalla, hluta aðliggjandi eyðisanda, og alls Hofsjökuls væri um að ræða svæði sem kæmi sterklega til greina til skráningar á Heimsminjaskrá UNESCO.
Væri hugsanlegt að finna leið sem gerði slíka skráningu mögulega og á sama tíma framkvæma þær áætlanir sem Landsvirkjun hefur uppi á svæðinu og hafa í för með sér nokkra skerðingu þess? Framkvæmdaáformin virðast einungis snerta mörk friðlandsins lítillega en þau munu hafa afar djúpstæð sjónræn áhrif vegna nyrðri lónanna tveggja, stíflna og veituskurða og vatnsþurrðar í efri hluta farvegs Þjórsár. Ég get ekki veitt ótvírætt svar við þessari spurningu en bendi á að fjölmörgum ríkisstjórnum hefur mistekist að fá svæði skráð á Heimsminjaskrána vegna þess að UNESCO/IUCN fylgja sífellt stranglegar eftir samþykktum stöðlum fyrir slík svæði. Úr þessu fæst ekki skorið nema ríkisstjórn Íslands leggi fram formlega umsókn. Mikilvægt er að hafa í huga að hefji Landsvirkjun framkvæmdir yrðu þær líklega óafturkræfar og gætu þar með komið í veg fyrir að ríkisstjórnin, í samstarfi við viðkomandi sveitarstjórnir, næði þessari virðingarmiklu viðurkenningu fyrir þetta „hjartagull“ Íslands.
Niðurstaða.
Þar sem ég er ekki hlutlaus gestur kynni að þykja óæskilegt að ég veiti ákveðin ráð í þessu máli. Einnig ber þess að geta að bent hefur verið á fjölmarga valkosti við núverandi áform. Hafa verður þó í huga að Ísland er nú þekkt fyrir að búa yfir miklum víðernum og ígildum víðerna sem eru tiltölulega aðgengileg frá Evrópu og Norður-Ameríku. Síðan hinir hörmulegu atburðir áttu sér stað 11. september 2001 virðist sem sú almenna trú að landið sé öruggur ferðakostur á þessum tímum hryðjuverka, auki vinsældir þess sem áningastaðar. Ferðaþjónusta, einkum sú tegund er tengist ævintýrum og náttúru, virðist vera sá hluti efnahagslífsins er eigi í vændum verulegan vöxt. Aðdráttarafl Íslands myndi aukast að mun við það að tiltekin svæði yrðu færð á Heimsminjaskrá. Loks vekja þær gífurlegu framfarir sem orðið hafa í nýtingu jarðvarmaorku spurningar um hvort efnahagslegar forsendur séu þær að enn sé þörf fyrir að virkja vatnsföll. Altént ætti að bíða með frekari framkvæmdir í Þjórsárverum þar til kannað hefur verið til hlítar hvort svæðið býr yfir þeim kostum að eiga heima á Heimsminjaskrá.
Fylgiskjal III.
Gísli Már Gíslason,
prófessor í vatnalíffræði við HÍ:
Í tímabærri forystugrein í Morgunblaðinu 26. júlí er fjallað um álver og virkjanaframkvæmdir. Morgunblaðið spyr hvort það sé ,,tilraunarinnar virði að leiða saman stuðningsmenn og andstæðinga framkvæmda sem þessara“ til að brúa bilið milli hópanna og hvort það sé ,,hugsanlegt að iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra geti í sameiningu sett af stað samráðsferli, sem hafi það að meginmarkmiði að ná slíkri sátt“. Ég tek undir með Morgunblaðinu að það er löngu orðið tímabært að komast að samkomulagi um hvaða ár og háhitasvæði eigi að nýta til virkjana, og hverjum eigi að ráðstafa til annarra nota, svo sem friðunar. Sem betur fer komu iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra á því samráðsferli árið 1999 sem Morgunblaðið telur nauðsynlegt til að ,,ná sátt um þessi stóru mál“. Ráðherrarnir settu á fót starfshópa um röðun vatnsaflsvirkjana og háhitasvæða m.t.t. náttúruverndar, orkugetu, hagnaðar af orkuvinnslu, ferðaþjónustu og annarrar landnýtingar. Starfið nefndist ,,Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Maður – nýting – náttúra“. Fyrsti áfangi verkefnisins var birtur í janúar sl. Hann fjallaði um þá virkjanakosti sem búið var að útfæra nokkuð nákvæmlega. Allir sem hafa skoðað þessa skýrslu, þar á meðal sérstakur starfshópur á vegum Landsvirkjunar, eru sammála um að niðurstöðurnar séu trúverðugar.
Í framhaldi af fyrsta áfanga er rétt að fara sömu leið og Norðmenn gerðu um miðjan 9. áratuginn og friðlýsa þau svæði sem hafa hátt náttúruverndargildi og lítil eða miðlungs orkuverðmæti. Morgunblaðið nefnir sérstaklega Þjórsárver og andstöðu við virkjanaáform þar. Um Þjórsárver er það að segja að um verndun þeirra náðist samkomulag, sem m.a. fólst í því að nýta vatn Þjórsár með því að veita því í Þórisvatn og hlífa verunum vestan Þjórsár. Þjórsárver voru friðlýst 1981 samkvæmt Náttúruverndarlögum og síðar tilnefnd sem alþjóðlega mikilvægt votlendi samkvæmt Ramsarsamningnum, sem felur í sér alþjóðlegar skuldbindingar um verndun þeirra. Þjórsárver fengu mjög háa einkunn sem náttúruverðmæti í 1. áfanga Rammaáætlunar, en meðaleinkunn hvað varðar hagnað og litla orkugetu (sambærilegt við Kröflustöð). Einnig fengu Jökulsá á Fjöllum, Jökulsá á Dal og Markarfljót háa náttúruverndareinkunn, sem og nokkur jarðhitasvæði (t.d. Torfajökulssvæðið). Margir virkjanakostir fengu lága náttúruverndareinkunn, en háa einkunn fyrir hagnað af orkuvinnslu. Landsvirkjun getur því valið milli margra virkjunarkosta án þess að eyðileggja náttúruperlur.
Ég fagna því að Morgunblaðið hefur hafið þessa umræðu á ný, því það nær engri átt að styrjaldarástand skapist um hverja virkjun sem ákveðið er að ráðast í. Miklu nær er að ákveða strax hvaða ár og háhitasvæði verði nýtt til orkuöflunar, og gerðar verði áætlanir um þessa nýtingu. Einnig þarf að taka frá strax með friðlýsingu eða lögum, þau svæði sem menn eru sammála um að séu náttúruperlur sem ekki sé réttlætanlegt að eyðileggja. Að lokum eru svæði sem þarf að athuga betur m.t.t. orkugetu og náttúruverndar og hvort hægt sé að útfæra orkunýtingu á þann hátt að náttúruverndargildi skerðist lítið. Þjórsárver voru einmitt dæmi um slíkt, þegar Þjórsá var nýtt án mikillar eyðileggingar með Kvíslaveitu samkvæmt samkomulagi Landsvirkjunar við Náttúruverndarráð og sveitarstjórnir og upprekstrarfélög heimamanna.
Upphaflega ætlaði Landsvirkjun að gera 200 ferkílómetra lón í Þjórsárverum sem hefði fært öll Þjórsárver á kaf upp að jökli. Þetta lón átti að sjá 220 MW virkjun í Þjórsá, Gljúfurleitarvirkjun, fyrir vatni. Eftir þrýsting frá Náttúruverndarráði og alþjóðasamtökum um náttúruvernd var gert samkomulag um Kvíslaveitu. Nú er búið að taka burt 40–50% af því vatni sem áður rann um Þjórsárver og veita því um Kvíslaveitu í Þórisvatn og síðan í Vatnsfellsstöð (90 MW), Sigöldustöð (150 MW), Hrauneyjafossstöð (210 MW) og í framtíðinni Búðarhálsstöð (60 MW). Þarna fékkst miklu betri nýting og Þjórsárverum vestan Þjórsár var borgið í bili. Aftur á móti fóru ver austan Þjórsár undir vatn og Eyvindarkofaver og Þúfuver hafa misst árnar sem um þau runnu. Í þessu tilfelli náðist samkomulag sem Landsvirkjun hagnaðist verulega á og vesturhluta Þjórsárvera var forðað frá kaffæringu.
Ef farið verður í framkvæmdir á Norðlingaölduveitu og nýjum áfanga Kvíslaveitu verður bætt við, er verið að seilast inn í Þjórsárver vestan Þjórsár í bága við samkomulagið frá 1981. Aukning í rafmagnsframleiðslu verður lítil eða engin ef ekki er hægt að geyma vatnið í Þórisvatni, en það hefur orðið fullt á tímabilinu frá mars og fram í júní síðan seinasta áfanga Kvíslaveitu var lokið árið 1996. Því virðist Norðlingaölduveita vera ásókn Landsvirkjunar í vatn sem ekki er hægt að nýta nema að litlum hluta. Norðlingaölduveita er í andstöðu við niðurstöðu 1. áfanga Rammaáætlunarinnar. Þarna er Landsvirkjun að vinna gegn markmiðum iðnaðar- og umhverfisráherranna að ná sátt um virkjanaframkvæmdir. Er ekki kominn tími til að Landsvirkjun sætti sig við niðurstöður 1. áfanga Rammaáætlunar, þeirrar sáttagerðar sem Morgunblaðið er að kalla eftir?
Fylgiskjal IV.
Ákvörðun Landsvirkjunar spor í rétta átt.
Félagar í Áhugahópi um verndun Þjórsárvera lýsa yfir ánægju með þá ákvörðun Landsvirkjunar að fresta áformum um Norðlingaöldveitu.
Náttúrufarsleg sérstaða og mikilvægi Þjórsárvera er óumdeilt en djúpstæður ágreiningur var um í hvaða mæli mannvirki myndu spilla þessum verðmætum. Með úrskurði Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, fyrr á þessu ári virtist komin fram sátt í málinu. Ástæða er til að undirstrika að sú útfærsla Landsvirkjunar sem sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafnaði var ekki sú lausn sem kynnt var með úrskurði ráðherra. Í útfærslu Landsvirkjunar var miðlunarlónið tvöfalt stærra að flatarmáli og þétt við mörk friðlandsins.
Því hefur ítrekað verið lýst yfir af hálfu Landsvirkjunar að virkjun í Þjórsárverum væri forsenda orkusölu til stækkunar álvers Norðuráls í Hvalfirði, Norðlingaölduveita væri eini virkjunarkosturinn sem fullgera mætti innan þess skamma tíma sem til framkvæmda gafst, þ.e. svo hefja mætti orkusölu árið 2006. Nú hefur komið fram að það kunni að vera til aðrar og heppilegri leiðir til að mæta þessari orkuþörf. Því virðist óþarft að hrófla við Þjórsárverum. Svo dýrmætu svæði á ekki að raska nema ríkir þjóðarhagsmunir séu í húfi. Stærstu og verðmætustu gróðurvin landsins á að vernda óspillta sé þess nokkur kostur.
Í nýlegum drögum að náttúruverndaráætlun eru kynntar tillögur um að færa mörk friðlandsins til samræmis við náttúrleg mörk Þjórsárvera. Með ákvörðun Landsvirkjunar er rutt úr vegi síðustu hindrunum til þess að svo megi verða.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 228 — 225. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um friðlandið í Þjórsárverum.
Flm.: Katrín Fjeldsted.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað þannig að friðlandsmörkin taki mið af náttúrufari og landslagi og því verði jafnframt lýst yfir að fallið sé frá öllum virkjanaáformum á svæðinu. Einnig verði sótt um að Þjórsárver komist á heimsminjaskrá UNESCO.
Greinargerð.
Miklar deilur hafa risið vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda í Þjórsárverum. Verin voru friðlýst árið 1981 og framkvæmdir við Norðlingaöldu og veitulón austast í verunum samræmast ekki samkomulagi því sem gert var þá. Með virkjanaframkvæmdum yrði gengið á ómetanleg náttúruverðmæti en eins og fram kemur í skýrslu um 1. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er um að ræða verðmætasta hluta hálendisins.
Árið 1999 kom iðnaðarráðuneytið í samráði við umhverfisráðuneytið á laggirnar verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Meginhlutverk verkefnisstjórnar var að semja tillögu að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma, þar sem virkjunarkostir væru flokkaðir með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, áhrifa þeirra á náttúrufar, náttúru- og menningarminjar svo og á aðra landnýtingu. Verkefnisstjórnin kom á fót fjórum faghópum sem tóku fyrir virkjanakosti á Íslandi hver frá sínu sjónarhorni, en þar var samankomið einvalalið valinkunnra fræðimanna: Faghópur I fjallaði um náttúrufar og minjar, faghópur II hafði sem verkefni útivist og hlunnindi, faghópur III bar saman virkjanir með tilliti til áhrifa þeirra á efnahag og og byggðir, faghópur IV hafði það hlutverk að greina virkjunarkosti, meta orkugetu þeirra og stofn- og rekstrarkostnað.
Niðurstöðum 1. áfanga rammaáætlunar var skilað í nóvember 2003, afrakstri fjögurra ára vinnu. Þar kemur fram að Þjórsárver eru talin verðmætasta svæði hálendis Íslands með tilliti til náttúruverðmæta en alls var lagt mat á 41 svæði (bls. 42). Norðlingaölduveita er ekki fýsilegur kostur þar sem umhverfisáhrif eru mikil og orkan ekki slík að sköpum skipti. Aðrir kostir eru vænlegri. Hins vegar er talið hlutfallslega ódýrt að ráðast í þá framkvæmd.
Með úrskurði Jóns Kristjánssonar, setts umhverfisráðherra, í janúar 2003 um mat á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu, var verulega dregið úr umfangi Norðlingaöldulóns og það var fært út fyrir friðlandsmörkin. Aftur á móti fól úrskurðurinn í sér viðbótarframkvæmdir sunnan Hofsjökuls, tvö uppistöðulón með veituskurðum til austurs. Innan Þjórsárveranefndar hafði verið samkomulag um að fara ekki út í þessa framkvæmd, sem gekk undir nafninu 6. áfangi Kvíslarveitu.
Úttektir sem gerðar hafa verið sýna að sú viðbótarframkvæmd sem felst í úrskurði setts umhverfisráðherra mun verulega spilla náttúrufari og landslagi í Þjórsárverum. Þetta kemur m.a. fram í meðfylgjandi greinargerðum þeirra Rogers Crofts og Jack D. Ives.
Í tillögum Umhverfisstofnunar að náttúruverndaráætlun 2004–2008 frá síðasta ári (2003, bls. 238–39) er lagt til að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað þannig að sem mest af gróðurlendi veranna lendi innan friðlandsmarka, sem og Þjórsárgljúfrin, þ.m.t. fossinn Dynkur, allt niður að Sultartangalóni. Í greinargerðum Crofts og Ives kemur fram að núverandi friðlandsmörk eru algjörlega ófullnægjandi og telja þeir nauðsynlegt að stækka friðlandið til mikilla muna svo svo verndun nái tilgangi sínum.
Í skýrslum Crofts og Ives er fjallað um möguleika á að koma Þjórsárverum á Heimsminjaskrá UNESCO. Þeir Crofts og Ives hafa báðir unnið með UNESCO og IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum) við að meta umsóknir um skráningu svæða á þennan virðingarlista. M.a. voru þeir umsagnaraðilar þegar Þingvellir komu til umfjöllunar. Báðir telja þeir að svæðið búi yfir þeirri sérstöðu á heimsvísu að rík ástæða sé til að kanna hvort það geti hlotið skráningu.
Fyrirhuguð Norðlingaölduveita var á sínum tíma réttlætt með því að hún væri eina framkvæmdin sem hægt væri að ljúka innan þess þrönga tímaramma sem aukin orkusala til stóriðju krafðist. Þessar forsendur eru ekki lengur fyrir hendi. Nú er ljóst að mæta má væntanlegri eftirspurn eftir orku með öðrum hætti en virkjun á vatnsvæði Þjórsárvera og því kjörið tækifæri fyrir stjórnvöld að falla frá öllum áætlunum um 6. áfanga Kvíslaveitu og taka ákvörðun um að stækka friðlandið í samræmi við náttúruverndaráætlun en þar koma fram tillögur um að færa mörk friðlandsins til samræmis við náttúrleg mörk Þjórsárvera. Sátt þarf að nást um framtíð veranna sem eru líklega verðmætasta svæðið á hálendi Íslands. Það verður ekki gert nema með því að stíga þetta skref. Með því yrði komið til móts við stóran hóp umhverfissinna og með varanlegum hætti tryggt að Þjórsárverum verði skilað óskertum til komandi kynslóða.
Fylgiskjal I.
Roger Croft,
varaformaður heimsnefndar
IUCN um verndarsvæði:
SKÝRSLA
Þjórsárver: Verndun einstakra verðmæta til frambúðar.
(Ágúst 2004.)
Staða Þjórsárvera.
Frá því í mars árið 1991 hafa Þjórsárver verið viðurkennd sem alþjóðlega mikilvægt votlendissvæði samkvæmt Ramsar-samningnum. Í skráningarskjali svæðisins er því lýst með eftirfarandi hætti: ,,Freðmýrar og heiðar, sundurskornar af fjölda jökul- og lindáa, svæðið er ríkt af tjörnum og vötnum og flæðiengjum sem þakin eru störum. Svæðið er umgirt eyðimörk úr eldfjallasandi. Svæðið er mikilvægasti varpstaður heiðargæsar (Anser brachyrrhynchus) á Íslandi og þar verpa um 10.000 pör.
Þjórsárver er stærsta og gróðurríkasta votlendi á hálendi Íslands. Þar er áberandi samspil vatns, landslags og gróðurs: opnir árfarvegir og sandeyrar í Þjórsá og aðliggjandi þverám, bæði jökulár og lindár, gróðurmynstur sem er dæmigert fyrir freðmýrar og barrskógabeltið, sem leiðir af sér fjölbreytt gróðurfar á flákaskiptu landi með fjölda tjarna. Svæðið er varpsvæði um 10.000 para af heiðargæsum, sem samsvarar um 4,4% af varpstofninum á Íslandi og Grænlandi.
Votlendið og náttúrufar Þjórsárvera verður ekki aðskilið mun stærra svæði. Það afmarkast af Hofsjökli og skriðjöklum hans til suðurs og austurs, sem eru Blautukvíslarjökull, Múlajökull og Þjórsárjökull. Jökulísinn þekur að hluta til öskju sem fallið hefur saman og er um 300 m djúp. Það sem eftir stendur af gígnum eru tindarnir á öskjubrúninni sem gnæfa upp úr jöklinum. Allmörg fjöll, m.a. Arnarfell, Ólafsfell og Hjartarfell, hindra framrás jökulsins til suðurs og veita fram jökulvatni eftir árfarvegum sem að lokum sameinast Þjórsá. Skriðjöklarnir eru breiðir og Múlajökull er eitt besta dæmið í heiminum um framrás jökuls á hásléttu. Þessir jöklar eru uppspretta vatnakvísla sem eru forsenda alls lífs á svæðinu, án þessa vatns og jarðefna sem í því eru, væri líffræðileg fjölbreytni svæðisins ekki sú sem hún er. Sunnar á svæðinu fellur Þjórsá í um 12 km löngu gljúfri sem býr yfir fjölda fossa, þeirra merkastir eru Dynkur og Gljúfurleitarfoss, og aðliggjandi dalverpum. Við suðurenda gljúfursins fellur Þjórsá í Sultartangalón, sem er hluti vatnsvirkjana á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Svæðið allt frá Hofsjökli að þeim stað þar sem Þjórsá fellur fram úr gljúfrunum er í alþjóðlegu samhengi afar mikilvægt bæði vegna lífríkis og þeirrar landmótunar sem það endurspeglar.
Við þetta bætist útsýnið og náttúrufegurð svæðisins sem njóta má með ýmsum hætti. Hvort sem flogið er yfir það, gengið um votlendið og vaðið yfir árkvíslar eða litið yfir svæðið frá aðliggjandi hæðum eins og Biskupaþúfu, blasir við baksviðið: íshettan, skriðjöklarnir, tindarnir, hæðir og fjöll í fjarska, vatnsmikil áin, sandeyrar, votlendi og tjarnir. Þetta samspil mótar afar fjölbreytilegt landslag, sem á sér fáa líka í heiminum og áreiðanlega hvergi á Íslandi. Síbreytileg birtan eykur enn einum þætti í þessa sérstæðu mynd.
Svæðið tengist einnig menningu aðliggjandi samfélaga bænda beggja vegna Þjórsár sem hafa lengi haft þar hefðbundar beitarnytjar á sumrin og gera enn. Árlegir fjárflutningar á afréttina og fjallferðir á haustin eru mikilvægir viðburðir í samfélaginu.
Af þessum fjölþættu ástæðum, vegna náttúrfars, fegurðar og menningar, hefur allt svæðið frá gljúfurmynninu við Sultartangalón að hátindi Hofsjökuls, mikið verndargildi sem síbreytilegt náttúrulegt vistkerfi.
Tillögur að vatnsaflsvirkjunum.
Þegar hefur verið ráðist í nokkrar virkjunarframkvæmdir á svæðinu, lítið uppistöðulón, u.þ.b. 3 ferkílómetra að stærð (Þjórsárlón), og veituskurði til Kvíslavatns [auk annarra veitumannvirkja austan Þjórsár]. Þessi mannvirki hafa áhrif á flæði vatns á suð-austurhluta svæðisins. Að öðru leyti hafa mannvirki ekki áhrif á Þjórsá þar til hún fellur í Sultartangalón.
Tillögur að vatnsaflsvirkjum í Þjórsárverum, sem lið í því að auka virkjun Þjórsársvæðisins, hafa verið til umfjöllunar í mörg ár. Eldri tillaga, sem fól í sér 1,115 m langa stíflu og 29 ferkílómetra stórt lón, fékkst ekki samþykkt. Umfangsminni framkvæmdir eru nú til umfjöllunar í kjölfar mats á umhverfisáhrifum sem lauk í janúar 2003, þar sem fyrri tillögu var hafnað. Nýja tillagan felur í sér tvö lón efst í Þjórsá, þ.e. Arnarfellslón (0,3 km að stærð, stundum nefnt Þjórsárjökulslón) og Vesturkvíslarlón (4 ferkílómetrar að stærð), til viðbótar við núverandi Þjórsárlón og veituskurði til austurs. Þessi framkvæmd leiðir til þess að minna fellur til af vatni og jarðefnum í vatnsbúskap Þjórsár. Lengra til suðurs, nokkuð áður en Þjórsá fellur inn í gljúfrin, er ráðgert lón, Norðlingsöldulón (3,1 til 5,3 ferkílómetrar að stærð), sem veitir vatni með veitu til austurs Óhjákvæmilega mun það minnka rennsli vatns og framburð í mið- og neðri hluta Þjórsár og þannig hafa áhrif á eðlilega starfsemi kerfisins í heild.
Það eru einkum tvær spurningar sem vakna þegar þessar tillögur eru skoðaðar. Önnur spurningin snýst um grundvallaratriði en hin um framkvæmd.
Vegna mikilvægis Þjórsárvera á landsvísu og alþjóðlega hafa ýmsir komið þeim skoðunum á framfæri að ekki ætti að reisa orkumannvirki á svæðinu. Þetta er rökstutt með tilvísun í gildi þeirra sem náttúrulegrar arfleifðar. Hvaða stífla eða uppistöðulón sem er mun hindra flæði vatns og jarðefna sem eru undirstaða heilbrigðs vistkerfis. Auk þess spilla áformuð mannvirki fegurð gljúfranna til muna umfram það sem þegar er orðið. Á móti má segja að vatnsflæðinu hafi þegar verið breytt og því sé það ekki óspillt. Þessi rökfærsla er þó veik þar sem áhrif núverandi mannvirkja eru hlutfallslega lítil á vatnskerfi Þjórsár í heild. Vel kann að vera að það felist í því efnhagslegur ávinningur og stærðarhagkvæmni að byggja þessi mannvirki. En áformin má ekki meta út frá efnhagslegum rökum einum saman. Meta verður áformuð mannvirki á grundvelli kostnaðar- og nytjagreiningar og beita í þeim tilgangi viðurkenndum aðferðum til að meta hlutlæg og huglæg (efnisleg og eigindleg) gildi eins og til að mynda er gert við skilyrt verðmætamat.
Skýrsla um rammaætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma (birt í nóv. 2003) bendir til þess að til séu aðrir umhverfisvænni valkostir til virkjunar neðar í Þjórsá og á öðrum síður viðkvæmum svæðum í suðvesturhluta landsins. Leggja ætti áherslu á að skoða þessa kosti ef mæta þarf frekari eftirspurn eftir orku. Ef það er látið hjá líða er ekki hægt að taka ákvörðun um frekari vatnsaflsnýtingu sem væri í samræmi við ásetning íslensku ríkisstjórnarinnar að stuðla að sjálfbærri þróun sem og við alþjóðlegar skuldbindingar um að vernda Ramsarsvæði.
Þegar rætt er um framkvæmdaratriði er spurningin ekki hvort áformuð framkvæmd verði að veruleika heldur öllu fremur hver eigi að vera stærð stíflunnar og Norðlingaöldulóns. Umræðan um hæð stíflunnar og stærð lónsins hefur verið nokkuð ruglingsleg. Í skýrslu Landsvirkjunar hefur verið talað um lón í um 566 m y.s. og hins vegar í 568 m y.s., sem Landsvirkjun sækist eftir. Umræðan um þetta (mæliskekkjur) bendir til þess að fyrirtækið hafi ekki getað lagt fram jafnnákvæmar niðurstöður og áætlanir eins og gera verður kröfur um á jafnviðkvæmu svæði. Ljóst er að tilteknir opinberir þar til bærir aðilar, eins og t.d. Umhverfisstofnun, hafa fallist á ný og umfangsminni framkvæmdaáform á þeim grundvelli að þau hafi ekki áhrif á það svæði sem liggur innan verndarmarka. En þetta breytir ekki þeirri skoðun minni að meta verði áhrif mannvirkja á svæðið sem heild og meta allan kostnað og ávinning áður en endanleg ákvörðun er tekin. Þess háttar mat þurfa óumdeilanlega óháðir aðilar að framkvæma og gæta verður ítrustu hlutlægni við matið.
Verndaraðgerðir.
Friðlandið í Þjórsárverum var tilgreint sem Ramsarsvæði árið 1991 [var friðlýst 1981]. Mörk þess eru óeðlileg og virðast hafa verið dregin með tilviljunarkenndum hætti. Mörkin endurspegla hvorki náttúrfarsleg mörk né vistkerfið sem heild. Svæðið nýtur engrar annarrar sérstakrar verndar.
Umhverfisstofnun skilaði skýrslu til umhverfisráðherra árið 2003 og lagði til að verndarsvæðið í Þjórsárverum, Ramsarsvæðið, yrði u.þ.b. tvöfaldað að stærð. Stofnunin tilgreindi stækkun sem næði meðfram Þjórsá allt til enda gljúfranna auk þess sem svæðið stækkaði bæði til vesturs og austurs. Tillaga umhverfisráðherra að Náttúruverndaráætlun 2004–2008, sem kom fram í október 2003, fól ekki í sér þessa stækkun. Þetta voru mikil vonbrigði í ljósi þess hve færa má mörg rök fyrir stækkuninni í Þjórsárverum og þegar litið er til þess hve tillögur ráðherra varðandi önnur svæði á Íslandi fólu í sér mikla stækkun. Hugsanlega endurspeglar þessi ákvörðun umhverfisráðherra ákvörðun innan ríkisstjórnarinnar um að styðja fyrirliggjandi áform um vatnsaflvirkjun.
Ef fylgt væri bestu alþjóðlegu leiðbeiningum, væru Þjórsárver í heild vernduð, frá vatnaskilum í Hofsjökli að gljúframynninu við Sultartangalón. Ef beitt væri alþjóðlega viðurkenndum skilgreiningum, sem Alþjóðanáttúruverndarsamtökin (IUCN) hafa samþykkt, við stjórnun svæðisins, yrði það sett í verndarflokk II fyrir vernduð svæði. Í því fælist að svæðinu væri stjórnað með það í huga að vernda vistkerfið og gera það aðgengilegt til afþreyingar. Helstu markmið sem við eiga um svæði af þessu tagi skilgreinir IUCN þannig:
– Að vernda náttúrufar og landslag sem hafa gildi fyrir viðkomandi land og alþjóðlega, til andlegrar upplyftingar, vísindarannsókna, fræðslu, afþreyingar og ferðamennsku.
– Að viðhalda í eins náttúrulegu ástandi og mögulegt er, á dæmigerðum svæðum vegna landmótunar, samfélagi lífvera, erfðaefnum og tegundum og skapa aðstæður fyrir stöðugt og fjölbreytt vistkerfi.
– Að binda enda á og síðar koma í veg fyrir nýtingu eða starfsemi sem er skaðleg þessum markmiðum.
Þessi nálgun yrði í fyllsta samræmi við Ramsarsamninginn og núverandi verndunarmarkmið, þ.e. að þróa og viðhalda alþjóðlega mikilvægum votlendissvæðum sem hafa gildi fyrir varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni á heimsvísu og mannlífs vegna þeirrar þjónustu sem vistkerfi viðkomandi svæða veita til að viðhalda náttúrulegri hringrás vatns og öðrum ferlum sem nauðsynlegir eru öllu lífi. Að gera uppistöðulón á svæðinu, jafnvel þó að það sé gert á grundvelli núverandi hugmynda sem eru umfangsminni er upprunalega var áformað, jafngildir því að Ísland brjóti í bága við ákvæði og framkvæmd Ramsarsamningsins.
Samhliða verndun er unnt að stunda fjölþætta starfsemi sem ekki spillir náttúruarfleið svæðisins, starfsemi sem eykur skilning almennings á náttúru svæðisins og eflir mögleika til að njóta þess sem svæðið býður án þess að ganga í berhögg við reglur sem IUCN setur um vernduð svæði í verndarflokki II. Hefðbundin beit og síðari tíma gönguferðir, fjallaklifur og ferðalög á vélsleðum geta haldið áfram. Í raun tel ég að það sé mögulegt að bæta aðgengi ferðamanna sé það gert með þeim hætti og að því marki sem fellur vel að náttúrulegri arfleifð, vistkerfum og burðargetu svæðisins frá vistfræðilegu sjónarmiði.
Undanfarið hafa verið óformlegar vangaveltur um það hvort hvort tilnefna bæri Þjórsárver til skráningar á heimsminjaskrá UNESCO. Við reglubundið mat norrænnar nefndar (Nordic World Heritage) á níunda áratugnum var svæðið ekki nefnt sem nýtt svæði á heimsminjaskrá. Þótt ég telji Þjórsárver hafa alþjóðlegt gildi, krefst það frekari athugunar að meta hvort þau standist kröfur heimsminjaskrár um einstakt fyrirbæri á heimsvísu. Eiginleikar svæðisins og mikilvægi þess að vistkerfið í heild starfi eðlilega renna traustum stoðum undir umsókn um skráningu þess.
Niðurstaða og tillögur.
Sá hluti Þjórsárvera, sem er verndaður sem Ramsarsvæði og svæðið í heild sem miðast við vatnasviðið suður af Hofsjökli að gljúfurmynni Þjórsár, er svæði sem hefur náttúruverndargildi bæði á landsvísu og alþjóðlega vegna samspils vatnafars, gróðurs og landmótunar á norðurhveli jarðar. Núverandi mörk verndarsvæðisins eru ófullnægjandi og ná ekki að endurspegla þau náttúrulegu verðmæti, útsýni, fegurð og menningu sem svæðið býr yfir. Samþykkja ætti tillögu Umhverfisstofnunar frá 2003 um stækkun svæðisins, sem umhverfisráðherra hafnaði. Til viðbótar ætti að stækka svæðið þannig að það nái til þess hluta Hofsjökuls sem er innan vatnasviðs Þjórsárvera. Svæðið fullnægir skilyrðum þeirra markmiða sem skilgreind eru í verndarflokki II í leiðbeinandi reglum IUCN um vernduð svæði. Miðað við ástand svæðisins í dag eru áhrif mannvirkja á Þjórsárverasvæðið afar lítil. Upprunalegum tillögum um virkjun hefur verið breytt þannig að áhrif fyrirliggjandi hugmynda eru minni en eldri áforma. Þessu ber að fagna. Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að fyrirliggjandi tillaga mun hafa djúpstæð og skaðleg áhrif á vistkerfi, vatnsbúskap og landmótun á svæðinu og einnig eyðileggja sjónrænt og fagurfræðilegt gildi svæðisins. Það kemur því á óvart að viðkomandi yfirvöld, sem veittu ráðgjöf í málinu, hafi getað stutt þessa nýju og smækkuðu útfærslu á framkvæmdum. Niðurstaða mín er sú að núverandi takmörkuð framkvæmdaáform hafi víðtæka eyðileggingu í för með sér. Sjálfstætt, hlutlægt og ítarlegt mat á þessu er nauðsynlegt. Líta verður til hlutlægra og huglægra gilda varðandi samfélag, efnahag, menningu og framkvæmd heildstæðrar kostnaðar- og nytjagreiningar með viðurkenndum aðferðum. Jafnframt þarf að bera þennan virkjunarkost saman við aðra neðar í Þjórsá og á öðrum svæðum á Suður- og Austur-Íslandi þar sem hugsanlega má afla jafnmikillar orku en með minni eyðileggingu fyrir umhverfi svæðisins og menningu er því tengist.
Forsendur skortir til að taka ákvörðun um að samþykkja fyrirliggjandi tillögu á grundvelli þess mats sem fram hefur farið. Setja ætti í forgang aðgerðir sem felli stærra svæði undir verndunarákvæði.
Fylgiskjal II.
Jack D. Ives, ráðgjafi í umhverfismálum og sjálfbærri þróun
við Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tókíó og
rannsóknaprófessor með heiðursnafnbót
við Carleton University í Ottawa:
Skýrsla um heimsókn í Þjórsárver, Íslandi,
23.–30. júní 2004.
Inngangur.
Þessi skýrsla er gerð eftir heimsókn mína til Íslands, dagana 23. til 30. júní 2003, í boði Landverndar, sem eru frjáls félagasamtök er eiga aðild að Alþjóðanáttúruverndarsamtökunum (IUCN). Tilgangur heimsóknarinnar var að aðstoða Landvernd við mat á verndargildi Þjórsárvera. Á þeim átta dögum sem ég hafði til ráðstöfunar fékk ég tækifæri til að skoða mig um í Þjórsárverum og á aðliggjandi svæðum í tvo daga, þar með talin næturdvöl í Setrinu í grennd við Kerlingarfjöll. Ég naut einnig þeirrar góðu fyrirgreiðslu að eiga fundi með íslenskum sérfræðingum og vísindamönnum sem og fulltrúum aðila sem hafa ólíka afstöðu til þessa umdeilda máls sem hér um ræðir. Í þessum hópi voru Björn Stefánsson hjá Landsvirkjun ásamt fjórum sérfræðingum sem fyrirtækið kallaði til og veittu mér einstaklega skýrar og ítarlegar útskýringar á verkfræðilegum þáttum framkvæmdarinnar og tengdum náttúruverndarmálum, einnig stjórnarmenn og starfsmenn Landverndar, Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og starfsmenn ráðuneytisins, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands, Þóra Ellen Þórhallsdóttir og Gísli Már Gíslason prófessorar í Háskóla Íslands, Ragnhildur Sigurðardóttir, ráðgjafi í vistfræði, Guðmundur Páll Ólafsson, rithöfundur og baráttumaður um náttúruvernd, Aðalsteinn Guðmundsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Oddur Hermannsson landslagsarkitekt og Sigþrúður Jónsdóttir, talsmaður áhugahóps um verndun Þjórsárvera. Ég átti einnig samræður við Árna Bragason á Umhverfisstofnun og þá Kristin Hauk Skarphéðinsson og Snorra Baldursson á Náttúrufræðistofnun Íslands.
Til að fullkomna heimsóknina var skipulagt útsýnisflug yfir Þjórsárver og aðliggjandi svæði og naut ég sérlega góðrar yfirsýnar yfir þetta allt úr lofti. Ég hafði einnig aðgang að fjölmörgum vísindaskýrslum og gögnum frá stjórnvöldum.
Ég vil þakka sérstaklega vinsamlegt viðmót og áhugaverð svör sem allir framangreindir aðilar veittu mér.
Þjórsárver: verndun eða mannvirkjagerð?
Þessi fyrirsögn vísar til þeirrar spurningar hvort mannvirkjagerð geti verið með þeim hætti að náð verði ásættanlegum árangri í verndun náttúruverðmæta á svæðinu eða hvort ,,mannvirkjagerð“ og ,,náttúruvernd“ fari alls ekki saman.
Verndarsvæðið í Þjórsárverum, sem nær einungis til hluta af votlendissvæði Þjórsárvera, er frægt um víða veröld, fyrst og fremst vegna þess að það er varpland heiðargæsar (Anser brachyrrynchus) og margra annarra dýrmætra fuglategunda. Tengsl gæsanna við hið öfluga lífríki votlendisins eykur gildi þess. Að mínu mati er það þó staðsetning votlendissvæðisins í eyðimörk á miðhálendi Íslands, við suðurenda Hofsjökuls, sem gefur svæðinu afar óvenjulega náttúrulega umgjörð þar sem fram koma sterkar andstæður: svartir eyðimerkursandar, jökulhettur og sífrerafyrirbæri, gróskumikill grænn svörður og fjallahringur í fjarska. Mér kemur í hug samanburður við nokkur svæði heims sem eru fræg vegna landslags: hlutar Tíbetsléttunnar, Sagarmatha (Mt. Everest) þjóðgarðurinn, jökulkrýnd eldfjöll í Andesfjöllum og Altiplano-hásléttan, norðausturhluti Baffineyjar og Yellowstone-þjóðgarðurinn í Bandaríkjunum.
Athygli vekur að núverandi mörk friðlandsins eru beinar línur sem hafa verið dregnar með tilviljunarkenndum hætti þvert yfir náttúrlega heildstæð svæði og ná hvorki yfir votlendið í heild né heldur til aðliggjandi eyðisanda og jökla. Hefðu mörkin verið vel skilgreind frá upphafi hefðu ekki risið þær deilur sem nú eru uppi um nýtingu vatnsafls þarna.
Því hefur verið haldið fram að vatnsaflsvirkjanir á svæðinu hafi fram að þessu ekki haft nein afgerandi áhrif á náttúrleg ferli votlendisins, jafnvel frá sjónarhóli róttækustu náttúruverndarsinna. Virkjun vatnsfalla suðaustur af Þjórsá hefur einkum þjónað þeim tilgangi að bæta aðgengi að svæðinu. Þróun virkjunaráætlana Landsvirkjunar um nýtingu meginstraums árinnar og veranna á svæðinu við Hofsjökul þykir hafa sýnt að fyrirtækið taki tillit til umhverfismála. Áformað lón við Norðlingaöldu mun hafa mjög takmörkuð áhrif á votlendið innan friðlandsmarka í samanburði við fyrri áætlanir. Mér var sýnt með áhrifamiklu tölvulíkan hvernig skola má aur úr lóninu miðað við þessa nýju útfærslu.
Þetta lón (Norðlingaöldulón) er þó ekki það sem margir vísindamenn telja vera þann hluta verkefnisins er hugsanlega kynni að valda mestum skaða. Gert er ráð fyrir tveimur minni lónum austan við friðlandsmörkin. Annað lónið liggur rétt við mörkin. Báðum lónunum fylgja stíflur og veituskurðir. Úr þessum lónum þarf að hreinsa aur og sand, á a.m.k. tuttugu ára fresti. Við þessa hreinsun þarf að koma sandi, seti og aur fyrir á áreyrum. Þessi mannvirki yrðu staðsett rétt austur af Arnarfelli og yrðu áreiðanlega meiriháttar sjónmengun öllum þeim sem ganga á 1,150 metra hátt fjallið til að njóta einhvers tilkomumesta útsýnis á Íslandi. Til viðbótar mun þessi framkvæmd, til langs tíma litið, leiða til þess að efsti hlut vatnsfarvegs Þjórsár verður mikið til þurr á um 8 km löngum kafla neðan stíflnanna og vatnsflæðið verður verulega takmarkað í u.þ.b. 4 km til viðbótar þar fyrir sunnan. Mestur hluti þessa svæðis liggur innan núverandi marka friðlandsins. Vatnsfarvegurinn er 1 til 1,5 km breiður og talsverð hætta er á því að kaldir og þurrir (og tíðir) norð-austanvindar blási sandi og seti yfir sum gróskumestu svæði veranna.
Það væri að bera í bakkafullan lækinn að greina í þessari skýrslu frá öllum þeim vísindalegu niðurstöðum sem safnast hafa saman undanfarin ár. Ég læt því nægja að nefna helstu þætti sem einkenna svæðið:
1. Mikil líffræðileg fjölbreytni, þar með talinn freðmýragróður og háfjallagróður, sem nær upp í óvanalega mikla hæð í Arnarfelli.
2. Fuglalíf sem er þekkt um víða veröld.
3. Sífreri, þar með taldar freðmýrarústir.
4. Fjölbreytilegt skordýralíf.
5. Staðbundin eldfjallavirkni, heitir hverir meðtaldir.
6. Menningarminjar sem sýna hvernig fuglar voru fangaðir á öldum áður.
7. Landslagið.
Með tilliti til þess að ég hef starfað sem landmótunarfræðingur í meira en hálfa öld beini ég athyglinni að síðasta liðnum (nr. 7). Ég vísa til ferða minna um allan heim og legg áherslu á að þetta svæði sem markast af Kerlingafjöllum, Hofsjökli og Þjórsárverum, séð frá hæðardragi suð-austan við Þjórsá (til dæmis frá Sóleyjarhöfða) er eitt tignarlegasta og andlega mest örvandi landslag veraldar. Ég geri ráð fyrir því að ef mörk friðlandsins yrðu stækkuð þannig að þau næðu til Kerlingarfjalla, hluta aðliggjandi eyðisanda, og alls Hofsjökuls væri um að ræða svæði sem kæmi sterklega til greina til skráningar á Heimsminjaskrá UNESCO.
Væri hugsanlegt að finna leið sem gerði slíka skráningu mögulega og á sama tíma framkvæma þær áætlanir sem Landsvirkjun hefur uppi á svæðinu og hafa í för með sér nokkra skerðingu þess? Framkvæmdaáformin virðast einungis snerta mörk friðlandsins lítillega en þau munu hafa afar djúpstæð sjónræn áhrif vegna nyrðri lónanna tveggja, stíflna og veituskurða og vatnsþurrðar í efri hluta farvegs Þjórsár. Ég get ekki veitt ótvírætt svar við þessari spurningu en bendi á að fjölmörgum ríkisstjórnum hefur mistekist að fá svæði skráð á Heimsminjaskrána vegna þess að UNESCO/IUCN fylgja sífellt stranglegar eftir samþykktum stöðlum fyrir slík svæði. Úr þessu fæst ekki skorið nema ríkisstjórn Íslands leggi fram formlega umsókn. Mikilvægt er að hafa í huga að hefji Landsvirkjun framkvæmdir yrðu þær líklega óafturkræfar og gætu þar með komið í veg fyrir að ríkisstjórnin, í samstarfi við viðkomandi sveitarstjórnir, næði þessari virðingarmiklu viðurkenningu fyrir þetta „hjartagull“ Íslands.
Niðurstaða.
Þar sem ég er ekki hlutlaus gestur kynni að þykja óæskilegt að ég veiti ákveðin ráð í þessu máli. Einnig ber þess að geta að bent hefur verið á fjölmarga valkosti við núverandi áform. Hafa verður þó í huga að Ísland er nú þekkt fyrir að búa yfir miklum víðernum og ígildum víðerna sem eru tiltölulega aðgengileg frá Evrópu og Norður-Ameríku. Síðan hinir hörmulegu atburðir áttu sér stað 11. september 2001 virðist sem sú almenna trú að landið sé öruggur ferðakostur á þessum tímum hryðjuverka, auki vinsældir þess sem áningastaðar. Ferðaþjónusta, einkum sú tegund er tengist ævintýrum og náttúru, virðist vera sá hluti efnahagslífsins er eigi í vændum verulegan vöxt. Aðdráttarafl Íslands myndi aukast að mun við það að tiltekin svæði yrðu færð á Heimsminjaskrá. Loks vekja þær gífurlegu framfarir sem orðið hafa í nýtingu jarðvarmaorku spurningar um hvort efnahagslegar forsendur séu þær að enn sé þörf fyrir að virkja vatnsföll. Altént ætti að bíða með frekari framkvæmdir í Þjórsárverum þar til kannað hefur verið til hlítar hvort svæðið býr yfir þeim kostum að eiga heima á Heimsminjaskrá.
Fylgiskjal III.
Gísli Már Gíslason,
prófessor í vatnalíffræði við HÍ:
Sátt um virkjanir og náttúruvernd.
(Grein í Morgunblaðinu 30. júlí 2004.)
Í tímabærri forystugrein í Morgunblaðinu 26. júlí er fjallað um álver og virkjanaframkvæmdir. Morgunblaðið spyr hvort það sé ,,tilraunarinnar virði að leiða saman stuðningsmenn og andstæðinga framkvæmda sem þessara“ til að brúa bilið milli hópanna og hvort það sé ,,hugsanlegt að iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra geti í sameiningu sett af stað samráðsferli, sem hafi það að meginmarkmiði að ná slíkri sátt“. Ég tek undir með Morgunblaðinu að það er löngu orðið tímabært að komast að samkomulagi um hvaða ár og háhitasvæði eigi að nýta til virkjana, og hverjum eigi að ráðstafa til annarra nota, svo sem friðunar. Sem betur fer komu iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra á því samráðsferli árið 1999 sem Morgunblaðið telur nauðsynlegt til að ,,ná sátt um þessi stóru mál“. Ráðherrarnir settu á fót starfshópa um röðun vatnsaflsvirkjana og háhitasvæða m.t.t. náttúruverndar, orkugetu, hagnaðar af orkuvinnslu, ferðaþjónustu og annarrar landnýtingar. Starfið nefndist ,,Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Maður – nýting – náttúra“. Fyrsti áfangi verkefnisins var birtur í janúar sl. Hann fjallaði um þá virkjanakosti sem búið var að útfæra nokkuð nákvæmlega. Allir sem hafa skoðað þessa skýrslu, þar á meðal sérstakur starfshópur á vegum Landsvirkjunar, eru sammála um að niðurstöðurnar séu trúverðugar.
Í framhaldi af fyrsta áfanga er rétt að fara sömu leið og Norðmenn gerðu um miðjan 9. áratuginn og friðlýsa þau svæði sem hafa hátt náttúruverndargildi og lítil eða miðlungs orkuverðmæti. Morgunblaðið nefnir sérstaklega Þjórsárver og andstöðu við virkjanaáform þar. Um Þjórsárver er það að segja að um verndun þeirra náðist samkomulag, sem m.a. fólst í því að nýta vatn Þjórsár með því að veita því í Þórisvatn og hlífa verunum vestan Þjórsár. Þjórsárver voru friðlýst 1981 samkvæmt Náttúruverndarlögum og síðar tilnefnd sem alþjóðlega mikilvægt votlendi samkvæmt Ramsarsamningnum, sem felur í sér alþjóðlegar skuldbindingar um verndun þeirra. Þjórsárver fengu mjög háa einkunn sem náttúruverðmæti í 1. áfanga Rammaáætlunar, en meðaleinkunn hvað varðar hagnað og litla orkugetu (sambærilegt við Kröflustöð). Einnig fengu Jökulsá á Fjöllum, Jökulsá á Dal og Markarfljót háa náttúruverndareinkunn, sem og nokkur jarðhitasvæði (t.d. Torfajökulssvæðið). Margir virkjanakostir fengu lága náttúruverndareinkunn, en háa einkunn fyrir hagnað af orkuvinnslu. Landsvirkjun getur því valið milli margra virkjunarkosta án þess að eyðileggja náttúruperlur.
Ég fagna því að Morgunblaðið hefur hafið þessa umræðu á ný, því það nær engri átt að styrjaldarástand skapist um hverja virkjun sem ákveðið er að ráðast í. Miklu nær er að ákveða strax hvaða ár og háhitasvæði verði nýtt til orkuöflunar, og gerðar verði áætlanir um þessa nýtingu. Einnig þarf að taka frá strax með friðlýsingu eða lögum, þau svæði sem menn eru sammála um að séu náttúruperlur sem ekki sé réttlætanlegt að eyðileggja. Að lokum eru svæði sem þarf að athuga betur m.t.t. orkugetu og náttúruverndar og hvort hægt sé að útfæra orkunýtingu á þann hátt að náttúruverndargildi skerðist lítið. Þjórsárver voru einmitt dæmi um slíkt, þegar Þjórsá var nýtt án mikillar eyðileggingar með Kvíslaveitu samkvæmt samkomulagi Landsvirkjunar við Náttúruverndarráð og sveitarstjórnir og upprekstrarfélög heimamanna.
Upphaflega ætlaði Landsvirkjun að gera 200 ferkílómetra lón í Þjórsárverum sem hefði fært öll Þjórsárver á kaf upp að jökli. Þetta lón átti að sjá 220 MW virkjun í Þjórsá, Gljúfurleitarvirkjun, fyrir vatni. Eftir þrýsting frá Náttúruverndarráði og alþjóðasamtökum um náttúruvernd var gert samkomulag um Kvíslaveitu. Nú er búið að taka burt 40–50% af því vatni sem áður rann um Þjórsárver og veita því um Kvíslaveitu í Þórisvatn og síðan í Vatnsfellsstöð (90 MW), Sigöldustöð (150 MW), Hrauneyjafossstöð (210 MW) og í framtíðinni Búðarhálsstöð (60 MW). Þarna fékkst miklu betri nýting og Þjórsárverum vestan Þjórsár var borgið í bili. Aftur á móti fóru ver austan Þjórsár undir vatn og Eyvindarkofaver og Þúfuver hafa misst árnar sem um þau runnu. Í þessu tilfelli náðist samkomulag sem Landsvirkjun hagnaðist verulega á og vesturhluta Þjórsárvera var forðað frá kaffæringu.
Ef farið verður í framkvæmdir á Norðlingaölduveitu og nýjum áfanga Kvíslaveitu verður bætt við, er verið að seilast inn í Þjórsárver vestan Þjórsár í bága við samkomulagið frá 1981. Aukning í rafmagnsframleiðslu verður lítil eða engin ef ekki er hægt að geyma vatnið í Þórisvatni, en það hefur orðið fullt á tímabilinu frá mars og fram í júní síðan seinasta áfanga Kvíslaveitu var lokið árið 1996. Því virðist Norðlingaölduveita vera ásókn Landsvirkjunar í vatn sem ekki er hægt að nýta nema að litlum hluta. Norðlingaölduveita er í andstöðu við niðurstöðu 1. áfanga Rammaáætlunarinnar. Þarna er Landsvirkjun að vinna gegn markmiðum iðnaðar- og umhverfisráherranna að ná sátt um virkjanaframkvæmdir. Er ekki kominn tími til að Landsvirkjun sætti sig við niðurstöður 1. áfanga Rammaáætlunar, þeirrar sáttagerðar sem Morgunblaðið er að kalla eftir?
Fylgiskjal IV.
Ályktun Áhugahóps um verndun Þjórsárvera.
(6. september 2003.)