Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 93. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 231 — 93. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um breytingar á húsnæðismarkaði.
Svarið er byggt á upplýsingum frá Íbúðalánasjóði.
1. Hve margir hafa greitt upp lán hjá Íbúðalánasjóði síðan 23. ágúst þegar KB-banki kynnti ný húsnæðislán? Um hvaða fjárhæðir er að ræða og hvernig skiptist uppgreiðslan milli lánaflokka?
Nákvæmar upplýsingar um fjölda lána eða lántakenda sem hafa greitt upp lán sín hjá Íbúðalánasjóði frá 23. ágúst sl. til loka september liggja ekki fyrir hjá sjóðnum. Uppgreiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði frá 23. ágúst sl. námu um síðustu mánaðamót 13,2 milljörðum kr. Uppgreiðslurnar skiptust þannig að 1,7 milljarðar kr. eru uppgreidd lán Byggingarsjóðs ríkisins, 0,7 milljarðar eru lán Byggingarsjóðs verkamanna og 10,9 milljarðar eru lán húsbréfadeildar.
2. Hvaða breytingar hafa orðið á hlutdeild Íbúðalánasjóðs í nýjum lánveitingum með aukinni samkeppni við bankana og hvernig má ætla að þróunin verði á þessu og næsta ári?
Almenn íbúðalán Íbúðalánasjóðs í ágúst sl. voru 5.081 millj. kr. en 4.610 millj. kr. sama mánuð árið áður og í september 4.328 millj. kr. en 5.320 millj. kr. árið áður. Við þennan samanburð ber að hafa í huga að septembermánuður 2003 var með stærstu útlánamánuðum sjóðsins frá stofnun hans.
Í ljósi þess að fjármálafyrirtæki hafa engar skyldur til að upplýsa um nýjar lánveitingar sínar á íbúðalánamarkaðnum og hafa ekki veitt neinar upplýsingar þar að lútandi hefur Íbúðalánasjóður engar forsendur til að segja til um hugsanleg áhrif aukinnar samkeppni á íbúðalánamarkaðnum og um áhrif á hlutdeild sjóðsins í nýjum lánveitingum. Þegar fram líða stundir og upplýsingar um fasteignaviðskipti og lánveitingar fjármálafyrirtækja verða fyrirliggjandi hjá öðrum opinberum aðilum, eins og Fasteignamati ríkisins og Seðlabanka Íslands, væri hins vegar möguleiki á að gera greiningu á þeirri þróun.
Í þessu sambandi er einnig nauðsynlegt að hafa í huga nýlegar breytingar á lánum Íbúðalánasjóðs og fyrirhugaða hækkun á lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs í 90% af kaupverði. Hámarkslánsfjárhæðir almennra lána voru hækkaðar þann 14. október sl. í 11,5 millj. kr. og í 13 millj. kr. ef jafnframt er veitt viðbótarlán. Jafnframt var viðmiðun við brunabótamat hækkað úr 85% í 100% af brunabótamati íbúðar. Þessar breytingar munu væntanlega stuðla að meira jafnræði milli sjóðsins annars vegar og fjármálafyrirtækjanna hins vegar. Þó mun ótakmörkuð lánsfjárhæð fjármálafyrirtækjanna áfram veita þeim nokkuð forskot á Íbúðalánasjóð á meðan lán sjóðsins eru bundin ákveðnu hámarki og á meðan útlánavextir endurspegla ekki muninn á alþjóðlegu lánshæfismati Íbúðalánasjóðs annars vegar og fjármálafyrirtækjanna hins vegar.
3. Að hve miklu leyti ná tilboð banka og sparisjóða um lægstu vaxtakjör húsnæðislána og ótakmarkaðar lánsfjárhæðir (miðað við tilskilin veðmörk) til landsbyggðarinnar að mati Íbúðalánasjóðs og hvaða áhrif hefði það á húsnæðismarkaðinn á landsbyggðinni ef lánveitingar Íbúðalánasjóðs legðust af?
Íbúðalánasjóður hefur engar upplýsingar um lánveitingar banka og sparisjóða til landsbyggðarinnar. Ein af grundvallarforsendum starfsemi Íbúðalánasjóðs er að veita öllum landsmönnum jafnan rétt á lánum og sömu lánskjör óháð búsetu. Augljóst er að Íbúðalánasjóður hefur verið bakhjarl húsnæðismarkaðar á landsbyggðinni. Engar upplýsingar liggja fyrir um það með einhverri vissu að hve miklu leyti tilboð bankanna ná til landsbyggðarinnar. Kemur þar til að samkvæmt heimasíðum fjármálafyrirtækjanna er mjög misjafnt hvernig markaðssvæði íbúðalánanna er skilgreint og oft á tíðum mjög óljóst hvar mörkin liggja.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 231 — 93. mál.
Svar