Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 227. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 233  —  227. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um rannsóknarstofu heilsugæslunnar í Reykjavík.

Frá Ástu Möller.



    Hvað réð því að ekki var farið að stefnu heilbrigðisráðuneytis um útboð við kaup á sérfræðiþjónustu þegar rannsóknarstofa heilsugæslunnar í Reykjavík var lögð niður sl. sumar og samningur gerður við Landspítala – háskólasjúkrahús um að spítalinn tæki við rekstri hennar?